Tíminn - 06.05.1970, Page 5
MIÐVIKUDAGUR 6. maí 1970.
TIMINN
5
MEÐ MORGUN $>]£>
KAFFIWU WÞ1
— O Gústi, ég er búin að
týna giftingariiringnum mín-
um, án þess að taka eftir þ\’í,
stundi nísiftarfrúin.
— Ta'ktu því með ró, eiskan,
sagði eiginmaðurinn. — Ég
fann hann í vasa mínum við
hliðina á peningaveskinu.
I»ú getur ekki yfirgefið mig
svona. Ég skal bcra töskurnar.
Forstjórinn stóð og var að
ræða við einkaritara sinn, þeg
ar nýja skrifstofustúlkan, ung
og falleg, kom fram ganginn
og gekk framhjá þeim. Forstjór
inn horfði á eftir henni, eins
og hann vildi gleypa hana með
augunum- Þegar stúlkan var far
in, sbundi forstjórinn og sagði:
„Umm. Þetta er stórkostlegt."
„Fimm börn“, sagði þá einka
ritarinn.
„Það getur alis ekki verið“,
næstum hrópaði forstjórinn.
„Hún getur ekki átt fimm
börn.“
„Nei, hún á ekki fimm börn,
en þér eigið þau, herra for-
stjóri.“
— Á þetta að vera lögreglu
hundur? Það er ómögulegt að
sjá það á honum.
— Nei, hann er líka í leyni-
lögreglunni.
Hljómsveitarstjórinn stöðvaði
hljómsveitina á miðri æfingu,
vegna þess, að cinn fiðluleikar
inn gretti sig svo herfilega.
— Hvað er að, spurði hljóm
sveitarstjórinn. — Geðjast
yður ekki að Brahms?
— Það er ekki það, svaraði
fiðluleibarinn. — Ég þoli bara
a'lls ekki tónlist yfirleitt.
— Ég vildi óska, að ég ætti
svo mikla peninga að óg gæti
lagt 1000 krí í bankann á hverj
um degi.
— Nei, þá vildi óg heldur
eiga svo mikið, að óg gæti tek-
ið 1000 ki-ónur út úr banian-
um á hverjum degi.
— Þú verður að abhuga, að
ég tilheyri mjög fínni fjöl-
skyldu.
— Jæja, það hlýtur þá að
vera óralangt síðan þú fórst að
heiman.
Þetta er yður sjálfum að
kcnna, þér eyðilögðuð frímerk-
ingavélina.
— Jæja, börnin góð, sagði
kennarinn. — Getið þið nú sagt
mér, hvað syfcur er?
— Já, sagði Maja litla. —
Sykur er eittbvað, sem gerir
graut vondan ef maður gleymir
að setja það útá.
Fyrir sex til sjö árum, var
bandaríski ' leikarinn Anthony
Perkins einhver hinn vinsælasti
af ungum, bandarískum leikur-
um. Iíann hafði þá leikið í sex
kvikmyndum, þeirra á meðal
„Psyelio“, „Geðjast yðar að
Brahms?“, „Phaidra“ og
„Fimm milur til miðnættis“.
Þá, skyndilega eftir glæsiieg-
an feril, hvarf Perkins af sjón-
arsviðinu. Hægt og hægt hættu
menn að tala um hann, leikstj.
hættu að gera honum leiktil-
boð, því að hann vísaði öllu
frá sér. Og ástæðan? Hana þykj
ast margir vita, en iíklegust er
sú tilgátan, að Perkins hafi
ekki kært sig um alla þá frægð
og eftirtekt sem svo skjóM féll
honum í skaut, harin hefur sjálf
ur sagt, að hann sé reikaidi
sál, næstum taugaveiklaður og
í París stendur nú mikil ráð
stefna yfir, en hana sækja sér-
fræðingar úr fjörutíu löndum
Til rá'ðstefnu þessarar boðaði
Efnahags-, vísinda- og menning
arstofnun Sameinuðu þjóðanna
og er fundarefnið: Hvernig á
að hindra starfsemi aiþjóðlegra
smyglara- og þjófahringa sem
þrái sálarjafnvægi sem hann
finni svo sjaldan f., ir. Því hafi
hann á sínum tíma, dregið sig í
hlé, reikað um einn, ferðazt,
lesið bækur, tekið iífinu með
ró. Loks kom að því, að Perk-
ins fannst hann vera orðinn
„fulloröinn", hann gæti aftur
birzt aðdáendum sínum. Og þá
fékk hann hlutverk í „Brenn-
ur París?“ síðan kom „The
Pretty Poison“ sem nýlega var
sýnd hér á landi, og á meðan á
gerð þeirrar myndar stóð, ving-
aðist hann mjög við mótleik-
konu sína, Thuesday Weld, en
það hefur aldrei komið fyrir
að Perkins hafi hrifizt verulega
af leikkonu. Sumir segja hann
meira að segja hata allar kon-
ur sem hann hefir leikið á mnti.
að undanteknum Ingrid Berg-
man og Sophiu Loren.
