Morgunblaðið - 06.11.2005, Síða 36
36 SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Þau voru ljós á leiðum okkar
Á
allra heilagra messu,
sunnudaginn 6. nóvember,
er látinna minnst.
Vitjum leiða ástvina okkar
með hlýhug og þakklæti.
Starfsfólk Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma verður til
leiðsagnar í Fossvogskirkjugarði, Gufuneskirkjugarði og
Hólavallagarði við Suðurgötu frá kl. 14-16.
Boðið er upp á samfellda dagskrá í Fossvogskirkju á sama
tíma, með helgri stund við kertaljós, tónlistarflutning, bæn og
ritningarlestur. Gestir garðsins eru hvattir til að ganga í kirkju
og eiga innihaldsríka stund í minningu ástvina.
14.00 –14.30 Ritning og bæn: Sr. Bára Friðriksdóttir
Kórsöngur: Skólakór Kársness
Stjórnandi: Þórunn Björnsdóttir
Undirleikur: Marteinn H. Friðriksson
14.30 –15.00 Ritning og bæn: Sr. Bára Friðriksdóttir
Tónlist: Ellen Kristjánsdóttir
Undirleikur: Eyþór Gunnarsson
15.00 – 15.30 Ritning og bæn: Sr. Miyako Þórðarson
Kórsöngur: Kór Bústaðakirkju
Organisti: Marteinn H.
Friðriksson.
15.30 – 16.00 Ritning og bæn: Sr. Miyako Þórðarson.
Kórsöngur: Kór Áskirkju
Organisti: Kári Þormar
Friðarkerti Hjálparstarfs kirkjunnar eru
til sölu í Fossvogsgarði, Hólavallagarði
og í Gufuneskirkjugarði.
Kyudo: Bogfimi þar sem
skotið er á mark af
28 metra færi.
Kennari: Tryggvi Sigurðsson,
Kyoshi 6. dan.
Kendo: Skylmingar í búningi
Kennari: Sölvi Tryggvason,
2. dan.
Þessar greinar eiga sér einstaka
menningarlega hefð og eru
stundaðar af miklum fjölda
fólks á öllum aldri í Japan og
annars staðar.
Upplýsingar í síma
553 3431.
Japönsk bogfimi - japanskar skylmingar
UM 4.000 manns í Bretlandi kunna
að vera smitaðir af afbrigði Creutz-
feldt Jakob-heilarýrnunarsjúkdóms-
ins sem greindist fyrst þar í landi
fyrir um 10 árum. Þetta mat er
byggt á rannsóknum á vefjasýnum
úr fólki sem gengist hefur undir að-
gerðir þar sem botnlangar eða háls-
kirtlar hafa verið fjarlægðir. Engin
meðferð hefur enn verið fundin við
sjúkdómnum að sögn Roberts Wills,
prófessors í taugalækningum við
Edinborgarháskóla.
Will flutti fyrir skömmu erindi á
ráðstefnu um príon og hæggengar
veirur, en hún var haldin til heiðurs
tveimur fyrrverandi forstöðumönn-
um tilraunastöðvarinnar á Keldum,
læknunum Guðmundi Péturssyni
veirufræðingi og Guðmundi
Georgssyni meinafræðingi.
Will segir að Creutzfeldt Jakob
(CJS), riðusjúkdómur í mönnum,
hafi verið þekktur frá því á þriðja
áratug 20. aldar. Sjúkdómurinn sé
afar sjaldgæfur en orsök hans sé
óþekkt. Árið 1990 hófst vöktun á
riðusjúkdómum í mönnum í Bret-
landi í kjölfar kúariðufaraldurs þar í
landi, en nokkrum árum síðar hóf-
ust sambærilegar rannsóknir í öðr-
um Evrópulöndum. Markmið rann-
sóknanna var að fá úr því skorið
hvort kúariða í nautgripum hefði
valdið sjúkdómi í mönnum. Árið
1996 fannst nýr sjúkdómur sem
kallaður er afbrigði CJS. Afbrigðið
reyndist frábrugðið hinum hefð-
bundna CJS-sjúkdómi,
meðal annars vegna
þess að á þeim tíma
var það einungis þekkt
í Bretlandi og vegna
þess að sjúkdómurinn
lagðist einkum á ungt
fólk.
