Tíminn - 24.06.1970, Blaðsíða 2

Tíminn - 24.06.1970, Blaðsíða 2
TIMINN MIÐVIKUDAGUR 24. júní 1910 ÍSLENZKI TORFBÆRINN OG LISTAHÁTfÐIN FB-Rcykjaví'k, þriðjudag. í tilefni af Listahátíð Reykja víkur stendur Arkitektafélag ís- lands fyrir sýningu. sem helguð er íslenzka torfbænum. Sýningin er haldin í anddyri Háskólabíós og er opin almenningi frá kl. 14—ko fram til 1. júli Á sýningunni er m. a. hlaðinn torfveggur, og þar má sjá, hvern ig timburveggir bæjarins voru gerðir. Torfvegigurinn er hlaðinn fyrir utan Háskólalbíó. í anddyr- inu er síðan mynda- og upplýsinga sýning um torfbæina gömilu. Manfreð Vilhjálmsson hefur séð uim uppsetningu sýningarinnar. Aðganigur er ókeyipis. (Myndin er af torfhleðslu). ÞINGEYINGAR MINNAST 11 ALDA BYGGDAR í ÁR Á ársfþingi HSÞ 1969 kom fram sú hugmynd að minnast 11 alda byggðar í héraðinu á þessu ári (1970). Eðlilegast var talið, að tima- mótanna yrði minnzt méð ýmsum þáttum menningarlífs, fegnun í héraðinu, við bæi og vegi og með því að héraðsbúar tækju höndum saman um að bæta eftir föngum úr þeim skemmdum, sem 11 alda búseta hefur valdið á gróðri og náttúrufari landsins. Tekizt hefur samstarf ýmissa félagssamtaka í héraðinu að vinna að þessu máli. Unnið er að fegr- un umhverfis bæi, málun húsa, koma upp vegvísum við heim- reiðar o.fl. Þá er unnið að upp- græðslu í samvinnu við Land- 'græðsluna og Vegagerð ríkisins. Stefnt er að því að koma á al- mennri skemmtiferð í Náttfara- víkur í júlí og undirbúin er hátíð að Lau'gam og á Húsavik í ágúst. Sambandið vinnur að fþrótta- málum á líkan hátt og undanfarin Hætt er við, að íslenzkir lista menn verði að gjalda hinna er- lendu starfsbræðra sinna á ný- hafinnj listaviku hér í borg. Þröng ur efnahagur leyfir ekki, að menn 'gleypi við öllu, o,g þegar menn verða að velja, er eðlilegt að þeir velji það efni, sem þeim | gefst ekki kostur á að njóta ella. Þetta var greinilegt á skemmtun Plata með Trúbrot EB;Reykjavík, þriðjudag. Á morgun, miðvikudag, er vænt anleg á markaðinn ný tveggja laga plata með hljómsveitinni Trú brot. Eru bæði lögin á plötunni eftir Gunnar Þórðarson, og er trxti fyrra lagsins „Ég sé það“, einnig eftir hann, en texti síðara lagsins „Éj Vil að þú komir“ er eftir Rúnar Júlíusson. Var þessi plata hljóðrituð í Kaupmannahöfn á s.l. vetri þegar hljómsveitin skemmti þar. Á blaðamannafundi með Trú- brot á sunnudaginn, skýrðu þeir félagar í Trúbrot einnig frá ann- arri plötu með þeim. sem líkleg er á markaðnum síðar í sumar, en töldu of snemmt að skýra nákvæmlega frá henni á þessu stigi málsins. Glymur dans í höll þeiiTÍ, er Þjóðdansafélag Reykja ví'kur efndi til síðastliðinn sunnu dag og síðan aftur á mánudags kvöld. Vart voru bar fleiri saman komnir en nánustu aðstandendur og tryggustu áhangendur félags manna. Engu að síður var þetta bæði góð og vönduð dagskrá, sem gaf áhorfandanum verulega innsýn í „þjóðlög, Ijóð, og leiki ihorfinna kynslóða“, eins og kom- izt er að orði í kynningarriti Lista hátiíðarinnar. Fram að hléi var ejngöngu sung ið. Voru þar samanfcomnar átta úrvalsraddir, hverra samhljómur gaf þjóðvísum vorum rneiri fyll- ingu en endranær og ferskan tón. Skiptust á kliðmjúkar vögguvísur og hressandi göngulög. Einkum fannst mér gaman að heyra Krummi svaf x klettagjá í nýstár legrj útsetningu. Jón Gunnar Ás- geirsson virðist mjög uppöi’vandi stjórnandi, og efast ég ekki um hans mikla hlut í þessu