Tíminn - 24.06.1970, Page 16
/MlSvikudagur 24. fúní 1970.
Ævintýrlh Led Zeppelin - Sjá'bls. 8
Þorlákur Ottesen, fyrrverandl formaSur og heiðursfélagi Fáks, stingur
fyrstu skóflustunguna að nýja skeiSvellinum. (Timamynd: SB).
Landvernd — Landgræðslu og náttúruvemdarsamtök ísl. hefja starfsemi
HAMLA GEGN NATTÚRUSPJÖLLUM
STUÐLA AO GÚDRI UMGENGNI
EB-Reykjavík, þriðjudag.
Undir kjörorðunum VERJUM
GRÓÐUR, VERNDUM LAND, og
HREINT LAND, FAGURT LAND,
hóf LANDVERND — I.andgræðslu
og náttúruverndarsamtök íslands
starfsemi sína í dag. Er þetta
fyrsta sumarstarf samtakanna og
jafnframt tillag þeirra til Náttúru
verndarárs 1970, sem haldið er í
öllum Evrópulöndum. Heldur Land
vernd áfram því starfi, sem Æsku
Iýðssamband íslands hóf sumarið
1968 og verður nú sérstök áherzla
lögð á, að beina athygli almenn-
ings að gætilegri umgengni við
gróður og annað umhverfi, sem
er einn mikilvægasti þáttur nátt
úruverndar, Samtökin hafa gert
veglegt veggspjald, sem komið
verður fyrir á ýmsum fjölförnum
stöðum á næstunni, og einnig hafa
verið skipulagðar 50 ferðir áliuga
manna til landgræðslustarfa í
sumar — og eru þær ferðir þegar
hafnar.
Landgræðslu- og náttúruvernd-
Framkvæmdir hafnar við
nýjan skeiðvöll Fáks
SB—Reykjavík, þriðjudag.
Framkvæmdir við nýjan skeið
völl hestamannafélagsins Fáks,
hófust í da/g, með því að Þorlákur
Ottesen, heiðursfélagi Fáks og fyrr
verandi formaður stakk fyrstu
skóflustunguna, að viðstöddum
borgarstjóra og borgarráðsmönn-
um. Sá áfangi, sem nú er byrjað
á, er völlurinn með 1200 metra
hlaupabrawt. Ráðgert er, að hann
verði tilbúinn til notkunar í haust.
Með tiikomu þessa nýja skeið-
vallar, lýkur langri sögu gamla
skeiðvallarins við Elliðaár, en þar
hafa farið fram kappreiðar ár-
lega síðan 1922. í vor var Fák
úthlutað nýju félagssvæði ilengra
upp með Elliðaámum í Seláshverfi.
Það eru 30 ha. sem félagið hefur
á leigu til 25 ára.
Þegar skóflustungan hafði verið
tekin í dag. hóf jarðýta þegar
vinnu, en gestum var boðið til
kaffidrykkju j félagsheimili Fáks.
Það er Hlaðbær h. f. sem sér
um byggingu nýja skeiðvallarins.
Verkinu átti upphaflega að vera
lokið í ágúst, en vegna verkfall
anna, er útséð um að það verði
fyrr en í setpember. Áætlað er
að 1. áfanginn muni kosta hálfa
þriðju miltjón. Skipt verður um
jarðveg á svæðinu og búið svo
um hnútana, að frost eiga ekki
að hafa á'hrif á vö'Ilinn. Næsti
áfengi verksins er bygging áhorf
endasvæðis og aðstöðu fyrir dóm
ara. Næstu kappreiðar Fáks, sem
haldnar verða um hvítasunnuna,
munu væntanlega fara fram á
nýja vellinum. í framtíðinni verð
ut stefnt að allri þeirri fjöl-
breytni í hestaleikjum, sem tliðk
ast erlendis, til dæmis. hindrunar
hiaup, kerruakstur og jafnvel
póló, en á teikningum af nýja
vellinum, er gert ráð fyrir póió-
velli.
Fonmaður Fáiks, Swinbátöm-iÐag
finnsson, sagði í dag, að nú væru
skráðir félagar um 600 og áhugi
á hestamennsku færi mjög vax-
andi, og sérstaklega meðal ungs
fólks. í vetur hafði Fákur 450
hesta á fóðrum.
