Tíminn - 15.04.1970, Blaðsíða 10
10
MIÐVIKUDAGUR 15. apríl 1970.
TIMINN
Maysie Greig
ÁST Á VORI
17
— Dóttir yöar er sautján ára.
minnti Japaninn hann á. — Mér
hefur skilizt, að hún sé mjög vel-
■gefin stúllka.
— Gœti ég ekki farið og hitt
•hana á barnaheimilinu? spurði
Tom.
■— Það gæti valdið erfið-
leikum, jafnvel hneyksli fyrir
ungu stúlkuna. Ég hef spurzt fyrir
um það í nágrenninu, og líka á
barnaheimilinu, og það er al-
mennt álitið, að hún sé hrein-
ræktaður Japani.
— Það getur vel verið, en ég
ætla e'kki að sætta mig við þessi
endalok. Hann virtist reiður.
— Ég get vel skilið það, hr.
Dillan, sagði leynilögreglumaður-
inin mcð meðaumkunarhreim í
röddinni. — Ég vonast sannarlega
til þess, að ég geti, svo lítilmót-
legur, sem ég er, gert eitthvað
frekar til að aðstoða yður. Mér
hefur dottið í hug, að gœti ein-
hver flutzt til Itohjónanna og náð
trúnaði Michiko-son, þá gæti það
orðið til einhverrar hjálpar. Hún
má auðvitað ekki vita, að þessi
manneskja standi á nokkurn hátt
í sambandi við föður hennar —
þið afsakið, að ég segi þetta, hr.
Dillan — sem hún fyrirlítur svo
mjög. Iitohjónin, sem líta á hana
sem dóttur sina, og vilja eflust
ckki„ að hún fari burt frá þeim,
hafa trúlega komið þéssari skoð-
un inn hjá henni. En þrátt fyrir
það, að hún heldur því fram, að
hún hati Bandaríkjamenn, getur
vel verið, að hún sé ekki jafn
viss innst inni, og þætti gott að fá
einhvem, sem hún getur trúað fyr
ir áhyggjum sínum. Hann laut
rom. — Þetta er aðeins lítilfjör-
leg uppástunga mín, hr. Dillan.
— Mér finnst þetta fjári góð
hugmynd, sagði Tom hugsandi. —
Vrið þurfum nauðsynlega að eign
ast bandamann i herbúðum óvin-
arins. En settist nú einhver á okk-
ar vegum að í húsinu, myndu þá
:kki Itohjónin komast að því
þegar í stað og finna lyktina af
íobtunni?
Hr. Oswara lyfti hendinni upp
að munninum og reyndi að dylja
hláturin.n. — Þér eigið við að það
sé vond lykt p.f rottum hr Ðill-
an? En hlægilegt. Það ætt: þó
ekki að verða svo erfitt. Ég er
með auglýsingu hér í vasa mín-
um. Hann stakk hendinni niður
í vasann, og dró upp veski sitt,
og tók úr því úrklippu úr einu
dagblaðanna. — Hér stendur, að
erlendir stúdentar séu velkomnir
til heimilis Minami og Maki lto,
þar sem þeir geti fengið bæði hús-
næði og fæði.
— Það er mikið um erlenda
stúdenta hér, aðra en Bandarikja-
menn. Hví skyldu þau vilja erlenda
stúdenta? hrópaði Christopher
upp yfir sig.
— Já, hér eru margir erlendir
stúdentar aðrir en Bandaríkja-
menn, sagði hr. Oswara. — Hér
eru Þjóðverjar og Rússar, og stúd-
entar frá Austur-Evrópulönd-
unum eru hér lfka við nám í há-
skólum okkar, til þess að geta
hér tileinkað sér nvenningu okk-
ar. Ég er hér með lista yfir þá
gesti, sem nú búa hjá Ito: Wang
Lee og John Chao, báðir frá Kína,
Zontan Andrassi v.v o'skur,
Ivan Surkov frá Rússlandi.
— Þeta er undahega: gesta
lisrti, sagði Chris þungt hugsi. í
mínum eyrum hljómar þetta eins
og um komma sé að ræða, eða
að minnst.a kosti áhangendur
þeirra.