158 tilfelli
í Bretlandi
„Það leit út fyrir að
nýr sjúkdómur hefði
greinst í Bretlandi og
að hann orsakaðist af
kúariðu. Frá þeim
tíma höfum við aflað
ýmissa gagna sem
staðfesta að kúariða orsakaði þetta
nýja afbrigði CJS,“ segir Will. Sér-
fræðingar telji nú líklegast að fólk
hafi smitast af sjúkdómnum við að
neyta nautgripaafurða sem hafi ver-
ið sýktar af kúariðu.
Alls hafa 158 tilfelli afbrigðis CJS
greinst í Bretlandi en flestir fórust
af völdum sjúkdómsins þar í landi
árið 2000. Sjúkdómurinn hefur einn-
ig greinst í Frakklandi, Japan, Ír-
landi, Bandaríkjunum, Kanada og
fleiri löndum. Ekkert tilfelli hefur
greinst á Íslandi.
Will segir að vísindamenn geti
enn ekki skýrt hvers vegna fleiri
smitist af sjúkdóminum en veikist af
honum. „Það er hugsanlegt að
erfðafræðilegir þættir hafi áhrif á
það hvort sjúkdómurinn kemur
fram í fólki. Sumir geta lifað heil-
brigðu lífi í mörg ár án þess að
veikjast og verða jafnvel aldrei veik-
ir,“ segir hann. Will
bætir við að talið sé að
það fólk sem greinst
hefur með sjúkdóminn
eftir að afbrigði CJS
fannst hafi smitast af
honum seint á níunda
áratugnum eða í byrj-
un þess tíunda.
Smit hugsanlegt
við blóðgjafir
Hann segir að um
þessar mundir hafi
menn áhyggjur af
hugsanlegu smiti milli
manna við blóðgjafir.
„Við gerðum rannsókn
á þessu fyrir tveimur árum og fund-
um einn einstakling sem smitast
hafði af afbrigði CJS eftir að hafa
fengið blóðgjöf frá öðrum ein-
staklingi sem smitaður var af sjúk-
dóminum. Í öðru tilfelli leikur grun-
ur á að einstaklingur hafi smitast
eftir að hafa verið gefið blóð. Gripið
hefur verið til mikilla aðgerða í
Bretlandi í því skyni að reyna að
minnka hættuna á því að sjúkdóm-
urinn berist milli manna í gegnum
blóðgjafir,“ segir Will.
Will segir að marga vinna að því
um þessar mundir að reyna að finna
meðferð við sjúkdóminum. „Mjög
margt fólk vinnur að þessu en enn
hefur ekki tekist að finna árangurs-
ríka meðferð,“ segir Will. Þá segir
hann unnið að því að þróa aðferðir
til þess að greina sjúkdóminn í
blóði. Sú vinna virðist þokast í rétta
átt.
Robert Will hélt erindi um afbrigði Creutzfeldt Jakob
Um 4.000 manns kunna að
vera smitaðir í Bretlandi
Robert Will
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
HRAFNHILDUR Hrafnkelsdóttir
hreppti aðalvinning hjá Happdrætti
DAS nýlega. Var um að ræða for-
láta Ford Mustang ásamt þremur
milljónum króna.
„Ég er í skýjunum, þetta er flott-
asti bíll sem ég hef séð, algjört æði.
Ég er bara búin að vera úti að aka í
allan dag, mátti ekki vera að því að
vinna eða neitt. Ég er búin að eiga
þennan miða í fjörutíu ár, mamma
gaf mér hann þegar ég var sjö ára.
