Morgunblaðið - 06.11.2005, Page 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 350 KR. MEÐ VSK.
Í MARS árið 2003 kom eitthvað yfir Stein-
unni Ólínu Þorsteinsdóttur leikkonu. Hún
byrjaði að skrifa bók. „Ég bara byrjaði,“
segir hún í viðtali við Tímarit Morgunblaðs-
ins í dag. „Ég veit ekki alveg hvað varð til
þess, en augljóslega voru skrifin sprottin af
einhverri þörf, því orðin hreinlega spýttust
frá mér.“ Hún kveðst hafa verið ákaflega
feimin með textann lengi
vel og þegar hún sýndi
manni sínum, Stefáni
Karli Stefánssyni leik-
ara, sýnishorn hafi hún
verið viðkvæm fyrir við-
brögðum hans. „Hann
sýndi mér reyndar mik-
inn stuðning og hvatti
mig áfram við skrifin en
ég lagði mig fram við að
mistúlka svör hans og móðgaðist stundum
herfilega og jafnvel henti heilu köflunum
og skrifaði ekkert í nokkra mánuði. En
hugmyndin togaði í mig.
Samskipti barna og fullorðinna. Hvernig
börn sjá hlutina í algerlega fölskvalausu
ljósi. Hvað þeirra skilningur á lífinu er
gjarnan vanmetinn af hálfu fullorðinna.
Sögur af fólki, einmana manneskjum. Sorg-
in og þá kannski helst viðskilnaður við
barnæskuna, foreldrana og það sem er liðið
og farið frá okkur. Þetta var kannski það
sem ég var að reyna að skoða og skrifa
um.“
Og nú er bókin komin út og heitir Í fylgd
með fullorðnum. Höfundurinn tekur fram
að hún sé skáldsaga en ekki ævisaga. „Það
eru vissulega líkindi við mitt eigið líf í bók-
inni, enda er að mínu mati allt sem maður
skapar, hvort sem það er skrifað eða leikið
á sviði, að mestu leyti sprottið hjá manni
sjálfum.“ | Tímarit
Leikkona
snýr við
blaðinu
VONIR standa til þess að Réttargeðdeildin á
Sogni verði a.m.k. tvöfölduð eftir að Jón Krist-
jánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra,
ákvað að skipa starfshóp til að huga að uppbygg-
ingu á Sogni nýlega. Þar eru nú vistaðir átta ein-
staklingar sem úrskurðaðir hafa verið ósakhæfir
af dómara sökum geðsjúkdóms. Ráðherra heim-
sótti Sogn á dögunum, ásamt Rósu Aðalheiði
Georgsdóttur, sem beitti sér fyrir stofnun Kær-
leikssjóðs Sogns á síðasta ári, og Björgólfi Guð-
mundssyni, formanni bankaráðs Landsbankans,
sem hefur styrkt sjóðinn og ávaxtað.
in verði áfram á Sogni, og ljóst að þörf sé á
stækkun. Vonir standi auk þess til þess að takist
að ráða geðlækni á Heilbrigðisstofnunina, sem
muni þá, ásamt Magnúsi, sinna bæði Sogni og
Litla-Hrauni. „Þróunin var sú lengi vel að rýmin
[á Sogni] voru ekki full, og í einhverjum tilvikum
voru þar fangar af Litla-Hrauni um tíma. Nú er
þróunin hins vegar sú að ósakhæfum er að fjölga,
öll rýmin eru setin af ósakhæfu fólki og einstaka
sinnum hafa verið þrengsli og þurft að nota við-
talsherbergi,“ segir Jón. Hann segir að rætt hafi
verið um viðbyggingu, og starfshópurinn muni
skoða hvernig sé best að standa að málum. Lík-
legt sé að þurfi að stækka, en ekki ljóst hversu
mikið. Hópurinn á að skila af sér sem fyrst.
„Við vonumst auðvitað eftir viðbyggingu, sem
verði sérstaklega hönnuð fyrir þetta hlutverk,“
segir Magnús Skúlason, yfirlæknir á Sogni.
Hann segist vona að þessi endurskoðun þýði að
réttargeðdeildin verði tvöfölduð í það minnsta.
Þar er í dag gert ráð fyrir plássi fyrir sjö ein-
staklinga, en átta dvelja þar nú.
Fjölga þyrfti starfsfólki verulega
Magnús segir ljóst að ef af stækkun verði þurfi
að fjölga starfsfólki verulega, en sérfræðiþjón-
ustu megi að miklu leyti samnýta með Litla-
Hrauni og Heilbrigðisstofnun Suðurlands.
Jón Kristjánsson sagði í samtali við Morgun-
blaðið að honum þætti einsýnt að réttargeðdeild-
Starfshópur ráðherra á að huga að uppbyggingu Réttargeðdeildarinnar að Sogni
Yfirlæknir vonast til að
deildin verði tvöfölduð
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
SKÍÐASVÆÐIÐ í Hlíðarfjalli var
opnað í gær, laugardag, í fyrsta
sinn á þessum vetri og fjölmenntu
Akureyringar og skíðafólk víðar af
landinu í fjallið strax í gærmorg-
un. Þar var sunnan gola, hiti rétt
undir frostmarki og frábært skíða-
færi í þurrum snjó, að sögn Guð-
haldið. Byssurnar sem keyptar
voru til snjóframleiðslu í Hlíð-
arfjalli eru komnar á staðinn og
sagði Guðmundur Karl að snjó-
framleiðslan hæfist eftir 2 vikur.
