Tíminn - 06.05.1970, Page 1
Þessi mynd var tekin hjá Ingólfsfjalli og sjást fjórir gíganna í Heklu, þar sem hraungrjótið flóði í stríðum straumi. Mynd þessi var tekin á tíma, og sézt
gosið betur á myndinni heldur en það sást í raun og veru um eittleytið í nótt
(Tímamynd—Gunnar)
Mikið hraunflóð úr 5 gígum — fólk flutt frá
Búrfell — vikurregnið barzt norður í land —
eldtungur og glóandi björg í þúsund metra hæð
EJ—SB—KJ—Reykjavík, miðvikudag.
• Klukkan 20.58 í gærkvöldi, þriðjudag, urðu snarpir jarðskjálftakippir á Suðurlandi. Nokkrum mínútum síðar gaus
upp mikil reyksúla úr Heklu og brátt steig geysimikill reykmökkur um 16 kílómetra upp í loftið. Honum fylgdi síðan
miklir eidar, fyrst í svonefndum Axlargíg, sem myndaðist í síðasta Heklugosi, en síðar á fleiri stöðum, og um miðnætti
höfðu 5 gígar myndast í Heklu. Annað Heklugosið á þessari öld var staðreynd orðin.
• Vikurmökkurinn barzt um nálægar sveitir og síðan til Norðurlands. Mikill vikur og allstórir gjallsteinar féllu á
mannvirkin við Búrfellsvirkjun og var allt fólk, nema nauðsynlegir gæzlumenn, flutt af staðnum í gegnum vikurregnið.
• Nokkru eftir miðnætti tók að birta til yfir Heklu og vikurregnið að minnka, en hins vegar jókst hraungosið. Risu
eldtungurnar á að gizka þúsund metra upp í loftið og hraunrennslið jókst stöðugt. Rann það bæði til norðurs og suð-
vesturs. Á einum stað var um mikið sprengjugos að ræða.
Tilkynnt klukkan 21,45
Það var klukkan 21,45, að Ágúst
Sveinsson, bóndi á Ásum í Gnúp-
verjarhreppi hafði samband vi*
Veðurstofu íslands og tilkynnti,
að hann sæi rcyk leggja upp úr
Heklu. Finndi hann jafnframt smá
jarðskjálftakippi og brennisteins-
fýlu legði af eldfjallinu.
Þar með var talið víst, að Hekla
væri að gjósa, og, þótti að vonum
mikil tíðindi.
Skömmu síðar tilkynntu ýmsir
sjónarvottar um mikinn reykjar-
mökk og eldglæringar úr Heklu,
r g loks um mikið eldgos.
Kom eldgosið mjög óvænt. Sjón-
arvottar sáu skyndilega mikla
reykjarsúlu rísa upp úr f jallinu, og
skömmu síðar sáust fyrstu eld-
glæringarnar.
Við athugun á jarðskjálftamæli
Veðurstofunnar kom í ljós, að
fyrsti jarðskjálftakippurinn i kvöld
mældist þegar klukkuna vantaði
tvær mínútur í 9, og síðan urðu
kippirnir fleiri og fleiri og sterk-
ari, og mældust loks um 4 stig á
Richterskala.
Fyrstu iýsingar á gosinu
Klukkan 22.30 sagði fólk á Laug
arvatni, að mikill mökkui væri
sjáanlegur í átt að Heklu, og
ennfremur sæjust eldglæringar
sem virtust vera á allstóru svæði.
Bóndinn á Skarði, sem er 15
km frá Heklu, Guðni Kjartansson
sagði um kl. 23, að svo virtist sem
umbrotin væru í suðausturhorni
•
Heklu. Sagði hann, að sér virtist
þetta mjög svipað og þegar Hekla
gaus 1947. Sjást miklir eldar og
standa eldglæringar hátt til lofts.
Fyrs' varð Guðni þessa var um
kl. 21 i kvöld.
í Háukadal varð fóik vart við
miklar jarðhræringar í upphafi
gossins, en eftir að eldglæringarn
ar hófust hefur dregið úr þeim.
Þungur niður heyrist. Greinileg-
ar rafmagnstruflanir eru um sveit
irnar, og er símasamband mjög
slæmt.
Á Galtalæk varð gossins vart
um kl. 21,35. Gos virðist aðallega
á tveimur stöðum. Fyrst byrjaði
að gjósa í suðvesturöxl Heklu,
og síðan tók að gjósa suðaustar
nálægt Höskuldarbjalli. Loks tók
áð gjósa nokkuð langt fyrir norð
austan fyrri gosstaðina. Fólk á
Galtalæk saigði, að erfitt væri að
átta sig á hvar síðasti gosstaður
inn væri.
Frá Eyvindartungu í Laugardal
sézt vel til Heklu, og virtist fólki
þar sem mikill reykur komi upp
úr Heklu sunnanverðri. Vindur
stendur af suð-austan og reyk legg
ur yfir Hreppa og jainvel Biskups
tungur. Eldglæringar sjást frá
Eyvindartungu og drunur heyrast.
16 km. á hæS
Samkvæmt upplýsingum Flug-
turnsins, sást gosmökkurinn í rad
ar á Keflavíkurflugvelli um kl.
23 og var hann um 50 þúsund fet
á hæð eða 16 km og 16 íkm breið
ur. Síðar í nótt minnkaði hann
nokkuð.
Hann hefur síðan verið 10 til
12 km. Framhald á bls. 4