Tíminn - 06.05.1970, Side 2
MIÐVIKUDAGUR 6. maí 1970.
TIMINN
Jóhann T. Bjarnason kaupfélagsstjóri í verzlun kaupfél agsjns eftir breytingarnar.
(Tímamynd GE)
NÝ KAUPFELAGSBUÐ OPN-
UÐ Á 50 ÁRA AFMÆLINU
ísafirði, mánudag.
Hinn 30. apríl s. 1. voru 50
ár liðin frá stofnun • Kaupfélags
ísfirðinga, þess, er nú starfar.
Áður var til félag með sama
nafni undir forustu Skúla Thor-
oddsen, sýslumanns, er landskunn
ur var á sínum tíma.
Aðal frum'kvöðull að stofnun
FYRIRLESTUR
SJ—Reykjavík, þriðjudag.
Á laugardag kemur þýzkur vís
indamaður, Dr. Adolf Butenandt,
hingað til lands og flytur fyrir
lestra á sunnudag og mánudag.
Prófessor Butenandt er lrfiefna-
fræðingur og hefur hlotið marg
víslegan heiður og viðurkenningu
fyrir vísindastörf. Honum voru
m. a. veitt Nóhelsverðlaunin í
efnafræði árið 1939 fyrir rann-
sóknir sínar á kynihormónum
kvenna og karla. Hann er nú for
seti Max-Planck víisndastofnunar
innar í Þýzkalandi.
| þessa félags var séra Guðmundur
Guðimundsson, sem var prestur í
Gufudal á Barðaströnd, en flutt
ist þaðan hingað til ísafjarðar.
Hann var fyrsti formaður félags
ins og jafnframt kaupfélagsstjóri
fyrstu tvö starfsárin, en þá tók
við kaupfélagsstjórastarfinu Ket-
ill, sonur séra Guðmúndar, og
gegndi því samfellt á fjórða ára-
tug.
Að stofnun félagsins stóðu með
séra Guðmundi margir traustir
menn og sumir síðar þjóðkunnir.
Má meðal þeirra nefna Sigurgeir
Sigurðsson, biskup, Vilmurid Jóns
son, Jandlækni og Harald Guð-
mundsson, ráðherra.
Fyrstu stjórn félagsins skipúðu:
Séra Guðmundur Guðmundsson,
formaður, Vilmundur Jónsson og
Guðjón Jónsson.
Fyrstu árin beindist starfsemi
félagsins nær eingöngu að verzl
un. Félagssvæðið var þá fyrst og
fremst Isafjarðarkaupstaður, en
smám saman færðist félagssvæð
ið út, m. a. með því að þrjú kaup
félög og eitt pöntunarfélag í ná-
llægum byiggðarlögium sameinuð
ust félaginu, sem síðan hefir rek
ið útib.ú í Bolungarvík, Hnífsdal
og Súðavík.
Þegar félagssvæðið færðist út
til sveitanna tók félagið að annast
afurðasölu fyrir bændur. Árið
1936 reisti það mjólkurstöð á
ísafirði og rak hana til ársins
1968, og annast nú rekstur Mjólk
ursamlags ísfirðinga, sem er sam
vinnufélag bænda á félagssvæði
fjögurra kaupfélaga á norðanverð
um Ves'tfjörðum, en það á ný-
byggða mjólkurstöð á ísafirði.
Kaupfélagið hefir lengst af
rekið tvö og um tíma þrjú slátur
hús til að annast sauðfjárslátrun
fyrir bændur og starfrækir í því
sambandi frystihús á ísafirði til
geymislu á landbúnaðarafurðum.
Kjötiðnað hefir félagið haft á ísa
firði í mörg ár.
Kaupfélagið hefir ekki sjálft
gert út fiskiskip, en átt hlutafé
í möngum útgerðarfyrirtækjum á
Framhald a ols. 14
STEINBECK KVÖLD I
AMERÍSKA BÚKASAFNINU
Haldið verður Steinbeck kvöld
í Aimerísika bóikasafninu miðviku-
daginn 6. maí. Verður lesið úr
verkum slkáldsins, rætt um þau
og sýnd kvikmynd um hann. 011-
um er beimill aðgangur að kvöldi
þessu.
Prófessor John G. Allee, sem er
prófessor í amerískum bókmennt-
um Við Háskólann, mun stjóraa
sambomunni, en lesendur ásamt
honum verða Indriði G. Þorsteins-
son dr. John C. Fiske, frú Win-
ston Hannesson, James Rail og
John Rusch.
Þá verður sýnd kvikmyndin
„An Impression of John Stein-
beck: Writer.“ Kvikmynd þessi
var .útnefnd til Oscar-verðlauna
í ár, í flokki stuttra fræðslu-
mynda, eins og þeir kannast við,
sem hortfðu á afhendinga Oscars-
verðlaunanna í sjónvarpi.
