Morgunblaðið - 06.11.2005, Síða 68
68 SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Nú þegar aðeins rúmar sjövikur eru til jóla, hafahelstu titlar plötufyr-
irtækjanna verið kunngjörðir.
Svo virðist sem þessi jólavertíð
ætli ekki að verða eftirbátur ann-
arra þegar fjöldi titla er borinn
saman (um 170 alls) og því má
ætla að baráttan um söluna verði
hörð – nú sem áður. Eðli plöt-
umarkaðarins á Íslandi er að
mörgu leyti ekki mjög ólíkt öðr-
um erlendum markaðssvæðum.
Eftir því sem líður á árið, fjölgar
útgefnum titlum og í lok ársins
eru þeir orðnir svo margir að að-
eins stærstu stjörnurnar megna
að skína í gegnum það kraðak
sem neytandanum er gert að
velja úr.
Hins vegar má leiða rökum að
því að á sama tíma og plötumark-
aðir á stærri markaðssvæðum
skiptast í fjögur tímabil (fjórð-
unga) sem skipta á milli sín mis-
stórum útgáfum eftir hávísinda-
legum aðferðum, er hér á landi
aðeins um tvö tímabil að ræða:
Jólavertíðina sem nær yfir þrjá
síðustu mánuði ársins, og svo
hina níu mánuðina.
Á undanförnum misserum hafaóþekktari tónlistarmenn
brugðist við æ erfiðari markaðs-
aðstæðum með því að gefa út
plötur sínar áður en jólavertíðin
fer í gang. Margt mælir með
þessu. Til dæmis er mun auðveld-
ara að ná athygli fjölmiðla á fyrri
hluta ársins en þeim seinni. Þá
eru meiri líkur fyrir tónlist-
armenn að komast að í hljóð-
verum, fyrir minni kostnað jafn-
vel og í heila fimm mánuði er
hægt að kynna plötuna fyrir væn-
legum kaupendum áður en sum-
ardoðinn færist yfir þjóðina. Síð-
ast en ekki síst má reikna með
því að athygli plötufyrirtækisins
á listamönnunum sé óskiptari
þegar lítið er um útgáfur – en
allur gangur mun þó vera á því.
Ef litið er yfir tónlistarmark-
aðinn á Íslandi má segja að um
nokkuð heilbrigðan markað sé að
ræða; Sena, Smekkleysa, 12 Tón-
ar, Steinsnar, Geimsteinn og 21
12 myndu teljast til þeirra helstu
sem nú starfa á markaði en auk
þeirra má nefna nokkur minni út-
gáfufyrirtæki, þó búast megi við
að PlanB fyrirtæki Einars Bárð-
arsonar eigi eftir að kljást við
þau stærstu innan tíðar.
Þar fyrir utan hefur það færst
í aukana að tónlistarmenn gefi út
á eigin vegum og geri síðan
samninga við fyrirtækin um að
dreifa plötunum í verslanir. Það
hentar þeim tónlistarmönnum vel
sem sjá fram á lítinn upptöku- og
framleiðslukostnað og æ fleiri
tónlistarmenn spyrji sig að því í
dag hvort sá kostnaður sem
plötufyrirtækið leggur til útgáf-
unnar, réttlæti þá prósentutölu
sem hún heimtar á móti af plötu-
sölu.
Að sama skapi má hugsa sér aðplötufyrirtækin velti þessu
sama fyrir sér og með núverandi
uppgangi í efnahagslífi þjóð-
arinnar, aukinni markaðsvitund
og svo því vandamáli sem plöt-
umarkaðurinn stendur frammi
fyrir þegar það kemur að nið-
urhali, má reikna með að krafan
um hagræðingu sé orðin meiri en
hún var fyrir örfáum árum.
Þessu til stuðnings má draga þá
markaðshlutdeild sem Sena (sem
áður var Skífan) hefur á mark-
aðnum, því að á sama tíma og
plötufyrirtækið gefur út um
þriðjung íslenskra platna er sölu-
hlutdeild fyrirtækisins nær 70%.
