Morgunblaðið - 06.11.2005, Qupperneq 69
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2005 69
TÓNLIST
Íslenskar plötur
Lúdó og Stefán - 45 rokkár
Lúdó sextett og Stefán skipa hér þeir
Stefán Jónsson (söngur), Arthur Moon
(bassi, söngur), Elfar Berg (píanó, hljóð-
gervill), Hans Jensson (saxafónar, söng-
ur), Þorleifur Gíslason (saxafónar), Hall-
varður S. Óskarsson (trommur, söngur)
og Vilhjálmur Guðjónsson (gítar). Lög og
textar eru eftir ýmsa höfunda, innlenda
sem erlenda. Útsetningar og upptökur
voru í höndum Þorleifs Gíslasonar. Þor-
leifur og Vilhjálmur Guðjónsson hljóð-
blönduðu. Lúdó gefur út.
ROKKSVEITIN Lúdó er nánast
jafngömul rokkinu sjálfu, var stofn-
uð örfáum árum eftir að Haley,
Presley og félagar
höfðu hrundið
þessu langlífa æði
af stað. Lúdó hef-
ur verið starfandi
síðan og leikið
reglulega á hljóm-
leikum þó minna hafi verið um
plötuútgáfu. Reyndar er meira en
aldarfjórðungur síðan að síðasta
plata kom út. Úr þurrkinum hefur
nú verið bætt en kveikjan að þess-
ari plötu var endurútgáfa „Rauðu
plötunnar“ fyrir fjórum árum, sem
SG gaf upprunalega út árið 1976.
Lúdó halda sig hér eðlilega við
það sem þeir kunna best og hafa
einbeitt sér að á löngum ferli, það
er rokk og ról eins og það var fram-
ið á sjötta áratugnum. Inn á milli
eru síðan tvö skandinavísk stuð-
ballalög, tvö frumsamin lög og svo
perla þeirra Oddgeirs Kristjáns-
sonar og Ása í Bæ, „Ég veit þú
kemur“.
Upphafslagið, „Djamma og fríka
út“ er eitt þeirra frumsömdu, er
eftir Þorleif Gíslason, saxafónleika
sveitarinnar. Lagið í gamaldags
rokkstíl og textinn hreint ævintýra-
legur þar sem segir af stuðbolta
sem ætlar að sletta ærlega úr
klaufum, drekka viskí af stút og
verða „kærulaus og kúl“. Í texta
segir m.a.: „Ég hitti píj’ og sagði
„jú æ fíl“ en svarið var „jú hev nó
sexapíl“! Þetta hnoð er að sjálf-
sögðu í stíl við það sem tíðkaðist
(og tíðkast reyndar enn) í rokk-
textagerð en bæði lag og texti fara
þó á endanum fram úr sér í vitleys-
isgangi. Hitt frumsamda lagið,
„Hún æpti“, er svipað að gæðum.
Þessi beint-af-augum hráleiki
gerir plötuna á köflum nokkuð
áhlýðilega en þess á milli er eins og
hún koðni hálfpartinn niður. „Litli
Jón“ („The Hucklebuck“) og
„Komdu ljúfan“ („Be My Guest“)
eru dæmi um kraftlítinn og flatan
flutning sem einkennir plötuna í of
miklum mæli. Einnig finnst mér
skandinavíska sveiflutvennan,
„Töfrar“ („Frid og gammen“) og
„Æskuvinir“ („Samma tid samma
plats“) vera illa á skjön við annað
efni á plötunni. Tvennan er þó
sæmilega sungin af trymblinum
Hallvarði S. Óskarssyni. Stefán
Jónsson er einn merkasti rokk-
söngvari Íslendinga, baritónröddin
er ákveðin en hlý og er unun á að
hlýða þegar vel er. Á þessari plötu
er söngröddin þó oftast fremur
stirðbusaleg einhverra hluta vegna.
