Morgunblaðið - 10.11.2005, Side 20
I
celandic Group keypti eins og kunnugt er á dög-
unum allt hlutafé í Pickenpack – Hussman &
Hahn Seafood, stærsta framleiðslufyrirtæki
Þýskalands á sviði frystra sjávarafurða. Ráðandi
hluthafar Pickenpack eru Finnbogi Baldvinsson,
sem jafnframt er forstjóri félagsins, og Samherji og eign-
uðust þeir við viðskiptin 21,25% hlutafjár í Icelandic Gro-
up, auk þess sem Finnbogi hefur verið ráðinn forstjóri Ice-
landic Europe og stýrir þar með starfsemi Icelandic í
Evrópu.
„Það felst mikil í áskorun í að takast á við þetta verkefni
og ég hlakka mikið til að starfa með öllu því hæfa fólki sem
er innan veggja Icelandic. Ég hef síðustu 10 árin stýrt
framleiðslu fullunninna afurða inn á smásölumarkaðinn í
Þýskalandi og fleiri Evrópulöndum. Núna er umfang
starfseminnar mun meira; starfsemin er í fleiri löndum
Evrópu, vörubreiddin er meiri, auk þess sem Icelandic
hefur mjög sterka stöðu í fiski á evrópska efnahagssvæð-
inu.
Markmiðið er að treysta stöðu okkar á evrópska mark-
aðnum. Smásöluverslun í álfunni er sífellt að færast á
færri hendur og einingar að stækka. Við þurfum að geta
boðið þessum stóru aðilum upp á mikið vöruúrval í fiski og
teljum okkur nú vera komna í aðstöðu til þess að bjóða
heildarlausnir.
Lykillinn að því er að hafa á bak við sig öflugar fram-
leiðslueiningar. Icelandic og áður Sölumiðustöð hrað-
frystihúsanna hafa í gegnum tíðina notið öflugs stuðnings
framleiðenda á Íslandi og ég ætla að leggja mitt af mörk-
unum til að halda áfram náinni samvinnu við íslenska
framleiðendur, báðum aðilum til hagsbóta.“
Sjómennskan grunnurinn
Finnbogi hefur fengist við fisk á einn eða annan hátt alla
sína starfsævi. Hann er Akureyringur í húð og hár og hóf
ungur að stunda sjómennsku með skóla. „Það var mikill og
góður skóli og þar lærði ég margt. Sjómennskan mótaði
meðal annars viðhorf mitt til vinnu almennt og ég ber
mikla virðingu fyrir starfinu. Þar lærði maður líka að
ganga vel um hráefnið og ganga vel og af virðingu um auð-
lindina. Ég lít svo á að sjómennskan sé í raun grunnurinn
að öllu því sem á eftir hefur komið,“ segir hann.
Að lokinni hefðbundinni menntun hér heima lauk Finn-
bogi námi í sjávarútvegsfræðum frá sjávarútvegsháskól-
anum í Tromsö í Noregi og hefur frá árinu 1989 sinnt
stjórnunarstörfum í sjávarútvegi, flestum á Norðurlandi
en hefur starfað með Samherja frá árinu 1990.
Finnbogi hefur starfað í Þýskalandi síðastliðin tíu ár og
á þeim tíma hefur hann m.a. leitt útrás Samherja á al-
þjóðavísu. Hann fór upphaflega utan til að taka við stjórn
útgerðarfyrirtækisins Deutsche Fischfang Union árið
1995 og varð forstjóri Hussman & Hahn frá 2000, leiddi
sameiningu þess við Pickenpack árið 2003 og hefur starfað
sem forstjóri félagsins síðan.
