Morgunblaðið - 06.11.2005, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2005 37
FRÉTTIR
PUNKTAÐU
NIÐUR
FERÐALAGIÐ
ERT ÞÚ
AÐ SAFNA
RÉTTUM
PUNKTUM?
Nú geta Vildarkorthafar VISA og Icelandair
nýtt 10.000 Vildarpunkta sem 5.500 kr. greiðslu
upp í hvaða flugfargjald sem er með áætlunarflugi Icelandair,
fyrir hvern sem er.
Fáðu nánari upplýsingar á www.vildarklubbur.is og punktaðu niður ferðina um 5.500 kr.
GILDIR Í ÖLLUM
ÁÆTLUNARFLUGUM
ICELANDAIR
Gildir til 15. des. 2005.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
IC
E
30
03
6
1
1/
20
05
HANDHAFAR
VILDARKORTS
VISA OG
ICELANDAIR
BOR númer 2, einn risaboranna
sem notaðir eru við byggingu virkj-
unarinnar við Kárahnjúka, er far-
inn að bora á ný eftir nokkurra
mánaða tafir. Sigurðar Arnalds,
talsmanns Landsvirkjunar vegna
Kárahnjúkavirkjunar segir að vonir
standa til þess að borinn komist á
eðlilegan vinnuhraða á næstu vik-
um, en í síðustu viku boraði hann
samtals sjö metra.
Vinna við borinn stöðvaðist í mis-
gengissprungum við Þrælaháls en
Sigurður segir að um hafi verið að
ræða 40 til 50 metra langan kafla og
hafi misgengissprungurnar verið
þrjár. Efnið í sprungunum hafi ekki
verið samlímt heldur laust. Þessi
tæki henti ekki í lausu efni og hafi
þurft að líma það saman, en sú
vinna hafi vinna reynst tímafrek.
„Við vonum að við lendum ekki aft-
ur í öðru eins í verkinu,“ segir Sig-
urður.
Sigurður segir að borinn sé kom-
inn niður á hart berg og senn komi í
ljós hvort borinn nái ekki fullum
skriði að nýju á næstu dögum og
vikum. „Menn fara varlega og
kanna jarðlögin á undan honum,“
segir hann.
Allir borar á góðum
hraða í janúar
Um aðra risabora á svæðinu seg-
ir Sigurður að bor númer 1 hafi ver-
ið á mjög góðum skriði að undan-
förnu og hafi hann í langan tíma
borað um 200 metra á viku. Sá bor
sé kominn 7 til 8 kílómetra inn í
fjallið og sé möl frá honum flutt út á
færiböndum. Í síðustu viku hafi
vinna við borinn tafist um nokkra
daga vegna þess að lengja þurfti
færibandið, en þetta hafi verið eðli-
legur þáttur í verkinu. Þá segir Sig-
urður að verið sé að sinna viðhaldi á
þriðja risabornum, en hann eigi að
fara í gang í desember. „Við von-
umst til þess að í janúar muni allir
borarnir þrír bora á góðum hraða,“
segir Sigurður.
Risabor 2 farinn að bora við
Kárahnjúka á ný eftir tafir SIGRÚN Lange líffræðingur MSvarði doktorsritgerð sína „Magna-
kerfið í þroskunarferli þorsks og
lúðu“, við læknadeild Háskóla Íslands
21. október sl. Andmælendur eru
Prof. Kenneth Reid, MRC Immuno-
chemistry Unit, Department of Bio-
chemistry, University of Oxford, og
Sigurbjörg Þorsteinsdóttir,
Dr.med.sci., ónæmisfræðingur á
Tilraunastöð Há-
skóla Íslands í
meinafræði, Keld-
um. Stefán B.
Sigurðsson, for-
seti læknadeildar,
stjórar athöfninni
sem fer fram í
Öskju og hefst
klukkan 13.
