Tíminn - 06.05.1970, Page 7

Tíminn - 06.05.1970, Page 7
BffÐVIKUDAGUR 6. maí 1970. TÍMINN 7 Frú Sigríður, Gunnarsdóttir skrifar frá Haiti: Harbstjórnin verri en nokkru sinni fyrr Fáir íslendingar vita glögg skil á Haiti, flestir rugla henni saman við Tahiti. Þeir eru ekki einir um að vera fáfróð- ir á þessu sviði. Haiti er því naer óþekkt land meðal íhúa Vesturíanda. Fáir Frakkar vita, t. d. að land þetta er tit, þó að það hafi verið þeim ó- þrjótandi uppspretta auðæva í heila öld. Haiti er lítið land, um 35000 ferkílómetrar á stærð, »g nær yfir u.þ.b. þriðjung eyjunnar Santo Domingo, en Dominik- anska lýðveldið nær ytfir af- ganginn af eyjunni. Á þessum 35000 ferkílómetrum er hrúg- að saman um 4—5 milljónum manna, enginn veit nákvæm- lega töluna. Offjölguninni fylg ir óskapleg fátækt O'g vanþró- un. Haiti er með vanþróuðustu ríkjum 'heims. Þessi staðreynd stingur enn meir í augu, ef litið er á það, að í lok 18. aldar var Haiti auðugasta nýlenda Frabka og færði þeim meira í ríkiskass- ann cn aMar nýlendur þeirra aðrar til samans. Þegar Haiti- búar öðluðust sjálfstæði sitt um aldamótin 1800. blasti við þeim glæsileg framtíð. Aðeins 50 árum siðar var ástandið orðið ískyggilegt, og það hef- ur aldrei verið eins slæmt og nú. Fólkið er fátækara og fáfróðara en nokkru sinni. Til að skilja ástæðurnar fyrir þess ari sífelldu hnignum, þarf maður að hafa kynnt sér nokk uð sögu landsins. Hún er saga stöðugra óhappa og mistaba. Áður en Fransmenn komu tffl landsins var það því nær óbyggt. Spánverjar voru í hin- um Miuta eyjunnar, og nokkuð var um Indíána. Fyrstu íbúarn ít voni fransOdr sjóræningjar seon sátu fyrir spænskum skipa Iestum flytjandi gull og ger- senrar til heimalandsins. Um 1700 eignuðu Frakkar sér land ið, og stuttu síðar fóru þeir að setjast þar að, því að auð- velt reyndist að rækta þar syk- ur, kaffi og kókó. En land- nemar þessir voru ekkert sér- staklega gefnir fyrir líkamlega vinnu, og þar sem engir inn- fæddir voru þar fyrir tffl að notfæra sér sem vinnudýr, töku þeir sama ráð og Amerík- anar, að flytja inn þræla frá Afrífcu. Þessi þrælaþúskap- ur tókst svo vel, að brátt varð það öruggasta fjáröflun'arleið ungra og fátækra Fransmanna að dvelja í Haiti í nokkur ár. Þessir landnemar lifðu kónga- lffi. byggðu sér glæsileg setur og höfðu þjóna á hverjum finigri. Vegdr voru lagðir um allt landið, og vatnsáveitu- kerfi voru byggð. Þrátt fyrir blómlegan hag landnema, bötnuðu kjör þræla þeirra Ktt. Plantekrueigendur fóru, þvert á móti, æ verr með brasla sína eftir því sem tíntar liðu. Fjö'lmargar sögur era til um gdmmd þeirra og misþyrmingar á þrælum. Að lokum fannst þrælum nóg kom ið og gerðu uppreisn. Það má segja, að þrælarnir hafi borgað vel fyrir sig, þvi að allt hvitt fólk í landinu var pínt og síðan drepið. Engum var þyrmt. hvorki konum né börnuim. Þrælar voru í mifel- um meirihluta i landinu, svo að þetta var þeim hsegt verk. Aftur á mótd hlífðu þeir múl- öbtum, sem voru næstum eins margir og hvítir menn, og voru margir hverjir mjög auðugir, enda