Tíminn - 09.09.1970, Blaðsíða 3
MBEÐVIKUDAGUR 9. september 1970.
Kaffisala og skemmtanir
til styrktar lömuðum
HeyþurrkirnarhúslS, sem byggt var í HveragerSi. Á þaki hússins er sterk vifta, sem sýgur loftiS upp í gegnum
heyiS, en undir þvi eru pípur, sem hitaSar eru upp meS gufu.
Ný heyþurrkunaraðferð
talin gefa góða raun
SJ—Reykjavík, þriðjudag.
Næsta sunnudag efnir Kvenna-
deild Styrktarfélags lamaðra og
fatlaðra til kaffisölu í Tónabæ tif
íágóða fyrir starfsemi fétagsins.
Á kaffisölunni, sem stendur frá
2,30 til 6 e.h., verða fjölbreytt
skemmtiatriði, m.a. koma fram
Ómar Ragnarsson, hljómsveit
Ragnars Bjarnasonar, Áge Lorange
og hópur úr Þjóðdansafé'laginu.
Um 150 konur eru í Kvennadeild
inni, og hafa þær einkum unnið að
fjáröffun tiL kaupa á nauðsynleg-
um búnaði í þjálfunarstöið félags-
ins og þeirra framkvæmda þess,
sem þarfastar eru hverju sinni.
Lítið um
framkvæmdir
í vitamálum
EB—Reykjavík, fimmtudag.
— Það er lítið um nýjungar hjá
okkur og varla tímabært að segja
frá þeim. Hefur lítið verið um
framkvæmdir í vitamálum í sumar
og einu endurbætumar sem nú
eru í framkvæmd, eru á radiostöð-
inni á Skarðsfjörum.
Þetta hafði vitamáiastjóri að
segja Tímanum í dag, er blaðifð
spurðist fyrir um framkvæmdir í
vitamálum í landinu. Þá fét vita-
málastjóri í það skína, að eitthvað
væri á döfinni í vitamálum á næst-
unni, en áleit ekki tímabært að
skýra almenningi frá því að svo
Btöddu.
Þjálfun-arstöðin hefur verið
starfrækt undanfarin tvö ár í nýju
húsnæði félagsins að Háaleitis-
braut, sem enn er ekki að fuilu
frágengið.
Senn verður lokið við æfinga-
sal, sundfaug er uppsteypt en að
öðru leyti ólokiið. Ætlunin var að
hún yrði tilbúin um næstu' áramót,
en svo verður sennilega ekki, enda
vantar mikið fé til að ijúka bygg-
ingarframkvæmdum við þjálfun_r-
stöðina, sem er á einni hæð 700
fermetrar að f-JatarmáM. Þangað
koma að jafnaði 70 sjúklingar á
dag.
Styrktarfélag lamaðra og fatl-
aðr,a rekur heimavistarskóla í
Reykj-adal í Mosfellssveit á vetr-
uim, en þar er barnaheimili á sumr-
in. í vetur voru þar 26 börn, sköfa-
stjóri er Svanhildur Svavarsdóttir
e,n með henni starfar annar fast-
ráðinn kennari, auk stundiakennara,
og sjúkraþjálfarar aðstoða börniin
þrisvar í viku. 55 börn voru á
barnaheimilinu í sumar, en þau
injóta sjúkraþjálfunar og sund-
kennslu á staðnum. Þórey Ingvars-
dóttir stýrði bamah-eimilinu í sum
ar.
Mikili skortur er á íslenzkum
sjúkraþjáffurum og þarf félagið
ávallt að fá erlenda starfskrafta
hingað til 1-ands. Um 22 innlendir
sjúkraþjálf-arar starfa nú hér á
landi.
Styrktarfélag lamaðra og fatl-
aðra nýtur 17 þúsund kr. styrks á
ári frá rikinu, sem einnig greiðir
la-un kennara skólans, ráðskonu og
starfsstúLku að hálfu. Reykjavíkur-
borg leggur fram 35 þús. á ári. Þá
hefur félagið fengið barnia-heimilis-
styrk. Einnig hefur félagið iy2
mi-illjón kr. tekj-ur á ári af sölu
eldspýtnastokka, og símahapp-
Framhald á bls. 14.
OÓ—Reeykjavík, mánudag.
Hafnar eru í Hveragerði tilraun
ir við heyþurrkun í þar til gerðu
húsi. Eru þessar tilraunir byggðar
á hugmynd Benedikts Gíslasonar
frá Hofteigi, sem áður hefur ver-
ið sagt frá í Tímánum. Þótt þess-
ar heyþurrkunartilraunir séu enn
rétt á byrjunarstigi, virðist að-
ferðin gefa mjög góða raun og
tekur aðeins nokkrar klukkustund
ir að fullþurrka heyið.
Sérstakt hús var byggt eftir
fyrirsögn Benedikts, og stóð Gísli
Sigurbjörnsson straum af beim
kostnaði. Er húsið 3x3 metrar að
flatarmáli. Á botninum eru píp-
ur sem 130 sti-ga heitri gufu er
hleypt í gegnum. Á þakinu er
vifta, se-m sý-gur heitt loft gegnum
heyið, dregur hún 12 þús. metra
af lofti á klukkustund. Ofanvið
hitapípurnar er vírnet, sem heyið
er látið á. f fyrra var gerð svip-
uð tilraun á Hvanneyri, en sú
vifta, sem þá var notuð, hafði ekki
nema fjórðung afls á við þá sem
nú er notuð.