★
einbeita sér að listaverkaþjófn-
uðum?
Aðallega mun ráðstefnan
beina sínum kröftum að þvi að
upphugsa ' ferðir til að hindra
þjófnaði á forn-rómverskum og
etrúrskum Ustmunum. en slík
ij gripir eru helzt varðvejttir
í kirkjum og svo aú'ðvitað á
sofnum
Bandaríski söngvarinn Rav
Charles hefur aðeins verið sjá-
andi í E'jö af sínum þrjátíu og
níu árawn. í viðtali sem nýlega
birtist í Playboy segir hann, að
hann muni mæta vel ýmsa hluti
sem hann hafi séð á bernsbu-
dögunum. Ekki aðeins liti, en
einnig mánann, stjörnur og sól-
skin. Hann man hvernig móðir
hans leit út, og hann segist
vita hvernig flestir þeir hlntir
sem hann syngur um lita út.
„Það væri rangt af mér að
segja. að ég sakni þess mjög
að vera ekki sjáandi. Mér finnst
ekki sérlega skemmtilegt að
aka í bíl — á Cadiilac og Volks
wagen og mér lí'ður jafnvel í
báðum. Ég get nokkurn veginn
fylgzt með í sjónvarpsútsend-
ingum með því að einbeita mér
aðeins að hljóðunum.
Ég held ég hafi eins mikla
ánægju af börnum mínum og
aðrir foreldrar, aðeins með því
að heyra í þeim, finna fýrir
þeim og rækta þeirra innri
mann . . . og ég veit að konan
mín er mjög falleg“, segir
Ray Charles.
★
Meira en 10.000 Frakkar láta
á hverjti ári fremja fegrunar-
aðgerðir á nefni sínu. Einnig
láta menn mjög fríkka sig að
öðru leyti, t. d. gangast 3000
Frákkar árlega úndir svo káll-
aða andlitslyftingu, þá láta til
jafnaðar 3000 konur laga til
brjóst sín (stækka eða minnka)
og 1000 manns láta minnka á
sér magann.
★ )
Á hverjum vetri verða nokk-
ur dauð'aslys af völdum snjó-
flóða í Ölpunum. Frá Chamon
ix í Frakklandi berast nú þær
fregnir. að s. 1. vetur hafi verið
hinn allra hörmulegasti að
þessu leyti sem menn vita um
á þessum slóðum. AMs létust aí
völdum snjófilóða 124 manns.
Mesta slysið varð 15. apríl í
Assy, þegar snjóflóð féll á
barnaspítala og braut niður eina
álmu hans. í því fióði létust 71
barn.
Þá létust 40 manns í Val d‘
Isere, 6 létust í Lansle-Villard,
1 í Chamonix, 1 í Autrans og 2
í Barcelonette.
★
Um leið og „Sólarblómið"
með S. Loren verður frumsýnd,
byrjar hún að leika í nýrri
mynd sem heitir „Kvænti prest
urinn“. En hún fjallar um þá
spurningu hvort kaþólskir prest
ar skuli að eilífu lifa í einlífi,
en það efni er nú margrætt í
kaþólskum löndum. í mynóinni
leikur Marcello Mastroiannj ka-
þólskan prest sem verður ást-
fanginn af stúlku (Sophiu Lor-
en), og vill kvænast henni
Það er alveg jarn erfitt fyrir
kaþólskan prest að kvænast, og
það er fyrir kaþólsk hjón að
skilja. A það hefur Sophia Lor-
en rekið sig, því hún hefur átt
í miklu basld við kirkjuna, við
að fá hiónaband sitt og Carlo
Ponti viðurkennt, vegna þess að
hann var kvæntur áður.
,.Mér finnst að prestar ættu
að fá að kvænast eins og annað 1
fólk á að hafs leyfi til að skilja. J
En ég held það væri óviturlegt '
að leyía prestum að skilja“, i
segir Txiren. i
DENNI
DÆMALAUSI
Ég er ekkert hræddur við þrum
urnar. Það er hávaðinn sem fer
í taugarnar á tnér-