Tíminn - 09.09.1970, Qupperneq 2
TIMINN
MIÐVIKUDAGUR 9. september 1970
Kristnihaldiö frumsýnt
í Iðnó á laugardaginn
Eeíkár Leikfélags Reyijavíkur
híífet laugardagirm 12. september
1070 meS frumsýningu á Kristni-
haldi undir jökli eftir Halldór
Laxness. Sem kunnugt er voru
tvær forsýningar á Kristnihaldi
undir jökli í vor á vegum Lista-
hátíðar. Leikritið er byggt á sam-
nefndri bók Laxness, en Sveinn
Einarsson hefur búið til sviðs-
flutnings og er jafnframt leik-
stjóri.
Kristnihald undir jökli er
þriðja leikrit Halldórs Laxxness,
sem Leikfélag Reykjavíkur sýnir.
Straumrof var sýnt 1934 en Dúfna-
veizlan 1966.
Leikmynd við Kristnihaldið hef
ur Steinþór Sigurðsson gert, en
leikendur eru alls 15. Umboðs-
mann biskups, Umba, leikur Þor-
steinn Gunnarsson. Kennimanninn
og þúsundþjalasmiðinn séra Jón
Prímus leikur Gísli Halldórsson,
en Úa er leikin af Ilelgu Bach-
mann.
Aðrir leikendur eru Jón Sigur-
björnsson, sem leikur dr. Sýng-
mann Goodman, Brynjólfur Jóhann
esso-n, sem Tumi safnaðarformað-
ur, frk. Hnailþóru leikur Inga
Þórðardóttir, Fínu Jónsen Margrét
Ólafsdóttir, Þóra Borg leikur konu
Tuma safnaðarformanns, Karl Guð
mundsson leikur Lángvetninginn,
Steindór Hjörleifsson Jódínus,
Jón Aðils leikur brytann James
Smith en beitarhúsmenn eru Helgi
Skúlason, Kjartan Ragnarsson og
Jón Hjartarson.
Von er á leikritagerð Kristni-
haldsins í bók nú í haust og nefn-
ist hún Úa, en eins og fcunnugt er,
er einnig von á nýrri skáldsíigu
frá hendi Laxness nú einhvern
næstu daga. Þá er verið að æfa
Dúfnaveizluna í Árósum og verð-
ur frumsýningin í október. Leik-
stjóri verður Asger Bonfils.
Frumsýning á Kristnihaldinu
verður eins og áður segir á laug-
ardagskvöld og hefst klukkan
20.30, en önnur sýning verður síð-
an á sunnudagskvöld á sama tíma.
Fastir frumsýningargestir hafa for
gangsrétt að miðum sínum til
fi nmtudagskvölds, en á þeim verð
ur sama fyrirkomulag og í fyrra
og greiðast þeir fyrir allan vetur-
inn í einu. Líklegt er, að hægt
verði að bæta við nokkrum föst-
um frumsýningargestum nú í
haust.
Sýningar á Þið munið hann Jör-
und hefjast 24. sept. og Það er
kominn gestur verður sýnt að nýju
10. október. Þá er og í æfingu
brezkt nútíma leikrit, Hitabylgja.
Það verður frumsýnt I októberlok.
Dönsk hljómsveit
til Islands
Mánudaginn 8. sept. kom 10
Bvanna hljómsveit frá Danmörku
til fslands. Hingað kom hljóm-
sveitin frá Grænlandi, en þar hafði
hún efnt tii hljómleika á ýmsum
stöðum, síðustu þrjár vikurnar.
Hér er um að ræða „Vestjysk
kammerensemble“ frá Esbjerg.
Hinigað til lands kemur hl jómsveit-
in fyrir atbeina borgarstjórnarinn
ar í Esbjerg og á vegum bæjar-
stjórnarinnar í Neskaupstað. en
Esbjerg er vinabær Neskaupstað-
ar í Danmörku og er heimsóknin
þáttur í vinabæjarstarfinu. Áður
hefur hljómsveitin heimsótt vina-
bæi Esbjeng- og Neskaupstaðar- í
Norégi og Finnlandi.