Með náttúrulegum snjó og fram-
leiddum til viðbótar, ætti því að
vera hægt að bjóða upp á bestu að-
stæður í fjallinu í vetur og þá er
þetta aðeins spurning um tíðar-
farið.
nefndar Skíðasambands Íslands,
var fyrstur í lyftuna að þessu sinni
og er þetta í þriðja sinn frá árinu
2000 sem hann er fyrstur í lyftuna
við upphaf skíðavertíðar. Skömmu
síðar var bæjarstjórinn á Akur-
eyri, Kristján Þór Júlíusson,
mættur á svæðið í fullum her-
klæðum. Guðmundur Karl sagði
að útlitið fyrir veturinn væri gott
og hann er bjartsýnn á fram-
mundar Karls Jónssonar, for-
stöðumanns Skíðastaða.
Stólalyftan Fjarkinn var í gangi í
gær og einnig toglyfta, upp að
skíðahóteli, sem aldrei var gang-
sett í fyrravetur vegna snjóleysis.
Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli hefur
ekki verið opnað jafn snemma frá
árinu 1981 en þá voru lyftur gang-
settar 26. október. Guðmundur
Jakobsson, formaður alpagreina-
Morgunblaðið/Kristján
Skíðafólk fjölmennti í Hlíðarfjall
Eftir Kristján Kristjánsson
krkr@mbl.is
SKÝRSLA um berglagarannsóknir milli
lands og Eyja sem bíður kynningar af hálfu
Vegagerðarinnar felur m.a. í sér að leki í
bergi næst Heimaey er meiri en menn hafa
áætlað, þótt ekki sé meira um bergsprungur
þar en annars staðar að sögn Hreins Har-
aldssonar hjá Vegagerðinni.
Skýrslan felur í sér úttekt á jarðlögum en
fer lítið inn á svið jarðgangagerðar. Á næstu
4–6 vikum verður hins vegar farið í að meta
jarðgangagerð m.a. út frá niðurstöðum
skýrslunnar.
Rannsóknirnar ganga út á að skoða
hversu langt er niður á fast berg en reiknað
er með að göng þurfi að liggja 40–50 metra
undir yfirborði bergsins á hafsbotni. Einnig
eru skoðaðar gerðir bergsins, styrkleiki
þess og þéttleiki.
Ljóst er að dýrara og erfiðara verður að
grafa göngin ef bergið er lekt og veikt, en
þessi atriði verða vegin og metin á næstu
vikum.
Meiri leki í
bergi næst
Heimaey en
áætlað var
BÚNINGAR Sollu stirðu og
Íþróttaálfsins úr Latabæ seldust
upp í Bandaríkjunum fyrir
hrekkjavöku, að sögn Ágústs
Freys Ingasonar, talsmanns Lata-
bæjar. Er þetta í fyrsta sinn sem
þessir búningar eru á boðstólum
fyrir hrekkjavökuna þar í landi.
Segir Ágúst að vörur tengdar
þáttunum séu smám saman að
koma á markað í Bandaríkjunum,
búið sé að gefa út mynddisk og
geisladisk og svo muni vörur frá
Fisher Price leikfangaframleið-
andanum koma á markað nú fyrir
jólin.
Latibær er fjórða vinsælasta
barnaefnið í sjónvarpi í Banda-
ríkjunum á þriðja ársfjórðungi
þessa árs samkvæmt Nielsen
Media Research en í hverri viku
horfa 4,4 milljónir áhorfenda á
þáttinn. Þá hefur verið samið um
sýningarrétt á Latabæ í 48 lönd-
um auk Bandaríkjanna. Nú síðast
voru þættirnir frumsýndir í Bret-
landi á BBC og á sama tíma á stöð
Nickelodeon í Bretlandi og telst
það einstakt þar sem þessar
stöðvar hafa ekki gert slíka samn-
inga áður. Var ákveðið að leggja
samkeppnissjónarmið til hliðar og
hafa velferðarsjónarmið barna að
leiðarljósi. Eru börn og fjölskyld-
ur þeirra þannig hvött til hreyf-
ingar og heilbrigðs lífernis.
Latabæjarbúningar seldust
upp fyrir hrekkjavöku
Eftir Sigurhönnu Kristinsdóttur
sigurhanna@mbl.is
NOKKUR grömm af sveppum og amfeta-
míni fundust í bíl við hefðbundið eftirlit í
fyrrinótt samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni í Borgarnesi. Voru fjórir menn
handteknir en þeim sleppt að yfirheyrslum
loknum. Hafa mennirnir ekki komið við sögu
lögreglunnar áður. Þá var einn tekinn fyrir
ölvun við akstur.
Fíkniefni
fundust í bíl
♦♦♦
♦♦♦