Lúdó ná sér best á strik í „Um
hól og tún“ („Bony Maronie“) sem
rokkar bara nokkuð feitt en best er
þó lokalagið, „Ástin“ („Feelings“).
Það er bæði fallega sungið og vel
útsett, undirspilið nær vel þeim
ljúfsára anda sem lagið býr yfir.
Umslagshönnun plötunnar er af-
skaplega klén og eins er leiðinlegt
að sjá lagatitla beygða undir enska
setningarfræði. Þannig stendur
„Ég Veit Þú Kemur“ í stað „Ég
veit þú kemur“. Talsvert er þá um
stafsetningarvillur í bæklingi.
Það er efalaust glatt á hjalla er
rokkstríðshestarnir í Lúdó
skemmta á tónleikum en á plötu
þessari er stuðið ekki að komast
nægilega vel til skila.
Tölt um
langan veg
Arnar Eggert Thoroddsen
stund“ og þorpsrómantíkin „Bær-
inn minn“.
Hljóðfæraleikur er lýtalaus, gít-
arleikarar standa sig einkum vel,
en eru sex talsins svo ómögulegt er
að ráða í það hver á í hlut hverju
sinni. Hlynur Þór Valsson blæs líka
vel í munnhörpu í tveimur lögum.
Allur frágangur er fagmannlegur,
hljómur góður og umbúðir vel úr
garði gerðar.
TÓNLIST
Geisladiskur
Matti Óla – Nakinn
Geislaplata Matta Óla. Matti Óla flytur
eigin lög og texta ásamt hljómsveit.
Flytjendur eru Matti Óla, Hallbjörn V.
Rúnarsson, Hlynur Þór Valsson, Kristinn
Hallur Einarsson, Ólafur Ingólfsson, Ólaf-
ur Þór Ólafsson, Smári Guðmundsson,
Fríða Dís Guðmundsdóttir, Guðmundur
Kristinn Jónsson og Pálmar Guðmunds-
son. Upptökur og hljóðblöndun fóru fram
í Upptökuheimili Geimsteins. Matti Óla
gefur sjálfur út.
EINHVERRA hluta vegna er al-
gengast að þeir sem fást við tónlist
hefji ferilinn ungir, jafnvel sem
unglingar. Þó fá
auðvitað aðrir
áhugann síðar og
stunda þá hugs-
anlega tónlistina á
öðrum forsendum,
eða a.m.k. sínum
eigin. Matti Óla er einn þeirra og
gefur í haust út sína fyrstu breið-
skífu, Nakinn, með eigin lögum og
textum.
Matti Óla tilheyrir helst söngva-
skáldum, textarnir eru áberandi og
tónlistin auðheyranlega samin á
kassagítar. Útkoman minnir oft á
einherja á borð við Hörð Torfa,
trúbadorhlið Bubba Morthens og
Halla Reynis svo eitthvað sé nefnt,
þó er tónlistin nær öll flutt af full-
skipaðri hljómsveit. Blúsrokk og
gítarpopp er ráðandi en víða komið
við, mjúkum bassa og kassagít-
urum er blandað við rafmagnsgít-
ara, orgel, munnhörpu og svo rödd
Matta sem rífur meira í hlustirnar
en framangreind hljóðfæri sam-
anlögð.
Það er óhjákvæmilegt að hnjóta
um röddina, sem er mjó og rifin,
næstum kreist úr barka söngvar-
ans. Í útvarpsviðtali nýlega sagðist
Matti hafa verið varaður við því að
syngja sjálfur, en annað hafi ekki
komið til greina. Sem er sjálfsagt,
tónlistin er hans og ef röddin er
hluti af henni þá er það einfaldlega
svo. En það þýðir á hinn bóginn
ekki að öðrum lítist endilega á,
röddin venst illa að mati þess sem
skrifar, án þess þó að hún sé fölsk.
