Morgunblaðið - 06.11.2005, Page 64

Morgunblaðið - 06.11.2005, Page 64
64 SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓK Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Hrúturinn getur átt von á ýmsu í dag; láttu berast með straumnum, viðhorfið skiptir öllu máli. Ef þú neyðir þig til þess að vera glaður í bragði, finnur þú eitt- hvað til þess að gleðjast yfir. Ef nei- kvæðnin nær tökum á þér, finnur þú leið- ir til þess að halda henni við líka. Naut (20. apríl - 20. maí)  Ástvinir átta sig ekki á því hvað þú ert að fara eða misskilja þig alfarið. Ekki láta rugling koma í veg fyrir að þú þorir að tjá þig í framtíðinni. Ef fyrirætlanir þín- ar eru heiðarlegar, verður engin viðleitni til einskis. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Annríki þitt kallar á tíma fyrir slökun. Reyndu að fara eitthvert upp í fjöllin ef þú mögulega getur. Farðu þangað sem útsýnið er. Það er fátt sem ekki er hægt að leysa meðan maður virðir fyrir sér fal- lega náttúru. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Krabbinn á erfitt með að ná sambandi við ástvini sína vegna ólíkra áherslna og tímaskorts. Ekki reyna að neyða ráða- gerðum þínum upp á aðra, leyfðu hlut- unum að ráðast. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Ljónið gerir dags daglega tilveru að nokkurs konar listformi, hvort sem það raðar púðum á sófa eða tekur þátt í líf- legum samræðum við vin. Haltu sköp- unargáfunni við með því að umgangast þá sem kunna að meta hana. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Vertu djarfari svona almennt séð. Settu markið nógu hátt svo þú getir gortað af mistökunum síðar. Það er betra að hafa næstum því náð háleitu markmiði, en að monta sig af einhverju lítilræði. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Félagslífið getur tekið sinn toll, ef maður sinnir því með tilþrifum. Þú þarft hugs- anlega á uppörvun að halda síðar í dag. Farðu eitthvað þar sem þú verður örugglega huggulegasta manneskjan á staðnum. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú ert ekki beint sléttur og felldur. En hey, ef maður teygar lífið í botn, má allt eins búast við því að maður sulli niður á sig. Gerðu þig ánægðan með stöku bletti, þeir eru merki þess að þú hafir verið til. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Bogmaðurinn hefur yfirleitt mikið sjálfs- traust. En óöryggi þitt tekur skyndilega völdin í stutta stund í kvöld og skýtur þér skelk í bringu. Þú jafnar þig um leið og þú áttar þig á því hvað þú átt að segja við manneskjuna sem sló þig út af laginu. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú kemur svo sannarlega miklu í verk, þessa dagana. Til allrar óhamingju hefur þú lítinn eða nánast engan tíma til þess að laga það sem betur mætti fara, tryggðu þér því svigrúm til þess að gera vel í fyrstu atrennu. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Yfirlýsingar sem gefnar eru snemma dags móta það sem eftir er vikunnar. Ef þær eru sagðar upphátt hafa þær svo gott sem ræst. Þú færð tækifæri til þess að minna einhvern á að þjáningu má stundum forðast en eymdin er val. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Viðkvæmnin ræður ríkjum. Fortíð og nútíð renna saman í eitt. Færðu frá það sem þér er unnt. Það kann ekki góðri lukku að stýra að taka ákvarðanir á al- mennum forsendum. Láttu hreinskilnina ráða för, annars festistu í fari. Stjörnuspá Holiday Mathis Þegar tungl er í steingeit kemur listinn með hlut- unum sem við „ætlum“ að gera „einhvern tímann“ út úr skúma- skotum hugans. Á þessari bylgjulengd á maður að gera og vera meira og stundum kemur upp skömmustutilfinning sem hvet- ur okkur til dáða. Nýttu meðbyrinn og tæklaðu hindranirnar. Þannig eykst sjálfs- traustið. Það kostar ofurmannlega fyrir- höfn að vera ánægður með sjálfan sig. Hinn breski ashtangajógakennariHamish Hendry er á leið til Íslandsog ætlar að halda námskeið fyrirmörlandann næstu helgi 11.