Auk Sveintojörns eru í stjórn
Fáks, þeir Sveinn K._ Sveinsson
varaformaður, Örn Ó. Johnson,
ritari, Einar G. Kvaran, gjaldkeri,
Óskar Hallgrímsson, meðstjórn-
andi og varamenn í stjórn, Guð-
mundur Ólafsson og Friðþjóður
Þorkelsson.
arsamtök íslands voru stofnuð 25.
október, 1969 og er markmið 6am
takanna: Að stuðla að heftingu
gróðurs- og jarðvegseyðingar,
styðja hvers konar landgraéðslu,
hamla gegn spjöllum á náttúru
landsins, og stuðla að góðri um-
gengni um landið.
Stofnaðilar að Landvemd voru
43 landssambönd og félög, sem
ná til landsins alls. Má þar nefna
sambönd flestra atvinnugreina,
íþrótta, ferðafélög, þjónustuklútoba
og félög áhugamanna um ýmsar
greinar náttúru Islands, og eru nú
þegar tugir þúsunda landsmanna
þannig aðilar að Landvernd.
Veggspjaldið, sem Landvernd hef
ur látið gera vegna herferðarinn
ar „Verjum gróður, verndum land“
er prenta® í fjórum litum og
hið glæsilegasta í alla staði.
Eins og fyrr sagði hefur Land-
vernd tekið sér fyrir hendur, að
standa fyrir ferðum áhugafólks
til landgræðslu. Alþingi hefur
veitt til þessa starfs fjárhæð er
nemur andvirði rúmlega 200 tonna
af fræi og áburði, og einnig hafa
ýmsir aðilar lagt samtökunum til
fé í þessu skynL Fyrsta land-
græðsluferðin hefur þegar verið
farin — var þa® áhugamannahóp-
ur frá Búnaðarbankanum er á
dögunum fór upp að rótum Heklu
til lagfæringar á náttúruspjöllum,
sem þar hafa verið gerð sökum
mikillar umferðar.
Landvernd hefur sett á markað
inn fræfötur, er verða til sölu á
mörgum stöðum út um allt land
— m. a. á öllum bensínstðvum.
Hafði Lionsklúbburinn Baldur for
göúga um þetta mál, fyrir fáum ár-
um og seldi þá fötur hér, sem ætl-
aðar voru ferðamönnum. Er verð
hverrar fræfötur kr. 125, og er
innihaldið nægjanlegt fyrir 50 fer
metra ógróins lands.
Hefur Landvernd margar áætl-
anir á prjónunum varfðandi starf
semina í framtíðinni, m. a. hafa
samtökin mi'kinn áhuga á þvi,
að komast að með fræðslu um aátt
úruvernd og landgræðslu inn í
barna- og unglingaskóla landsins,
og hafa því hug á að gefa út
fræðslubækling þar að lútandL
Einnig er nú haft í huga að efna
til ráðstefnu hér í Reyfejavík á
hausti komanda, þar sem fjal'.að
væri um mengun lofts 'og vatns.
Samtökin hafa opnað skrifstofu
að Klapparstíg 16 og hefur Árni
Reynisson veri® ráðinn fram-
kvæmdarstjóri, en formaður sam-
takanna er Hákon Guðmundsson,
yfirborgardómari.
Áburðar-
flutningar
dag og ndtt
Stjas-Vorsalbæ, þriðjudag.
Undanfarna daga hefur verið
Ijómandi veður á SuðuifentE og
má segja að við höfum fyrst orð
ið varir við vorið eftir þjóðhátið.
iSíðan verfcfallið leystist hafa
verið gífurlegir átourðarflutningar
austur fyrir fjall og toafa flutninga
toílarnir verið á ferðinni dag og
nótt. Margir bílstjóranna hafa
svefnpoka með sér og leggja sig
Framhaid á bls. 14.
MARGIR SKÓLAR FULLNÆGJA EKKI
ÁKVÆÐUM UM KRISTINFRÆÐIKENNSLU
EJ-Reykjavík, þriðjudag.
