Tíminn - 09.09.1970, Side 10
10
TIMINN
MIÐVIKUDAGUR 9. september 1970
Linden Grierson:
UNGFRÚ SMITH
24
alls ekki með náttúruhamförum.
Það leit helzt út fyrir, að hóp-
urinn hefði þolað eins mikið og
þau gátu og hún hálf kenndi í
brjósti um Maynard, sem henni
hafði alltaf verið vel við, Hins
vegar leizt henni ekkert á Jeen
og fannst hann minna meira á
hnefaleikamann, en íögfræðing.
— Það er víst bezt, að þið fá-
ið ykkur bað, meðan hinir eru
að borða, og svo lagar Anne eitt-
hvað handa ykkur á eftir.
Roddie leit forvitnislega á hana.
— Er það satt, að Anne búi til
matinn hérna? Maynard sagði það
en ég hélt, að hann væri að fara
eitthvað á bak við mig.
— Anne er eldabuska hér, það
er áreiðanlegt, að það er satt.
— Það er nú samt ótrúlegt.
— Roddie, hættu þessu kjaft-
æði. Ég er rennandi blaut og mér
er illt í fótunum, kvartaði Bar-
bara. Ég er viss um, að ég get
aldrei framar gengið almennilega.
Komum okkur í bað og inn í
almennilegt herbergi. Hvar eru
töskurnar okkar? Einhver verður
að sækja þær, því ég verð að hafa
fataskipti.
— Þess þurfum við öll, sagði
Jean, — og við verðum að fá
mat.
— Hvar er ungfrú Carrington-
Smythe? Hún á þó þennan stað,
svo hún getur líklega sent mann
eftir töskunum.
i£4Meimirnir hafa' allir verið
að þræla síðan snemma j morg-
un, sagði frú Carrington-Smythe
— svo þeir verða að borða og
hvíia sig og veitir ekki af.
— Við þurfom þess líka, greip
Barbara fram í. — Eg verð að
fá töskuna mína.
— Ég veit ekki, hver þér eruð,
og hef hefdur ekki áhuga á því,
sagði Pat, sem í þessu kom í
dyrnar, — en ég má til með að
biðja yður að hætta þessu rausi
um töskuna. Töskur koma bara
illu af stað í þessum heimi.
í fyrsta sinn fékk frú Carring-
ton-Smythe tækifæri til að virða
Pat almennilega fyrir sér, og hún
gat gert sér i hugarlund, að þeg-
ar hann hefði rakað sig og væri
kominn í almennileg föt, yrði
hann aðlaðandi og myndarlegur
maður. Bæði blíður og hörkuleg-
ur, einmitt eins og sá maður, sem
Anne þyrfti á að halda. Hann
myndi efcki láta hana vaða -yfir
sig, en hann yrði líka tryggur lífs-
förunautur. Hún var viss um, að
þarna hafði Anne valið rétt og
hún brosti ósjálfrátt til hans.
Hann brosti aftur og virtist undr-
andi, þegar hann gerði sér grein
fyrir því, að þarna hitti hann fé-
laga fyrir.
— Það er engin ástæða fyrir
svona athugasemdum, herra
Kennedy, sagði Jeen.
— Það verður að sækja tösk-
urnar og það strax.
Pat kinkaði kolli, því ef áin
yxi meira, færi bíllinn í kaf yfir
nóttina, og á Gum Valley voru
alls ekki til föt handa öllu þessu
fólki.
— Ég skal bjarga þessu með
töskurnar, lofaði hann. — Ég
sæki þær sjálfur.
— Það gerirðu ekki.
— Það var Anne sem sagði
þetta, um leið og hún kom inn.
Hún var enn föf og það var af
skömm, því Pat hafði séð, hvernig
Roddie faðmaði hana. Þar að auki
var Meynard kominn, svo hún var
í tvenns konar vandræðum, því
hvort tveggja varð hún að reyna
að skýra fyrir Pat.
— Enginn sækir neinar töskur
fyrir ykkur i köld
Barbara, Maynard og Jeen,
reyndu að útskýra fyrir henni, að
það væri lífsnauðsynlegt, að þau
fengju töskurnar sínar í kvöld
og Roddie sat og híustaði á orða-
skiptin.
—Ungfrú Carrington-Smythe
ég ætla að sækja töskurnar, sagði
[ Pat. — Bíllinn verður kominn !
kaf í fyrramálið.
— Allt í lagi, svaraði Anne
með ískuida í röddinni. — en þá
fer ég með.