framlagi tiil listahátíðar. Uppsetning þessa atriðis fannst mér óþarfl. dramatísk, aliir söngv arar svartklæddir og fyndist mér það hefði farið betur, ef þeir hefðu klæðzt íslenzka búningnum eins og þeir gerðu reyndar eftir hlé. Það þarf áreiðanlega miikla hug bvæmni til að geta skapað lifandi og áhugaverða beild úr hinum fábrotnu hreyfingum íslenzka dansins, og það hefur Sigríður Val geirsdóttir svo sannarlega sýnt, að hún hefur gert í ríkum mæli með þessari skemmtil. þjóðdansa- sýningu. Hún var til sóma — aldrei dauður punktur fallegar myndir, glaðleg andlit og síbreyti leg form. Hver dansinn tók við af öðrum, sviðið var notað til fulls, söngurinn tjáði okkur hlut verk dansins, o,g áhorfendur lifðu sig inn í þjóðlffsmyndirnar. No'klkuð áberandi fannst mér, hve konur voru beitri en karílarnir. Það var verlegur þokki yfir sam felldum og háttbundnum hreyfing um þeirra. Karlmenn voru hins -vegar miklu stirðari, sérstaklega um axlirnar, enda engir atvinnu j dansarar. Lýsing var skemmtileg [og jók á fjöibreytnina, en þó var svolítið slæmt, þegar Ijósin fóru að blikka, því að þá varð lýsingin alt í einu aðalatriðið, og maður missti af dansinum fyrjr vikið. Bryndís Schram. liÍDlP fO' I ÍMm UUImHIU i Þverármenn farnir að veiða á flugu. Ekkert lát er á laxveiðinnj í Þverá í Borgarfirði, og á hádegi í gær var búið að veiða um 220 laxa úr henni á stöng, frá þvi áin var opnuð þann 10. s. 1. Skiptist veið- in þannig, að á neðra svæðinu voru 120 laxar komnir á land, en um 100 á því efra. Nú eru laxveiðimenn við Þver- ána byrjaðir a? veiða á flugu, og hefur þ»ð gcngið þokkalega. Með rfónsmessustraumnum tók að bera nofckuð á smálax og er nú helm- ingui laxanna sem veiðzt hafa úr ánni undanfarna daga, 4—5 punda, að því er Pétur Kjartansson starfs- maöur við veiðihúsið þar tjáði Veiðihorninu í gærkveldi. Þá hafði hann einnig þær fréttir, að neta veiði í Hvítá gengi nokkuð hægt og virðist það einkum vera, vegna flóðanna í ánni. „Lengi er von á einum“. Þessi orð mæltj vonglaður veiði- maður — Davíð Sigurðsson — um leið og hann dró 6 punda hrygnu úr Elliðaánum í gær. Hafði hún bitið á hjá Davíð í Fossinum, en sætti sig hvorki við maðk né ár. Á næsta leyti er þátttaka í íþróttahátíð ÍSÍ og einnig er haf- in úndirbúningur að þátttöku í landsmóti UMFÍ á næsta ári. Á dagskrá Lislahátíðarinnar í dag er eftirfarandi: NORRÆNA HÚSIÐ: Kl. 21. Tónlisto g ljóðaflutning- ur (Grieg, Wildenvey): Rut Telleisen, Kjell Bækkelund. ÞJÓÐLEIKHUSIÐ: kl. 20.00 iLstdanssýning Cull- berg-iballettsins. Medea, Adam og Eva. Rómeó og Júlía. GAMLA BÍÓ: Kl. 17.00 19,00 og 21.00. Nýjar fcvikmyndir eftir Ásgeir Long, Gísla Gestsson og Ósvald Rndu- sen. Eftirfarandi sýningar eru opnar meðan á Listahátíðinni stendur: Iðnsfcólinn við Skólavörðutorg: Sýning á grafik-yerfcum Edward Munch. Háskólabíó: Sýninig á vegum Arkitektafélags fslands: íslenzki torfbærinn. Myndlistarhúsið á Miklatúni: fslenzk nútímamyn'dlist. -------------------------------- Listasafn fsiands:. 