Morgunblaðið - 06.11.2005, Qupperneq 20
20 SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Verðlaunasýning Vesturports
á Litla sviðinu í kvöld!
Brim
M
ikill hiti er í
frönskum
úthverfum
sem og
frönskum
stjórnmál-
um þessa
dagana.
Það sem í upphafi voru skrílslæti af-
skiptra hópa hefur breyst í margra
daga óeirðir í úthverfum Parísar og
hefur innanríkisráðherra Frakk-
lands, Nicolas Sarkozy, verið sakaður
um að kynda undir bál reiðinnar hjá
þeim fjölda ungmenna sem stendur
að baki óeirðunum.
Athyglisvert þykir að aðilar innan
ríkisstjórnarinnar virðast nota at-
burðina sem stökkpall fyrir forseta-
kosningarnar árið 2007 í stað þess að
takast á við raunveruleg félagsleg og
efnahagsleg vandamál sem margir
telja að séu orsök óeirðanna.
Forsaga málsins er sú að 27. októ-
ber létu tvö ungmenni lífið í lögreglu-
eftirför. Atburðirnir í Saine-Saint-
Denis norðaustan við París hafa vak-
ið reiði en þó hvergi nærri jafnmikla
reiði og viðbrögð ríkisstjórnarinnar
sem í fyrstu neitaði að lögreglan ætti
þátt í því hvernig dauða ungmenn-
anna bar að. Nokkrum dögum síðar
fór atburðarásin að taka á sig skýrari
mynd. Svo virðist sem lögreglan hafi
veitt þremur ungmennum tilefnis-
lausa eftirför og að þau hafi leitað
skjóls í rafstöð þar sem tvö þeirra
hlutu banvænt raflost. Lögreglan er
sökuð um að hafa vitað um hættuna
og ekki komið ungmennunum til
bjargar í tæka tíð. Ummæli innanrík-
isráðherrans Sarkozy að morgni 28.
október, þar sem hann gengur að því
vísu að ungmennin hafi átt þátt í til-
raun til innbrots og að lögreglan hafi
á engan hátt tengst dauða þeirra,
þykja einnig bera vott um fordóma og
sinnuleysi stjórnvalda gagnvart af-
skiptum hópum sem búa í úthverfum
höfuðborgarinnar.
Sarkozy, sem þykir harður í horn
að taka, hafði nokkrum dögum áður
lofað að losa íbúa Argenteuil-úthverf-
isins við „óþjóðalýð“ og „götustráka“
sem yllu ástandi sem ekki yrði lengur
þolað í úthverfum Parísar. Þykja
þessi ummæli í besta falli vanhugsuð
og lýsa vanþóknun á ungum íbúum
úthverfanna sem oft glíma við mikið
atvinnuleysi og erfiðar félagslegar
aðstæður. Einnig er Sarkozy gagn-
rýndur fyrir að æsa upp óeirðasegg-
ina með ógnunum um aukið lögreglu-
vald og niðrandi orðum í stað þess að
reyna að stilla til friðar og koma með
varanlegar lausnir á vandamálunum
sem hafa grafið um sig í þessum sam-
félögum.
Tvöfalt meira atvinnuleysi
Úthverfin sem um ræðir eru nefnd
„viðkvæmu úthverfin“ og eru í kring-
um París. Þau eru 751 talsins og þar
búa um 5 milljónir manna. Meðal
þessara hverfa eru einhver hverfi
innan Val-d’oise- og Saine-Saint-
Denis-héraðanna en þar hafa óeirð-
irnar verið hvað verstar. Óeirðasegg-
irnir eru ungt fólk, sem glímir við
mikið atvinnuleysi og erfiðar fé-
lagslegar aðstæður. Þá gildir einu
hvort fólk er útskrifað eftir 5 ára há-
skólanám eða ómenntað, reiðin virð-
ist einnig brjótast út hjá þeim sem
hafa góða menntun en finnst sér vera
mismunað þar sem erfiðlega gengur
að komast á atvinnumarkaðinn þegar
komið er úr „viðkvæmu“ úthverfi. At-
vinnuleysi á þessum slóðum er yfir
20% sem er tvöfalt hærra en annars
staðar í Frakklandi. Einnig er hátt
hlutfall íbúanna innflytjendur og um
12% skólabarna eru af erlendum upp-
runa, en 4% í öðrum frönskum skól-
um.
Ekki er nægilegur stuðningur í
þessum skólum til að koma til móts
við sérþarfir barnanna sem mörg
glíma við námsörðugleika og hætta
því ung námi. Vegna fátæktar og
mikils atvinnuleysis virðist framtíðin
ekki mjög björt, mikið er um afbrot
og gengi úr mismunandi hverfum
takast reglulega á með tilheyrandi of-
beldi og óspekt sem skapar ófremd-
arástand fyrir aðra íbúa hverfanna.