— Enga vitleysu, sagði hann
hranalega.
i — Fyrst ég á bíiinn, sagði þá
I Roddie rólega, — er ekki nema
; sjálfsagt, að ég fari með Kennedy.
— Það er ágætis hugmynd,
svaraði frú Carrington-Smythe og
kinkaði kolli. Ekki var laust við
að hún brosti með sjálfri sér, þeg-
ar hún hugsaði um, hvernig þeim
kæmi saman einum stundarkorn.
— Barbara, ef bú gætir hreyft
! þig um nokkra metra, þá skal ég
i útbóa baðið fyrir þeg.
Aliir fóru og Anne og Pat urðu
; ein eftir. Allt í einu kom hann
j auga á Joy, sem kúrði í stól úti
j í horni.
— Því ert þú ekki komin i
rúmið ennþá?
— Ég var að bíða eftir þér,
sagði Joy og tárin komu fram í
augu hennar, því henni fannst
þessi maður ekki lengur vera
hinn glaðlyndi og brosandi frændi
hennar.
— Pat frændi er þreyttur, skil-
urðu, greip Anne fram í og gekk
til hennar. Farðu bara að hátta
og svo kem ég til þín. Anne
rétti úr sér og sagði við Pat: —
Þótt þú sért reiður við mig, er
óþarfi að láta það koma niður á
barninu.
— Ég er ekkert reiður.
Það var að vísu satt, því reið-
ur var ekki rétta orðið. Hann var
bitur og vonsvikinn oþar að
auki útkeyrður af þreytu. Anne
gerði sér grein fyrir því öllu og
talaði rólegar þegar hún sagði
því næst: — Það er bezt að þú
fáir þér eitthvað í svanginn áður
en þú ferð út aftur. Hvernig hef-
urðu annars hugsað þér, að kom-
ast út að bílnum?
— Ég tek dráttarvélina — ef
hún fer þá i gang.
Þau gengu saman fram í eld-
húsið og skömmu seinna komu
vinnumennirnir inn og Anne tók
til kvöldmatinn h.anda þeim. Pat
lauk við að borða á udan hin-
um og fór strax út og rétt á eft-
ir heyrðust drunurnar í dráttar-
vélinni.
— Hvert er hann eiginlega að
íara? spurði Dick.
— Hann ætlar að sækja tösk-
urnar út í bílinn, sem er fastur
nðiurfrá svaraði Anne.
— Sanv er mér. sagði Rusty,
—- hvorki he.rií! né nokkur annar
hefði getað úrt'gið mig út aftur í
kvöld. Við ’nöfum unnið eins og
þrælar í allan dag og þegar ég
stakk upp á, að við færum svolít-
ið fyrr en venjulega, hélt ég svei
mér þá, að hann myndi ráðast á
mig. Mér er hjartanlega sama,
hvernig fer með þennan bannsetta
stað.
Hann mundi allt í einu, að það
var eigandi staðarins, sem hann
var að tala við og hneigði sig af
yfirdrifinni kurteisi, um leið og
hann fór.
— Afsakið mig, ungfrú Carring
ton-Smythe/
— Hann er þreyttur, sagði
Anne við hina óg brosti — og
látið sem ég komi þessum stað
ekkert við, nema sem eldabuska.
ao vero eg inta, pangau ui eiu-
hvað annað kemur til. Ég ætla að
láta ykkur vita það, að ég hef
hugsað mér að setiast að hérna.
— Það verður skemmtilegt, í-5
hafa eigandann hérna, sagði Pet-
er og meinti það. Alan beið, þar
til hinir voru farnir. Þá stóð hann
á fætur.
—■ Ég vissi ekki, að þér voruð
eigandinn, þegar ég neitaði yður
um að tína blómin. . .
Anne brosti og lagði höndina
á handlegg hans.
—Þér megið trúa, að ég hef
aldrei séð fallegri gerð. Mér þyk-
ir mjög vænt um, hvernig þú hef-
ur hugsað um garðinn og ég vona
að þér eigið eftir að halda því
áfram mörg ár henn.
— Ætlið þér þá ekki að reka
mig fyrir hvernig ég talaði við
yður?
— Auðvitað ekki. Þér igerðuð
skyldu yðar. Mér þykir bara
vænst um, að ég fékk að sjá garð-
inn eins og hann var, áður en
rigningin kom.
Það lifnaði yfir öllu andlitinu
á Alan.
— Bíðið bara þangað til í vor.
Þá er hanm fallegastur.