Af 72 unglingaskólum fullnægja
24 ekki kröfum námsskrár um
kristinfræðikennslu, og af 136 gagn
fræðastigsskólum hefur 41 skóli
færri krlstinfræðitíma en vera
ætti samkvæmt námsskrá, — sagði
Ólafur Haukur Árnason, deildar-
stjóri á Fræðslumálaskrifstofunni,
í framsöguerindi á Presþastefn-
unni 1970, sem hófst í morgun í
Reykjavík. Aðalmál Prestastefn-
unnar að þessu sinni er Kristin
fræðsla í skólum, en sem kunnugt
er stendur yfir víðtæk endurskoð-
un fræðslulaganna hér á landi og
eru þessi mál því af þeim sökum
í brennidepli.
Prestastefnan hófst með guðs-
þjónustu í Dómkirkjunni, en setn
ing hennar var kl. 14 í Hallgríms
kirkju. Þar flutti biskupinn yfir
Islandi skýrslu sína, sem verður
getið nánar síðar, en síðan hófust
umræður um kristinfræðsluna.
Fjrrsti framsögumaður var Ólaf
ur Haukur og ræddi fyrst vanda-
mál nútíma þjóðfélags, skort við-
miðunar og fótfestu í andlegu lífi.
Síðan fjaMaði hann um kristins
dómsfræðsluna, sögu henar og
tagagrundvöll. Sagði hann, að ineð
fræðslulögunum frá 1946 væru
Kristin fræði gerð að námsgrein
í skyndinámsbekkjum gagnfræða-
stigsins.
Síðan ræddi hann, hvernig krist
indómskennslu hefði verið háttað
í skólum landsins á síðasta vetri í
unglingaskólum, miðskólum, hér-
aðsskólum og gagnfræðaskólum.
Kom eftirfarandi í ljós:
Af 72 unglingaskólum virðast 9
gera betur en að fullnægja kröf-
um námsskrár um kristinfræði-
kennslu. 24 fullnægja ekki kröf-
um og 39 fara nákvæmlega eftir
námsskrá.
Af 12 miðskólum fullnægja 7
nákvæmlega ákvæðum námskrár,
einn gerir betur en hinir full-
nægja ekki kröfunum.
Af 8 héraðsskólum kenna aðeins
2 kristin fræði.
Af 136 gagnfræðastigsskólum
gera 12 betur en að fullnægja
ákvæðum námsskrár, en 41 skóli
hefur færri kristinfræðitíma en
vera ætti.
Séra Leó Júlíusson flutti einnig
erindi og fjallaði um stöða kirkj-
unnar samkvæmt stjórnarskránni
og sagði, að samkvæmt henni yrði
kirkjunni ekki settar óeðlilegar
hömlur um starf hennar á neinu
sviði þjóðlífsins, heldur ekki opin
berum skólum, enda er hún þjóð
kirkja.
Helgi Tryggvason, námsstjóri,
talaði einnig, og benti á að fyrsta
kennslan væri mikilvægust hverj-
um manni, og kristin fræði því
nauðsynleg sem slíkur grundvöll-
ur. Taldi hann óhætt að byrja
kennslu þeirra miklu fyrr en nú
er gert. Benti hann á nauðsyn
sérmenntaðra kristindómskennara
og aukinna hjálpargagna.
Guðmundur Þorsteinsson flutti
einnig erindi, og ræddi m. a. um
aðild kirkjunnar að fræðslumálum
þjóðarinnar áður fyrr, og væri
skólinn skilgetið afkvæmj kirkj-
unnar hér á landi. Hann taldi, að
brýn nauðsyn væri að leggja al-
úð við kristinfræðikennslu, draga
úr þululærdómi en auka bæna-
og helgi stundir. Þá þyrfti að
kenna siðfræði og trúarbragða-
fræði við æðri skóla.
Á morgun munu umræðuhópar
starfa á Prestasteínunni.
Fyrsti fundur í Norðurlandskjördæmi
vestra á fimmtudag
Fyrsti þjóðmálafundur Framsóknarflokksins
á Suðurlandi ákveðinn
Framsóknarflokurinn efnir am
þessar mundir til almennra þjóð
málafunda um land allt. Formað
ur flokksins, Ólafur Jóhannesson,
mætir á fundunum. Þegar hafa
verið haldnir fundir í Vesturlands
‘kjördæmi, en á fimmtudaginn
verður fyrsti fundurinn 1 Norður
landskjördæmi vestra, verður
hann á Blönduósi.
Þá hefur verið ákveðinn fyrsti
fundur á Suðurlandi, verður hann
í Árnesi í Gnúpverjahreppi, föscu
daginn 3. júlí kl. 21,00.
i