Sama daginn og hljómsveit-
kom til íslands, hélt hún til Nes-
kaupstaðar og efnir þar til hljóm
leika í kvöld. Auk þess efnir hún
til hljómleika á tveim stöðum
hér á landi, á Húsavik föstudags-
kvöldið 11. sept. og í Nórræna
húsinu í Reykjavík 12. september
og verða þeir hljómleikar auglýst
ir síðar í blöðum og útvarpi. Þá
mun hljómsveitin og leika fyrir
útvarpið.
Á Vestur-Jótlandi stendur tón-
listarlíf á gömlum merg, en með
mestuim blóma í hinni ört vax-
andi borg Esbjerg og menningar-
bænum Ribés-amt. Rekinn er þar
voldugur tónlistarháskóli og sin-
Danska hljómsveitin Vestjysk kammerensemble.
18 punda fiskur úr Stóru-Laxá
Á öðru og þriðja veiðisvæði
Stóru-Laxá veiddust fjórir lax-
ar á tvær stangir á laugardaginn
og sunnudaginn. Frú Ingunn
Sveinsdóttir var með aðra stöng-
ina og fékk hún 18 punda lax á
spón í svonefndum Gagnslausum,
þar sem Stangaveiðifélagsmenn
veiddu alls fimm laxa í fyrrasum-
ar. Veiddi Ingunn laxinn á sunnu-
daginn. Þá má geta þess að Óli J.
Ólafsson fyrrverandi formaður
Stangaveiðifélags Reykjavíkur
fékk daginn áður einn 11 punda í
ánni.
— Veiðin i ánni hefur verið
oieð betra móti í sumar — og
það er að öllum líkindum töluvert
af laxi á veiðisvæðinu fyrir fram-
an Laxárdalinn, sagði Guðmundur
fóníuhljómsveit er starfandi. Vest
ur-józka sinfóníuhljómsveitin.
En hinir Vestur-józku hljómlist
armenn hafa eigi' látið sér nægja
þennan starfsgrundvöll. Stofnun
Vestur-józku kammerhljómsveit
ariffiar er glöggt vitni þess. En
stofnun hennar og starfsemi er
nýjung í dönsku tónlistarlífi og
raunar í norrænu tónlistarlífi einn
ig. Tónlistarmennirnir hafa á
þennan hátt fengið tækfæri til að
helga sig kammertónlist meir en
ella, þjálfa sig í hljómlistarleik
og kenna. Þá leika þeir einnig í
Vestur-józku sinfóníuhljómsveit-
inni og stjórna þar ákveðnum hóp
um. En þeir einskorða sig engan
veginn við kammertónlist, heldur
fást við margskonar verk. Þeir
kynna tónlist mikið í skólum æðri
sem lægri og skólatónleikar þeirra
eru taldir áhrifamiklir og athygl
isverðir.
Hin fiölbreytiilega hljóðfæraskip-
an hljómsveitarinnar er eftirtekt
arverð og skapar henni óteljandi
tækifæri til síbreytilegrar túlk-
unar.
Skoðanakönnun í
Reykjaneskiördæmi
26.-27. september
Frestur ti! að setja menn á fram
boðslista fyrir skoðanakönnunina
er til 15 september. Skoðanakönn-
un fer fram helgina 26.—27. sept-
ember.
Yfirkjörstjórn tilkynnir síðan
hversu marga daga sjálf skoðana-
könnunin stendur, hvar kjörstaðir
verða og fleiri framkvæmdaatriði
varðandi skoðanakönnunina. Verð-
ur nánar sagt frá þeim atriiðum í
blaðinu síðar.
J. Kristjánsson í viðtali við Veiði-
hornið í gærkvöldi, en Guðmund-
ur var einn þeirra veiðimanna er
renndi í Stóru-Laxá um helgina.
