Tíminn - 06.05.1970, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 6. maí 1970.
Útg«fandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson Rjtstjórar Þorarinn
Þórarinsson (áb). Andés Krlstjánsson. Jón Helgason og Tómas
Karlsson. Auglýslngastjóri: Stetagrlmur Gislason Ritstjórnar-
skrifstðfur 1 Edduhúsinu, stmax 18300—18306 Skrlfstofur
Baniastrætl 7 — Afgrelðslusiml: 12323 Auglýsingasiml: 19523.
AUrar slkrifstofur siml 18300 Askrifargjald lcr 165.00 á mán-
uðl, tananlands — f lausasöhi kr. 10.00 etat. Prentam Edda hf.
Grein Ellerts
Formaður Sambands ungra Sjálfstæðismanna, Ellert
B. Schram, birti í Mbl. í gær athyglisverða grein um
nýju húsnæðismálalögin. Greinin er einkum athyglis-
verð fyrir þá sök, að hún sýnir að óánægjan með van-
stjórn húsnæðismálanna nær orðið inn 1 innsta hring
stjómarílokkanna.
Ellert Schram víkur t. d. að þvi að Húsnæðismálastjórn
hafi á undanförnum árum vanrækt Það hlutverk sitt að
vinna að lækkun byggingarkostnaðar, m. a. með tilraun-
um. í stjómarfrumvarpinu hafi verið lagt til að fella
þetta verkefni alveg niður, en Alþingi hafi ekki fallizt á
það. Ellert leggur áherzlu á, að Húsnæðismálastjórn
sinni þessu verkefni og sé það ólíkt verðugra
„en að halda uppi þeirri ómynd, sem starfrækt hefur
verið hingað til, að því er virðist meir í þeim tilgangi
að skapa bitlingastöður fyrir Alþýðuflokkinn.“
Um afstöðu Alþýðuflokksins segir Ellert ennfremur:
„Fyrir þá, sem fylgdust með meðferð frumvarps-
ins, var það athyglisvert og raunar lærdómsríkt, að
finna hvernig áhugi Alþýðuflokksins, hinnar sjálf-
skipuðu „forystu" í húsnæðismálum, er meiri í orði
en á borði.
Félagsmálaráðherra, Emil Jónsson, lagði fram van-
hugsað, illa unnið frumvarp, sigldi síðan utan og
virtist ætla að stjórna afgreiðslu málsins símleiðis
frá Austur-Evrópu!
Fyrrverandi félagsmálaráðherra, Eggert G. Þor-
steinsson, hljóp frá málinu, einnig til útlanda, þegar
allt var komið í óefni — og í meðferð þingsins á
frumvarpinu kom engin breytingartillaga frá Al-
þýðuflokknum.
Þessi frammistaða er að vísu aðeins staðfesting á
því sýndarspili, sem Alþýðuflokkurinn hefur leikið
í húsnæðismálum, en gerir þær kröfur flestra Sjálf-
stæðismanna, bæði sjálfsagðar og tímabærar, að
breyting verði þar á."
Vissulega kom það glöggt fram í meðferð húsnæðis-
málsins, hve lítinn áhuga Alþýðuflokkurinn hefur orðið á
þessum málum, sem er eitt helzta áhugamál iafnaðar-
manna annars staðar. Hefðu t. d. þeir Emil Jónsson og
Eggert Þorsteinsson haft einhvern áhuga á málinu,
hefðu þeir vissulega krafizt þess, að það yrði afgreitt
áður en þeir héldu til útlanda. En því miður er svo kom-
ið, eins og Ellert Schram lýsir réttilega, að áhugi Al-
Þýðuflokksins í húsnæðismálum virðist nú fyrst og fremst
tengdur þvi að hafa ráð á fínum embættum handa gæð-
ingum flokkstjórnarinnar.
Ráðherrar íhaldsins
studdu þjóönýtinguna
Ellert Schram, formaður Sambands ungra Sjálfstæðis-
manna, lætur í ljós í Mbl. í gær mikla ánægju yfir því,
að fellt var niður úr húsnæðismálafrumvarpinu ákvæðið
um þjóðnýtingu lífeyrissjóðanna. Ellert þakkar það sér-
staklega Sjálfstæðismönnum að það var gert .