— Ég geri ráð fyrir, að þér
hafið á réttu að standa, hr. Land-
our, sagði hr. Oswara samþykkj-
andi, — þótt hr. John Chao sé
brezkur þegn og komi frá Hong
Kong. Svo býr líka Japani í hús-
inu, frændi frú Ito, Yaizuk Seki.
Svo skilst mér, að læknir að nafni
dr. Frank Rickard, sem er með
lækningastofu í íbúð þarna í ná-
grenninu, borði fiestar máltíðir
hjá Ito-hjónunum.
— Dr. Frank Rickard, sagði
Tom. — Eftir nafninu að dæma
er hann annað hvort enskur eða
bandarískur.
Hr. Oswara brosti dauflega, en
gular tennurnar komu þó í ljós.
— Hann er alveg áreiðanlega ékki
bandarískur, því þá væri hann
ekki orðinn allt að því einn af
Ito-fjölskyldunni. Hann, eins og
dóttir yðar, er af blönduðum upp-
runa. Faðir hans yar enskur, en
móðirin japönsk. Ég hitti hann,
þegar ég var að rannsaka þetta
mál. Ég fór reyndar til hans í
stofuna, og lét sem mér væri eitt-
hvað illt í maganum. Mig langaði
til þess að vita, hvort ég gæti
akki komizt p.ð einhverju rneira
um Ito-fyrirtækið.
— Komuzt þér að nokkru?
spurði Christopher.
— Ekki neinu sem rkiptir
ykkur máU. herrar mfnir, sagði
hr. Oswara. Hann c* tnik:t> frem-
ur enskur en japanskur. í útliti
minnsta kosti, en mér skilst,
að hann hafi svipaðar skoðsnir á
faðerni sínu og stúlkan. Enda
þótt hann útski'ifaðist úr skóla i
Englandi, vildi hann koma hing-
að aftur til þess að vinna fyrir
hina fátæku landa móður sinnar.
— Þetta hljómar allt heldur
undarlega, sagði Tom, — og ég
er ekkert hrifinn af því að hafa
dóttur mína með þessu fólki. Ég
vildi helzt ná henni undan áhrifa
valdi þessa fólks eins fljótt og
hægt er.
— Það verður ekki auðvelt, hr.
Dillan, sagði hr. Oswara alvarleg-
ur. — Ito-son og kona hans eru
mjög hrifin af Michiko-san, og
eftir þvi sem þau segja sjálf, er
hún ekki síður hænd að þeim.
En auövitað eru þetta aðeins
þeirra orð. En hvað sem öllu
öðru líður. virðast bau hafa
rr.ikið vald yfir henni. Því sting
ég upp á, að við reynum ?.ð koma
einhverjum inn á heimilið. Þó
ekki yður hr. Ditlan eða hr. Land
öðru sem Itohjónin þekkja. Þessi
manneskja gætj reynt að ná vin-
áttu stúlkunnar, og fá hana til
þess að trúa þvi, að bandarískir
menn séu bæði góðir og ágætir,
og séu aðeins að reyna að halda
friði í heiminum. IJann brosti
aftur svolítið undarlega. — Þá
kynni að vera hægt að fá hana
til þess að hitta föður sinn og
tala við hann. Hún gæti meira að
segja viljað lifa lífinu með hon-
um.
— Já, sagði Tom með þungn
áherzlu. — Það er einmitt það,
sem ég vil. Þess óska ég helzt af
ö!lu i þessum heimi — að fá
dóttur mína, dóttur Eiko; undir
vernd mína, á heimili mínu.
B?th heyrði alvöruna, sem lá í
csk hans, og hún hélt, að hún
skild: hana, en hún hefði heldur
ékki verið mannleg, ef hún sjálf
i’.efði ekki fundið til ofurlítiis
sársauka. Hann hafð; sagt, að
það, sem hann vildi helzt í þess- \
um heimi, væri að ná sáttum við j
dóttur sína. Hún sagði sjálfri sér, J
að hún skildi þetta, en sársauk-1
inn var áfram í hjarta hennar.
Hún skammaðist sín vegna hugs-
ana sinna og henni fannst hún
yrði að gera eitthvað til þess nð
hjálpa Tom. Til hvers annars hafði
hún komið hingað? — allt í einu
datt henni svolitið í hufí.
Hún fór strax að tala: — Hví
skyldi ég ekki fara til Ito-
hjónanna, sem leigjandi? Þau
þekkja mig ekki. Það er engin
ástæða til þess að ætla, að þau
setji mig í samband við föður
Michiko eða Christopher, eða
yður hr. Oswara. Ég gæti látið
sem ég væri hér til þess að læra
japönsku. Það hlýtur að vera ein-
hver málaskóli hér, sem ég get
látið innrita mig í .
—Já, auðvitað. Hr. Oswara
færði sig til í stólnum, og augun
lýstu af ákafa. Þetta er skínandi
hugmynd, ungfrú Rainer. Þetta
gæti komið sér mjög vel fyrir
hr. Dillan, að þér byggjuð í sama
húsi og Michiko-san. Mér skilst,.
að þér séuð einkaritari hans. Þér
eruð því áreiðanlega manneskja,
sem hann getur treyst.
Tom horfði á hana með þakk-
iæti og alvöru í augunum.
— Mundir þú raunveruleg*
vilja gera þetta fyrir mig Beth?
— Kom ég ekki hingað til þess
að hjálpa þér? spurði hún
hvasst, og bætti svo við, og leit
á hr. Oswara: — Hversu gömul
er þessi auglýsing. Haldið þér,
að búið sé að láta herbergið?
— Auglýsingin var í 'blaðinu í
gær, svaraði japanski leyni-
lögreglumaðurinn. — Mér skilst,
að það sé nokkuð dýrt að búa
hjá Itohjónunum. Það hafa ekki
margir fátækir stúdentar ráð á að
borga það, sem þau setja upp, og
vissulega ekki japanskir stúdent
ar heldur. Hr. Ito er kaupsýslu-
maður, en hefur ekki mikil um-
S'vif.
— Ég get að minnsta kosti
reynt, sagði Beth, eins og málið
væri útrætt. — Ætti ég að
hringja fyrst?
— Ég held, að það væri ekki
rétt, sagði hr. Oswara. — Þan
myndu fyllast grunsemdum, ef
þau heyrðu aðeins rödd í síman-
um. Og þar að auki vilja þau
er miðvikudagur 15. apríl
— Olympiades
Tungl í hásu'ðri kl. 21.24.
Árdegisháflæði í Rvík kl. 1.49.
IiEILSUGÆZLA
SLÖKKWILIDIÐ 02 sjúkrablfreiðii
SJÚKRABIFREIÐ I BafnarflrfH
sfma 51336.
fyrir Reykjavík og Kópavop
Staii 11100
SLYSAV ARÐSTOFAN t Borgar
spltalannm er opin allan sólar
hrlnglnn. Aðelns móttaka (la»
aðra. Slml 81212
Kópavogs-APótek og Keflavíkui
Apótek eru opto virka daga kl
J—19 laugardaga kl. 9—14 helga
daga kl. t3—15.
Aimennar upplýsingar um lækna-
þjónustu 1 borginni eru gefnar 1
símsvara I æknafélag;. Reykjavík
ur, sími 1888?
Fa?ðjiigarhcimilið i Kópavogi,
Hlíðarvegi 40. sími 42644.
Kvöld og helgidagavörzlu Apó-
reka í Reykjavík vikuna 11. — 17.
apríl annast Lyfjabúðin Iðunn og
Gaxðs-Apótek.
Kópavogs-apótek og Keflavökur
apótek eru op! virka daga kl. 9.
—19 laugardaga kl. 9—14, helgi-
daga kl. 13—15.
Apótek Hafnarfjarðar er opið
alla virka daga frá kl 9—7 a laug
ardögum kl. 9—2 og ? suunudög
um og öðruni helgidögum er op-
ið frá ki. 2—4
Tamnlæknavakt er í Heilsuvernd
arstöðinm (þar sem riysavarðstof-
am var) og er opim laugardaga og
sunnudaga kl. 5 — 6 e.h. Sim:
22411
Næturvörzlu í Keflavík 15- apríi
annast Kjartan Ólafsson.
FÉLAGSLIF
Tónabær — Tónabær — Tónabær
Félagsstarf eldri borgara-
Miðvikudaginn 15. apríi verður op-
ið hús frá kl. 1,30 — kl. 5,30. Dag-
skrá: Spll. tafl, lestur, kaffiveiting-
ar, bókaútlán upplýsingaþjónusta
og skemmtiatriði,
Ncmendasamband Löngumýrar-
skóla hTdur Bazar og kaffisölu í
Lindarbæ á sumardaginn fyrsta kl.
2. Uppl- í sima 12701.
Verkakvciinafélagið Framsókn.
Fjölmennið á spiiakvöld 16. april
kl. 8,30 í A'lþýðuhúsinu. Þriggja
kvölda keppnj hefst með þessu
spilakvöldi.
Kveiu’éttindafélag íslands, held-
ur fund í kvöld miðvikudag 15.
apríl kl. 8,30 að Hallveigarstöðum.
Á fundinum flytur Bjarnj Bragi
Jónsson forstjóri Efnahagssofnun-
arinnar erindi um endurhæfingu
og tilfærslu milli starfsgreina.
Mæðrafélagið heldur íund
fimmtudaginn 16. april að Hverfis-
götu 21. kl. 8,30. Dagskrá: Félags-
mál. 2. Leikþáltur. 3. Félagsvist.
Konur mætið stundvislega og tak-
i« með ykkur gesti.
FLUGÁÆTLANIR
Loftleiðir h.f.:
Bjarni Kerjólísson er væntanlegur
frá NY kl. 1030. Fer til Luxem-
borgar kl, 1130- Er væntaniegur tiJ
baka frá Luxemborg kl. 0215. Fer
til NY kJ. 0310.
:~TyTT:'T
Skipadeild S.t.S-:
Arnarfei!! s.v I Roiterdajn fer það
an 141 Hvi;l. .TSVuJfelí er I Rvík.
Dísarfel er í Gdynia, fer þaðan
til Ventspils, Norrköping o.g
Svendborgar, Litlafell er í
Rvík. HelgafelJ fer í dag frá Zand-
woorde til Heröya. StapafeM er i
olíuflutningum á faxaflóa. Mælifell
fer í dag frá Gufunesi ti! Borgar-
ness. CrysteJ Scan fór frá Kefla-
vik 12. þ.m. til New Bedford.
Madeleine er á Hornafirði. Erik
Boye er í Zandwoorde. Txiuies fór
í gær frá Stettin til Islands. Bella-
trix er á Djúpavogi.
Skipaútgerð rikisins:
Hekla er væntanleg til Rvikur í
kvöld að austan. Herjólfur fer frá
Vestmannaeyjum kl. 21.00 í kvöld
til Rvíkur. Herðubreið fór frá Rvik
kl. 20.00 í gærkvöld vestur um
land til Strandahafna.
SÖFN OG SÝNÍNGAR
tslenzka dýrasafnið
er opið alla sannudrga trá kl. 2—
5
Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74,
enn er opið sunnudaga. þriðjudaga
og fimmtudaga frá kl. 1.30 — kl.
4.
Ltstasafn Itlands er oplð Þrlðju
daga, flmmtudaga, taugardage og
sunnudaga frá lcl 1.30—1
Néttúrugr|p»s»tnlB Hverflsgðtp
175. 8 n*t or<*6 ÞriBJndac*. ftanmtu
aaga taugardaga og mnnudaga frá
kí 1,30—4.
Tsknlbókasafn IMSt Skipholtl
:< tiæð. er opið alla vfrk? daca kl
L3—19 nema laug rdaga W. 13—1S
t'ökað 4 laugardögum 1. mal til
i ofet.'
