Morgunblaðið - 06.11.2005, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2005 41
UMRÆÐAN
Notkunarsvi›: Paratabs inniheldur parasetamól sem er verkjastillandi og hitalækkandi lyf. fia› er nota› vi›
höfu›verk, tannpínu, tí›averkjumo.fl. Einnig vi› sótthita af völdum inflúensu og annarra umgangspesta eins og
kvefs. Lyfi› inniheldur ekki ávanabindandi efni og hefur ekki sljóvgandi áhrif.Varú›arreglur: Fólk semhefur
ofnæmi fyrir parasetamóli e›a erme› lifrarsjúkdómamá ekki nota lyfi›. N‡rna- og lifrarsjúklingumer bent á a›
rá›færa sig vi› lækni á›ur enfleir taka lyfi›. Of stór skammtur getur valdi› lifrarbólgu.Aukaverkanir:Parasetamól
veldursjaldanaukaverkunumogflolistyfirleittvel ímaga.Langvarandinotkun lyfsinsgeturvaldi›n‡rnaskemmdum.
Skömmtun:Nákvæmar lei›beiningar um skömmtun fylgja lyfinu. Ekkimá taka stærri skammta enmælt erme›.
Lesi› vandlega lei›beiningar sem fylgja lyfinu. 13.07.05
Paratabs®– Öflugur verkjabani!
meiri næring
betri ending
FIMMTUDAGINN 3. nóvember
skrifar Hjálmar Árnason, þing-
flokksformaður Framsóknarflokks-
ins, grein í Morgunblaðið undir fyr-
irsögninni Neyðaróp
frá RÚV. Ég fæ ekki
betur séð en Hjálmar
Árnason sé með þess-
ari grein að undirbúa
svik Framsókn-
arflokksins við eigin
samþykktir um að
Ríkisútvarpið verði
ekki gert að hluta-
félagi. Látum nú vera
að Framsóknarflokk-
urinn svíki eigin fyr-
irheit. Það hefur því
miður gerst áður –
meira að segja alltof
oft. Það er verra ef flokkurinn
hyggst reyna að gera þetta á fölsk-
um forsendum; að nú þurfi að hluta-
félagavæða til að svara ákalli
„starfsmanna og stuðningsmanna
RÚV“ sem krefjist „tafarlausra að-
gerða“.
Framsókn hefur hindrað
hlutafélagavæðingu RÚV
Hjálmar fikrar sig varlega að nið-
urstöðunni: Fyrir það fyrsta stað-
hæfir hann að allir flokkar séu sam-
mála um að selja ekki Ríkis-
útvarpið. Ekki er ég viss um að
landsfundir Sjálfstæðisflokksins
skrifi upp á þetta. Þannig ályktaði
landsfundur flokksins í mars árið
2003 um fyrstu skrefin í markaðs-
væðingu RÚV: „Skylduáskrift að
fjölmiðlum verði afnumin nú þegar.
Íslenskir neytendur eiga sjálfir að
ráða hvort og hvaða fjölmiðla þeir
kaupa. Endurskoða skal hlutverk
ríkisins á þessum markaði.“ Í
tengslum við þennan sama lands-
fund Sjálfstæðisflokksins var eft-
irfarandi haft eftir þáverandi
menntamálaráðherra Sjálfstæð-
isflokksins í fréttum Útvarps
23.03.03.: „Tómas Ingi Olrich
menntamálaráðherra segir Sjálf-
stæðisflokkinn vilja afnema
skylduáskrift að Ríkisútvarpinu ná-
ist samkomulag um að breyta
rekstrarfyrirkomulagi stofnunar-
innar. Flokkurinn vilji gera Rík-
isútvarpið að hlutafélagi en Fram-
sóknarflokkurinn hafi hindrað það.“
Þess má einnig geta að 37. þing
SUS ályktaði eftirfarandi: „SUS
telur mikilvægt að hafist verði
handa við að undirbúa einkavæð-
ingu á Íslandspósti, Landsvirkjun,
Rafmagnsveitu ríkisins, orkuveitum
sveitarfélaga, Ríkisútvarpinu og að
Rás 2 verði seld þegar í stað.“
Einnig ber að hafa í huga að nokkr-
ir sjálfstæðismenn hafa lagt fram
lagafrumvörp á liðnum misserum
um einkavæðingu Rík-
isútvarpsins. Þannig
fer því fjarri að sátt sé
um það að RÚV verði í
almannaeign. Við erum
mörg sem ekki viljum
undir neinum kring-
umstæðum teppa-
leggja fyrir einkavæð-
ingarsinnana með því
að gera RÚV að hluta-
félagi. Þegar ég segi
við, þá veit ég að
margir kjósendur
Framsóknarflokksins
taka það til sín, enda
samþykktir flokksins í þessa veru.
En hvað með það sem Hjálmar kall-
ar „ákall starfsmanna og stuðnings-
manna RÚV“ um tafarlausar að-
gerðir? Hagsmunasamtök
starfsmanna í Ríkisútvarpinu, sem
leitað hafa til heildarsamtakanna
BSRB og BHM í þessu efni hafa
mjög eindregið varað við hluta-
félagavæðingu. Þegar Hjálmar vís-
ar í stuðningsmenn RÚV er vænt-
anlega átt við Hollvinasamtök
Ríkisútvarpsins. Í fyrstu grein sam-
þykkta þeirra samtaka segir að bar-
ist skuli gegn því að Ríkisútvarpið
verði gert að hlutafélagi.
Hægt að breyta án
hlutafélagavæðingar
Þetta lætur þingflokksformaður
Framsóknar ekki á sig fá en segir
að menn hafi „eðlilega bent á að
hvort RÚV verði sameignarfélag,
sjálfseignarstofnun eða hlutafélag
þá breyti það í sjálfu sér litlu hvað
varðar stofnunina sem almennings-
eign ef fyrir liggur pólitískur vilji
um að halda RÚV í eigu ríkisins.“
Hvaða menn hafa bent á þetta?
Ekki hagsmunasamtök starfs-
manna, ekki Hollvinasamtök Rík-
isútvarpsins og ekki Framsókn-
arflokkurinn þar til nú að
þingflokksformaðurinn rekur upp
þetta neyðaróp sitt. Væri ekki betra
og heiðarlegra að koma hreint
fram, Hjálmar, og viðurkenna að til
standi að svíkja gefin fyrirheit eina
ferðina enn? Á stjórnkerfi Rík-
isútvarpsins þarf að gera ýmsar
breytingar til úrbóta. Fram hafa
komið sannfærandi tillögur í því
efni án þess að orðið verði við kröfu
markaðssinna um að færa Ríkis-
útvarpið upp á færiband til einka-
væðingar. Væri ekki rétt að skoða
þær?
Neyðaróp frá
Framsóknarflokknum
Ögmundur Jónasson
skrifar í tilefni greinar
Hjálmars Árnasonar ’Ég fæ ekki betur séðen Hjálmar Árnason sé
með þessari grein að
undirbúa svik Fram-
sóknarflokksins við eig-
in samþykktir um að
Ríkisútvarpið verði ekki
gert að hlutafélagi.‘
Ögmundur Jónasson
Höfundur er alþingismaður.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn