Morgunblaðið - 06.11.2005, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2005 63
DAGBÓK
Má bjóða þér góðverk?
ÉG sá frétt í Morgunblaðinu mið-
vikudaginn 2. nóv. sl. á bls. 6 og var
fyrirsögnin „Má bjóða þér góð-
verk?“. Fjallar fréttin um 3 drengi á
Egilsstöðum sem gengu í hús og
buðu góðverk. Eins kom fram að
þeir styrktu eitt barn á Indlandi.
Fannst mér þetta svo fallegt. Vil ég
vekja athygli fólks á þessu því það
er mikið kvartað yfir unglingum nú
til dags en þetta sýnir hvað ungling-
ar geta gert. Finnst mér þetta mjög
athyglisvert og finnst að meira ætti
að gera af því að virkja börn og
unglinga til að gera svona góðverk.
Ellen.
Baugsmálið endalausa
ALVEG er það með ólíkindum hvað
fólk getur endalaust fjallað um
Baugsmálið. Frá sjónarhóli almúg-
ans er þetta ekki annað en blóðug
barátta á milli hákarla, sem á með-
an láta okkur litlu fiskana í friði.
Það sem hins vegar skiptir okkur
öll mestu máli er verðsamráð olíufé-
laganna, því það varðar hag hvers
mannsbarns. Læðist að mér grunur
að verið sé að reyna að þegja það í
hel með fjaðrafokinu í Baugsmálinu.
Hvernig væri að þessir frétta-
menn héldu máli olíufélaganna
gangandi svo það fyrnist ekki.
Hildur Harðardóttir.
Styðjum við Sólvang
ÉG skora á bæjarbúa í Hafnarfirði
að leggja krafta sína saman og
styðja það að Sólvangur verði
stækkaður þannig að hægt sé að
bjóða þeim einstaklingum sem þar
dvelja mannsæmandi húsnæði. Það
hljóta allir bæjarbúar að vita að
Sólvangur hefur alltaf tekið inn þá
sem verst eru settir í þjóðfélaginu.
Það er ekki lengur bjóðandi fólki að
búa ekki í sérbýli og þurfa að deila
stofu ásamt öðrum. Ég vil að
bæjarfélagið sjái um tvær heilbrigð-
isstofnanir í bænum, Sólvang og St.
Jósefsspítala. Eins skora ég á
heilbrigðisráðherra að gera eitthvað
í málinu.
Hafnfirðingur.
Sigurlín er týnd
SIGURLÍIN er svört og hvít 6
mánaða læða, smávaxin. Hún týnd-
ist frá Vogatungu 95 í Kópavogi sl.
þriðjudag. Hún er merkt og með
bláa ól og bjöllu. Þeir sem hafa orð-
ið varir við hana vinsamlega hafið
samband í síma 822 7726.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.isHM í Portúgal.
Norður
♠DG2
♥KDG7 A/Enginn
♦K
♣ÁD1065
Vestur Austur
♠105 ♠973
♥9 ♥108432
♦G986 ♦105432
♣KG7432 ♣ –
Suður
♠ÁK864
♥Á65
♦ÁD7
♣98
Þegar litið er á hendur NS sést
fljótlega að sjö grönd er besti samn-
ingurinn, en hitt er ennfremur ljóst
að sjö spaðar er einnig góð slemma,
sem ætti að vinnast undir venjuleg-
um kringumstæðum.
En þegar horft er til beggja átta
kemur á daginn að kringumstæður
eru langt frá því að vera venjulegar
– austur er með eyðu í laufi, svo út-
spil í laufi hnekkir sjö spöðum.
Spilið er frá raðkeppninni í Estoril
og flest NS-pörin enduðu í sjö
gröndum, oft eftir viðkomu í sjö
spöðum, sem austur doblaði til út-
spils, en norður breytti í sjö grönd.
Útspilsdobl eru sannarlega ekki
ókeypis!
