Tíminn - 23.08.1970, Blaðsíða 16

Tíminn - 23.08.1970, Blaðsíða 16
, V mm Sunnudagur 23. ágúst 1970. Flokkar, sem fela stefnu sína - Bls. 8 SKOÐANA- KÖNNUN Skoðana’xönnun í Norðurlands- kjördæmi eystra fer fram laugar- ■ daginn 29. ágúst, sunnudaginn 30. : og mánudaginn 31. Upplýsingar , veittar á s'krifstofunni Hafnar- ' stræti 90, sími 21180, og hjá trún aðarmönnum út um kjördæmið. Félagar úr Leikfélagi Reykjavíkur léttir í lundu eftir sumarfríið. Ljósmyndari Tímans G. E. tók þessa mynd af hópnum fyrir framan Iðnó í blíðskaparveðrinu í gærmorgun. Nýtt leikár hjá LR að hefjast: Taka upp frumsýn- ingar úti á landi EB—Reykjavík, laugardag. Leikfélag Reykjavíkur er nú að hefja starfsemi sína á nýjan leik eftir sumarið. Verður „Kristnihald undir Jökli“ fyrsta verkið sem Leikfélagið frum- sýnir á leikárinu. Hefjast sýn- ingar á þvj um 10. september. Um nokkra nýbreytni verður að ræða lijá Leikfélaginu á þessu leikári. Ætlar félagið sér m. a. að leita nú meira inn í skólana með styttri verk, og einnig mun það frumsýna verk utan Rcykjavíkur. Biaðamönnum var í morgun boðið til kaffidrykkju með aðil um Leikfélagsins og skýrði Sveinn Einarsson leikhússtjóri, þar frá fyrirhugaðri starfsemi félagsins á leikárinu. Munu sýningar á „Þið munið hann Jörund" og „Það er kominn gestur“ halda áfram, einnig mun pop-leikurinn Óli verða æfður upp á nýtt og sýningum haldið áfram á honum. Þá verður á leikárinu frum sýndur brezki sjónleikurinn „Hitabylgja" í þýðingu Stefáns Baldurssonar, en leikstjóri verð ur Steindór H'jörleifsson. Helgi Skúlason mun setja upp sjón ieik eftir Ludvig Holberg í þýð ingu dr. Jakobs Benediktsson ar, er fjallar að ýmsu leyti um sama efni og „Antigóna". Af öðrum leikritum á leikárinu má nefna „Saved“, þar sem ungl ingavandamálið er tekið fyrir, en sá sjónleikur hefur verið bannaður á nokkrum stöðum erlendis, þar sem hann hefur verið settur á svið. Eins og áður sagði, íhugar Leikfélagið nú að leita meira inn í skólaná með verk sín. Á liðnú leikári var farið í ýmsa skóla og verkefni kynnt. Hins vegar mun Leikfélagið hafa fengið heldur dræmar und irtektir hjá skólastjórum barna skólanna með þessa viðleitni. Hefur Leikfélagið samt álkveð ið að setja upp styttri verík fyrir skólana. Hefur Guðrúnu Ásmundsdóttur verið falið að setja upp verk fyrir barnaskól ana, og Erlingi Halldórssyni verk fyrir framhaldsskólana, þar sem m. a. verður vakin Framhald á bls. 14. Skoðanakönnun í A-Skaftafellssýslu Skoðanakönnun Framsóknar- manna í Austur-Skaftafellssýslu 'vegna uppstillingar á lista til ; næstu kosninga, fer fram sunnu- , daginn 23. ágúst n k. kl. 3 til 8 á eftirtöldum stöðum: í Nesja- hreppi í Mánagarði, i Mýrarhreppi f Holti, í Hafnarhreppi í Sindra- bæ. Sauðárkrókur Fundur verður haldinn í Fram- ■ sóknarfélagi Sauðárkróks mánu- ; daginn 24. þ. m. kl. 8,30 síðd. Fund ‘ arefni: Kosning fulltrúa á kjör- dæmisþing. Önnur mál. — Stjórnin. Úrslit í Hreppamenn hafa gæzlu á Sverrir koifelldi Jónas í prófkjöri Hrunamenn girtu um fimm kífómetra langa girðingu fyrir norðan öskugeirann til að varna því að féð færi sér að voða í öskunni, og auk þess hafa þeir haft tvo gæzlumenn, er reka féð frá girðingunni, og varna því að féð fari inn á öskugeir- afréttarlöndum sínum til varnar því að kindur fari sér að voða á öskusvæðunum KJ-Reykjavík, laugardag. í aflt sumar hafa