Tíminn - 23.08.1970, Síða 1
Nýr bókabíll
væntanlegur
Þarf sérstakan bíl
fyrir börnin
SB-Reykjavík, laugardag.
Bókabíll Borgarbókasafnsins nýt-
ur sívaxandi vinsælda og nú er í
ráði, að fá annan slíkan. Mun þá
væntanlega annar bíllinn verða
fyrir fullorðna fólkið, en hinn ein-
göngu fyrir börnin, því að þau
lesa geysilega niikið, að sögn
Eiríks Hreins Finnbogasonar, borg
arbókavarðar.
Eiríkur sagði, að frá því bóka-
bíllinn tók til starfa 11. júlí í fyrra
og fram að áramótum hefðu úr
honum verið lánuð út 67.716 ein-
tök. Nokkrar tafir urðu þó á ferð-
um bí'sins í mestu kuldunum í i
vetur, því í ljós kom, að mið-
stöðin þoldi ekki kulda. Nú er hins !
vegar búið að gera svo vel við mið I
stöðina, að ekki á að vera hætta
á þessum töfum aftur. Af þessum
sökum fór rekstrarkostnaður bíls-
ins nokkuð fram úr áætlun.
Eiríkur kvað ekki enn ákveðið,
hvenær nýi bókabíllinn kæmi, en
þegar það yrði, mundi hagkvæm-
ara að hafa annan bílinn eingöngu
fyrir börn, því að þau þyrftu
greinilega mikið að lesa og væru
fljót að því. Mundi þá barnabifl-
inn jafnvel koma oftar við á við-
komustöðunum en hinn.
í bókasafni bílsins eru 20.674
eintök og þar á meðal nokkuð af
erlendum bókum. Við safnið og í
■bílnum starfa 6 manns. Hægt er
að panta bækur í bilnum, sem
ekki eru þar og fá þær síðan með
•næstu ferð.
Jóhann Hafstein
Geir Hallgrímsson
Verður Geir 4. Sjálfstæð-
isráðherrann í stjórninni?
Leynileg atkvæðagreiðsla um forsætisráðherra og fjórða ráð-
herra Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórn stendur nú yfir. Hætt
við að boða til Landsfundar. Harðvítug valdabarátta hafin í
Sjálfstæðisflokknum- Mikil rfeiði Sjálfstæðismana um land
allt vegna ákvörðunar ráðherra að hætta við haustkosningar.
TK—Reykjavík, laugardag.
í viðtali Morgunblaðsins við
Jóhann Hafstein, forsætisráð-
herra, í dag kemur m. a. fram,
að yfir stendur nú leynileg at-
kvæðagreiðsla í þingflokki Sjálf-
stæðismanna um það, hver skuli
verða forsætisráðherra út kjör-
tímabilið og síðan muni verða
myndað formlega nýtt ráðuneyti
og ákveðið hver skuli verða fjórði
ráðherra Sjálfstæðisflokksins í
ríkisstjórninni. Er talið víst, að
Jóhann Hafstein hafi þegar tryggt
sér meirihluta í þingflokknum og
verði honum falið að mynda nýtt
ráðuneyti, en óstaðfestar sögur
herma, að sá meirihluti sé bund-
inn því skilyrði, að liann afhendi
Magnúsi eða Ingólfi formennsk-
una í þingflokknum. Menn virðast
helzt tala um Geir Hallgrímsson,
borgarstjóra. sem fjórða ráðherr-
ann í ríkisstjórnina til að taka við
embætti iðnaðar- og dómsmálaráð
herra til vors. En margir áhrifa-
menn halda því fram, að Geir Hall
grímsson muni ekki þyggja það
að taka við ráðherraembætti við
þessar aðstæður, þar sem búið sé
að fresta því að kalla saman Lands
fund til kjörs nýs formanns flokks-
ins og hann vilji ekki setjast undir
Jóhann í vetur. Geir Hallgrímssyni
verður hins vegar vafalaust boðið
ráðherraembætti og talið er ör-
uggt að flokksfundur Sjálfstæðis-
flokksins muni velja hann í
embætti varaformanns til bráða-
birgða þar til næsti Landsfundur
verður haldinn. Hafni Geir hins
vegar ráðlierraembætti nú og telji
sig hafa sterkari stöðu í valdabar-
áttunni með því áð standa utan
við ráðuneyti Jóhanns Hafsteins,
virðast mestar líkur eins og nú
horfir bcnda til þess, að Jóhann
kjósi að fá Mattliías Á. Matthiesen
sem iðnaðar- og dómsmálaráð-
herra, verði ekki mjög sterk and-
staða gegn því í þingflokknum.