Karl Ómar Jónsson. verkfræð-
ingur, veitir verkfræðilega aðstoð
við þessar tilranuir.
Kristján Jónsson í Hveragerði,
sér um þurrk-unina, og var fyrst
sett hey í þurrkunarhúsið s.l.
föstudag. Hefur Kirstján síðan
þurrkað allmikið magn með ágæt-
um árangri. Er reiknað með að
hægt sé að fullþurrka um 30 hesta
af heyi á dag í þessu húsi. Síðar
í haust verða gerðar tilraunir með
áð þurrka -grænfóður, og síðar
ef til vill fisk.
Benedikt segir, að það sé mikið
atriði við þessa heyþurrkunarað-
ferð að viftan sem dregur loft-
ið gegnum heyið sé nægilega kraft
mikil, og þarf þá hitinn undir
heyinu ekki að vera eins mikill.
Þar sem jarðhiti er þykir sjálf-
sagt að nota hann við heyþurrk-
un, en allt eins má hita pípurnar
með olíukyndingu, þar sem jarð-
hiti er ekki tiltækur.
Framhald á 14. síðu.
Bezti skeiðhestur Evrópu - utan
islands - er af óþekktum uppruna
FB—Reykjavík, þriðjudag.
Fyrir sex árum fór flugvél
hlaðin íslenzkum hestum til
Sviss, þar sem selja átti hest-
ana. Þegar til Sviss kom höfðu
skilríki eins hestsins glatazt, og
fór svo, að hann seldist ekki,
heldur var stungið inn í svína-
stíu og geymdur þar um sinn.
Dag nokkurn rakst ung stúlka,
Barla Maissen inn í svínastíuna
og sá hestinn, og ákva® að
kaupa hann þrátt fyrir það að
ætt og uppruni hans voru öll-
um ókunn. Á Evrópumeistara-
keppninni í Aegiedienberg i
Rínarlöndum á sunnudaginn
fór þessi óþekkti hestur með
sigur af hólmi í 200 metra
skeiði, og er því bezti ísleiizki
skeiðhesturinn utan fslands.
Blaðamaður Tímans, sem
staddur var á Evrópumeistara-
mótinu ræddi stuttlega við
Barla Maissen, sem er um tví-
tugt. Hún var yfir sig glöð yfir
sigri Víkings, en svo hefur hún
nefnt hestinn sinn. Fyrr um
daginn hafði Víkingi ekki geng
Svissneska stúlkan meö Víking
sinn, sem reyndist bezti skeið-
hesturinn. (Tímamynd FB)
ið efns vel í öðrum keppnis-
greinum, og hafði Barla þá
sézt gráta fögrum tárum yfir
óförunum. Barla sagðist hafa
rekizt á Víking í svínastíu, eins
og fyrr getur, og keypti hann
þegar í stað. Hún og fjölskylda
hennar, sem búa í Grisons kan-
tonu í Sviss, eiga nú fimm ís-
lenzka hesta. Hún sagði að Vík-
ingur mundi vera 12 vetra, og
sagði hann einstakan hest, og
spurði, hvernig íslendingum
dytti í hug að selja jafn góða
hesta úr landi. Barla sagði, að
erfiðlega hefði gengið að temja
Víking í upphafi, en eftir
tveggja ára erfiði, hefði árang
urinn farið að koma verulega
í ljós. Undanfarið hálft ár, hef
ur hún þjálfað Víking af mikl-
um krafti, en framundan hjá
honum er nú hálfs árs hví-ld.
— Það þýðir ekki að halda
áfram að nota hann næstu mán
uði, sagði Barla, ef ég ætla mér
að taka þátt í móti næsta ár.
Til þess að það geti borið góð-
an árangur verður hesturinn að
fá góða hvíld.
Barla Maissen hefur mikla
löngun til þess að fá einhverj-
ar upplýsingar um ætt og upp-
runa Víkings, og sagði hún að
þýzki hestamaðurinn Walter
Feldmann hefði lofað að að-
stoða sig við að fá einhverjar
upplýsingar um hestinn á næst
unni.
Eins og fyrr segir reyndist
Víkingur bezti skeiðhestur
Evrópu, utan íslands. Hann
rann 200 meti'a vegalengdina
á 1« sekúndum. í öðru sæti
varð Hvellur, einnig frá íslandi
á 18.6 sekúndum. Þriðji varð
Blakkur frá Austurríki á 23.3
sek., fjórði Jarpur frá Hollandi
á 23.9 sek. og Glöð frá Austur-
ríki og Logi frá íslandi urðu
‘jöfn í fimmta sæti á 24.1 sek.
Víkingur varð einnig í fyrsta
sæti í þriggja kílómetra þol-
hlaupi. Fór hann það á aðeins
6.27.2 mínútum, en í öðru sæti
varð Stjarni frá íslandi á 7.35,
í þriðja sæti varð Vörður frá
Þýzkalandi á 7.10.3, í fjórða
sæti Börkur frá Þýzkalandi á
7.25.6 og í fimmta sæti Funi
frá Þýzkalandi á 7.47.6. Þew
má geta, að Funi og Vörður
eru báðir í eigu Walter Feld-
manns, sem stjórnaði Evrópu-
meistarakeppninni, og á búgarð
inn, þar sem keppnin fór fram.