10 málarar á 20. öld. Þjóðminjasafn íslands, Bogasalun 1S. og 19. öldin. Ásmundarsalur vifl Freyjugötu: Sýning á brezkri grafíklist. Skólavörðuholt- Útisýning íslenzkra myndverkl. Heimilisiðnaðarfétag íslands: Sýningar að Hafnarstrætl 3 og Laufásvegi 2. Hallveigarstaðir, Garðastræti 14: íslenzkur vefnaður og leirmunir Ásgrímssafn: Sýning á verkum Ásgríms Jóns sonar. Ámagarður: Sýning íslnezkra bóka og hand- rita á vegum Landsbókasafnsias Safn Ásmundar Sveinssonar: Sýning á verkum Ástnundar Sveinssonar. Gallarí SUM: Skúlptúr 1970. Myndir eftir Jón Gunnar Ámason. Listasafn Einars Jónsonar: Sýnins á verkum Einars Jóns- sonar. Árbæjarsafn: Byggðasafn Reykjavíkurborgar, Hús úr eldri borgarhluta Reykjavíkur og víðar að. Steypir súrheysturna í skriðmótum Stjas-Vorsabæ, briðjudag. Vinnuflokkur er nú byrjaður að steypa upp súrheystuma fyrir bændur á Suðurilandi. Það er Ein ar Eiíasson, byg.gingameistari á Selfossi, sem sér um oy.ggingam ar. en hann hefiur fest karap á skriðmiótum, sem tumarnir eru steyptir í, ýmist 4. eða 5 metra víðir. Fyrsti turninn var steyptur á Þómstöðum, og nú er verið að byrja á turni í Flögu. f Birtingar holtshreppi. Auk turnauna sem steyptir verða á Suðurlan<E hafa Borgfirðingar leitað tilboða frá Einari og mun hann steypa fimrn turna þar þegar lokið er við turnahyggingar á Suðurlandi í sumar. krók og dró veiðimann sinn með sér nokkuð niður fyrir brú, en tók þá að mæðast nokkuð, og tókst Davíð að draga hana þar á land. Þetta var fyrsti laxinn sem hann hefur dregið úr Eilliðaánum þetta veiðitímahilið — en marga væna hefur hann dregið úr því vatns- falii. Davíð hefur nefnilega verið við veiðar í ánni um 20 sumur og kvað hann stærsta laxinn er hann hefur veitt, um 24 pund. Sagði hann hrygnuna líklega fjórða fisk- inn er veiddist úr ánni í gær — en nú munu tæpir 30 laxar verið komnir úr Elliðaánum. — EB. NTB-London. — Brezk blöð hafa látið að því liggja, að Elísabet drottning og Philip prins hyggist fara í heimsókn til Sovétríkjanna, og segjast hafa þær fréttir frá svoézkum yfirvöldum. Brezka utanríkis- ráðuneytið sem skipuleggur ÖU ferðalög drottningarinnar til útlanda, segir hins vegar að engin slík ferð sé fyrirhuguð. NTB-Bern. — Konur í Sviss hafa sem kunnugt er efcki fram að þessu haft kosningarétt, en nú sjá þær loks fram á að öðlast hann eftir aldarlanga baráttu. Neðri deild svissneska þingsins samþykkti í dag breyt ingu á stjórnarskrá landsins í þá átt, með 134 atkvæðum.. Eng inn var á móti. Samþykki efri deildin líka, fer væntaniega fram bjóðaratfcvæðagreiðsla um málið. NTB-Tokíó. — Mikil mótmæli urðu við bandarískr sendiráð ið í Japan í gær, vegna endur nýjunar öryggissáttmátó milli Japans og Bandarikjanna. Mót mælendurnir köstuðu grjóti og tómum fiöskum að sendiráð- inu og lögreglan átti fuilt í fangi með áð stilla til friðar. Um 60 manns munu hafa slas- azt í látunum. NTB-New York. — Bandarísk ur fólksfjölgunarsérfræðingur hefur stungið upp á því, að bandarískum konum á aldrin um 1'5—28 ára, skuli greitt fyr ir. að eignast ekki börn. Jafn framt verði fóstureyðingar gerð ar ódýrari, til áð stemma stigu við fólksfjöilguninni. NTB-Álasundi. — Nýlega fannst við uppgröft við Sunnmæri í Noregi, 4000 ára gömul stein aidaröxi og þykir hún hinn merkilegasti fundur. NTB-London. — Harold Wilson, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, er nú að flytja úr Downingsstræti 10, í hús við Vincsent Square í Westminster sem Charles Chaplin sjálfur, sagði eitt sinn um, að væri fegursta hús í allri Lundúna borg. NTB-Washington. — Cassius Olay, eða Múhammeð Alí, fyrr verandi heimsmeistari í þunga vigt, hefur nú fengið neitun frá Hæstarétti við heirri bón sinni að fá að fara til Canada Framhaid á bls. 14.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.