Ítalinn Bocchi fann hins vegar
ódýra leið til að vísa á rétta útspilið
án þess að afhjúpa sitt rétta eðli. Það
var í viðureign við aðra bandarísku
sveitina í raðkeppninni:
Vestur Norður Austur Suður
Duboin Moss Bocchi Gitelman
– – Pass 1 spaði
Pass 2 lauf Pass 2 grönd
Pass 3 spaðar Pass 4 tíglar
Pass 4 hjörtu Pass 4 grönd
Pass 5 lauf Dobl (!) 5 tíglar
Pass 5 hjörtu Pass 5 grönd
Pass 7 spaðar Pass Pass
Pass
Moss og Gitelman spila Standard
og tvö lauf er krafa í geim. Eftir að
Moss tekur undir spaðann á þriðja
þrepi taka við fyrirstöðusagnir og
síðan spyr Gitelman um lykilspil með
fjórum gröndum. Svarið á fimm lauf-
um sýnir eitt lykilspil (1.430 svör) og
þá notar Bocchi tækifærið og doblar
með eyðuna!
Leið NS liggur síðan upp í sjö
spaða, sem austur getur nú passað
rólegur, því hann hefur þegar bent
makker á rétta útspilið.
Duboin hlýddi makker og kom út
með lauf, svo slemman fór einn nið-
ur, en hinum megin sögðu Ítalir sjö
grönd og unnu.
Kannski hefði norður átt að stýra
sögnum í sjö grönd, en það er auð-
velt að vera vitur eftir á – og mun
auðveldara ef austur doblar sjö
spaða.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
www.kontakt.is
Suðurlandsbraut 4, 7. hæð. • Sími: 414 1200 • www.kontakt.is • Netfang: kontakt@kontakt.is
Sérfræðingar þínir í fyrirtækjaviðskiptum.
H
O
R
N
/H
a
u
k
u
r
/
2
0
5
2
Skemmtifundur í Glæsibæ
í dag kl. 15.00
Nokkrir af bestu ungu harmonikuleikurum landsins leika,
m.a. Oddný Björgvinsdóttir, Rut Berg,
Sólberg Valdimarsson og Ari Magnússon.
Kaffikonur sjá um veitingar að vanda.
Mætum öll og tökum með okkur gesti.
Félag harmonikuunnenda í Reykjavík. F.H.U.R
GRUNNSKÓLANEMENDUR
NÁMSAÐSTOÐ
íslenska - stærðfræði - enska - danska o.fl.
Einnig flestar námsgreinar í framhaldsskóla.
sími 557 9233,
www.namsadstod.isNemendaþjónustan sf.
Hópmeðferð - Innsæismeðferð
Í nóvember hefst hópmeðferð fyrir fullorðna einstaklinga sem vilja efla
samskipti, starfsgetu, sköpunargleði, bæta andlega og líkamlega líðan.
Í hverjum hópi verða 8-10 manns sem mætir 3 sinnum í viku. Meðferðin
byggir á „psychoanalytiskum“ grunni, þ.e. kenningum sálgreiningar sem
hafa verið þróaðar með tilliti til hópa.
Að meðferðinni stendur þverfaglegt teymi. Í teyminu eru Anna K.
Kristjánsdóttir, sjúkraþjálfari, Halldóra Halldórsdóttir,
listmeðferðarfræðingur, Hanna Unnsteinsdóttir, félagsráðgjafi, Ragnheiður
Indriðadóttir, sálfræðingur. Ráðgefandi geðlæknir starfar við teymið.
Nánari upplýsingar eru veittar frá mánudegi til fimmtudags
í símum 557 1438 og 553 9655 frá kl. 18:00 til 19:00.
geymið auglýsinguna
SNERRA hefur gefið út
Upplifðu Ísland ljós-
myndabók eftir Hauk
Snorrason ljósmyndara
með Íslandsmyndum af
ýmsum toga. Bókin skipt-
ist í 5 kafla og er þema
bókarinnar að upplifa Ís-
land á sem fjölbreytilegastan hátt; að
upplifa Ísland úr lofti, upplifa dýralífið,
listaverk nátttúrunnar, bæ og borg og
svo æfintýrin.
„Að upplifa æfintýrið er að upplifa
ísland af hestbaki, skíðum, flúðasigl-
ingum, kajökum, gönguferðum, jeppa-
ferðum og fl. Listaverk
náttúrunnar er kafli með
listrænum ljósmyndum,
nokkuð sem lítið hefur
sést af í Íslandsbókum til
þessa. Bókin er því
skemmtileg blanda af
landslagmyndum, útivist,
mannlífi og dýralífi,“ segir í kynningu
útgefanda.
Texti bókarinnar er eftir Magnús
Tuma Guðmundsson jarðeðlisfræðing
og formála ritaði Ómar Ragnarsson
fréttamaður. Aðalhönnuður bókar-
innar er Gísli B. Björnsson.
Upplifðu Ísland