Gripið hefur verið til einhverra að-
gerða af hálfu ríkisstjórnarinnar. Í
sumum tilvikum er boðið upp á
heimavistarskóla fyrir börn á grunn-
skólaaldri sem gerir þeim kleift að
stunda nám en einnig að komast úr
daglegu umhverfi sem getur haft nei-
kvæð áhrif á þau og hefur verkefnið
sýnt góðan árangur. Bæjaryfirvöld-
um viðkvæmu hverfanna er gert
kleift að ráða fjölda stuðningsfull-
trúa, félagsráðgjafa og leiðbeinenda
sem eru unglingum innan handar og
hafa jákvæð áhrif á samfélagið.
Einnig stendur til á næstu þremur
árum að jafna við jörðu um 30 þúsund
híbýli í svokölluðum turnum, blokk-
um sem hýsa þúsundir manna á tug-
um hæða. Í stað þeirra verður íbúun-
um boðið upp á vænlegri vistarverur í
raðhúsum eða félagslegum íbúðum
því turnblokkirnar þykja ekki sér-
staklega vistvænar.
Ekki er þó nóg að gert og nýleg
skýrsla á vegum félagsmálaráðu-
neytisins sýnir að leggja verður
áherslu á menntun unga fólksins, at-
vinnutækifæri, gott húsnæði og bar-
áttu gegn upplausn ungmenna og af-
brotum til að ná árangri í bættu
líferni í úthverfunum. Ríkisstjórnin
mun á næstu vikum kynna hvernig
hún ætlar sér að ná þessum mark-
miðum.
Lögreglan harkaleg
Í óeirðunum sem hafa staðið í rúma
viku hefur algjört ófremdarástand
ríkt í úthverfum Parísar. Kveikt hef-
ur verið í bílum, strætisvögnum,
ruslatunnum og lögreglustöðvum, til
stimpinga hefur komið milli lögreglu
og misstórra hópa ungmenna, óeirða-
seggir hafa ráðist að slökkviliðs-
mönnum, blaðamönnum og lögreglu
með steinum og bareflum og lög-
reglumenn segja að skotið hafi verið
að þeim. Táragasi var beitt inni í
mosku fyrr í vikunni og lögreglan er
sökuð um óþarfa hörku og virðing-
arleysi. Ástandið er alvarlegt og eld-
fimt og haft er eftir Nicolas Sarkozy í
Le Monde á fimmtudag að spennan
hafi verið að magnast undanfarin
misseri og þessar óeirðir séu óhjá-
kvæmileg afleiðing þess. Ótímabær
dauði ungmennanna í Clichy-sous-
bois var aðeins kornið sem fyllti mæl-
inn. Frá því í janúar á þessu ári hafa
um 70 þúsund tilvik óeirða og götu-
ofbeldis verið skráð í þéttbýlum
Frakklands og mikið er um að ráðist
sé á lögreglu. Einnig hafa stríð milli
svokallaðra hverfagengja verið að
færast í aukana og ekki er vitað um
ástæður þessa. Erfiðlega gengur að
takast á við vandann þar sem meiri-
hluti vandræðaunglinganna er undir
lögaldri og einnig hefur sú ákvörðun
stjórnvalda að leggja niður hverfis-
lögregluna verið gagnrýnd. Lög-
regluyfirvöld sem takast á við þessa
hópa eru ekki í stakk búin til þess að
vinna nægilega vel á vandanum og
undir leiðsögn innanríkisráðherrans
bregðast þau við af mikilli hörku.
Villepin gegn Sarkozy
Í fyrstu leit ekki út fyrir að frönsk
stjórnvöld væru að bregðast nægi-
lega fljótt við og óeirðirnar færðust í
vöxt með hverri nóttinni sem leið.
Íbúum úthverfanna fannst málefnum
þeirra ekki sinnt og ríkistjórnin var
harðlega gagnrýnd fyrir að eyða tíma
í persónulegar árasir í stað þess að
takast strax á við alvöruvandamál.
Dominique De Villepin forsætis-
ráðherra og fylgismenn hans hafa
ítrekað gagnrýnt innanríkisráðherr-
ann Sarkozy opinberlega, nú síðast
Stjórnvöldum brigslað um
fordóma og sinnuleysi
Fréttaskýring | Óeirðirnar í
úthverfum Parísar hafa
beint kastljósinu að fé-
lagslegum erfiðleikum íbúa
úthverfanna. Fátækt og at-
vinnuleysi er mikið og segir
Sara Kolka, sem er í borg-
inni, að stjórnvöldum sé að
nokkru leyti kennt um
hvernig komið er. Rík-
isstjórnin hefur nú ákveðið
að leita leiða til að finna
varanlegar lausnir.
Kveikt hefur verið í bílum, strætisvögnum, ruslatunnum og lög-
reglustöðvum og til stimpinga hefur komið milli lögreglu og hópa ung-
menna.
Reuters
Óeirðirnar hafa staðið í rúma viku og ríkir algjört ófremdarástand í "við-
kvæmum" úthverfum Parísarborgar.
’Ótímabær dauði ung-mennanna í Clichy-sous-
bois var aðeins kornið
sem fyllti mælinn. Frá
því í janúar á þessu ári
hafa um 70 þúsund til-
vik óeirða og götuof-
beldis verið skráð í þétt-
býlum Frakklands og
mikið er um að ráðist sé
á lögreglu.‘