Magnakerfið er
mikilvægur þáttur í ónæmiskerfinu
og tekur bæði þátt í rofi og áti utan-
aðkomandi sýkla og í frumuáti eigin
fruma sem fara í gegnum stýrðan
frumudauða. Magnaþáttur C3 er
lykilprótínið í öllum þremur ferlum
magnakerfisins. Apolipoprotein A-I
(ApoLP A-I), sem er aðalfituflutn-
ingsprótín líkamans, hefur hindrandi
áhrif á rofferli magnakerfisins og get-
ur þannig átt þátt í að vernda frumur
líkamans fyrir óæskilegu rofi.
Meginmarkmið verkefnisins er að
skoða umritun og tjáningu C3 og
ApoLP A-I ásamt frumum í stýrðum
frumudauða í þroskunarferli þorsks,
og umritun og tjáningu magnaþáttar
C3 í þroskunarferli lúðu frá eggi til
fullvaxta lirfu. Niðurstöður verkefn-
isins sýna að C3 og ApoLP A-I eru
tjáð víða í mörgum líffærum, auk lifr-
ar, frá yngstu stigum fósturþroskunar
þorsks og finnast á sömu svæðum og
frumur sem eru að gangast undir
stýrðan frumudauða. Í lúðulirfum
fannst svipuð dreifing á umritun og
tjáningu C3 prótíns og í þrosk-
unarferli þorsks.
Niðurstöður verkefnisins styðja
hugmyndir um að auk þess að vera
mikilvægur þáttur ónæmisvarna, þá
gegnir magnakerfið einnig hlutverki í
myndun og viðhaldi líffæra í fóstur-
þroskun. Þessar niðurstöður auka
þekkingu á virkni magnaþátta í fóst-
urþroskun og gætu nýst í forvörnum í
þorsk- og lúðueldi.
Leiðbeinandi verkefnisins er Berg-
ljót Magnadóttir dýrafræðingur,
M.Sc., Ph.D., yfirmaður veiru- og
sameindalíffræðideildar Tilrauna-
stöðvar HÍ í meinafræði, Keldum.
Doktorsnefnd skipa Alister W.
Dodds, D.Phil., MRC Immuchemistry
Unit, Department of Biochemistry,
University of Oxford, Ástríður Páls-
dóttir, lífefnafræðingur D.Phil, Til-
raunastöð HÍ í meinafræði, Keldum,
Guðmundur J. Arason, Ph.D., Rann-
sóknarstofu HÍ í ónæmisfræði, Land-
spítala, og Valgerður Andrésdóttir,
sameindalíffræðingur, Ph.D., Til-
raunastöð HÍ í meinafræði, Keldum.
Doktorsverkefnið er innlegg í Evr-
ópusamstarfsverkefnið FISHAID um
rannsóknir á ónæmiskerfum 5 eld-
isfisktegunda (stjórnandi verkefnisins
er dr. Roy Dalmo, Háskólanum
Tromsø, Noregi). Hlutar verkefnisins
voru unnir við Háskólann í Oxford,
Englandi, (undir leiðsögn dr. Alister
W. Dodds, MRC Immunochemistry
Unit, University of Oxford), við Há-
skólann í Wageningen, Hollandi
(undir leiðsögn dr. Jan Rombout,
Department of Animal Sciences, Cell
Biology and Immunology Group,
Wageningen University) og við Há-
skólasjúkrahúsið í Basel, Sviss (í
rannsóknarhópi Prof. Jürg-A.
Schifferli, Immunonephrology,
Department of research, University
Hospital Basel).
Sigrún Lange fæddist16 febrúar
1977. Hún lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík, eðlis-
fræðideild II, árið 1996. BS prófi í líf-
fræði frá HÍ, júní 1999 og MS frá
læknadeild HÍ í júní 2001 Hún vann
sem fiskónæmisfræðingur á Til-
raunastöð HÍ í meinafræði, Keldum í
Evrópusamstarfsverkefninu FISHA-
ID frá 2001 til 2002. Sigrún Lange
var skráð í doktorsnám við lækna-
deild HÍ haustið 2002.
Doktor í
líffræði