Ég ætla að halda bílnum eins og
miðanum. Ég hef tvisvar fengið
smávinninga á þetta númer áður
þannig að það heldur betur kom
þegar það kom,“ sagði Hrafnhildur.
Happdrætti DAS mun draga út
fjórar Ford Mustang-bifreiðar til
viðbótar í nóvember.
Morgunblaðið/RAX
Sigurður Ágúst Sigurðsson, forstjóri Happdrættis DAS, afhendir Hrafn-
hildi Hrafnkelsdóttur lyklana að Ford Mustang-bílnum. Með þeim á mynd-
inni eru Ragnhildur Björgvinsdóttir, móðir Hrafnhildar, Dalmar Ingi
Daðason, sonarsonur hennar, og Ingileif Friðriksdóttir, dóttir Hrafnhildar.
„Ég er í skýjunum“
TILNEFNINGAR til knapa
ársins liggja nú fyrir. Hópur
sem samanstendur af fulltrúum
þeirra fjölmiðla er fjalla reglu-
bundið um hestamennsku,
fulltrúum gæðinga- og íþrótta-
dómara og hrossaræktarráðu-
nauti Íslands tilnefnir þá knapa
sem hér eru taldir upp. Viður-
kenningar verða svo veittar í
hverjum flokki á uppskeruhátíð
hestamanna 12. nóv. nk.
Tilnefndir eru (í stafrófsröð):
Efnilegasti knapi ársins:
Bylgja Gauksdóttir
Fanney Dögg Indriðadóttir
Rósa Birna Þorvaldsdóttir
Sigurður Straumfjörð Pálsson
Þórunn Hannesdóttir
Kynbótaknapi ársins:
Atli Guðmundsson
Daníel Jónsson
Erlingur Erlingsson
Lena Zielinski
Þórður Þorgeirsson
Íþróttaknapi ársins:
Hulda Gústafsdóttir
Jóhann Skúlason
Sigurbjörn Bárðarson
Sigurður Sigurðarson
Styrmir Árnason
Viðar Ingólfsson
Gæðingaknapi ársins:
Atli Guðmundsson
Árni Björn Pálsson
Berglind Rósa Guðmundsdóttir
Eyjólfur Þorsteinsson
Þórarinn Eymundsson
Skeiðknapi ársins:
Atli Guðmundsson
Bergþór Eggertsson
Sigurbjörn Bárðarson
Sigurður Sigurðarson
Sigurður Straumfjörð Pálsson
Knapi ársins:
Jóhann Skúlason
Sigurður Sigurðarson
Styrmir Árnason
Viðar Ingólfsson
Þórður Þorgeirsson
Tilnefningar
til knapa
ársins 2005 SUMIR kunna að velta fyrir sérhvort gamli æfingaturn Slökkviliðs
höfuðborgarsvæðisins hafi verið
leystur af hólmi með ennþá hærri
spíru á lóð Björgunarmiðstöðvar-
innar í Skógarhlíð. Svo er þó ekki því
spíran gegnir hlutverki fjarskipta-
masturs fyrir björgunarmiðstöðina
sem hýsir alla viðbragðsaðila þegar
slys eða vá ber að höndum.
Mastrið er 30 metra hátt, eða
nærri helmingi lægra en Hallgríms-
kirkja og vekur athygli fyrir mikinn
sverleika sem gæti fengið einhverja
til að halda að slökkviliðsmenn æfi
sig í að klifra upp mastrið og noti
það jafnvel til að líta yfir höfuðborg-
ina úr veglegri hæð í leit að brunum.
Svo er þó ekki.
Engin stög í mastrinu
Hinn mikli sverleiki mastursins
helgast einkum af því að engin stög
eru í því eins og oft er með há möst-
ur, heldur stendur það eitt og sér án
staga, svert og verklegt.
Verklegt fjar-
skiptamastur
Morgunblaðið/Þorkell