Forfallinn „sportidjót“
Finnbogi hefur undanfarin ár búið í Lüneburg, skammt
frá Hamborg, og lætur vel af dvölinni í Þýskalandi. „Þjóð-
verjar eru traust fólk og vinalegt. Sú ímynd sem þýskir
ferðamenn hafa gjarnan á sér á ekkert sameiginlegt með
þeim Þjóðverjum sem maður síðan kynnist í daglegu
amstri.“
Finnbogi á þrjú börn, Fjölni, sem er 23 ára, Björgu, 17
ára, og Maríu, sem er 5 ára. Aðspurður um áhugamál seg-
ist hann sjálfur vera „sportidjót“, þ.e. bæði fylgjast með og
iðka ýmsar íþróttir. „Ég hef talsvert stundað skíði, þótt
það geti stundum verið erfiðleikum háð í Norður-
Þýskalandi. En ég hef reynt að nýta fríin til að koma mér á
skíðasvæðin. Ég fylgist síðan vel með knattspyrnu og
handbolta og reyni að komast á völlinn þegar ég get.“
Nú þegar Finnbogi hefur tekið að sér að stýra Evrópu-
starfsemi Icelandic má ljóst vera að hann er ekki á leiðinni
„heim“ í bráð, eða hvað?
„Alveg frá því að ég flutti frá Íslandi hafa Íslendingar
alltaf spurt mig hvenær ég komi aftur heim, ekki hvort,“
segir Finnbogi. „Það þykir öllum sjálfsagt að Íslendingar
sem fara frá Íslandi skili sér til baka. Ég hef svarað því til
að ég verði alltaf Íslendingur en það er óháð búsetu. En
nei, ég reikna ekki með að flytja heim til Íslands næstu ár-
in að minnsta kosti. Ég hef nú tekist á hendur mjög spenn-
andi verkefni og það er á meginlandi Evrópu. Ég mun því
áfram eiga heimili í Þýskalandi eins og undanfarin ár,“
segir Finnbogi.
Alltaf verið í fiski
SVIPMYND
Íslendingur Ég verð alltaf Íslendingur en það er óháð
búsetu,“ segir Finnbogi Baldvinson sem hyggst ekki
flytja „heim“ til Íslands næstu árin.
hema@mbl.is
Finnbogi Baldvinsson hefur lengst
af starfsævinni unnið í sjávar-
útvegi, þar af 10 ár í Þýskalandi.
Hann er nýráðinn forstjóri Ice-
landic í Evrópu og sagði Helga Mar
Árnasyni eilítið af sjálfum sér.
MAGNÚS Bjarnason hefur verið
ráðinn framkvæmdastjóri yfir
starfsemi Íslandsbanka í Ameríku
og Asíu. Magnús, sem tók við starf-
inu 7. nóvember, segir að meg-
inhlutverk sitt verði að styrkja al-
þjóðleg verkefni bankans í
Bandaríkjunum, Kanada, Chile og
að auki í Asíu. „Bankinn vill koma
til móts við viðskiptavini sína sem
starfa á þessu svæði og þjónusta þá
enn frekar.“
Í tilkynningu er haft eftir Bjarna
Ármannssyni, forstjóra Íslands-
banka, að ráðning Magnúsar efli
sókn bankans enn frekar inn til
Ameríku og Asíu. Segir í tilkynn-
ingunni að með ráðningu Magnúsar
sé bankinn nú með fullskipað lið
framkvæmdastjóra til að starfa á
þeim svæðum þar sem starfsemi al-
þjóða- og fjárfestingasviðs verður
byggð upp utan heimamarkaða.
Starfsemi Íslandsbanka í Am-
eríku og Asíu er hluti af alþjóða- og
fjárfestingasviði Íslandsbanka.
Helstu verkefni sviðsins eru að
þróa núverandi stöðu bankans í
matvælaiðnaðinum og orkugeir-
anum auk þess að styðja við-
skiptavini bankans í sókn inn á ný
svæði. Magnús hefur sem for-
stöðumaður á alþjóðasviði leitt hóp
viðskiptastjóra á erlendum mörk-
uðum. Hann situr einnig í stjórn Ís-
lensk-ameríska verslunarráðsins.
