Tíminn - 09.09.1970, Síða 1
, „ FRYSTIKISTUR
FRYSTISKÁPAR
202. tbl. — Miðvikudagur 9. sept. 1970. — 54. árg.
2)yttt££a/u^a/t' h..£
UUTÆXJADEHD, HAFNARSTRÆT1 23, SlMI 18323
Um 60 löglærðir Sjálfstæðismenn senda Jóhanni Hafstein áskorun:
Vilja Gunnar Thoroddsen
sem dómsmálaráðherra
Forsetinn
kominn til
landsins
KJ—Kaupmannahöfn,
þriðjudag.
Forsetahjónin, dr. Kristján
Eldjárn og frú Halldóra
Eldjárn, héldu í kvöld frá Kast-
rupflugvelli áleiðis til íslands
að lokinni heimsókn til Dan-
merkur. Komu þau til Keflavík
Ur á 12. tímanum í kvöld.
Forsetahjónin fóru í morgun
í heimsókn í Tekniske Höj-
skolen, þar sem margir íslend-
mgar hafa stundaS nám á und-
anförnum árum. Skoðuðu þau
skólann, og áttu viðræður við
forráðamenn hans.
Síðan vörðu forsetahjónin
deginum í einkaerindum, og
snæddu miðdegisverð með
þeim, sem séð hafa um fram-
kvæmd heimsóknarinnar.
Klukkan 20.30 í kvöld að
dönskum tíma fóru forseta-
hjónin frá Kastrup áleiðis til
""ÍSIahds, og í fylgd með þeim
var Emil Jónsson utanríkisráð-
herra og Birgir Möller forseta-
ritari. Konungshjónin dönsku
fylgdu þeim á flugvöllinn.
Einnig fylgdi Ninn-Hansen
varnarmálaráðherra og kona
Framhald á bls. 14.
Bíllinn, sem valt út af veginum á HjarSarnesi. 19 ára piltur kastaðist út úr honum og beiS bana. (Mynd: JB)
Þrju umferðarslys með skömmu millibili fyrir vestan
19 ÁRA PILTUR FRÁ AKRANESI
FÓRST í BÍLSLYSIÁ BARÐASTRÖND
OÓ—Reykjavík, þriðjudag.
Nítján ára gamall piltur beið
bana, og þrjár systur hans og
frænka meiddust nokkuð er bíll
sem þau voru í valt rétt innan við
Auðshaug á Barðaströnd s.l. sunnu
dagskvöld. Pilturinn sem lézt hét
Gísli Már Einarsson frá Akranesi.
Var hann eigandi bilsins en ein
systra hans ók honum. Stúlkurnar
liggja allar á sjúkraliúsinu á
Patreksfirði- Engin þeirra er mik-
ið meidd en þær fengu allar tauga-
áfall.
Bíllinn vair á tiltSiu.'ega breiðum
vegi á Hjarðarnesi er stúlkan
missti vald á honum og valt hann
tvær veltur og stöðvaðist á þakinu.
Hurðin sem Gísli sat við hrökk
upp og kastaðist hann út úr bíln-
um og varð undir honum. TaSð er
að hann hafi látizt samstundis.
Stúlkurnar köstuðust til inni í bí'ln-
Framhald á 14. síðu.
Mikill fjöldi settur í sóttkví í Kaupmannahöfn
4 ÍSLENZKAR STÚLKUR
DVELJA í HERTJALDI!
KJ—Höfn, EJ—Reykjavík,
þriðjudag.
Hátt í tvö hundruð manns
ern nú í sóttkví I Danmörku.
þar af um 10 íslendingar. Fjór
ar íslenzkar stúlkur, sem unnu
á Skodsborg-hælinu, eni í al-
gjörrj einangrun í tjaldi á lóð
Bleksham-sjúkrahússins. Frétta
maður Tjmans gerði tilraun ul
þess að fá upp nöfn stúlknanna
fjögurra, en það tókst ekki. Þar
sem þær eru í sérstöku tjaldi,
var heldur ekki hægt að hafa
símasamband við stúlkurnar
sjálfar. Þær verða eins og aðr
ir íslendingar í sóttkví í Höfn,
að vera j einangrun til 13. sept
ember og dvelja þarna á kostn
að íslcnzka ríkisins.
