Tíminn - 06.05.1970, Síða 9
MIÐVIKUDAGUK 6. maí 1970.
Úts«fandl: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Framtvæmdastjóri: Krlstján Benediktsson Ritstjórar Þorannn
Þórarinsson (áb). Andés Krlstjánsson. Jón Helgason oe Tómas
Karlsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gíslason Ritstjómar
skrifstöfur j Edduhúainu, slmar 18300—18306 Skrifstofur
Bankastrætl 7 — Afgreiðsluslml: 12323 Auglýslngasimi: 19523.
ASrar slkrtfatofur sfmi 18300. Áskrtfargjald fcr. 165.00 á mán-
uSl, lnnanlands — í lausasölu kr. 10.00 elnt. Prentsm Edds hf.
Grein Ellerts
PormaSur Sambands ungra SjálfstæSismanna, Ellert
B. Schram, birti í Mbl. í gær athyglisverða grein um
nýju húsnæðismálalögin. Greinin er einkum athyglis-
verð fyrir þá sök, að hún sýnir að óánægjan með van-
stjóm húsnæðismálanna nær orðið inn í innsta hring
stjómarflokkanna.
Ellert Schram víkur t. d. að því að Húsnæðismálastjórn
hafi á undanförnum árum vanrækt Það hlutverk sitt að
vinna að lækkun byggingarkostnaðar, m. a. með tilraun-
um. í stjómarfmmvarpinu hafi verið lagt til að fella
þetta verkefni alveg niður, en Alþingi hafi ekki fallizt á
það. Ellert leggur áherzlu á, að Húsnæðismálastjórn
sinni þessu verkefni og sé það ólíkt verðugra
„en að halda uppi þeirri ómynd, sfem starfrækt hefur
verið hingað til, að því er virðist meir í þeim tilgangi
að skapa bitlingastöður fyrir Alþýðuflokkinn."
Um afstöðu Alþýðuflokksins segir Ellert ennfremur:
„Fyrir þá, sem fylgdust með meðferð frumvarps-
ins, var það athyglisvert og raunar lærdómsríkt, að
finna hvernig áhugi Alþýðuflokksins, hinnar sjálf-
skipuðu „forystu" í húsnæðismálum, er meiri í orði
en á borði.
Félagsmálaráðherra, Emil Jónsson, lagði fram van-
hugsað, illa unnið frumvarp, sigldi síðan utan og
virtist ætia að stjórna afgreiðslu málsins símleiðis
frá Austur-Evrópu!
Fyrrverandi félagsmálaráðherra, Eggert G. Þor-
steinsson, hljóp frá málinu, einnig til útlanda, þegar
allt var komið í óefni — og í meðferð þingsins á
frumvarpinu kom engin breytingartillaga frá Al-
þýðuflokknum.
Þessi frammistaða er að vísu aðeins staðfesting á
því sýndarspili, sem Alþýðuflokkurinn hefur leikið
í húsnæðismálum, en gerir þær kröfur flestra Sjálf-
stæðismanna, bæði sjálfsagðar og tímabærar, að
breyting verði þar á."
Vissulega kom það glöggt fram 1 meðferð húsnæðis-
málsins, hve lítinn áhuga Alþýðuflokkurinn hefur orðið á
þessum málum, sem er eitt helzta áhugamál jafnaðar-
manna annars staðar. Hefðu t. d. þeir Emil Jónsson og
Eggert Þorsteinsson haft einhvern áhuga á málinu,
hefðu þeir vissulega krafizt þess, að það yrði afgreitt
áður en þeir héldu til útlanda. En því miður er svo kom-
ið, eins og Ellert Schram lýsir réttilega, að áhugi Al-
Þýðuflokksins í húsnæðismálum virðist nú fyrst og fremst
tengdur því að hafa ráð á fínum embættum handa gæð-
ingum flokkstjórnarinnar.
Ráðherrar íhaldsins
studdu þjóðnýtinguna
Ellert Schram, formaður Sambands ungra Sjálfstæðis-
manna, lætur í ljós í Mbl. í gær mikla ánægju yfir því,
að fellt var niður úr húsnæðismálafrumvarpinu ákvæðið
um þjóðnýtingu lífeyrissjóðanna. Ellert þakkar það sér-
staklega Sjálfstæðismönnum að það var gert .