í viðtali Mbl. við Jóhann Haf-
stein í dag, segir hann m. a.:
„Áður en þing kemur saman,
er talið eðlilegt, að fyrir liggi
■venjuleg skipun forsælisráðherra,
auk þess sem Sjálfstæðisflokkur-
inn fái nýjan ráðherra i ríkisstjórn
ina. Um þetta mun þingflokkur
Sjálfstæðisflobksins fjalla o.g taka
ákvörðun innan tiðar. Ég hef ósk
að eftir því, að leynileg kosnirig
fari fram tneðal þingmanna Sjálf-
stæðisflokksiris um það, hver
mynda skuli nýtt ráðuneyti og
stendur sú kosning yfir, en nokkr
ir þingmenn voru ekki á þing-
flokksfundinum í gær vegna eðli
legri forfalla. Þegar þau úrsilit
liggja fyrir, verður tekin ákvörð
un um fjórða ráðherra Sjálfstæð
isflokksins. Að því búnu tel ég,
að viðræður hefjist milli stjórnar
flokkanna um framgang mála á
næsta þingi og lausn annarra við-
fangsefna. Að þessu brýna verk-
efni verða flokkarnir að ganga
með oddi og egg“.
„Hver verður þessi fjórði ráð-
herra Sjálfstæðisfilokksins?"
Framhald á bls. 14.
í gær kom skyndilega sumarblíða og sól, og myndin hér að ofan, sem tekln
var niðri við Tjörn, er táknræn fyrir góða veðrið. Vonandi helzt það um
helgina, og er þá ekki að efa að fjöldi fólks notar tækifærið til þess
að aka úr borginni eitthvað út á landið. (Tímamynd—GE)
Fargjaldastríð í leiguflugi
Símon Spies hefur lækkað verð á ferðum til suðrænna landa og aðrar danskar ferðaskrif-
stofur fylgja hans fordæmi. Reynt að dreifa leiguflugi á lengra tímabil
Nú er hafið fargjaldastríð í
leiguflugferðum milli ferðaskrif-
stofa í Danmörku. Fyrir rúmri
viku tilkynnti hinn sérkennilegi
ferðaskrifstofueigandi, Símon
Spies, að hann hefði lækkað ferðir
sínar um sem svarar 600.—750.00
ísl. kr. og séra Krogager, sem kunn
ari er undir nafninu Tjæreborgs-
presturinn. og ferðaskrifstofa
Bangs Rejser AS. fylgja hans for-
dæmi.
Þessi fargjaldaíækkun er liður
í viðleitni til að fá fólk til að fara
í orlof á veturna og ennfremur að
hefja þau í miðri viku.
Símon Spies byrjaði með að gefa
750 00 kr. afslált með Conair DC-7
f.'ugvélum til Mallorka og Torre-
molinos á Spáni. Um leið lækkaði
hann fargjöld til fjölmargra ferða
mannastaða og bauð hagstæðari
kjör, hvað fæði snertir á Gran
Canaria og Tenerife. Hann hefur
lýst því yfir, að aukinn ferðamanna
f.löldi hafi gert kleift að lækka
orlofsíerðirnar frá 29 október.
Fyrir nokkrum dögum tilkynnti
síðan Bangs Rejser A.S., að Mafl-
orkaferðir lækkuðu frá 1. október
um það bil um 850 kr. og til Torre
molinos um 1100,00 kr. Bangs
Rejser er þrið' s4 'sta ferðaskrif
stofan í Danmörku og búizt er við
að seldar ferðir hennar verði
75.000 á þessu ári en á næsta ári
80—90.000. Ferðaskrifstofan gef-
ur afslátt með þotum af Sterling
Airways Super Caravelle gerð.
í viðtali við Berlingske Tidende
segir forstjóri Bangs Rejst ;.ð
leiguf.'ugið hafi gengið afbragðs
vel i marz, apríl, maí og júlí. Júní
var síðri og telja sumir, að orsök-
in hafi verið gott veður í Dan-
mörku, en aðrir, að margir hafi
haldiö ð skattur væri ekk; tekinn
af fólki í júní eins og áður tiðk-
aðist. Útlit er fyrir góða sölu í
ágúst. Óvenjulega margir Danir
hafa pantað ferðir allt fram að
páskum og uppse’t er í margar
jólaferðann.;. Aukin sala liefur
einnig gert Bangs Rejser kleift að
'ækka vt: ' á u.’of',r ðum.
Tjærel esturinn kvaðst
ekki vita, hvort til raunverulegs
fargjaldastríðs kæmi. Hann segir,
að um mismunandi fargjöfd sé að
ræða en ekki beinar fargjaldalækk
anir. Fargjaldið hjá skrifstofu
hans er lægra leggi fólk af stað í
miðri viku en ef það fer um helgi.
Um nokkra allsherjar lækkun er
að ræða en fólki er ráðlagt að
kynna tár vel tækifærin, sem fyr-
ir hendi eru og bera þau saman
vi@ eigin óskir, því að þá er hægt
að fá mjög hagkvæmar ferðir.
Það er munur á verði eftir því,
hvort ferðin hefst á miðvikudegi
eða um helgi, að nóttu eða degi
o. s. frv.
Sætanýting hjá feriðaskrifstofu
Tjæreborgsprestsins hefur verið á
Framhald á bls. 14.