Tíminn - 09.09.1970, Qupperneq 13
S!r Stanley Matthews, sem nú er 55 ára gamall ætlar að leika á móti Real
Madrid í Evrópukeppninni.
Sá gamli byrjar aftur
Allir knattspymuunnendur hafa
einhvemtímann heyrt talað um
Stanley Matthews. manninn sem
lék með Blacpool og síðan Stoke
City þar til hann var fimmtugur,
eða til ársins 1965.
Matthews var einhver bezti
knattspyrnumaður, sem uppi hef
ur verið, og enn í dag er vitnað
í kunnáttu hans og knattmeðferð,
þegar einhver þarf á samlíkingu
á því bezta á því sviði að halda.
Matthews lék sinn fyrsta deild-
arleik 16 ára gamall, og þegar
hann hætti hafði hann að baki
886 meistarafiokksleiki og lands-
leiki.
Hann var síðast leikmaður og
síðan framkvæmdastjóri Stoke
City, og lék sinn síðasta leik 28.
apríl 1965.
Fyrir skömmu þá hann boð
knattspyrnufélagsins Hibernian á
Möltu, um að gerast þjálfari fé-
lagsins, og hefur honum vegnað
mjög vel.
Hibernian sigraði í bikarikeppn-
inni og tilkynnti þátttöku í Evr-
ópukeppninni, þar sem liðið var
dregið á móti hinu heimsfræga
liði. Real Madrid frá Spáni.
Matthews hefur nú ákveðið að
verða við bón forráðamanna Hi-
bernian um að leika með því á
móti Real a. m k. .annan leik-
inn, og hefur það vakið mikla
athygli víða um heim. Að sögn
þeirra sem hafa séð hann æfa og
leika með liðinu, er hann enm í
fullu fjöri, og gefur ekki eftir
þeim ungu mönnum sem eru í
liðinu.
Á Spáni er sagður miiklil áhugi
á leiknum, og er búizt við að
völlur Real verði fullskipaður
þegar leikurinn fer fram þar.
Hingað til hafa lið frá Möltu ekki
dregið að sér áhorfendur, enda
koma vísta fæstir til að horfa á
Hibernian leika, heldur til að
horfa á Sir Stanley Matthews,
hina 55 ára gömlu stjörnu
- og sigruðu íslandsmeistarana frá Keflavík 2:0
Fellur Víkingur í kvöld?
klp—Reykjavík.
Það var mun meiri meistara-
svipur yfir leik KR-inga en Kefl
víkinga á yMelavellinum í gær-
kvöldi er þessi lið mættust í 1.
deildarkeppninni þar.
Þeir voru mun ákveðnari í alla
staði — fljótari á knöttinn —
harðari í návígi, og reyndu að
leika við hinar erfiðu aðstæður,
en mikiU vindur var á annað mark
ið, en slíku brá varla fyrir hjá
Keflvíkingum.
KR-ingar unnu hlutkesti og
kusu að leika undan vindinum.
Þeir hófu þegar sókn, sem stóð
mestan hluta hálfleiksins. en tæki
færin voru heldur fá.
Þegar réttar 15 mínútur voru
liðnar af leiknum fengu KR-ingar
aukaspymu um miðjan völldnn
sem viar heldur hæpinn dómur, því
þar rákust tveir leikmenn á, og
hefði þar verið ölfu réttara að
dæma dómarakast.
Hörður Markan tók spyrnuna,
og sendi í átt að marki, þar sem
hinir mjög srvo öruggu skalla-
Stalðan í 1. deild að 12 umferðum
loknurn er nú þessi:
★ KR — ÍBK 2:0
ÍA
ÍBK
KR
Fram
ÍBA
ÍBV
Vaiur
Víkingur
menn ÍBK stóðu í hóp. Upp úr
þeim hóp þaut þó Baldvin Bald-
vinsson, og sneiddi knöttinn lag-
lega með höfðinu, þannig að hann
þaut í öfugt horn, gjörsamlega
óverjamdi fyrir Þorstein mark-
vörð.
Ekki voru liðnar nema 15 mínút
ur til viðbótar, er Þorsteinn varð
aftur að sækja k-nöttinn í netið.
í þetta sinn var samvinnan öfug
á við fyrra markið, því Baldvin
sendi knöttinn á Hörð Markan,
sem komst einn inn fyrir. á fullri
ferð rak-ti hann knöttinn á undan
sér, og skaut síðan slíku þrumu
skoti, að sj-aldan hefur annaið eins
sézt á gamla MelaveHinum, frá víta
teig. og í bláhornið.