Lflndsbókaasf-I tslanda,
Saf- ösjnu vi? Hverflsgötu —
Lestrarsafir eru optút aHa vlrkr.
daga kl 9—19. (JtlánssaluT
kl. 13—16
nlóðsklalasatn tslanas Oplð aHa
virfea daga ki tt> • i2 og 13—19.
BORGARBÓKASAFN
REYKJAVlKUR
Aðalsafn, Þingholtsstræti 29 A.
Mánud. — Föstud. kl. 9.00 — 22.00
Laugard. kl 9,00 — 19,00. Sunnud
kl. 14.00 — 19,00.
Ilólmgarði 34. Mánud. kl. 16,00 —
21.00 Þriðjud. — Föstud. kl. 16,00
- 19,00.
HofsvaUagötu 16. Mánud. —
Föstud. kl. 16.00 - 19.00
Sólheimum 27. Mánud. — Föstud.
kl. 14.00 — 21.00.
Bókabill.
Mánudagar
Arbæjarkjör. Arbæíarhverfj fcL
1.30 — 2,30 (Böm) Austurver.
Háaleitisbraut 68 kl. 3.00 — 4,00.
Miðbær. Háaleitisbr kl. 4,45 —
6,15. Breiðlhöltskjör Breiðholts-
hverfi kl. 7.15 - 9,00.
Miðvikudagar
Alftamýrarskóli kl. 13,30 — 15,30
Verzlunin Herjólfur kl. 16,15 —
17,45. Kron við Stakkahlíð kl.
18.30 - 20.30.
Fimmtudagar
Laugalækur/Hrísatcigur kl. 13,30
- 15,00. l.augarás kl. 16,30 -
18,00. Dalbraut/Kleppsvegur kl.
19,00 - 21,06.
Föstudagar
Breiðholtskjör, Breiðholtshv. kl.
13,30 — 15,30. Skildinganesbúðin,
Skerjaf. kl. 16,30 — 17,15. Hjarð-
ai'hagi 47 ki. 17,30 — 19,00.
ORÐSENDING
Minningarspjöld:
Menningar- og minningarspjöld
kvenna fást á eftirtöldum stöðum:
Ski'ifstofu sjóðsins, Hallveigarstöð
um Túngötu 14, Bókabúð Braga
Bryniólfssonar Hafnarstrætl 22,
hjá Önnu Þorsteinsdóttur, Safa
mýrj 56, Valgerði Gísladóttur
Rauðalæk 24 og Guðnýju Helga
dóttur Samtúni 16.
Kvenfélag ÁsprestakaUs.
Opið hús fyrir aldrað fólk 1 sókn-
ínná alia briðjudaga kl- 2—5 e. h.
i Asheimilinu, Hólsvegi 17. Fót-
snvrting á sama tíma.
Minningarspjöld Kapellusjóðs
séra Jóns Steingrímssonar fást á
eftirtöldum stöðum: Minningar-
búðinni Laugavegi 56. Skartgripa-
verzlunin Email. Hafnarstræti 7.
Þórskjöri Langholtsvegi 128. Hrað
hreinsun Austurbæjar, Hlíðarvegi
29, Kópavogi. Þórði Stefánssyni
Vík, Mýrdal. Séra Sigurjóni Eifc-
arssyni Kirkjubæjarklaustri.
Minningarspjöld Kvcnfélags
Laugarnessóknar fást í Bókaverzl-
uninni Hrísateigi 19, sími 37560 og
hjá Sigríði Hofteigi 19, sími 3<544,
Astu. Goðheimum 22 sími 32060 og
hjá Guðmundu Grænuhlíð 3. simi
32573.
Minningarspjöld KapeUusjóðs
si :a Jóns Steingrímssonar
fást á eftirtöldum stöF’"n: -Kart-
gripaverzlun Email. Hafnarstræti
7 Þórskjör, Langb?!tsvc2i 128,
Kraðhreinsun '.ústurbæjar, Hlíð-
arvegi 29. Kópavogi. Þórði Stefáns
syni, Vík 1 Mýrdal. Séra Sigurjóni
Einarssyni, Ki bæjarklaustri.