— Ég hlakka sannarlega til
þess, svaraði hún hlýleiga.
— Góða nótt, ungfrú Carring-
ton-Smythe.
— Mér er farið að verða v.vwu
lega illa við þetta nafn, tantaði
Anne, þegar hún var orðin eln.
— Það er allt of langt.
Hún sneri gér síðan að ■ þvj að
útbúa eitthvað heitt handa gest-
unum og bar það yfir í aðalálm-
una. Siðan fór hún að hugsa fyrir
svefnplássi handa þeim, þegar
hún loksins var búin að koma Joy
í rúmið. Barbara var víst bezt
geymd inni hjá mömmu hennar,
því hún vildi ekki láta Pat víkja
úr sínu herbergi. Lögfræðingarn-
ir fengu annað saman og Roddie
varð að sofa úti á veröndinni.
Þegar hún var búin að finna rúm-
fatnað, tók hún hlífarnar af nokkr
um stólum inni í stóru stofunni,
til að gestirnir gætu haft það
huggulegt annað slagið, því ekki
er miSvikudagur 9. sept.
— Gorgonius
Tungl í hásuðri kl. 20.12
Árdegisháflæði í Rvík kl. 11.44
HEILSUGÆZLA
Slökkviliðið og sjúkrabifreiðir.
Sjúkrabifreið i Hafnarfirði.
sími 51336.
fyrir Reykjavík og Kópavog
simi 11100.
Slysavarðstofan i Borgarspíta inum
er opin allan sólarhringinn. Að
okis mótt: a slasaðra. Sími
81212.
Kópavogs-Apótek og Keflavíkur-
Apótek ern opin virka daga kl.
9—19 laugardaga kl. 9—14. helga
daga kl. 13—15
Almennar upplýsingar um lækna
þjónustu 1 borginni eru gefnar í
símsvara Læknafélags Reykjavík
ur, sími 18888.
Fæðingarheimilib i Kópavogi.
Hlíðarvegi 40. simi 42644
Apótek Hafnarfjarðar er opið alla
virika daga frá fcl 9—7 á taugar
dögum kl. 9—2 og á sunnudögum
og öðrum helgidögum er opið frá
fcl. 2—4.
Tannlæfcnavakt er í Heilsvemd
arstöðinni 'bar ser^ ot
an var' og er opiu iaugardaga os
sunnudaga kl. 5—6 e h Sími
Kvöld eg helgidagavarzla apóteka i
Reykjavík 5—11. sept. er i Ingólfs-
apóteki og Laugarnesapóteki.
Næturvörzlu lækna í Keflavík
9. september annast Kjartan Ólafs
son.
ÁRNAÐ HEILLA
Dósóþeus Tímótheusson verður
sextugur í dag, 9. september. Hann
er staddur norður í Miðfirði í síma-
vinnuf'okki hjá Brúarholti.
TRÚLCFUN
Þann 15. ágúst síðastliðinn opin-
beruðu trúlofun sína ungfrú Anna
Salóme Halldórsdóttir Stóru-Seylu
og Konráð Gíslason Sólheimagerði,
Skagafinði.
FÉLAGSLÍF “
Ferðafélagsferðir
Á föstudagskvöld kl. 20
Landmannalaugar — Jökulgi?.
Á laugardag kl. 14.
Hlöðuvellir.
Á sunnudagsmorgun kl. 9,30.
Þingvellir — Botnssúlur (Haust-
litir)
Ferðafélag íslands, Öldugötu 3,
símar 11798 og 19533.
FLU GÁÆTL ANIR
Flugfélag íslands h.f.:
Millilandaflug.
Gullfaxi fór til Glasgow og Kaup-
mannahafnar k:. 08:30 í morgun
og er væntanlegur aftur til Kefla-
vikur kl. 18:15 í kvöid.
Gullfaxi fer til Oslo og Kaup-
mannahaf.nar k,’. 08:30 í fyrramál-
ið og til Oslo og Kaupmannahafn-
ar kl. 15:15 á morgun.
DC-6B vél félagsins fer til Meist-
aravíkur kl. 21:00 í kvö.'d og er
væntanleg þaðan aftur til Reykja-
víkur kl. 23:59 í kvöld.
Innanlandsflug.
í dag er áætlað að fljúga ti.’ Akur-
eyrar (3 ferð:r) til Vestmannaeyja
(2 ferðir) tii Isafjarðar, Sauðár-
króks, Egilsstaða og Patreksfjarð-
ar.
