Morgunblaðið - 06.11.2005, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2005 27
M
IX
A
•
fí
t
•
5
0
9
7
2
Starfsmenntaverðlaunin 2005
Starfsfólki Landsvirkjunar er það mikill heiður að
fyrirtækið hlaut Starfsmenntaverðlaunin 2005 fyrir
öflugt fræðslustarf. Þessi viðurkenning er Lands-
virkjun og þeim sem þar starfa hvatning til að halda
áfram á sömu braut.
Starfsmenntaráð og Mennt standa að
afhendingu Starfsmenntaverðlaunanna ár
hvert, en þau eru hugsuð sem hvatning fyrir
þá sem þykja vinna framúrskarandi starf á
sviði starfsmenntunar.
Starfsmenntun er ein af undirstöðum
framþróunar í atvinnulífinu. Með því að styðja
við nýsköpun og framþróun starfsmenntunar
á Íslandi er hægt að bæta verkkunnáttu
og auka hæfni starfsmanna.
Kærar þakkir!
Rjúpnaveiðitíminn er nú u.þ.b. hálfn-aður og margir veiðimenn búnir aðleggja byssuna á hilluna eftir aðhafa náð „kvótanum“ fyrr en þeir
gerðu kannski ráð fyrir.
Ýmsar tröllasögur hafa verið á kreiki með-
al veiðimanna um gríðarlegt magn af fugli
og víst er að margir veiðimenn hafa háð erf-
itt stríð við samvisku sína um að hætta veið-
um þó nóg væri af rjúpu og drjúgt eftir af
deginum. Þá er hollt að minnast þess að eng-
inn er að bjarga lífi sínu með veiðum, þetta
er útivist og sportveiðar eingöngu og magnið
skiptir ekki máli þó vissulega sé það hægara
sagt en gert þegar veiðigleðin grípur menn.
Góðu fréttirnar eru þó þær að langflestir
veiðimenn hafa stillt veiðum sínum vel í hóf
og menn eru almennt mjög vel meðvitaðir
um afleiðingar þess að stunda hömlulausar
veiðar, þá verður gripið í taumana ofanfrá
og veiðarnar bannaðar að nýju eða takmark-
aðar enn frekar svo erfiðara verður að
stunda þær en nú er. Sölubannið virðist líka
hafa skilað tilætluðum árangri því sann-
arlega munar um það þegar rjúpur eru ekki
lengur til sölu í verslunum eða á villibráð-
arhlaðborðum veitingahúsanna; sölu á fáein-
um fuglum á milli einstaklinga er aldrei
hægt að koma í veg fyrir og skiptir engum
sköpum í stjórnun rjúpnaveiðanna. Fjöl-
miðlar ættu einnig að huga að ábyrgð sinni í
þessu efni og hlaupa ekki eftir ýkjusögum
um uppsprengt verð svo menn fái ekki of-
birtu í augun yfir hugmyndum um vænt-
anlegan gróða. Önnur hlið á sölubanni á
rjúpum er sú að önnur villibráð verður eft-
irsóttari fyrir vikið og verða yfirvöld að huga
að því að ekki verði gengið of nærri öðrum
veiðifuglastofnum nú í framhaldinu. Er nán-
ast fremur tímaspurning hvenær sala á allri
villibráð verður bönnuð til að koma böndum
á magnveiði hvar sem bólar á henni.
Það er einnig ljóst að rjúpnaveiðin nýtur
mun meiri athygli almennings og aðhalds
fjölmiðla eftir að hún var leyfð að nýju en
fyrir bannið. Magnveiðimönnum er því erf-
iðara um vik að stunda iðju sína og vonandi
verða sem fæstir til þess að kaupa rjúpur af
þeim sem veitt hafa langt umfram eigin þörf.
Eftirlit stjórnvalda hrekkur skammt ef al-
menningur tekur ekki þátt í veiðistjórn-
uninni með því að höfða til samvisku veiði-
manna og leiða má líkum að því að margar
fjölskyldur hafi hreinlega tekið þá ákvörðun
að hafa annað í jólamatinn en rjúpur eftir að
hafa vanist því um tveggja ára skeið. Sá er
hér ritar lýsir í raun yfir von sinni um að eft-
irspurn eftir rjúpum minnki ef það mætti
verða til þess að draga úr veiðunum því hóf-
legar veiðar eru eina leiðin til að tryggja að
hægt verði að stunda rjúpnaveiðar um
ókomin ár.