afkomendur hvítra landnema. Svertingjar og múlattar tóku höndum sam an og ráfeu burt allar enskar og spænskar liðssveitir, sem höfðu notað tækifærið til að ráðast inn í landið, á meðan menn höfðu um annað að hugsa. Napoleon sendi mág sinn með hersveitir tii landsins, og átti hann að ná völdum með kænsfeu og koma aftur á þræia haldi. En hermenn hans voru stráfelldir — og var það meira að þakka magnaðri guiusótt en dugandi Haitihermanna — og var herför þessi meðal verstu hrakfara Napoleons. í janúar 1804 lýstu Haiti-búar yfir sjálfstæði sinu. Haiti var fyrsta sjálfstæða svertingjaríki heims. Fyrstu leiðtogar Haitibúa voru fyrrverandi þrælar, sem höfðu reynzt dugmiklir hers- höfðingjar í frelsisstríðinu. En þeir voru ekki að sama skapi vel að sér í stjórn mennsku, enda sáu þeir enga aðra leið en að fe'a í fótspor Frakka. Menn voru frjálsir að nafninu til, en frelsi þeirra var efeki mifel-’ meira en það hafði verið á dögum þræla- haldsins. Menn voru átthaga- bundnir: Þeir máttu ekki yfir- gefa plantekru þá sem þeir unnu á, og vinna var hörð. En þeir fengu svolitla vasa- peninga, sem hafði verið ó- þekkt áður. Þetta gerði aðal- muninn á frelsinu og þræl- dómnum. En hagur ríkisins blómstraði, uppskeran varð stöðugt betri, og féð streymdi í ríkiskassann. Eftir dauða Dessalines keis- ara (1807). sem hafði verið hinn mesti harðstjóri, skipt- ist landið í tvennt. Kristófer konungur ríkti yfir norðurhlut- anum, en suðurhlutinn var gerður að lýðveldi. Valdaár Kristófers konungs (1807—1820) er það tímabil í sögu Haitá, sem þekkt er á Vesturlöndum. Hagur rífeisins var hinn bezti, enda var fólki óspart haldið að vinnunni á öferunum. En kóngurinn er samt þekfetari fyrir hið glæsi- lega hirðlíf, sem lifað var í hölil hans, Sans Souci, sem sögð er nákvæm efirlfking af höll Friðriks miíkila. Þar mátti sjá greifa og hertoga, sem fá- um árum áður höfðu verið þrælar á ökrum úti. Fæst þessa hirðfólks kunni að lesa eða skrifa. í suðurhluta landsins var l£f mjög ólíkt. Forsetinn, Pétion, var maður mildur og vildi gera öllum tffl geðs. Hans fyrsta verk var að veita múl- öttum öll þau forréttindi, sem þeir girntust. Hafa múlattar ætíð síðan myndað yfirstétt landsins. Síðan hóf hann að skipta landinu á milli almenn- ings gegn litlu fé. þar sem hann áleit að menn væru fús- ari til vinnu ef þeir ættu sjálf ir landið, sem þeir ræktuðu. Brátt hættu menn meira að segja að greiða fyrir jarðskik- ana, þar senj fæstir áttu fé tffl þess, Landbúnaður gerbreytt- ist: í stað stórra plantekra. þar sem þrælai' og síðan vinnu fólk ræktuðu sykur kaffi 02 kókó. voru nú örlitlar jarðir „Calebasse" er ávöxtur, sem er óhæfur til matar, en ha nn er holaður að innan og nofaður til að geyma vatn í Þetta er söiukona á markaði. ræktaðar af eigandanum sjálf- um og fjölskyldu, þar sem mest áherzla var lögð á ræíkt- un grænmetis og ávaxta í mat- inn. Þegar nóg var koimið í pottinn, voru sjaldnast miklir kraftar eftir til að fara að rækta sykur eð; kaffi, enda fór svo, að á fáum árum minnkaði útflutningur marg- fallt