Morgunblaðið - 06.11.2005, Side 52
52 SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐANSkólavörðustíg 13
Sími 510 3800
Fax 510 3801
www.husavik.net
Reynir Björnsson
lögg. fasteignasali
Húsavík – þar sem gott orðspor skiptir máli
Hamravík 28 - Eign í sérflokki
Opið hús í dag frá kl. 15-17
Stórglæsileg 124,3 fm 4ra herb. íbúð á 3. hæð (efstu) í fallegu fjölbhúsi
með sérinngangi. Íbúðin skiptist í forstofu, 3 góð herb. m/skápum og
fallegu útsýni. Stór stofa og opið fallegt eldhús. Suðursvalir. Þvottah. í
íbúð. Hlynur „rustica“ parket og flísar á gólfum. Fallegar samstæðar
sérsm. innr. úr kirsuberjaviði. Göngustígur í skóla og leikskóla. Verð
26,7 millj.
Guðbjörg tekur á móti gestum milli kl. 15 og 17.
Íbúðin er á 3. hæð til hægri.
Kristnibraut 75 - Útsýni
Opið hús í dag frá kl. 14-16
Glæsileg og nýleg 4ra herbergja ca 125 fm íbúð á 2. hæð í mjög fal-
legu, litlu fjölbýlishúsi. Innan íbúðar er m.a. sjónvarpshol og björt stofa
og borðstofa með útg. út á stórar suður- og vestursvalir sem liggja í L.
Fallegar Flísar og parket á gólfum. Baðherbergi með baðkari og sturtu-
klefa. Mjög fallegt útsýni er til norðurs. Verð 26,9 millj.
Jón Óskar býður gesti velkomna í dag að skoða frá kl. 14-16.
Teikningar á staðnum. Bjalla merkt 3-01.
Fannborg 5 - Laus
- Mikið útsýni
Opið hús í dag frá kl. 14-16
Rúmgóð 3ja herb. 83 fm íbúð á 3. hæð (efstu). Íbúðin skiptist í flísal.
anddyri með skáp, 2 rúmg. herbergi með skápum, hol, opið eldhús,
bjarta borðstofu og stofu m/parketi. Baðherb. nýl. endurgert, flísalagt
m/sturtuklefa og tengi f. þvottavél. Stórar sólríkar svalir með fjallasýn til
suðurs. Stór bílageymsla er undir planinu. Frábær staðsetning, stutt í
Gjábakka, strætó, MK, skóla, heilsugæslu, félagsstarf og verslanir.
Íbúðin er laus! Gott brunabótamat! Verð 16,9 millj.
Þórey og Gunnar taka á móti gestum milli kl. 14 og 16 í dag.
Bjalla merkt „Gunnar“.
Safamýri 36 - Útsýni
- Falleg blokk
Opið hús í dag frá kl. 14-16
Mjög góð ca 94 fm 3ja herbergja íbúð á 4. hæð (efstu) í góðu og nýlega
viðgerðu fjölbýlishúsi á þessum vinsæla stað. Fallegt parket á gólfum.
Eldhús með ca 8 ára innréttingu og baðherbergi með flísum og glugga.
Björt stofa með útgangi út á vestursvalir með fallegu útsýni. Hjónaher-
bergi einnig með útgangi út á svalir til austurs. Verð 18,9 millj.
Kjartan býður gesti velkomna í dag að skoða frá kl. 14-16.
Teikningar á staðnum. Bjalla merkt 4.H.H.
Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast.
www.valholl.is
Opið virka daga frá kl. 9-17:30
Sími 588 4477
Valhöll fasteignasala kynnir 3 stórglæsilegar 130-145 fm
sérhæðir á frábærum stað innst í lokuðum botnlanga.
Húsið er allt nýstandsett að utan og málað. Lóðin er öll
nýstandsett og tryrfð sem og stéttar og bílastæði, allt
nýhellulagt. Að innan eru íbúðirnar allar nýstandsettar á
glæsilegan hátt. Rafmagn og rafmagnslagnir og ofnar
og ofnalagnir allar nýjar. Allar innréttingar og hurðir eru
nýjar og mjög glæsilegar úr eik. Gólfefni eru ný og eru
parket/kanadískur hlynur. Vönduð ný tæki í eldhúsi sem
og á baði. Allar innréttingar og skápar eru frá Innex.
Eignir í sérflokki. Tveir 25 fm nýir bílskúrar.
Til afhendingar strax. Sölumenn sýna eignina.
Safamýri – glæsilegar sérhæðir
Fjögur ný raðhús á einni hæð við Tjaldhóla á Selfossi. Um er að ræða 162 fm endahús
og 156 miðjuhús með innbyggðum bílskúr sem skiptast í forstofu, hol/stofu, opið eld-
hús, þrjú herbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Húsin eru timburhús, klædd að utan
og afhendast fullbúin með vönduðum innréttingum. Baðherbergi afhendist flísalagt.
Eikarparket og flísar á gólfum. Halógenlýsing í loftum. Eikarhurðir.
Verð: Endahús 25,9 millj., miðjuhús 24,9 millj.
Til afhendingar strax.
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteigna- og skipasali.
Tjaldhólar - Selfossi.
Fjögur ný raðhús.