í Danmörku munu nú hátt
i 200 manns vera í sóttkví
vegna ótta við bólusóttarfarald
ur. Hefur danski herinn komið
upp stórum hertjöldum á sjúkra
húslóðinni, og eru fjórar ís-
lenzkar stúlkur meðal þeirra
fjölmörgu, sem þar dveljast.
Tjöld þessi munu vera mjög
hlý, þannig að vistin þar ætti
ekki að vera óþægileg.
Þessar stúlkur, eins og aðr-
ir íslendingar sem eru í sótt-
kví, voru settar í einangrun
að beiðni landlæknis. Fékk
sendiráðið beiðni þess efnis,
að íslendingar. sem vcrið hefðu
á Skodsborg, eða umgengizt
fólk sem var þar, kæmi ekki
heim fyrr en eftir 14. sept-
ember.
Dönsku blöðin skýra frá þvi
í dag, að stöðugt fjölgi í sótt-
kvinni. Eitt blaðið gerir mik
ið úr því, að sjúkrabifreið,
sem einn bólusóttarsjúklingur
var fluttur í, var ekki sótt-
hreinsaður á eftir. Voru 43
sjúklingar fluttir í bifreiðinni
áður en þetta var aðgætt, og
urðu^þeir allir að fara í sótt-
kví.
EJ—Reykjavík. þriðjudag.
Mikil barátta virðist nú innan
Sjálfstæðisflokksins um skipun
manns í dómsmálaráðherraembætt
ið í hinu nýja ráðuneyti, sem Jó-
hann Hafstein mun mynda áður
en Alþingi kemur saman í næsta
mánuði. Löglærðir menn innan
Sjálfstæðisflokksins hafa sent
áskorun til Jóhanns Hafsteins um
að skipa Dr. Gunnar Thoroddsen
í það embætti, og virðist því bar-
áttan fyrir pólitískri upprisu
Gunnars blandast inn í þetta mál.
Nokkuð hefur verið um það
rætt, hvaða menn Sjálfstæðisflokk
urinn myndi skipa sem dómsmála-
ráðherra, og hafa ýmsir verið til-
nefndir. Þannig hafa ýmsir nefnt,
að Auður Auðuns kynni að fá
þetta embætti. Aðrir telja, að
Jónas Rafnar sé heppilegur, þar
sem hann verður ekki í framboði
við næstu alþingiskosningar. Geir
Hallgrímsson hefur einnig verið
nefndur, en sagt að hann vilji
ekki fara inn í ríkisstjórnina eins
og málin standa nú. Loks hefur
verið talað um, að Magnús Jóns-
son fjármálaráðherra taíki við
dóms- og iðnaðarmálunum, en
Birgir Kjaran kemi inn sem fjár-
málaráðherra. Inn í þetta mál
blandast svo að sjálfsögðu valda-
baráttan inn.an Sjáffstæðisflokks-
ins um æðstu völdin innan hans.
Nú hefur mál þetta tekið á sig
nýjan blæ. þar sem forsætisráð-
herra hefur borizt áskorun frá um
60 löglærðum mönnum innan
flokksins um að gera dr. Gunnar
Thoroddsen að dómsmálaráðherra.
Saga þessa máls er, eftir því
sem blaðið kemst næst, þessi:
f gær boðuöu þrír lögfræðingar
til fundar i Reykjavík. Fundar-
boðendur voru þeir Bjarni Bein-
teinsson, hdl, Sigurður Líndal,
hæstaréttarritari, og Böðvar Braga
son, hdl. Boðuðu þeir til fundar-
Framhald á 14. síðu.
HÚS JÓNS
FORSETA
AFHENT Á
LAUGARDAG
KJ—Kaupenannahöfn, þriðjudag.
Jóns Sigurðssonar-húsið við
Österport 12 í Kaupmannahöfn,
hefur sem kunnugt er verið í end-
urbyggingu að undanförnu. eftir
að íslenzka ríkið eignaðist það.
Húsið verður fonmlega afhent ís-
lendingafélaginu í Kaupmannahöfn
og Félagi íslenzkra námsmanna
hér á laugardaginn kemur. í því
skyni koma forsetar Alþingis til
Hafnar til að skoða húsið, secn
hefur verið gert upp hátt og lágt.
Þeir munu afhenda formönnum
áðurnefndra félaga, þeim Júlíusi
Sólnes verkfræðingi og Guðmundi
Björnssyni, verkfráeðinema, húsið.