og hefui' stöðugt farið minnkandi síða, Haitibúum fannst einfaldlega tími vera kominn til að hvíla sig, enda höfðu þeir unnið baki brotnu áratugum saman. Hve dásam- leg tilfinning það var. að vera sjálfs sín herra og vinna að- eins þegar þá lysti! Þreytan var svo mikffl, að þeir eru efeki enn búnir að jafna sig. Árið 1820 sameinaðist Haiti aftur í eitt ríki, og brátt hófst í Norður-Haiti sama þróun og sunnanlands. Bráðlega voru engar stórar jarðir eftir, en því nær al'lir áttu sinn smá- skika Enn er allur þorri rnanna búsettur í sveit, og þvi nær hvei fjölskylda á sinn jarðarskika sjálf. Ef litið er á íbúafjöldann og flatarmál landsins, má fá nokkra hug- mynd um stærð þessara „jarða“! Ekkj má gleyma held ur, að stórir hiutar landsins eru berar eyðimerkur, þar sem ekkert grær, og að það er nijög fjöllótt. Jarðvegurinn hefur aídrei verið fátæfeari, vegna stöðugrar ræktunar án áburðar og vegna veðrunar. Þvi nær aillur skógur hefur verið höggvinn til eldiviðar og húsabygginga. Lítið hefur verið gert til að uppfræða almenning eða bæta kjör hans. Ráðandi stéttin, sem er u.þ.b., 5% af þjóðinni og eru aðallega múlattar. sýna ekki mikinr. áhuga á batnandi hag almúgans, enda myndi það þýða skeröingu á forrétt- indum þeirra. Múlattar hafa, ásamt útlendjngum, sem nv- lega hafa setzt að hér, alla verzlun landsins í höndum sér og einnig mikilvægar stöður i stjóra landsins. En forsetar hafa oftar veríð svartir en múl attar. Kemur það til af því. að herinn hefur komið beim til valda. og hefur hann löng- um verið undir stjóra svartra hershöfðingja. Flestir forsetar landsins hafa sýnt meiri áhuga á að auðgast á forsetastólnum en að stjórna málefnum ríkisins Þeir sem ekki hafa verið bein- línis skaðlegir fyrir þjóðina. hafa gert lítið gagn. Saga b jirra er viðburðarílk. Ef litið er á tim rbiiið 1843— 1915 (árin 1915—1934 var landk undir stjórn Amerí- kana), þá riktu 22 þjóðhöfð- ingjar þennan túna. Af þess- um 22 var aðeins einn á for- setastóli kjörtímabilið út, þrír létust í embætti, einn var sprengdur í loft upp ásamt höll sinni, einn var drepinn á eitri, einn höggvinn í spað af æstum múg. einn sagði af sér. 14 voru settir af með bylt- in " Síðan 1934 hefur forsetaem- bættið ekki verið eins bráð- drepandi og áður, en forsetar hafa ekki fai'ið batnandi við það. Nú sem stendur er harð- stjórnin verri en nokkru sinni fyrr. Þeir sem lesið hafa bók G-rahams Greens, „Trúðarnir“, eða séð myndina, sem gerð var eftir henni, hafa nokkra hug- mynd um ástandici. Duvalier hefur nú nýorðið unnið mála- ferli sín gegn kvikmyndalram- leiðandanum: svo virðist sem ýmislegt í myndinni sé mann- skemmandi fyrir hann! En frá nofekru er rétt skýrt, eins og sagt verður frá síðar. Fleiri og fleiri sannfærast SMJÖRLÍKISGERÐ AKUREYRI f | §• 1 DR. KORTER SEGIR: Flóru smjörlíkið frá Akureyri stenzt allar kröfur3 sem gerðar eru af heilbrigðum smekk þeirra, sem kunna að meta góða vöru. Þess vegna sannfærast fleiri og fleiri um ágæti Flóru smjörlíkisins.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.