Hreppa- menn þurft að hafa fjóra menn við gæzlu inni á afréttum sín- um til að forða sauðfénu, sem rekið var á fjall, frá vikur og öskugeiranum, sem lagðist þvert yfir afréttina í Heklugos- inu í vor. Er þetta gert til að féð fari sér ekki a'ð voða í ösk unni, en það hefur komið fyrir núna og kotn fyrir eftir Heklu- gosið 1947, að sauðfé biæddi út vegna sára, sem það fékk á klaufirnar við að ganga í vikr- inum, sem féll á fandið. Hjalti Gestsson, ráðunautur á Selfossi, sagði fréttamanni Tím ans, a® þetta væri eitt af þeim vandamálum, sem fylgdu í kjöl- far Heklugossins. Hjalti sagði, að þegar Hrunamenn hefðu rek ið á fjall í sramar, hefðu þeir látið jarðýtu gera braut í gegn um vikurgeirann og eftir þess ari braut var féð rekið. Bændur og búafið munu litlar áhyggjur þurft að hafa af því að halda fénu á brautinni, því að það kom varla fyrir a@ féð færi út fyrir hana og í öskulagið, sem var á jörðinni. Gnúpverjar bílfluttu allt sitt fé á fjall, og kom því ekki til þess að þeir þyrftu að gera braut fyrir féð, þegar það var rekið, en hins vegar má búast við því, að gera þurfi einhverj- ar ráðstafanir, þegar ,'eitarmenn koma með féð af fjalli í haust, og þurfa aið reka yfir öskugeir- ann. Má jafnvel búast við að gera þurfi brautir fyrir féð, og má þá búast við að safnið verði ein eða flciri langar hala- rófur í haust. Næst Þjórsá að vestan liggur afréttur Gnúpverja og nær alla leið inn að Hofsjökli, þá kem- ur afréttur Flóa og Skeiða- manna næst fyrir vestan, og síðan afréttur Hrunamanna. sveitaglímu Lið Reykjavíkur og Skarphéðins keppa til úrslita í Sveitaglímu ís- lands, sem fram fer í Félagslundi, Gaulverjabæjarhreppi, Árnessýslu, í kvöld ki'ukkan 20. Munu margir af beztu glímu- mönnum landsins vera á meðal keppenda. Sverrir Hermannsson EJ—Reykjavík, laugardag. Morgunhlaðið birtir í dag úrslit í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Austurlandskjördæmi, og kolfelldi Sverrir Hermannsson þar Jónas Pétursson alþingismann og hlaut þar með fyrsta sætið. Þeir fengu atkvæði sem hér segir: Sverrir Hermannsson hlaut í fyrsta sæti 425 atfcv., í annað sæti 207 atkv., í þriðja sæti 80 atkv., í fjórða sæti 28 atkv. og í fimmta sæti 28 atkv. Jónas Pétursson hlaut í fyrsta sæti 204 atkv., í annað sæti 167 atkv. í þriðja sæti 82 atkv., í fjórða sæti 36 atkv., og í fimmta sæti 29 atkv. Næstur kom Jón Guðmundsson, stud. jur. Neskaupstað, sem fékk þessi atkvæði: í fyrsta sæti 116 atkv., i annað sæti 56 atkv., í þriðja sæti 29 atkv., í fjórða sæti 37 atkv. og í fimmta sæti 21 atkv. ann. Gnúpverjar hafa sömuleiðis haft tvo menn í allt sumar í Hólaskógi og halda þeir vörð við Fossá. Þessuim starfa hafa Framhald á bls 14 Akureyri Fundur í fulltrúaráði Fram- sóknarfélaganna á Akureyri, verð ur mánudaginn 24. ágúst kl. 21.30 í félagsheimilinu Hafnarstræti 90. Umræðufundur um stefnuskrá SUF Níundi umræðufundurinn um stefnuskrá SUF verður haldinn í Framsóknarhúsinu við Frí- kirkjuveg, uppi, á morgun, sunnudag, og hefst liann kl. 14.30. Á fundinum verður rætt um eðli Framsóknarflokksins, hlutverk hans og skipulag, og um stöðu ungra manna innan hans. Fundurinn er opinn öllum, og ungir Framsóknarmenn eru sérstakleg.i hvattir til að taka þátt í þessum síðasta undir- búningsfundi, sem haldinn verð ur fyrir SUF-þing.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.