Þetta er mesti misskilningur. Allir ráðherrar Sjálf-
stæðisflokksins, fjórir talsins, höfðu lýst fylgi sínu við
þjóðnýtingarákvæðið. Sama hafði fulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins gert í nefnd þeirri, sem undirbjó frumvarpið.
í fyrstu aetlaði stiómarliðið líka að afgreiða frumvarpið
óbreytt. Það var eingöngu vegna mótspymu stjóroar-
andstöðunnar, sem hlaut mikinn stuðning utan Alþingis,
að ríkisstjóm sá þann kost vænstan að hætta við
þjóðnýtingu lífeyrissjóðanna. Þ.Þ.
TIMINN
Nixon hefur
af
sömu blekkinpnni og Johnson
Auknar stríðsaðgerðir munu herða og lengja styrjöidina
ÞAÐ er ekki liðinn nema
rúmur hálfur mánuður síðan
Nixon forseti lýsti yfir Þvi í
stuttri sjónvarpsræðu, að hann
myndi kveSja heim 150 þús.
hermenn frá Vietnam innan árs
eða fyrir 30. apríl 1971, til við-
bótar þeim rúmlega 120 Þús.,
sem hafa verið filuttar heim und
anfama níu mánuði.
Þegar Nixon varð forseti í árs
byrjun 1969, var tala banda-
rískra hermanna í Suður-Viet-
nam um 543 Þús., en er nú um
425 þús. Standist framangreind
áætlun Nixons, mun bandaríski
herinn í Suður-Vietnam ekki
telja nema 275 Þús. manns að
ári liðnu.
Bandarísbur almenningur lét
Þessa yfirlýsingu Nixons sér vel
líka. Að vísu hefðu margir kos
ið, að heimfliitningnuin yrði
hraðað enn meira. Þetta væri
Þó spor £ rétta átt. Yfirlýsingin
virtist staðfesta, að Nixon fylgdi
enn Þeirri stefnu að sýna Þolin-
mæðj í samningum og vinna
jafnhiiða að heimflutningi
Bandaríkjahers frá Suður-Viet-
nam í áföngum.
ÞEGAK 10 dagar voru liðn-
ir frá því, að Nixon gaf fram-
angreinda yfirlýsingu, birtist
hann aftur í sjónvarpinu og
flutti aðra yfirlýsingu, sem vak-
ið hefur miklu medri athygli og
stórum meiri deilur og ugg —
ekki aðeios í Bandaríkjunum,
heldur um allan heim. Yfirlýs-
ingin var á þá leið, að hann
hefði áikveðið að láta banda-
rískar hersveitdr, ásamt suður-
vietnömskum hersveitum, gera
innrás í Kamhodíu til að eyða
herbækistöðvunum, sem her-
sveitir frá Norður-Vietnam og
þjóðfrelsishreyfingunni í Suð-
ur-Vietnam hafa komið sér upp
við landamærin á ytfirráðasvæði
Kambodíu. Rökstuðningur Nix-
ons var sá, að það væri nauð-
synlegt vegna öryggis banda-
rískra hersveita í Suður-Viet-
nam að eyðileggja þessar stöðv
ar. Þegar þeim hefði veri® eytt,
yrði jafnframt auðveldara og
áhættuminna að flytja banda-
rískar hersveitir frá Vietnam.
Raunverulega væru þessar ráð-
stafanir því gerðar til að
tryggja heimflutninginu.
Af hálfu ýmissa samstarfs-
manna Nixons var látið í veðri
váfca, að þessar hernaðarað-
gerðir myndu ekki taka nema 6
—8 vikur.
SKÝRINGUM Nixons á inn-
rásinni í Kambodiu hefur yfir-
leitt verið tekið með efasemd-
um og það af miklu fleiri en
þeim, sem hafa foröæmt þær.
Bandaríkjamenn eru lfka orðnir
þvi vanir að heyra slíkar skýr-
ingar áður. Allar auknar hern-
aðaraðgerðir í Vietnam hafa
venið rökstuddar með því, að
þær væru nauðsyrilegar til að
tryggja öryggi amerískra her
mauna þar, og myndi jafnframt
verða til að flýta fyrir því, að
friður kæmist á. Útkoman hef
ttr hins vegar oröið á öfuga
Nixon meðal bandarískra hermanna í Víetnam.
ledð. Styrjöldin hefur færzt út
og kailað á aukna herflutninga
Bandaríkjamanna til Vietnam.
Það varð Johnson öllu öðru
frémur að falli, að hann lét
hersihöfðingjana og Saigon-
stjórnina telja sér trú um, að
ekki þyrfti annað en auknar
hernaðaraðgerðir til að ljúka
styrjöldinni. Vegna þess, að
Johnsoij lét hvað eftir annað
glepjast af þessari blekkingu,
dróst 'hann alltaf meira og
meira út í ófæruna.
Þá trúa margir því varlega,
að Nixon ætii sér ekki annað
og meira en að hreinsa til i
landamærahéruðunum. Það
hefur verið opinbert leynd-
armál í fimm ár, að hersvedtir
frá Norður-Vietnam og Þjóð-
frelsishreyfingu Suður-Víetnam
hafa rofið hlutleysi Kambodíu
og komið sér upp bækistöðvum
þar vi® landamæri Suður-Viet-
nam. Bandaríkjamenn hafa lát-
ið þetta afskiptalauist. Þedr hafa
ekki talið það svo alvarlegt að
það réttlætti innrás í Kambodíu
Það hefur hins vegar gerzt, að
stjórnbylting hefur orðið í
Kamhodíu. Hægri menn steyptu
Sihanouk fursta úr stóli, þegar
hann var í heimsókn í Moskvu
og Peking í þeim erindagerðum
að fá hersveitir Norður-Vietnam
fjarlægðar frá Kambodíu.
Stjórn hægri manna hefur
reynzt óvinsæl og veik í sessi
og því leitað ásiár Bandaríkj-
anna. Margir Bandaríkjamenn
óttast, að Nixon hafi ákveðið
innrásina í Kambodí'j til þess
að styrkja þessa nýju stjórn í
sessi og þannig geti BanJaríkin
dregizt inn í borgarastyrjöld í
K: :.3diu. líkt og í Suður-Viet-
nam forðum.
ÞAÐ ER ekki sizt af þessum
ástæðum, sem innrás Banda-
ríkjann'a í Kambodíu hefur vak
ið slíkan ótta og ugg um allan
heim. Menn óttast, að hér sé
um meira en takmarkaða hern-
aðaraðgerð að ræða, sem bein-
ist gegn fáum og dreifðum her-
flokkum Norður-Vietnama
við landamærin. Menn óttast,
að Bandaríkin séu hér að drag-
ast inn í borgarastyrjöild í Kam-
bodíu með ófyrirsjáanlegum af-
leiðingum.
ÞÓTT viðbrögðin gegn inn-
rás Bandaríkjanna í Kambodiu
hafi yfirleitt verið þau, að hún
sé fordæmd, hefur þó andstað-
an hvergi orðið meira áberandi
en í Bandaríkjiunum sjálfum. Sú
andspyrna virðist fara sívax-
andi. Váð hama eru fyrst og
fremst bundnar þær vonir, að
Nixon noti fyrsta tækifæri til að
draga bandaríska herinn frá
Kambodíu. Sú leið er honum
opinn enn, en hins vegar verð-
ur hún þeim mun örðugri sem
hernaðaraðgerðirnar verða þar
meiri.
Málum er nú svo komið í
Vietnam, að Bandaríkin eiga
þar ekki nema einn sæmilegan
leik. Hann er að reyna að
semja og draga her sinn í
burtu. Bandaríkjamenn þjóna
hvorki frelsj né lýðræði með
íhlutun sinni i Suður-Vi'etnam,
heldur eru eingöngu að fram-
lengja líf Saigonstjórnarinnar,
spilltustu og afturhaldssöm-
ustu stjórnar í Asúi. Dvöl
Bandaríkjahers í Vietnam er
eingöngu til þess að auka þar
hörmungar og viðhalda styrj-
öld. Nixon var kominn á rétta
braut, pegar hann hóf brott-
flutning hersins frá Suður-Víet
nam. Þess ber aö vænta, að al-
menningsalitið í Bandaríkjun-
um komi honum á rétta braut
aftur.
Þ.Þ.