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið, Kringlunni 1, 103 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
FYRIR nokkru birtist í Morgun-
blaðinu grein eftir tvo unga menn,
undir yfirskriftinni „Vatnsmýrin
og innanlandsflugið“. Fyrir neðan
myndirnar af
þeim er prentað
með stóru letri:
„Við viljum að
innanlandsflugið
fari til Keflavík-
ur og höfnum
hugmyndum líkt
og þeim að færa
flugvöllinn á
Löngusker í
Skerjafirði.“
Rökin sem þeir færa fyrir þessu
eru fyrst og fremst þessi: Ungir
jafnaðarmenn í Reykjavíkur, ung-
liðahreyfing Samfylkingarinnar,
sendu fyrir nokkru frá sér ályktun
vegna umræðunnar um flugvöllinn
í Vatnsmýrinni og áréttuðu fyrri
afstöðu sína um að flugvöllurinn
færi úr Vatnsmýri hið fyrsta. Voru
þeir þá ekki að lýsa afstöðu sinni
til þessa máls, eða vantaði kannski
fullyrðinguna sem þeir slá fram í
lok greinarinnar, en þar stendur
orðrétt: „Á seinustu árum hefur
innanlandsflugið dregist hratt
saman og áfangastöðum hefur auk
þess fækkað.“
Þessu er einmitt öfugt farið. Ég
talaði einmitt við fulltrúa Flug-
félagsins snemma á þessu ári og
spurði hann hvort svo væri. Hann
sagði mér að farþegum hefði fjölg-
að ár frá ári og mest árið 2004. Þá
hefði farþegafjöldi aukist mest. Á
leiðinni Reykjavík/Akureyri hefði
farþegafjöldinn verið um 140 þús-
und og hann hefði líka aukist mik-
ið á leiðinni Reykjavík/Egilsstaðir,
eða verið um 110 þúsund. Auk
þess hefði farþegafjöldi á aðrar
flughafnir, svo sem á Vestmanna-
eyjar, Ísafjörð, Hornafjörð og
fleiri staði aukist nokkuð, og verið
alls yfir 100 þúsund farþegar. Þá
hefðu smærri flugrekstraraðilar
flutt talsvert á smærri staði. Alls
hefði Flugfélag Íslands flutt yfir
350 þúsund farþega innanlands á
síðasta ári. Svo tala og skrifa
flestir þannig um Reykjavík-
urflugvöll eins og hann komi
landsbyggðarfólkinu ekkert við, þó
hann sé langþýðingarmesta sam-
göngumannvirkið á Íslandi, a.m.k.
fyrir landsbyggðina.
Það væri rothögg fyrir lands-
byggðarfólkið ef völlurinn yrði
færður til Keflavíkur. Þá myndu
landsmenn, sem lengst búa frá
Reykjavík, neyðast til að aka held-
ur á bílum sínum til Reykjavíkur,
þegar menn ættu nauðsynleg er-
indi í höfuðstaðinn. Þá mundi
álagið á vegunum stórlega aukast
og er þó nóg fyrir.
Ekki fyrir löngu síðan var haft
eftir borgarstjóranum í Reykjavík
og samgöngumálaráðherra eftir
fund þeirra, að ekki stæði til að
færa flugvöllinn úr Vatnsmýrinni
næstu 10 ár, en hugsanlega breyta
flugbrautunum eitthvað. En nú
hefur Steinunn Valdís snúið
blaðinu rækilega við.
Nú styttist í borgarstjórnar-
kosningarnar og því hefjast öll
þessi skrif og tal um að færa inn-
anlandsflugið til Keflavíkur. Ef
kosið yrði um hvort færa ætti völl-
inn frá Reykjavík til Keflavíkur
hlýtur landsbyggðafólk að krefjast
þess að fá að greiða atkvæði um
það, ekkert síður en Reykvík-
ingar, því það snertir ekki síður
fólkið á landsbyggðinni og sér-
staklega þá sem lengst búa frá
Reykjavík.
Ég hef lesið margar greinar í
dagblöðunum um þessi mál. Sumir
hafa bent á hvað mikil nauðsyn
það sé að hafa tvo stóra flugvelli á
suðvesturhorni landsins til þess að
geta notað þá í neyðartilfellum, til
dæmis ef snögglega yrði ófært
veður á öðrum hvorum staðnum,
stórfelldir jarðskjálftar kæmu með
litlum fyrirvara, eða ef stórfelld
loftárás yrði gerð á annan hvorn
flugvöllinn. Svo eru ýmisr sér-
fræðingar sem spá því að ef lofts-
lag hér á landi fari ört hlýnandi,
jöklarnir bráðni miklu örar en
verið hefur í mörg ár þá muni yf-
irborð sjávar af þeim orsökum
hækka verulega. Þá mætti búast
við að sjór gengi á landi í hvass-
viðri og stórstraumi.
Það er betra að búa sig undir
það versta, þó vonandi komi aldrei
til þess. Það eru til tveir stórir
flugvellir á þessu svæði og mér
finnst fásinna að leggja annan
völlinn niður þó að einhverjir geti
grætt á því. Og telja má víst að
flugumferðin aukist hér á landi á
komandi árum eins og í nágranna-
löndum okkar.
SIGURÐUR LÁRUSSON
frá Gilsá.
Hafa skal það sem sannara reynist
Frá Sigurði Lárussyni
Sigurður Lárusson
Fáðu úrslitin
send í símann þinn