BJARKARKONUR
KEFLAVÍK
Almennur félagsfundur verður
haldinn í Aðalveri Keflavík föstu
daginn 8. maí, kl. 20:30 stund-
víslega. Fundarefni: Frú Margrét
H j álmtýsdóttir f egrun arsérfræð-
ingur flytur erindi og sýnir snyrt
ingu. Önnur mál. Félagskonur f jöl
mennið og tak’ð með ykkur gesti.
KEFLAVÍK
Kosningaskr' stofa -J-listans,
lista Framsóknarfélaganna í Kefla
vík við bæjarstjóm.-'kosningarn
ar 31. mai n. k. ér að Hafnar
götu 54 í Keflavík sími 2785.
Skrifstofan er opin daglega kl.
10—12, 13,30 L9 og 20—22.
Strðningsmenn hafið samband
við skrifstofuna sem allra fyrst.
B-listinn Keflavík.
Keflavík - Suðurnes
FRAMSÓKNARVIST
Björk, félag Framsóknarkvenna
í Keflavík og návrenni, hcldur
Framsóknarvis* í Aöilveri, mið
vikudaginn 6. maí kl. -0.3(
Félagskonur, takið með ykkur
gesti. Góð verðlaun. Allir vel
komnir.
Skemmtinefndin.
HVAÐ FÆST
ÓKEYPKS
I DAG?
JU, MYNDLISTINN YFIR HÚSGÖGNIN OKKAR
OG 14 MISMUNANDI ÁKLÆÐISPRUFUR
FÁIÐ ÞÉR ÓKEYPIS EF ÞÉR BIÐJIÐ UM ÞAÐ
HRINGIÐ í DAG
FÁIÐ LISTANN Á MORGUN
Sími-22900 Laugaveg 26
John Steinbeck hefur orðið einn
virtsælasti erilendur rithölíundur
á íslandi. Hér og annarg staðar
varð hann frægastur fyrir bók
sína „Þrúgur reiðinnar", sem kom
út árið 1939. Er hún mikil þjóð-
félagsád'eila og varð mjög um-
deild. Hlaut hann fyrir bana Pulit
zer-verðlaunin og varð bæði dáður
rithöfundur og hataður. Fynsta
bók hans „Gullbikarinn“ kom út
1929 og vakti ekki mikla athygli.
Það var ekki fyrr en „Tortilla
Flat“ kom út, sem hann varð
frægur, enda var sú bók metsö'lu-
bók svo mánuðum skipti. Alls
skrifaði Steinbeck 24 skáldverk og
hafa mörg þeirra verið þýdd á ís-
lenzku. Einnig skrifaði hann
fjölda greina.
John Steinbecfk fæddist í Salin-
as í Kaliforniu 1902 og lézt 20.
desember 1968.
Sunnuklúbbsfundur
á Sauðárkróki
Fundur j Sunnuklúbbnum á
Sauðárkróki verður haldinn i
Framsóknarhúsinu, föstudaginn 8.
maí og hefst kl. 21.
Jón H. Björnsson frá Alaska
gróðrarstöðinni kemur á fundinn
os talar um skipulagingu skrúð
garða, plöntuval og fleira.
Einnig verða sýndar mynddr
um garðrækt. Kaffiveitingar.
Nefndin.
SIDUSTU
ÞINGMÁLIN
SKB-Reykjavík, mánudag.
Einn af varaþingmönnum AI-
þýðuflokksins, Sigurður E. GuS-
mundsson, flutti í dag jómfrúar
ræðu sína á Alþingi um Húsnæð
ismálastofnun ríkisins. Einnig
lagði hann fraim í efri deild í dag
á síðasta degi þingsins, þrjár til-
lögur til þingsályktunar. Eru þær
um setniiigu la'ga um starfsemi
stjórnmálaflokkanna, um setningu
iaga uir neytendavernd og um
endurskoðun laga um orlof nús
mæðra.
Tillagan um lagasetningu um
starfsemi stjórnmálaflokkanna er
á þá leið að efri deild Allþingis
álykti að skora á ríkisstjórnina
að láta semja í sumar lög er
marki meginlínur í starfsemi
stjórnmálaflokkanna. Með lögum
þessum er einkum stefnt að því
að tryggja, að lýðræði verði
virt innan þeirra (sennilega í
sambandi við embættaveitinigar),
einnig að því er varðar stefnumót-
un, töku ákvarðana (þá á íhaldið
sennilega ekki lengur að ráða
gerðum kratanna) er verulegu
máli skipta, val frambjóðenda í
almer.num kosningum (samanber
þriðja sætið á kratalistanum) og
kjör manna í æðstu stjórnir
þeirra. í lögunum skal einnig kveð
ið á um hvernig fara skal með
fjármál þeirra, og þeim gert að
skyldu að gera o inberlega, grein
fyrir fjármáium sínum. Þá skal
einnig sett takmark fyrir því,
hve mi'klu fjármagni stjórnmála
flokkar og aðrir þeir, er bjóða
fram í almennum kosningum,
mega verja til kosningabaráttunn
ar.
Ekki er alveg víst nð sjálfstæð
ismenn verði mjög hrifnir af
þessu ákvæði, en óneitanlega
væri þetta þarfaverk.