Morgunblaðið - 06.11.2005, Page 46
46 SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐANwww.hofdi.is
Runólfur Gunnlaugsson, viðskiptafr. og löggiltur fasteigna- og skipasali.
Suðurlandsbraut 20
Sími 533 6050
Bæjarhrauni 22
Sími 565 8000
Glæsilegt og fallegt einbýlishús á eftirsóttum stað, sunnanmegin í Kópavogi. Stór
ræktaður garður og virðuleg aðkoma. Forstofa með góðum fataskápum. Stórt og
rúmgott eldhús með upphaflegri vandaðri innréttingu. Borðstofa og stofa, parketlögð.
Fallegur arinn. Á neðri palli er svefnherbergisálma með 4 svefnherbergjum, parket,
útgangur á stórar skjólríkar suðursvalir. Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf. Á neðri hæð
er stórt herbergi, snyrting, tvær góðar geymslur ásamt þvottaherbergi. Sérinngangur er
á neðri hæðina. Rúmgóður bílskúr og geymslur inn af honum. Eigninni hefur verið
haldið vel við. Allar hitalagnir og flestir ofnar endurnýjaðir ásamt nýju þakefni. Stór
ræktaður garður fylgir eigninni. Verð 46,0 millj. Allar nánari upplýsingar veitir Davíð
Davíðsson, sölumaður á Höfða, sími 897 1820.
skráð eign er seld eign
Kristín Pétursdóttir löggiltur fasteignasali
Hrauntunga - Kópavogi
Í dag býðst þér og þínum að skoða þessa sérlega fallegu og vel hönnuðu 90 fm 3ja
herb. íbúð á 3. hæð, ásamt sérstæði í bílageymslu, á þessum barnvæna stað í
Seljahverfi. Verðtilboð.
Róbert tekur vel á móti ykkur. GSM 695 4248.
Opið hús í dag á milli 15 og 16
Engjasel 87 - íb. á 3. hæð t.v.
Sérlega fallegt 245 fm einbýlishús á einni hæð
með innbyggðum tvöföldum bílskúr. Húsinu
verður skilað fullbúnu að utan og fokheldu að
innan eða lengra komið. Teikningar og allar
nánari upplýsingar veitir Ásmundur Skeggjason hjá Höfða.
Hjálmakur - Garðabæ
Vorum að fá í sölu sérlega glæsilegt og
vel hannað 320 fm einbýlishús á
frábærum stað í Akrahverfinu í Garðabæ.
Húsið verður afhent fullbúið að utan en
fokhelt að innan eða lengra komið í
samráði við kaupanda. Sérlega gott og
fjölskylduvænt skipulag. Eign fyrir vandláta. Teikningar og nánari upplýsingar
veitir Ásmundur Skeggjason, sölumaður á Höfða.
Akurhverfi í Garðabæ
Í dag býðst þér og þinni fjölskyldu að
skoða þessa fallegu og vel skipulögðu 112
fm 4ra-5 herbergja íbúð. Verð 22,9 millj.
Georg og Linda taka vel á móti ykkur.
Opið hús í dag á milli 14 og 16
Eskihlíð 10A, 3. h.h.
Hlynur býður ykkur að skoða þetta
glæsilega 90 fm endaraðhús. Húsið er
á einni hæð auk rislofts. Falleg
sólstofa. Timburverönd í garði. Parket
og flísar eru á gólfum. Verð 23,9 millj.
Laust strax.
Opið hús í dag á milli 14 og 16
Víðiteigur 4 E - Mos.
Í dag getur þú og þínir skoðað þessa
glæsilegu 107 fm 4ra herbergja íbúð á
einum besta stað í Hafnarfirði. Parket
og flísar á gólfum. Fallegar innréttingar.
Sérþvottahús. Sólstofa. Verönd. Verð
23,9 millj. Davíð tekur vel á móti ykkur.
Opið hús í dag á milli 14 og 16
Álfholt - jarðhæð - Hf.
Glæsileg 906 fm heil
húseign á sérlóð. Um er
að ræða ca 700 fm
jarðhæð sem skiptist
annars vegar í sýningar-
sal, lager, verslun o.fl.
Hins vegar ca 206 fm
skrifstofuaðstaða á 2.
hæð. Rúmgóð, malbikuð
lóð, frábær staðsetning
og mjög gott
auglýsingagildi. Uppl.
gefur Helgi Jón á
skrifstofu Hraunhamars.
FLATAHRAUN – HF. TIL LEIGU
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Til leigu þetta vandaða og glæsilega
hús við Álfabakka í Mjódd
Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast.
www.valholl.is
Opið virka daga frá kl. 9.00-17.30.
