Morgunblaðið - 06.11.2005, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2005 35
FRÉTTIR
Afburða árangur í rekstri
Markmiðum náð með aðferðum árangursstjórnunar
Fyrirlesarar:
How to improve your business
Ejner Jacobsen, Center for Ledelse
Post Danmark - A journey towards Excellence
Ole Schmidt Pedersen, Post Danmark
Erindi dönsku fyrirlesarana fara fram á ensku.
Stjórnunaraðferðir - Brot af því besta
Ragnheiður Halldórsdóttir, Marel
Fundarstjóri er Sigrún Ósk Sigurðardóttir
aðstoðarforstjóri Á.T.V.R.
Ráðstefna á vegum Stjórnvísi á Grand Hótel Reykjavík,
fimmtudaginn 10. nóvember kl. 8:30 - 11:50.
Kl. 8:30 afhending ráðstefnugagna
Kl. 8:45 fundarstjóri býður gesti velkomna
Verð kr. 7.500,- fyrir félagsmenn, kr. 14.000,- fyrir aðra.
skráning á www.stjornvisi.is
Afhending Íslensku gæðaverðlaunanna
í Háteig á Grand Hótel Reykjavík kl.12:00.
Léttur hádegisverður verður borinn fram
að athöfn lokinni.
A
u
g
lý
sin
g
a
sto
fa
G
u
ð
rú
n
a
r Ö
n
n
u
INGA Bergmann Árnadóttir,
dósent við tannlæknadeild Háskóla
Íslands, varði doktorsritgerð sína
Dental health and related lifestyle
factors in Iceland teenagers. Vörnin
fór fram 15. október sl. Andmæl-
endur voru dr. Hafsteinn Eggerts-
son, aðstoðar-
prófessor við
Indiana Univers-
ity School of
Dentistry Oral
Health Research
Institute Indiana-
polis USA, og dr.
Laufey Stein-
grímsdóttir,
sviðsstjóri rann-
sókna- og þróunarsviðs við Lýð-
heilsustöð Íslands. Prófessor Sigfús
Þór Elíasson, deildarforseti tann-
læknadeildar, stjórnaði athöfninni
sem fór fram í Hátíðasal Háskóla Ís-
lands.
Meginmarkmið doktorsverkefn-
isins var að safna saman gögnum til
þess að meta tíðni tannátu og gler-
ungseyðingar hjá íslenskum ung-
lingum á aldrinum fjórtán ára til tví-
tugs á þrettán ára tímabili, frá
árunum 1987 til 2000. Ennfremur að
kanna lífsstíl unglinga, tengja hann
við tannheilsu þeirra og tengja tann-
heilsuna við forvarnir íslenskra
tannlækna og við forvarnir nor-
rænna tannlækna.
Á þessum árum hefur mikil breyt-
ing orðið á tannheilsu unglinga. Í
byrjun var tannátutíðni íslenskra
unglinga mun hærri en á Norður-
löndunum en lækkaði hratt á fyrri
hluta þess tíma sem um er fjallað í
þessari ritgerð, þannig að seinni
hluta tímabilsins var hún litlu hærri
en í nágrannalöndunum. Þar að auki
hafa greiningaraðferðir þróast,
þannig að í byrjun tímabilsins var
tannáta yfirleitt greind á lokastigi
sem opin tannskemmd sem þurfti
fyllinga við. Þetta breyttist þannig
að algengara varð að greina
skemmdir meðan þær voru enn
byrjandi úrkalkanir sem mögulegt
var að stöðva með fyrirbyggjandi að-
ferðum.
Þrátt fyrir lækkandi tannátutíðni
var meðalaukning á árunum 1994 til
2000 á skemmdum tannflötum ung-
linga meiri en einn flötur á ári á aldr-
inum fjórtán ára til tvítugs. Tíðni
glerungseyðingar hefur aftur á móti
aukist meðal unglinga. Glerungseyð-
ing greindist ekki árið 1987, en árið
1995 greindist fimmti hver fimmtán
ára unglingur í Reykjavík með byrj-
andi glerungseyðingu. Þetta tengd-
ist einna helst vaxandi gosdrykkja-
neyslu, einkum meðal pilta. Lífsstíll
unglinga, sér í lagi mataræði þeirra
og tannhirða, reyndist áhættusamur
hvað varðar tannheilsu þeirra. Lífs-
stíl unglingsáranna, þegar fjöldi
heilbrigðra tanna er mestur, fylgir
áhætta og unglingar huga lítið að því
að tryggja tannheilsu til framtíðar.
Á því viðkvæma aldursskeiði er
brýnt að leggja áherslu á forvarnir
og að styðja unglinga í að rækta og
bera ábyrgð á tannheilsu sinni.
Leiðbeinandi var dr. Peter
Holbrook, prófessor við tannlækna-
deild Háskóla Íslands, og í doktors-
nefnd voru dr. Helga Ágústsdóttir,
yfirtannlæknir í heilbrigðisráðu-
neytinu, og dr. Sigurður Rúnar Sæ-
mundsson, barnatannlæknir og lekt-
or við tannlæknadeild Háskóla
Íslands.
Inga B. Árnadóttir er fædd í
Reykjavík 17. janúar 1955. Foreldar
hennar voru Árni B. Oddsson og
Kristín Gísladóttir. Hún lauk stúd-
entsprófi frá Menntaskólanum við
Tjörnina 1975. Prófi í tannlækning-
um frá Tannlæknaháskólanum í Ár-
ósum 1976. Framhaldsnám við Uni-
versity of North Carolina at Chapel
Hill, School of Public Health, með
MPH árið 1995. Sérfræðingur í sam-
félagstannlækningum 2002. Dósent
og kennslustjóri við tannlæknadeild.
Formaður tannverndarráðs og situr
í landsnefnd um lýðheilsu. Börn
Ingu eru Huldar Örn og Birta Dögg.
Doktor í
tannlækn-
ingum
SKÓGRÆKTARFÉLAG Íslands og
Húsasmiðjan/Blómaval undirrit-
uðu nýlega samning sem kveður á
um stórsókn í sölu og framleiðslu á
íslenskum jólatrjám en sala á jóla-
trjám er ein helsta tekjuöflunarleið
skógræktarfélaganna í landinu.
Skógræktarfélagið mun tryggja
Húsasmiðjunni/Blómavali ákveðið
magn jólatrjáa en hlutfall ís-
lenskra trjáa er einungis um 20%
af seldum trjám í landinu og hefur
verið að dragast saman undanfarin
ár.
Samkomulagið er til 12 ára, en
við góð skilyrði tekur það um 10 ár
fyrir trjáplöntu að ná jólatrjá-
stærð. Samningurinn gerir skóg-
ræktarfélögunum kleift að ráðast í
umfangsmikla ræktun jólatrjáa.
Fyrir hvert selt jólatré geta skóg-
ræktarfélögin gróðursett 40–50 ný
tré, segir í fréttatilkynningu.
Á meðfylgjandi mynd eru
Magnús Jóhannesson, formaður
Skógræktarfélags Íslands, og
Steinn Logi Björnsson, forstjóri
Húsasmiðjunnar, að undirrita
samninginn við opnun nýrrar
verslunar Blómavals í Skútuvogi.
Viðstödd voru frú Vigdís Finn-
bogadóttir, fyrrverandi forseti, og
Kristinn Einarsson, framkvæmda-
stjóri Blómavals.
Morgunblaðið/Golli
Semja um framleiðslu og
sölu á íslenskum jólatrjám
Innihaldið skiptir máli