Magnús starfaði áður sem sendi-
fulltrúi og staðgengill sendiherra í
sendiráði Íslands í Peking en hafði
þar áður m.a. starfað sem við-
skiptafulltrúi í Bandaríkjunum og
Kanada á vegum utanríkisþjónust-
unnar á árunum 1997 til 2003, við
stofnun Viðskiptaþjónustu utanrík-
isráðuneytisins (VUR), hjá Arn-
arflugi, Olís, 10–11 og í fyrirtækja-
viðskiptum Landsbankans. Magnús
hefur einnig fengist við ráðgjöf og
kennslu. Magnús lauk MBA-gráðu í
alþjóðaviðskiptum með áherslu á
markaðsfræði og samruna Evrópu
frá Thunderbird, Garvin School of
International Management.
Eiginkona hans er Anna Sveins-
dóttir leikskólakennari og eiga þau
fjögur börn.
Ráðinn framkvæmdastjóri
Íslandsbanka í Ameríku og Asíu
Magnús Bjarnason
ll FRÉTTIR
BJARTIR tímar eru framundan hjá skoskum viskí-
framleiðendum. Ástæðan? Nýríkir Kínverjar eru ólmir í
drykkinn og á fyrri helmingi ársins jókst útflutningur á
viskíi til Kína um 124% frá fyrra ári. Heildarandvirði út-
flutningsins til Kína var um 2,4 milljarðar króna sam-
kvæmt danska blaðinu Børsen sem vitnar í tölur frá
Scottish Whiskey Association. Fyrir fimm árum síðan var
andvirði viskíútflutnings til Kína um 96 milljónir króna.
Kínverjum hefur lengi þótt fínt að drekka franskt
koníak, þá sérstaklega XO-koníak en nú er viskíið sem
sagt að ná svipuðum vinsældum. Sérstaklega gott þykir
að blanda því saman við kalt te.
Bandaríkin eru enn stærsti markaður skoskra viskí-
framleiðenda en auk Kína binda þeir miklar vonir við
Indland. Viskíútflutningur er mikilvægur fyrir skoska
hagkerfið en greinin skilar um 1,6% af vergri landsfram-
leiðslu Skotlands.
Viskí út í kínverskt te
KAUPHÖLL Íslands, í samstarfi
við London Stock Exchange (LSE),
hélt í annað sinn kynningardag fyrir
markaðsaðila í London á þriðjudag,
nefnt Capital Markets Day. Kynn-
ingin var haldin í húsakynnum
London Stock Exchange en um 40
manns úr völdum hópi fagfjárfesta
og greiningaraðila sóttu hana.
Auk almennrar kynningar á ís-
lenska markaðnum, sem var í hönd-
um Þórðar Friðjónssonar, forstjóra
Kauphallar Íslands, kynntu sjö önn-
ur félög sig. Til máls tóku Sigurður
Einarsson, stjórnarformaður hjá
Kaupþingi banka, Eiríkur S. Jó-
hannsson, forstjóri Dagsbrúnar,
Bjarni Ármannsson, forstjóri Ís-
landsbanka, Brynjólfur Helgason,
framkvæmdastjóri alþjóðasviðs og
staðgengill forstjóra í Landsbanka
Íslands, Hannes Smárason, forstjóri
FL Group, Svanbjörn Thoroddsen,
forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá
Straumi-Burðarási Fjárfestinga-
banka, og Ágúst Guðmundsson,
stjórnarformaður Bakkavör Group.
Í tilkynningu frá Kauphöllinni
segir að gott gengi íslenska mark-
aðarins hafi vakið töluverða athygli
erlendis að undanförnu, enda hafi ís-
lensk fyrirtæki verið framtakssöm í
fjárfestingum erlendis.
Góður rómur var gerður að kynn-
ingunum og þótti markaðsaðilum
mikið til gæða þeirra, sem og dags-
ins í heild, koma. Kauphöllin segir
atburð sem þennan hafa mikið gildi
fyrir sýnileika íslenska markaðarins
í heild sinni, ekki síður en fyrir ein-
stök félög skráð á honum. Að kynn-
ingum loknum bauð sendiherra Ís-
lands í London, Sverrir Haukur
Gunnlaugsson, til móttöku.
Fjárfestakynning Fulltrúar íslensku fyrirtækjanna og Kauphallar Íslands
í kauphöllinni í London ásamt sendiherra Íslands þar í borg.
Góðar viðtökur í London
!"
###