Ef til vill má leita margra skýr-
inga á yfirburðastöðu Senu, en þó
má sjá, þegar litið er á þá titla
sem Sena gefur út í ár, að hér er
aðallega um mjög sterka popp-
titla að ræða; Helgi Björns, Jónsi,
Sálin hans Jóns mín, Svala Björg-
vins, Bjarni Ara, Hera, Jón Sig-
urðsson, Írafár og fleiri, sem telj-
ast til vinsældatónlistarmanna,
eru í meirihluta á listanum. Og
málið er einfaldlega það að þessir
titlar seljast svo vel að fyrirtækið
þarf ekki að gefa út nema um
þriðjung titla til að ná meiri-
hlutasölu á íslenskum plötumark-
aði.
Þessar tölur hljóta að veranokkurt umhugsnarefni fyrir
hin plötufyrirtækin sem sam-
anlagt gefa út um 2⁄3 allra ís-
lenskra titla en verða svo að láta
sér um 30% af markaðssölunni
nægja. Líkleg er hér um svipaða
hluti að ræða og annars staðar í
listaheiminum. Mörg fyrirtæki í
listaiðnaði haga rekstri eftir
smekk eða hugsjón og þá skiptir
hagnaður ekki alltaf miklu máli.
Það sem Sena verður hins veg-
ar að varast er að missa ekki
tengsl sín við grasrótina og þá
listamenn sem landið munu erfa
því að það kemur að því að Sigga
Beinteins, Ðe Lónlí Blú Bojs og
Bjarni Ara syngi sitt síðasta.
Þá má reikna með því að þeir
listamenn sem 12 Tónar, Smekk-
leysa eða 21 12 fóstruðu, taki við
og Sena endi sem útungunarstöð
fyrir tökulagaplötur Idol-stjarna
og Pottþétt-platna.
Reikna má með því að harkaná plötumarkaðnum eigi eftir
að aukast í náinni framtíð og ef-
laust kemur að því að annað stórt
fyrirtæki á borð við hið sáluga
Japis, rísi gegn Senu. Á þessari
stundu eru engar sérstakar blik-
ur í lofti sem benda til þess og
menn virðast ennþá nokkuð sáttir
við sitt. Oft þarf ekki nema einn
vinsælan listamann hjá hverju
plötufyrirtæki til að borga upp
allt tapið sem verður af hinum
tíu.
Enn sem komið er virðast allir
eiga einn slíkan að.
Stríðið sem
geisar um jólin
’Mörg fyrirtæki í lista-iðnaði haga rekstri eftir
smekk eða hugsjón og
þá skiptir hagnaður
ekki alltaf miklu máli. ‘
AF LISTUM
Höskuld Ólafsson
Mikla vonir eru bundnar til Heitu lummana en ljóst að keppnin verður hörð.
hoskuldur@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Jólablað Morgunblaðsins
kemur út föstudaginn 25. nóvember
Blaðið verður prentað á hvítan 60 gr pappír í sömu stærð og Morgunblaðið
Meðal efnisþátta í Jólablaðinu eru:
• Uppáhalds jólauppskriftir - fjöldi manns segir frá
• Jólaföt á alla fjölskylduna
• Uppskriftir að ýmsu góðgæti til að borða
á aðventu og jólum
• Villibráð
• Hefðbundnir jólaréttir og jólamatur
• Grænmetisréttir á aðventunni
• Smákökur
• Girnilegir eftirréttir
• Jólaföndur
• Jólamarkaðir
• Jólabjór og vínin
Auglýsendur!
Pöntunartími er fyrir klukkan
12 mánudaginn 21. nóvember
Skilatími auglýsinga er fyrir klukkan
12 miðvikudaginn 23. nóvember
Allar nánari upplýsingar veitir
Katrín Theódórsdóttir í síma
569 1105 eða kata@mbl.is