–13. nóvember í Jógastöðinni Heilsubót Síðumúla 15. Hjónin Guðmundur Pálmarsson og Talya Freeman eiga frumkvæðið af því að fá Hamish hingað til lands, en þau eru bæði dyggir jóga- iðkendur og kenna einnig jóga reglulega. „Hamish rekur eitt vinsælasta ashtangajóga- stúdíó í London en hann byrjaði að iðka ashtangajóga árið 1990 og hann fór reglulega til Indlands til að iðka þetta jóga með einum helsta meistara ashtangajóga. Árið 1995 byrjaði Hamish að kenna þessa tegund af jóga og þá er hann orðinn viðurkenndur kennari í ashtanga- jóga, sem þýðir að hann er búinn að fullkomna hinar sex seríur ashtanga, en auk þess er hann mjög andlega sinnaður maður. Aðeins um þrjá- tíu manns í heiminum öllum hafa fengið þann titil að vera viðurkenndir kennarar í ashtanga- jóga,“ segir Guðmundur Pálmarsson. En hvað er ashtangajóga? „Ashtangajóga er mjög kraftmikill stíll, þetta er jóga sem byggist á líkamsstöðum. Þetta eru sjötíu og fimm stöður sem eru alltaf gerðar í sömu röð. Helsta einkennið í þessu jóga er flæði, eða sambandið milli öndunar og hreyf- inga. Þessi tegund af jóga er því fyrir alla, en alls ekki aðeins fyrir þá sem eru andlega leit- andi. Þetta er svo kraftmikið að með tíð og tíma þegar fólk hefur lært alla seríuna, þá hefur það öðlast mikinn líkamlegan styrk og mikinn sveigjanleika. Þetta hentar því ekki síður þeim sem hafa brennandi áhuga á hreyfingu,“ segir Guðmundur og leggur áherslu á að til að stunda ashtangajóga þá þurfi fólk ekki að vera andlega sinnað. „Þetta er fyrir alla og Hamish vill gjarnan fá byrjendur á námskeiðið. En það hef- ur verið svolítill misskilningur með ashtanga- jóga, því margir halda að það sé allt of erfitt, af því að myndir af fólki í þessum jógastöðum geta virkað mjög flóknar, þar sem líkaminn er sveigður til og frá. Sama er að segja um mjög kraftmiklar handstöður, þar sem einhver stend- ur til dæmis á höndum með fæturna í lótus, það getur virkað fráhrindandi á suma, en þetta er ekki eins flókið og það sýnist,“ segir Guð- mundur og ítrekar að það sé ekkert dularfullt tengt þessari jógaiðkun og að fólk þurfi ekki að vera andlega sinnað til að mæta á námskeiðið. „Ashtangajóga snýst fyrst og fremst um lík- amsæfingar og öndun.“ Nánari upplýsingar um námskeiðið er að finna á www.yoogaheilsa.is og skráning er í síma 517-4565. Jóga | Hamish Hendry heldur námskeið um ashtangajóga Fyrst og fremst líkamsæfingar  Guðmundur Pálm- arsson er smiður og jógakennari. Hann lagði stund á sálfræði við Háskóla Íslands í tvö og hálft ár. En jóga er fyrst og fremst hans nám þar sem allt hans líf snýst um iðkun yoga og að leggja stund á þau fræði. Hann hefur búið á jógamiðstöðvum í Frakklandi í sjö mánuði, iðkaði og lagði stund á jógafræði í tvo og hálfan mánuð á Ítalíu og einnig gerði hann hið sama í þrjá mánuði á Ind- landi. Guðmundur er giftur Talyu Jane Freeman og eiga þau eina dóttur sem er eins árs. Sudoku Miðstig Lausnir síðustu Sudoku Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com Frumstig Miðstig Efstastig Frumstig © Puzzles by Pappocom Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Efstastig 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Krossgáta Lárétt | 1 vextir, 4 ný, 7 hitann, 8 þjáist, 9 reið, 11 mýrarsund, 13 hugboð, 14 ættarnafn, 15 vatnsfall, 17 atlaga, 20 bókstafur, 22 sori, 23 krapasvað, 24 nauða á, 25 þjálfi. Lóðrétt | 1 raunveruleiki, 2 synja, 3 fífl, 4 fjall, 5 fer á hesti, 6 húsdýrið, 10 fim- ur, 12 lofttegund, 13 á lit- inn, 15 ánægð, 16 örlaga- gyðja, 18 huglausum, 19 skarni, 20 espa, 21 skrif- aði. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 gaumgæfir, 8 þolls, 9 dauða, 10 sói, 11 gutla, 13 rengi, 15 sekks, 18 endur, 21 lof, 22 Eldey, 23 nýtni, 24 gangbraut. Lárétt: 2 atlot, 3 messa, 4 ældir, 5 Iðunn, 6 óþæg, 7 vani, 12 lok, 14 enn, 15 skel, 16 kodda, 17 slyng, 18 efnir, 19 duttu, 20 reið.  60 ÁRA afmæli. Í dag, 6. nóvem-ber, verður sextug Olga B. Magnúsdóttir. Hún er stödd í faðmi eiginmanns á Kúbu. Heimilisfang: Crta. de las Morlas, sími: 00 (5345) 66 7013, fax: 00 (5345) 66 7012. Árnaðheilla dagbók@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.