A morgun er áætlað a'ð fljúga til
Akureyrar (3 ferðir) til Vestmanna
eyja (2 ferðir) ti? Fagurhólsmýrar,
Hornafjarðar, Egilsstaða, Raufar-
hafnar og Þórshafnar.
Loftleiðir h.f.
Þorfirinur karlsefni er væntanleg-
ur frá NY kl. 0730. Fer til Luxem-
boi'gar kl. 0815. Er væntanlegur til
baka k.’. 1630. Fer til NY kl. 1715.
Eiríkur rauði er væntanlegur frá
NY kl. 0900. Fer til Luxemborgar
kl. 0945. Er væntanlegur til baka
frá Luxemborg kl. 1800. Fer til
NY kl. 1900
Leifur Eii'íksson er væntan’egur
frá NY kl. 1030. Fer til Luxem-
borgar kl. 1130. Er væntanlegur til
baka frá Luxemborg kl. 0215. Fer
til NY kl. 0310.
SIGLINGAR
Skipadeild S.f.S.:
Arnarfe,’1. er á Ilúsavík, fer haðan
til Kungshavn og Svendborgar.
Jökulfeil fer í dag frá Hull til
Rvíkur. Dísarfell er í Svendborg,
fer þaðan ti? Hornafjarðar. Litla-
fell væntanlegt til Rvíkur í dag.
Ilelgafell væntanlegt til Akureyr-
ar 12- þ.m. frá Svendborg. Stapa-
fe?l fór í gær frá Rvik til Eyjafjarð
arhafna. Mælifell væntanlegt til
Archangel 11. þ.m. Falcon Reefer
væntanlegt til Hornafjarðar í dag-
Skipaútgerð ríkisins:
Hcki'a er á Akureyri. Herjólfur fer
frá Vestmannaeyjum kl. 12.00 á
hádegi í dag til Þorlákshafnar, það-
an aftur kl. 1700 til Vestmanna-
eyja. Frá Vestmannaeyjum kl.
21.00 í kvöld til Rvíkur. Herðu-
breið fór frá Rvík kl. 20.00 í gær-
kvö.'di austur um land í hringferð.
Baldur fer til Snæfellsness- og
Breiðafjarðarhafna í dag.
ORÐSENDING
Langholtsprcstakall.
Vegna fjarveru séra Arelíusar
Níelssonar mun undirritaður gegna
störfum í hans stað, næstu vikur.
Viðtalstími fimmtudag og föstu-
dag að Só.’heimum 17 kl. 5—7.
Sími 33580, heimasími 21667.
Guðmundur Óskar Ólafsson.
GENGISSKRÁNING
Nr. 101 — 31. ágúst 1970
1 Bandar dollar 87.90 88.10
1 Sterlingspund 209,65 210,15
1 Kanadadollar 86,35 86,55
100 Ðanskar fcr. 1.171,80 L174.46
100 Norskar fcr 1.230,60 1.233,40
100 Sænskar kr. 1.695,00 1.698,86
100 Finnsk börk 2.109,42 2.11420
100 Fransklr fr 1.592,90 L596.50
100 Belg franfcar 177,10 177,60
100 Svissn. fr. 2.044,90 2.049,56
100 Gyllini 2.442,10 2.447,60
100 V -þýzk mörk 2.4" '■ 2.426.50
100 Lirur 14,06 14,12
100 Austurr sch 340,57 341,35
100 Escudos 307,00 307,70
100 Pesetar 126,27 126,55
100 Reikntngskrrtnur —
Vöruskiotalönd 99,86 10044
l ReiknlngsdoUar
Vörusldptalðno 87,90 8840
l Reikningspund -
Vörusldptalönd 210,95 2U.45
Lárétt:
1 Sjógangur. 6 Gata. 7 Rot. 9 Eins.
10 Æskumann. 11 Efni. 12 Frum-
efni. 13 Svif,- 15 Frómt.
Krossgáta
Nr. 624
Lóðrétt: 1 Hafróts. 2 Tónn.
3 Svipur. 4 Guð. 5 Dræm-
ast. 8 Kindina. 9 Til þessa.
13 Hvílt. 14 Eins.
Ráðning á gátu nr. 623:
Lárétt: 1 Þvingun. 6 Lag. 7
Ös. 9 FG. 10 Skaðleg. 11 Tý.
12 La. 13 Ana. 15 Ranglál.
Lóðrétt: 1 Þröstur. 2 II. 3
Nauðung. 4 GG. 5 Nuggast.
8 Ský. 9 Fel. 13 An. 14 Al.