Frá því rjúpnaveiðitíminn hófst 15. októ-
ber hefur veiðimönnum staðið til boða að
skrá dagsveiði sína inn á rafræna veiði-
dagbók Veiðistjórnunarsviðs Umhverf-
isstofnunar. Áki Ármann Jónsson for-
stöðumaður Veiðistjórnunarsviðs segir að
veiðimenn hafi brugðist vel við þessari nýj-
ung og færslur séu nú orðnar um 300.
„Tilgangurinn með veiðidagbókinni er að
sjá hvert heildarmagn veiðanna er en einnig
að átta sig á veiðiálaginu og hvernig það
skiptist eftir dögum. Það kemur kannski
fáum á óvart að álagið er mest um helgar og
að menn eru að veiða 1 rjúpu á klukkutíma
að meðaltali,“ segir Áki Ármann.
Hann segir að veiðimenn virðist almennt
virða tilmælin um að veiða ekki fleiri en 15
rjúpur en þó verði að gera ráð fyrir skekkju
sem stafi af því að þeir sem veiði meira skrái
ekki veiðina.
„Það sem kemur mest á óvart við veið-
arnar í haust er að menn eru ekki að sjá eins
mikið af rjúpum og búist var við. Ólafur
Nielsen fuglafræðingur hélt erindi á Húsa-
vík á ársfundi Náttúrustofu á föstudags-
kvöldið og þar kom fram að
hlutfall fullorðinna fugla í veiðinni það
sem af er tímabilinu væri hærra en gera
mátti ráð fyrir. Þessar rannsóknir Ólafs
byggjast á því að veiðimenn sendi honum
væng af hverjum fugl sem veiddur er því af
vængjunum eru fuglarnir aldursgreindir.
Því meira af vængjum sem veiðimenn senda
inn því skýrari mynd fæst af áhrifum veið-
anna á stofninn í haust þegar borið verður
saman við niðurstöður af talningum á rjúp-
um næsta vor. Ég vil því hvetja veiðimenn til
að senda sem mest af vængjum svo sem
skýrastar niðurstöður fáist.“
Talning á gæsum
Núna um helgina, 5. og 6. nóvember,
verða grágæsir taldar á Bretlandi. Arnór
Sigfússon fuglafræðingur sem hefur stundað
rannsóknir á gæsum hérlendis um árabil og
hefur því beðið fuglaáhugamenn og veiði-
menn að fylgjast vel með um helgina af eft-
irfarandi ástæðum.
„Það er mikilvægt að vita hvort eitthvað
verulegt magn af gæsum sé enn hér á landi
svo unnt sé að taka það með í reikninginn.
Því vil ég óska eftir því að þeir veiðimenn
sem verða varir við gæsir á næstu dögum
láti mig vita. Gott væri að vita hvar og hve-
nær menn sáu gæsir, og hve margar menn
telja að þær hafi verið, nú og svo hvaða teg-
und sást. Einnig er mikilvægt að heyra ef
menn sjá engar gæsir þar sem þeirra væri
annars von. Ég mun svo taka saman þær
upplýsingar sem ég fæ og senda talning-
araðilum á Bretlandi sem eru Wildfowl &
Wetlands Trust auk þess sem ég mun senda
þeim sem senda mér upplýsingar samantekt
seinna.“
Upplýsingar má senda á arnor@vst.is eða
hafa samband við Arnór í síma 894-9960.
SKOTVEIÐI | MARGIR RJÚPAVEIÐIMENN BÚNIR AÐ LEGGJA BYSSUNA Á HILLUNA EFTIR AÐ HAFA NÁÐ „KVÓTANUM“
Rjúpnavængir
og gæsatalning
Eftir Hávar Sigurjónsson
havar@mbl.is
Morgunblaðið/Ingó
Rjúpnaveiðimenn eru hvattir til að senda Nátt-
úrufræðistofnun væng af öllum felldum rjúpum.