Þetta er mesti misskilningur. Allir ráðherrar Sjálf-
stæðisflokksins, fjórir talsins, höfðu lýst fylgi sínu við
þjóðnýtiiígarákvæðið. Sama hafði fulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins gert í nefnd þeirri, sem undirbjó frumvarpið.
í fyrstu ætlaði stiórnarliðið líka að afgreiða frumvarpið
óbreytt. Það var eingöngu vegna mótspyrnu stjórnar-
andstöðunnar, sem hlaut mikinn stuðning utan Alþingis,
að ríkisstjórn sá þann kost vænstan að haetta við
þjóðnýtingu lífeyrissjóðanna. Þ.Þ.
T i MIN N
Nixon hefur látið giepjast af
sömu biekkingunni og Johnson
Auknar stríðsaðgerðir munu herða og lengja styrjöldina
Nixon meðal bandarískra hermanna í Víetnam.
ÞAÐ er ekki liðinn nema
rúmnr hálfur mánuður síðan
Nixon forseti lýsti yfir Því í
stuttri sjónvarpsræðu, að hann
myndi kveðja heim 150 þús,
hermenn frá Vietnam innan áns
eða fyrir 30. april 1971, til við-
bótar þeim rúmlega 120 þús.,
sem hafa verið fluttar heim und
anfarna níu mánuði.
Þegar Nixon varð forseti í árs
byrjun 1969, var tala banda-
rískra hermanna í Suður-Viet-
nam um 543 þús., en er nú um
425 þús. Standist framangreind
áætlun Nixons, mun bandaríski
herinn í Suður-Vietnam ekki
telja nema 275 þús. manns að
ári liðnu.
Bandariskur almenningur lét
þessa yfirlýsingu Nixons sér vel
líka. Að vísu hefðu margir kos
ið, að heimflutningnum yrði
hraðað enn meira. Þetta væri
þó spor í rétta átt. Yfirlýsingin
virtist staðfesta, að Nixon fylgdi
enn þeirri stefnu að sýna þolin-
mæði í samningum og vinna
jafnhliða að heimflutningi
Bandaríkjahers frá Suður-Viet-
nam í áföngum.
ÞEGAR 10 dagar voru liðn-
ir frá því, afS Nixon gaf fram-
angreinda yfirlýsingu, birtist
hann aftur í sjónvarpinu og
flutti aðra yfirlýsingu, sem vak-
ið hefur miklu medri athygli og
stórum meiri deilur og ugg —
ekki aðeins í Bandaríkjunum,
heldur um aiian heim. Yfirlýs-
ingin var á þá leið, að hann
hefði ákveðið að láta banda-
rískar hersveitir, ásamt suður-
vietnömskum hersveitum, gera
innrás í Kambodíu til að eyða
herbækistöðvunum, sem her-
sveitir frá Norður-Vietnam og
þjóðfrelsishreyfingunni í Suð-
ur-Vietnam hafa komið sér upp
við landamærin á yfirráðasvæði
Kambodíu. Rökstuðningur Nix-
ons var sá, að það væri nauð-
synlegt vegna öryggis banda-
rískra hersveita í Suður-Viet-
nam að eyðileggja þessar stöðv
ar. Þegar þeim hefði verið eytt,
yrði jafnframt auðveldara og
áhættuminna að flytja banda-
rískar hersveitir frá Vietnam.
Raunverulega væru þessar ráð-
stafanir því gerðar til að
tryggja heimflutninginn.
Af hálfu ýmissa samstarfs-
manna Nixons var látið í veðri
váka, að þessar hernaðarað-
gerðir myndu ekki taka nema 6
—8 vikur.
SKÝRINGUM Nixons á inn-
rásinni í Kambodíu hefur yfir-
leitt verið tekið með efasemd-
um og það af miklu fleirl en
þeim, sem hafa fordæmt þær.
Bandaríkjamenn eru líka onðnir
því vanir að heyra slíkar skýr-
ingar áður. Allar auknar hern-
aðaraðgerðir i Vietnam hafa
verið rökstuddar með þvi. að
þær væru n.auðsynlegar til að
tryggja öryggi amerískra her
manna þar, og myndi jafnframl
verða til að flýta fyrir því, að
friður kaamist á. Útkoman hef
Ur hins vegar orðið á öfuga
leið. Styrjöldin hefur færzt út
og kallað á aukna herflutninga
Bandaríkjamanna til Vietnam.
Það varð Johnson öllu öðru
fremur að falli, að hann lét
hershöfðingjana og Saigon-
stjórnina telja sér trú um, að
ekki þyrfti annað en auknar
hernaðaraðgerðir til að ljúka
styrjöldinni. Vegna þess, að
Johnson lét hvdð eftir annað
glepjast af þessari blekkingu,
dróst hann alltaf meira og
meira út í ófæruna.
Þá trúa margir því varlega,
að Nixon ætli sér ekki annað
og méira en að hreinsa til i
landamærahéruðunum. Það
hefur verið opinbert Ieynd-
armál í fimm ár, að hersveitir
frá Norður-Vietnam og Þjóð-
frelsishreyfingu Suður-Víetnam
hafa rofið hlutleysi Kambodíu
og komið sér upp bækistöðvum
þar vi'ð landamæri Suður-Viet-
nam. Bandaríkjamenn hafa lát-
ið þetta afskiptalaust. Þeir hafa
ekki talið það svo alvarlegt að
það réttlætti innrás í Kamtoodiu
Það hefur hins vegar gerzt, að
stjórnbylting hefur orðið í
Kamtoodíu. Hægri menn steyptu
Sihanouk fursta úr stóli, þegar
hann var í heimsókn í Moskvu
og Peking í þeim erindagerðum
að fá hersvedtir Norður-Vietnam
fjarlægðar frá Kambodíu.
Stjórn hægri manna hefur
reynzt óvinsæl og veik í sessi
og því leitað ásiár Bandaríkj-
anna. Margir Bandarikjamenn
óttast, að Nixon hafi ákveðið
innrásina í Kambodíu til þess
að styrkja þessa nýju stjórn í
sessi og þannig geti Bandaríkin
dregizt inn í borgarastyrjöld í
K: '.adiu likt og í Suður-Viet-
nam forðum.
ÞAÐ ER ekki sízt af þessum
ástæðum, sem innrás Bapda-
ríkjanna í Kambodiu hefur vak
ið slíkan ótta og ugg um alilan
heim. Menn óttast, að hér sé
um meira en takmarkaða hern-
aðaraðgerð að ræða, sem bein-
ist gegn fáum og dreifðum her-
flokkum Norður-Vietnama
við landamærin. Menn óttast,
að Bandarikin séu hér að drag-
ast inn í borgarastyrjöld í Kam-
bodíu með ófyrirsjáanlegum af-
leiðingum.
ÞÓTT viðhrögðin gegn inn-
rás Bandaríkjanna í Kambodíu
hafi yfirleitt verið þau, að hún
sé fordæmd, hefur þó andstað-
an hvergi orðið meira áberandi
en í Bandaríkjunum sjálfutn. Sú
andspyrna virðist fara sívax-
andi. Vdð hana eru fyrst og
fremst bundnar þær vonir, að
Nixon noti fyrsta tækifæri til að
draga bandaríska herinn frá
Kambodíu. Sú leið er honum
opdnn enn, en hins vegar verð-
ur hún þeim mun örðugri sem
hernaðaraðgerðirnar verða þar
meiri.
Málum er nú svo komið í
Vietnam, að Bandaríkin eiga
þar ekki nema einn sæmilegan
leik. Hann er að reyna að
semja og draga her sinm í
burtu. Bandaríkjamenn þjóna
hvorki frelsi né lýðræði með
íhlutun sinni í Suður-Vietnam,
heldur eru eingöngu að fram-
lengja líf Saigonstjórnarinnar,
spilltustu og afturhaldssöm-
ustu stjóruar í Asíu. Dvöl
Bandaríkjahers i Vietnam er
eingöngu til þess að auka þar
liörmungar og viðhalda styrj-
öld. Nixon var korninn á rétta
braut, þegar hann hóf brott-
flutning hersins frá Suður-Víet
nam. Þess ber aö '■'ænta, að al-
menningsilitið í Bandaríkjun-
um komi honum á rétta braut
aftur. Þ.Þ.