Fleira hefði mátt fara betur,
flytjandinn er að stíga sín fyrstu
skref og diskurinn ber þess vitni,
þótt ekkert sé beinlínis athugavert
við lagasmíðar eða útsetningar þá
er niðurstaðan oft litlaus og upp-
skriftafylgin. Matta háir það sama
og mörgum nýherjum, óháð aldri,
að hann er enn að móta sig og tón-
listina. Best tekst honum upp þar
sem kassagítarinn nýtur sín, í t.d.
lögunum „Bara einu sinni“ og
„Nakinn“, en verr í reggílaginu
Rúsínur sem er óáhugavert. Textar
á disknum eru ágætir, fjalla um
hversdaginn á kíminn og einlægan
hátt til skiptis, t.d. „Hin heilaga
Gísli Árnason
Hversdags-
rómantík,
rifinni röddu Áður óþekkt lag, sem Bítillinnfyrrverandi John Lennon
samdi á áttunda áratugnum ásamt
félaga sínum Bruce Bierman, verð-
ur gefið út á næstunni. Þetta kemur
fram í vefútgáfu Jótlandspóstsins.
Bierman, sem er lítt þekktur
rokkari, kynntist Lennon í New
York á áttunda áratugnum og fljót-
lega fóru þeir að semja og taka upp
lög saman. Að sögn Bierman var
hann einskonar lærisveinn Lennons.
Hann segir Lennon hafa kunnað að
meta það að Bierman sýndi tónlist
hans mikinn áhuga og að hann vildi
læra af honum. Bierman kveðst ekki
bara hafa viljað
sjást með Lenn-
on á almanna-
færi. „Hann fyr-
irleit allt slíkt.
Tónlistin sem við
sköpuðum saman
segir meira en ég
get tjáð í orðum,“
segir Bierman.
„Ef fólk er forvitið um það sem ég
gerði með Lennon þá mun ég örugg-
lega finna leið til þess að deila því
með fólki. Ég er ekki að reyna að
græða á Lennon á neinn hátt,“ segir
Bierman.
Á vefsíðunni www.newlennon.com
er hægt að heyra brot af lögunum
„Central Park“, „Surprise“ og
„Lonely Tear“ sem voru tekin upp á
árunum 1974 til 1977.
Fólk folk@mbl.is
Leikhúskjallarinn 2005
Frá 24. nóvember til 22. desember
Jólahlaðborð Leikhúskjallarans er í sérflokki; hátíðlegt andrúmsloft, fallegar jólaskreytingar,
girnilegt sælkerahlaðborð, vönduð skemmtiatriði og bráðfjörugur dansleikur!
Staðarhaldari, Örn Árnason, tekur á móti gestum í fordrykk
Bjargræðiskvartettinn flytur þekktar jólaperlur
Kjallarabandið leikur fyrir dansi
Forréttaborð:
Sinnepssíld, tómatsíld, einiberjasíld,
reyktur og grafinn lax með piparrótarsósu
og dillsósu, villijólapaté með berjasósu,
rækjuturn, gæsaconfit á salati með
berjadressingu, hreindýracarpaccio,
rúgbrauð, laufabrauð og smjöri.
Aðalréttaborð:
Lambalæri í kryddhjúp með villisveppasósu,
roastbeef með bernaise-sósu, Hamborgar-
hryggur með rauðvínssósu, hangikjöt með
uppstúf, kartöflugratín, sykurbrúnaðar
kartöflur, grænmeti og salat.
Eftirréttir:
Heit eplakaka, Sherry souffle,
kirsuberjakaka og riz à la mande með
hindberjasósu.
M ATS E Ð I L L
Nánari upplýsingar eru gefnar í síma 585 1295
Einnig er hægt að senda tölvupóst á leikhuskjallarinn@leikhusid.is
Salnum, Kópavogi
í kvöld kl. 20:00
Regína Ósk, Friðrik Ómar og Jóhann Friðgeir
Miðasala í síma 5 700 400 og á www.salurinn.is
AÐEINS ÞETTA EINA SKIPTI!
ATH!
Tinganelli
Ég flýg frjáls
Auk Leone og hljómsveitar koma fram: