Morgunblaðið - 10.11.2005, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2005 B 17
POPULAR Science, tímaritið sem
tilnefndi gervihné Össurar, Power
Knee, meðal bestu uppfinninga árs-
ins, er þekkt alþýðlegt tímarit, lesið af
milljónum manna í Bandaríkjunum
og afurð Össurar er stillt upp á sýn-
ingu í Grand Central-lestarstöðinni í
New York við hlið nýjustu Airbus-
þotunnar og hljómtækja frá Nokia.
„Þessi tækni okkar þykir það
merkileg að hún kemst út fyrir fag-
tímaritin,“ segir Jón Sigurðsson, for-
stjóri Össurar. „Það er gríðarlega
mikil viðurkenning fyrir okkur – og
gaman að henni.“
Í dag eru tveir þriðju hlutar starf-
semi og markaðar Össurar í Banda-
ríkjunum en einungis ein af áherslum
fyrirtækisins í dag er á stoðtæki sem
þetta. Jón segir að markmiðið sé að
vera fjölhæft fyrirtæki á sviði heilsu-
gæslu.
„Við höfum verið að færa okkur í
auknum mæli frá stoðtækjum yfir í
stuðningstæki. Af þeirri einföldu
ástæðu að við erum orðin leiðandi að-
ili í stoðtækjum. Það er ekki mikill
möguleiki á ytri vexti þar. Ennþá er
möguleiki á innri vexti en við getum
keppt við mjög fá fyrirtæki í dag,“
segir Jón.
Þegar haft er á orði við Jón að verið
sé að verðlauna fyrirtækið fyrir full-
komna tækni, en gervihnéð sómi sér
líka vel sem fallegur silfraður gripur
við hlið nýjasta Mercedes-bílsins,
brosir hann og segir fyrirtækið orðið
mun betra á hönnunarsviðinu. „Það
er hluti af markaðssetningunni. Þess-
ir hlutir verða líka hluti af líkama
fólks; við erum að selja hluti sem fólk
er alltaf með á sér,“ segir Jón.
„Mikil viðurkenning“
Morgunblaðið/Einar Falur
Kynning Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, og Kim De Roy þróunarstjóri greina fréttamönnum frá tilnefningunni
á Power Knee meðal 100 bestu uppfinninga ársins, að mati Popular Science.
Eftir Einar Fal Ingólfsson í New York
efi@mbl.is
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
HÁ
MA
RKS
GÆ
‹I
Á F
RÁ
BÆ
RU
VER
‹I!
REYKJAVÍK · HAFNARFIR‹I · AKUREYRI · REY‹ARFIR‹I · EGILSSTÖ‹UM
BRETTAREKKAR
www.midlun.is
PAPPÍR / RÚLLUR / POKAR
PAPPÍR HF • Kaplahrauni 13 • 220 Hafnarfirði
Sími: 565 2217 • pappir@pappir.is • www.pappir.is
GEORGE W. Bush,
forseti Bandaríkjanna,
hefur nú tækifæri til
þess að móta peninga-
stefnu landsins á næstu
árum og jafnvel ára-
tugum og svo virðist
sem hann ætli ekki láta
það tækifæri renna sér
úr greipum.
Nýlega skipaði hann
Ben Bernanke, efna-
hagsráðgjafa sinn, í
stól formanns stjórnar
seðlabanka landsins en
Bernanke mun taka við
af Alan Greenspan sem hættir í lok
janúar eftir nær tveggja áratuga
setu.
Nú eru tvö sæti til viðbótar laus í
stjórninni og samkvæmt Reuters
eru þeir Kevin Warsh, Randall
Krozner og Richard Clarida taldir
líklegastir til þess að
berjast um sætin tvö
en þeir hafa allir starf-
að í Hvíta húsinu.
Markaðsaðilar tóku
útnefningu Bernanke á
jákvæðan hátt enda er
hann þekktur sem mik-
ill fagmaður en ekki er
vitað hvernig hinum
verður tekið. Þeir hafa
allir mikla þekkingu á
efnahagsmálum og
fjármálamörkuðum en
Krozner kennir al-
þjóðafjármál við Uni-
versity of Chicago og Clarida kennir
við Columbia University. Hann
starfar einnig sem áhætturáðgjafi
við Clinton Group fjárfestingarsjóð-
inn. Warsh er lögmaður af Wall
Street og er sérfræðingur í reglu-
gerðum á fjármálamörkuðum.
Bush getur mótað
seðlabankann
Ben Bernanke
Reuters