Tíminn - 09.07.1970, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 9. julí 1970.
TÍMINN
Haldið upp hálsinn úr Þverárhlíðinni og yfir i Norðurárdal. F. v. Baldur Óskarsson erindreki, Jarle Benum
varaformaður danska samvinnusambandsins, Ingigerður Karlsdótfir kona Hjalta Pálssonar framkvæmda-
stjóra, John Sallborg framkvæmdastjóri hjá sænska samvinnusambandinu, Gomberts framkvæmdastjóri
skrifstofu NAF í San Francisco. Tímamyndir: Kári)
NAF-fulltrúamir hrifast
af islenzka hestinum
Hjá aðsetri Skógræktarinnar í
ÞverárhMðinni, þar sem Daníel
Kristjánsson skógarvörður á
Hreðavatni, og st.iórnarformaðtir
'Kiaupfélags Borgfirðinga ræðíur
ríkjum, var áð, og fólkið hresst á
kaffisopa, áður en síðasti spölur
inn á Þjóðveginum var lagður að
toaki og haldið yfir hálsinn miili
Þverárhlíðar og Norðurárdals.
Var farið út af veginum skammt
frá Hamri, og ekki minnkaði
ánægja fólksins, begar það fór
þarna um reiðgöturnar, og sá
Borgarfjarðarhérað ofan af háls
inum. Fyrir ofan Svartagil í Norð
urárdal var f-arið niður, en bað
an er hið fegursta útsýni vfir
Hreðavatn og nágrenni, og opn-
ast barna ný sjóndeildarhringur
f.vrir marga, sem þó hafa verið
á þessum slóðum áður. Baula
blasti við í allri sinni dýrð, og
Norðuráin liðaðist niður. dalinn.
Síðan var haldið yfir brýrnar hjá
Glitstöðum, og haldið í flokki síð
asta áfanga ferðarinn-ar. Riðið var
í hlað við mikil fagnaðarlæti, og
þeim, sem þar stigu af baki, var
tekið sem hetjum, af þeim sem
-farið höfðu á skak og í skoðunar
ferð um Borgarfjörð. Þarna opn
aðist ágæti íslenzka hestsins fvrir
fmörgrum norrænum frændum
vorum, frændum sem margir
hverjir eru mikils ráðandi í
heimalöndum sínum, og margir
höfðu við orð að kaupa sér ís-
lenzkan hest, og einn gerði
meira segja kaupin á staðnum.
í reiðtúr frá Kljáfossi að Bifröst
KJ-Reykjavík, miðvikudag.
f gær fóru fulltrúar á aðal-
fundi Norræna samvinnusambands
ins, ásamt frúm sínum, f ferða-
Iög, og skiptust í þrjá hópa. Einn
hópurinn fór í bfl um Þingvelli
og Kaldadal í Borgarfjörð. Annar
fór í stuttan veiðitúr út á Faxa-
flóa, og sá þriðji fór Uxahryggja-
leið að Kljáfossi í Borgarfirði,
þar sem beið þeirra stór hópur
af hestum, því um 50 manns ætl-
uðu ríðandi yfir í Bifröst í Norð
urárdal.
Það var ekki laust við að mikil
eftirvænting væri í hópnum, sem
ætlaði á hestana, og að vonum
var mikið bollalagt um veðrið. Á
Uxahryggjum kom mikill skúr,
og horfðu útlendin-garnir með
hálf-gerðum kvíðasvip á dropana,
sem skullu á bílrúðunum, og a
nýja bílnutn ha-ns Sæmundar í
Borgarnesi. Sæmundur gat þó
glatt fólkið með því, að í Bbrgar-
firði væri ebki ri-gning, a.m.k.
ekki þá st-uridina.
Við Flókadalsá, skammt frá
brúnni, var áð, og þar snæddi
f-ólkið mið-degisiyerð, og fékk
rigningardembu í forrett. ‘Þaðari
var svo farið að brúnni hjá Kljá-
fossi, þar sem reiðskjótarnir biðu
alty.gjaðir, ásamt vöskum fylgdar
mönnum. Sumt af fólkinu hafði
-aldrei stigið á hestbak áður, hvað
þó á bak íslenzkum hestum, en
borgfirzku hestamir voru þægir,
og hver féfck best við sitt h-æfi.
Það var mikil fylking, sem lagði
af stað upp úr blubkan tvþ eftir
þjóðveginum frá Kljáfossi. Verður
ekki annað sagt, en ferðin hafi
gengið vel, en oft var áð til að
byrja með, og allir í bezta skapi,
þótt öðru hvoru kæmu dropar
úr lofti.
