Morgunblaðið - 10.11.2005, Qupperneq 6
6 B FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
M
ennirnir sem
fundu upp
Google-leitar-
vélina sem fyr-
irtækið heitir
eftir, keyra
ekki um á rán-
dýrum sportbílum, eiga ekki einka-
þotur, risastórar hallir eða rándýra
skartgripi. Þvert á móti keyrir
Larry Page um á Toyota Prius,
ódýrum blendingsbíl sem vinsæll er
meðal umhverfisverndarsinna, á
meðan Sergey Brin fer flestra sinna
ferða á línuskautum og býr enn í
leigðri tveggja herbergja íbúð.
Laun tvímenninganna eru einn
bandaríkjadalur á ári og um síðustu
jól ákvað stjórn fyrirtækisins að
lækka jólabónus þeirra úr 250.000
dölum í ríflega 1.500 dali, sem er í
samræmi við það sem aðrir starfs-
menn fyrirtækisins fá. Eignir þeirra
Brin og Page eru metnar á um sjö
milljarða bandaríkjadala á mann.
Koma þessar aðgerðir því ekki
harkalega niður á bankabókum
þeirra en er ætlað að hafa jákvæð
áhrif á starfsanda innan fyrirtæk-
isins og ímynd Google út á við.
Í stuttri grein sem fréttakonan
Barbara Walters skrifaði um þá fé-
laga sagði hún að svo virtist sem
vinnan væri köllun þeirra Brin og
Page, en ekki bara leið fyrir þá að
verða ríkir. Mikla athygli vakti t.d.
þegar fyrsta almenna hlutabréfaút-
boð Google var haldið að almenn-
ingur fékk að bjóða í bréf fyrirtæk-
isins, en ekki bara stór fjármála-
fyrirtæki. Var ástæðan sögð sú að
það væri sanngjarnara fyrirkomu-
lag.
Stafsetningarvilla
Þeir Brin og Page kynntust þegar
þeir voru báðir í doktorsnámi í tölv-
unarfræðum við Stanford háskóla í
Bandaríkjunum um miðjan tíunda
áratug síðustu aldar. Segir sagan að
ekki hafi verið um vináttu við fyrstu
sýn að ræða, en að hún hafi þróast
og þroskast þegar þeir fóru að vinna
að nýrri tegund internetleitarvélar
á heimavistinni. Page, sem er sonur
háskólakennara, fékk hugmynd að
nýju leitarforriti sem hann byggði á
tilvísanakerfi fræðiritgerða. Fræði-
ritgerðir eru almennt taldar merki-
legri eftir því sem fleiri ritgerðir
aðrar vitna í þær. Hugsaði Page
með sér að líta mætti á vefsíður
sömu augum og flokka þær eftir því
hve margar aðrar vefsíður vísuðu
lesendum sínum á þær. Page fékk
svo Brin til að þróa og vinna að hug-
myndinni með sér. Fyrsta forritið,
sem fékk nafnið Backrub, birti lista
þar sem vefsíður voru flokkaðar eft-
ir ofangreindu kerfi og komust að
því að vinsælustu síðurnar voru iðu-
lega einnig þær gagnlegustu miðað
við þau leitarorð sem slegin voru
inn.
Þeir félagar voru sannfærðir um
að þeir væru með stafrænt gull í
höndunum og hættu námi til að
halda þróun forritsins áfram. Segir
óstaðfest saga að leitarvélin hefði
átt að fá nafnið Googol, sem er
stærðfræðihugtak um mjög stóra
tölu (einn með hundrað núllum fyrir
aftan), en að listamaðurinn sem
fékk það hlutverk að hanna merki
fyrirtækisins hafi aðeins heyrt orð-
ið, en ekki séð það skrifað. Þeir Brin
og Page eiga hins vegar að hafa orð-
ið svo hrifnir af hinu vitlaust staf-
setta orði að þeir hafi umsvifalaust
skírt leitarvélina Google.
Þann 7. september 1998 var
Google formlega hleypt af stokkun-
um úr bílskúr vinar Brin og Page,
en áður höfðu þeir skrapað saman
einni milljón dala frá fjölskyldum,
vinum og öðrum fjárfestum.Vöxtur
Google hefur verið hraður allt frá
stofnun þess, en fyrstu vikurnar
fékk heimasíðan 10.000 heimsóknir
á dag, samanborið við þær 200 millj-
ónir heimsókna sem hún fær nú.
Starfsmenn Google í dag eru um
4.000 talsins og eigið fé þess ríflega
sjö milljarðar dala.
Hugsað stórt
Þeir Brin og Page hafa frá byrjun
hugsað stórt. Þeir sáu fyrir sér að
ekki aðeins myndu þeir skipuleggja
og auðvelda aðgang að öllu innihaldi
netsins, sem í sjálfu sér er gríð-
arstórt verkefni, heldur að öllum
upplýsingum í heiminum.
Auk þess myndu þeir gera þær
öllum aðgengilegar. „Meðan við vor-
um í Stanford hugsuðum við okkur
að við ættum að koma bókasöfnun-
um yfir á stafrænt form,“ sagði
Page nýlega.
Með því að opna fyrir almennan
aðgang að upplýsingum voru þeir
sannfærðir um að þeir væru að gera
heiminn betri og til að koma í veg
fyrir að fyrirtækið viki af þeirri
braut gripu þeir til aðgerða sem
tryggðu þeim stjórnvölinn þrátt fyr-
ir innkomu annarra fjárfesta. Til
dæmis fengu þeir tvö fjárfesting-
arfyrirtæki til að fjárfesta í Google
á sama tíma, sem var snjöll leið til
að koma í veg fyrir að fjárfesting-
arfyrirtækin næðu of miklum völd-
um.
„Þetta var klassískt dæmi um að
deila og drottna,“ sagði David Vise,
höfundur bókarinnar The Google
Story. Eric Schmidt, fyrrverandi
forstjóri hugbúnaðarfyrirtækisins
Novell, var ráðinn forstjóri og
stjórnarformaður Google, en stofn-
endurnir hafa enn neitunarvald þeg-
ar kemur að mikilvægum ákvörð-
unum innan fyrirtækisins. Leggja
þeir áherslu á að vera ætíð sam-
hljóða þegar kemur að mikilvægum
ákvörðunum, og leyst er úr ágrein-
ingi þeirra á milli bak við luktar dyr.
Skipulag fyrirtækisins þykir minna
meir á háskóla en stórfyrirtæki, en
skipuritið er einstaklega flatt með
fá þrep milli venjulegra starfs-
manna og æðstu stjórnenda.
Enga illsku
Google er heldur ekki venjulegt fyr-
irtæki þegar kemur að starfs-
mannamálum, en ýmsar óvenjuleg-
ar leiðir eru farnar í höfuðstöðvum
Google í Kísildalnum til að halda
starfsmönnum ánægðum. Þannig
eru vikulegir götuhokkíleikir haldn-
ir, auk þess sem á skrifstofunni er
fastráðinn nuddari. Hver starfs-
maður fær einn dag í viku til að
vinna að gæluverkefnum sínum og á
staðnum eru píanó sem starfsmenn
geta gripið í þegar tjáningarþörfin
verður ekki hamin.
Þá er kokkur fyrirtækisins sagð-
ur hafa unnið fyrir hina frægu
hippahljómsveit The Grateful Dead
og eitthvað virðist hippatíminn sitja
í þeim Brin og Page hvað varðar
fyrirtækjaheimspeki þeirra.
„Við eigum okkur einkennisorðið
„enga illsku“, sem þýðir að við vilj-
um gera það sem er best fyrir not-
endur okkar, viðskiptavini og alla
aðra,“ sagði Page í viðtali við frétta-
stofu ABC sjónvarpsstöðvarinnar.
„Yrðum við þekkt fyrir þetta væri
það dásamlegt.“
Þá ákváðu þeir nýlega að setja á
stofn góðgerðarsjóð, sem eiga mun
1% hlut í Google auk þess sem 1% af
hagnaði fyrirtækisins mun renna í
sjóðinn. Sjóðurinn mun því hefja
starfsemi með ríflega einn milljarð
dala til umráða.
Gengið of langt í gríninu
Sumum þykir þó Google á stundum
ganga of langt í því að vera skrýtna
og skemmtilega fyrirtækið. Má sem
dæmi nefna þegar fjárfestum og
fréttamönnum var boðið á kynningu
í höfuðstöðvum fyrirtækisins fyrir
hlutafjárútboðið sem fram fór í
fyrra. Á dagskránni var fundur með
CFO fyrirtækisins, og töldu flestir
að með því væri átt við Chief Fin-
ancial Officer, eða fjármálastjóra.
Gestirnir voru hins vegar kynntir
fyrir fyrirtækiskokknum sem er víst
titlaður Chief Food Officer, eða
fæðustjóri. Þrátt fyrir að sagan sé
skemmtileg féll grínið í grýttan
jarðveg hjá gestunum, enda stóðu
margir þeirra frammi fyrir því að
þurfa að taka ákvörðun um hugs-
anlega fjárfestingu í fyrirtækinu.
Þá fellur hið flata skipurit Google
ekki öllum í geð, og hafa einhverjir
starfsmenn kvartað yfir flöskuháls-
um í þróunarferlinu og því sem virð-
ist vera einræðistilburðir stofnend-
anna.
Líklega verður ekki hjá gagnrýni
komist þegar menn eru stofnendur
og aðaleigendur eins stærsta fyr-
irtækis í heiminum, en því verður
ekki neitað að þeir Larry Page og
Sergey Brin eru óvenjulegir millj-
arðamæringar. Fréttamaður BBC
sagði einhvern tímann að þeir væru
draumatengdasynir hvers foreldris,
og ekki bara vegna þess að þeir
væru stórríkir. „Þeir eru góðir
strákar. Moldríkir, svolítið skrýtnir,
en góðir strákar.“
Moldríkir, skrýtnir
en góðir strákar
Stofnendur Google-
fyrirtækisins, Larry
Page og Sergey Brin,
eru ekki neinir venju-
legir milljarðamær-
ingar. Bjarni Ólafsson
bregður upp svipmynd
af félögunum, sem
hafa einn dollar í laun
á ári en eignir þeirra
eru gríðarlegar.
bjarni@mbl.is
Góðir strákar Larry Page (t.v.) og Sergey Brin, stofnendur Google, hafa þrátt fyrir ríkidæmið ekki breyst. Þeir
lifa ósköp venjulegu lífi og viðhalda léttum og ungæðislegum starfsanda innan fyrirtækisins.
Reuters/Clay McLachlan
410 4000 | www.landsbanki.is
Við færum þér fjármálaheiminn
Nú býðst þér að eiga milliliðalaus verðbréfaviðskipti með E*TRADE í
gegnum netið á stærsta verðbréfamarkaði heims, NYSE, Nasdaq og AMEX
í Bandaríkjunum, og á mörkuðum í Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku.
Kynntu þér málið á www.landsbanki.is