Um er að ræða fyrrum höfuðstöðvar Visa. Húsið skiptist í kjallara, jarðhæð,
2. og 3. hæð. Húsið er staðsett á áberandi og góðum stað í næsta nágrenni við
Strætó bs í Mjódd. Góð aðkoma og næg bílastæði. Hentar vel undir hvers konar
þjónustu og skrifstofurekstur.
Eignin er í eigu Landsafls sem er sérhæft fasteignafélag.
Upplýsingar veitir Magnús Gunnarsson,
sími 588 4477 eða 822 8242
www.landsafl.is
ÉG SEST fyrir framan sjónvarps-
tækið og kveiki á fréttunum. Við mér
blasir hver harmleikurinn á fætur
öðrum. Stríð, hungursneyð, fátækt,
hryðjuverk, náttúruhamfarir. Listinn
er endalaus. Það er ákveðin uppgjöf
sem kemur yfir mann. Sumir reyna
að útiloka þessar óþægilegu stað-
reyndir og hætta einfaldlega að
hlusta. Aðrir verða dofnir gagnvart
slíkum fréttamyndum. Svo eru það
þeir sem ákveða að rísa upp og vinna
að betri heimi en jafn-
vel þeir falla stundum
fyrir eigin efasemdum.
,,Það er jú svo fátt sem
við getum gert.“ ,,Ein-
staklingurinn má sín
svo lítils.“ ,,Þetta er
ekki heimurinn sem
mig dreymir en það er
ekkert sem ég get gert
í því.“ Þetta eru stað-
hæfingar sem ég hef
heyrt allt of oft. Hvað-
an kemur þessi firrta
kynslóð?
Fyrir nokkru fletti ég í gegnum
gömlu sögubækurnar mínar. ,,Menn
námu lönd, menn fóru í
stríð, menn hertóku
önnur lönd, menn kúg-
uðu fólk, menn urðu enn
voldugri á kostnað ann-
arra, menn gerðu bylt-
ingar, menn sköpuðu
gjöreyðingarvopn, menn
fóru í fleiri stríð.“ Ég leit
aftur yfir bækurnar.
Vantaði ekki eitthvað?
Ég skoðaði þær vand-
lega. Hvergi var minnst
á Gandhi eða Mandela.
Ég fann ekkert um Rósu
Parks. Aðeins eina setningu um
Martin Luther King og sú setning
missti allt vægi þegar talað var um
Malcolm X í sömu málsgrein. Hvern-
ig stóð á því að litið var framhjá sigr-
um mannsins fyrir friði og mannrétt-
indum í gömlu sögubókunum mínum?
Gat það verið? Var verið að kenna
mér og öðrum kerfisbundið að ein-
staklingurinn geti ekki breytt heim-
inum? Það er stöðugt verið að mata
okkur á upplýsingum um endalausa
ósigra hins venjulega borgara.
Ég hef ósjaldan verið sökuð um að
vera barnslega trúgjörn þegar ég hef
lýst yfir andúð minni á stríði og of-
beldi og bent á að til séu aðrar leiðir.
Þegar ég hef staðhæft að allt sé
mögulegt eða lýst yfir að ég ætli að
vinna að heimsfriði. Ég er ekki frá því
að það sé svalt að vera bölsýnn á Ís-
landi, að það sé litið á það sem ákveð-
ið gáfumerki. En hverjir græða á því
að ég haldi að ég geti ekki haft nein
áhrif? Jú, valdhafar. Þeir sem stjórn-
ast með heiminn og eru orsakavald-
urinn að þeim hamförum sem ég lýsti
í byrjun. Allt í einu lítur dæmið öðru-
vísi út. Í skjóli minnar eigin firringar
og vantrúar á mátt minn og megin er
misvitrum ráðamönnum frjálst að
halda áfram að stunda stríðsrekstur,
að hvetja til hryðjuverka og að valda
náttúrunni ómældum skaða. Erum
það þá við draumóramennirnir sem
erum barnslega trúgjarnir eða þeir
sem trúa þeirri fásinnu ,,að það sé svo
lítið sem við getum gert?“
Gandhi lýsti einu sinni yfir: ,,Ég
hef ekki minnstu efasemd um að hver
einasti maður eða kona gæti áorkað
því sem ég hef áorkað ef hann eða
hún myndi leggja á sig sama erfiði og
rækta með sér sömu von og trú.“
Daisaku Ikeda sem hefur haldið nafni
Gandhi á lofti sagði um stórmennið
,,Það voru margir sem virtu hann og
heiðruðu nafn hans en þeir voru fáir
sem deildu sannfæringu hans.“ Vonin
um frið og betri heim getur einungis
Gandhi, King, Ikeda: Friður
fyrir komandi kynslóðir
Eyrún Ósk Jónsdóttir fjallar
um heimsfréttirnar og það, sem
maður verður vitni að, harm-
leikjum og náttúruhamförum
Eyrún Ósk Jónsdóttir
Fréttir í tölvupósti