Veiðinni í Stóru-Laxá lýkur þann
20. september. í fyrra veiddu veiði
menn á vegum Stangaveiðifélags
Reykjavíkur 63 laxa í ánni á maðk,
41 á spón, 13 á minno, 11 á flugu,
7 á Toby — ónafngreint 16. — EB
Þorsteinn Gunnarsson og 'Helga Bachmann í hlutverkum sínum i Kristni-
haldi undir jökli.
Krufningsskýrslan ekki
komin til lögreglunnar
OÓ—Reykjavík, þriðjudag.
Rannsóknalögreglunni hefur
enn ekki borizt krufningsskýrsla
vegna láts Gunnars Gunnarssonar,
sem létzt s.l. laugardag, eftir að
hafa lent í handalögmáli við ölv-
aðan mann.
Maðurinn, sem handtekinn var
skömmu síðar, er 22 ára að aldri.
Segist hann hafa lent í harki við
konuna á miðhæð hússins Ránar-
götu 9, eins og sagt var frá í Tím-
anum í gær. Hefði Gunnar þá kom
ið þar að og skipað sér að fara
út, og er hann lét sér ekki segj-
ast hafði Gunnar á orði að kalla
á lögregluna. Þá segist ölvaði mað
urinn hafa ætlað að koma sér út,
en þá hafi Gunnar og konan, sem
býr í íbúðinni, ætlað að hefta för
sína og kom þá til handalögmáls.
Urðu þá nokkur átök. Konan
hlaut nokkra áverka og þegar lög-
reglan kom að nokkru síðar lá
Gunnar meðvitundarlaus á gólf-
inu. Var hann fluttur á Slysavarð-
stofuna og var látinn þegar þang
að kom. Engir ávrekar sáust á lík-
inu.
Mennirnir
þungt haldnir
OÓ—Reykjavík, þriðjudag.
Mennirnir tveir sem slösuðust
er bíll valt ofan við Sandskeið í
gærkvöldi, liggja báðir á Borgar-
spítalanum og eru mikið meir’íiir.
en þó ekki lífshættulega.
Mennirnir voru tveir í bílnum
þegar hann valt. Ökumaðurinn er
75 ára að aldri, en farþeginn 77
ára.
Konan, sem varð fyrir bíl ;
Skipholti í s.l viku, liggur enn
þungt haldin á sjúkrahúsi.
Gunnar Gunarsson var 75 ára
gamall og er iíklegast talið að
hann hafi orðið fyrir mikilS geðs-
hræringu, en um dánarorsök er
að sjálfsögðu ekkert hægt að full
yrða fyrr en krufningsskýrsla ligg
ur fyrir.
Maðurinn sem öllu þessu um-
stangi olli var úrskurðaður í 30
daga gæzluvarðhald s.l. sunnudag.
Stúlkunum í
sóttkvínni
líður vel
OÓ—Reykjavík, þriðjudag.
Ekki hafa fleiri íslendingar ver-
ið settir í sóttkví, en þeir sem
sagt var frá : blaðinu í gær. Líð-
an stúlknanna fjögurra sem nú
eru í sóttkví á Vífilsstöðum er
ágæt.
Grunur leikur á að bólusóttar-
tilfelli hafi komið upp í Noregi.
B.nedikt Tómasson læknir, sagði
Tímanum : dag, að sá maður sé
búinn að vera í sóttkvi í Noregi,
en áður hefði hann verið með
Norðmanninum. sem liggur veik-
ur í Kaupmannahöfn í herbergi
dagana 26. og 27. ágúst s.l. Var
hann settur í sóttkví strax eftir að
tilfellið kom upp í Höfn. Ekki er
búið að staðfesta að það sé bólu-
sótt sem að þessum manni geng-
ur, og þótt svo sé er ekki ástæða
t;i að óttast að veikin eigi enn
eftir að breiðast út, þar sem til-
fellin eru vel einangruð.