Tilkynning frá Gagn-
fræðaskóla Húsavíkur
• í athugun er hvort unnt muni að starfrækja fram-
haldsdeild (5. bekk), við Gagnfræðaskóla Húsa-
víkur næstkomandi vetur. Umsóknir um deildina
skal senda fyrir 25. júlí n.k. til Sigurjóns Jóhannes
sonar skólastjóra eða Ingvars Þórarinssonar for-
manns fræðsluráðs, sem veita nánari upplýsingar.
Fræðsluráð Húsavíkur.
Sveitarstjóri
Ölfushreppur óskar eftir að ráða sveitarstjóra.
Umsóknarfrestur er til 25. júlí n.k. Greint verði
frá menntun og fyrri störfum. Umsóknir sendist
til oddvita, Hermanns Eyjólfssonar, Gerðakoti.
Utboð
Tilboð óskast í smíði og uppsetningu innréttinga
1 íþrótta- og samkomuhús við Hlíðardalsskóla
(tréverk). Einnig í smíði og uppsetningu útihurða
úr teak. Útboðsgagna má vitja á Teiknistofuna s.f.,
Ármúla 6, gegn 2000 kr. skilatryggingu. Tilboðin
verða opnuð á sama stað mánudaginn 27. júlí n.k.
kl. 11 fyrir hádegi.
Rafsuðukapal! 35 m/m2, 50 m/m2 og 70 m/m2 Mjög góð tegund Rafsuðuþráður 1,5, 2,5—3,25 og 4 m/m. Rafsuðuhjálmar SMYRILL Þrjár gerð5r Ármúla 7. Rafsuðutangir Sími 84450. í úrvali.
3
AVIÐA
lÍBl
„Vörn gegn
verðbólgu"
Morgunbla'ðið birti fyrir
nokkrum dögum leiðara, sem
gefið var þetta nafn. Að vísu
fjallaði skrif þetta fyrst og
fremst um vaxandi og yfir-
vofandi verðbólgu í Bretlandi,
og er ekki nema gott um það
að segja, að Mbl. skuli hafa
nokkrar áhyggjur af henni.
Jafnframt hvarflaði það að
höfundi leiðarans undir lokin,
að nokkur verðbólguhætta gæti
veri'ð hér á landi um þessar
mundir, og var talað fjálglega
um það, að nauðsynlegt væri
að reyna að stemma stigu við
henni. Hins vegar örlaði
hvergi á neinum ráðum til þess
eða hvaða ráðstafanir ríkis-
stjórnin hefði í hyggju til
varnar.
Morgunblaðið segir, að hætta
sé á, að kauphækkanir þær,
sem orðið hafi i nýloknum
samningum, verði kostnaðar-
Íauki i framleiðslu og þjónustu
og fari beint út í verMagið, sé
ekki að gert, og éti þar með
upp kauphækkunina. Síðan
bætir blaðið við:
„Við þessari verðbólguhættu
verður að bregðast með ein-
hverjum hætti, án þess að það
leiði til þess að vaxtarþróunin
stöðvist eða hægi á sér um
of. Hér verður um vandasamt
vcrkefni að ræða. Þetta verður
að gera, án þess að dregið
verði úr hinum öra vexti í at-
vinnulífinu“.
Ráðþrota við „vanda-
sama verkefnið"
Það er auðvitað fyrsta spor
til úrbóta að gera sér grein
fyrir vandanum, en sú þekking
er haldlaus éf manndóm og
vilja ríkisstjóriiarinnar brestur
til þess a'ð gera það, sem gera
þarf. Allir vita, að ýmislegt
er hægt að gera til vamar
gegn dýrtíð og verðbólgu, en
flest það, sem að haldi má
koma er þess eðlis, að það
kreppir ofurlítið að helztu
brjóstabörnum þeirrar ríkis-
stjórnar, sem ráðið hefur land
inu í áratug, og kennir sig
við „viðreisn". Það er unnt að
greiða svo fyrir atvinnufyrir-
tækjunum með hagræðingar-
lánum, betri lána -og vaxta-
kjömm og ýmsu öðru, að þau
geti staðizt kauphækkunina, án
þess að stórhækka framleiðslu.
g Það er hægt með skynsamlegri
landbúnaðarpólitík og eðlileg-
um stuðningi að draga úr því,
að hækkun kaupgjalds fari
beina leið út í verðlag land-
búnaðarvara. Það er hægt að
breyta þeim skilyrðum, sem
fjölgað hafa heildsölum um
helmin<r í landinu á viðreisnar
tímanum.
En ríkisstjórnin hcfur engan
manndóm til þess að gera þær
ráðstafanir, sem að einhverju
haldi koma gegn dýrtíð, af því
að það hlýtur að taka spón
úr aski eldiskálfanna hennar.
Hún á aðeins eina vörn, þegar
verðbólga og dýrtíð ógna út-
flutningsatvinnuvegunum — að
lækka gengið. Það gerir hún,
þegar í óefni er komið, en
Framhald á Ws. 14.