Keflvíkingar komust aðeins einu
sinni almennilega að marki KR
í fyrrj hálfleik, en þá skaut Jón
Jóhannsson framhjá af stu-ttu færi.
Annars lá mun meira á ÍBK, og
oftast var KR í sókn, var miðjuþóf
heldur leiðinSegt.
í síðari hálfleik bjuggust allir
við að Keflvíkingar myndu jafna
fljótlega undan vindinum.
Sú varð þó ekki raunin, og voru
KR-ingar mun nær því að skora
tvö mörk til viffbótar, en Kefl-
víkingar að skora tvö mörk og
jafna. T. d. komst Baldvin Bald-
vinsson einu sinni einn inn fyrir,
en þá varði Þorsteinn með góðu
úthlaupi. og þeir Jón Sigurðsson
og Sigþór á-ttu báðir skot að marki,
sem rétt s-mu-gu við stangirnar.
Keflvíkingar áttu auðvitað sín
tækifæri undan vindinum, en þau
voru sízt fleiri eða hættulegri en
KR-inga.
Þó skall hurð nærri hælum er
Friðrik skaut á markið mannlaust,
og var byrjaður að fagna marki,
er Bjöm Árnason kom aðvífa-ndi
og bjargaði með því að spyrna út
af.
Fyrir ut-an þetta tækifæri og 2
—3 önnur var heldur fátt um góða
drætti hjá Keflvíkingum, og sam-
lei-kur er nokkuð, sem margir liðs
menn hafa gjörsamlega gl-eymt
hvað er.
KR-ingar voru vel að þessum
sigri komnir, og var þetta einn
þeirra bezti leikur í langan tíma.
Allir iéku af fullum kraíti, og
uppgjöf v-ar engin.
í liðinu léku 3 menn, sem allir
bera nafnið Gunnar, og voru þeir
hver öðrum betri, þó sérstaklega
Gunnar Felixson, sem ekki hefur
sýnt jafn góðan leik í langan tíma.
Hörður Markan var einnig mjög
góður, e-n í heild má segja að eng-
inn hafi átt slakan leik.
Keflvíkingarnir voru ósköp svip
Framh-ald á 14. síðu.
Haustmót hjá Gróttu
íþróttafélagið Grótta gengst að
venju fyrir hinu árlega haustmóti
sínu í handknattleik í Meistara-
flokki kvenna, dagana 19., 20. og
24. september og fer mótið fram
f íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi.
Keppt verður í annað sinn um
bikar þann sem gefinn var af
Sveitarstjórn Seltjarnarneshrepps,
en Fram er núverandi handhafi
bikarsins.
Að ioknum úrslita-leiik mótsins
þann 24. september, fer fram
fyrsti leikur landsliðs og pressu-
liðs i meistaraflokki karla eins
og síðastliðið ár.
Þau félög er hy-ggjast taka þátt
í móti þesáu nú, eru beðin að
tilkynna þátttöku sína til Heinz
Steinmann í síma 26028 eða Stef-
áns Ágústssonar í si-ma 18707 fyr-
jr 10. september næstkomandi.
Leikur næst síðasta leik sinni í 1. deild
við ÍBA á Akureyri
Kinks-ævintýrið
mistðkst hjá KSÍ
Pop-bransi KnattspyrnUsam-
bands íslands mun að öllum
líkindum vera úr sögunni a. m.
k. fyrst um sinn.
„Kinks-ævintýrið“ mistókst
eins og fyrirfram var búizt við,
því það var í alla staði illa
undirbúið og þessi hljómsveit
frá Englandi var orðin of göm
ul í hettunni til þess að hægt
væri að fá einhverja aðsókn.
Hljómsveitin lék á mínudags
kvöldið hálft prógram í Laug
ardalshöllinni og voru um '2000
unglingar mættir til að horfa
og hlusta á hana.
Flestir, ef ekki allir, fóru
óánægðir heim aftur, 450 krón
um fátækari og reyslunni rík-
ari, og það mun KSÍ einnig
vera, en þó líklega öllu fátæk-
ara á fé.
Eftir því sem iþróttasíðan
hefur fregnað mun enginn ha-gn
aður hafa orðið af hljómleik-
un-um, og gerir KSÍ varla meir
en að sleppa, og má jafnvel
búast við einhverju tapi, þó
ekki verði það mikið.
Til þess að sleppa verður
KSÍ að fá niðurfelidan skemmt
anaskatt, og og hefur verið
sótt um það til réttra aðila.
Fáist það ekki er bullandi
tap á þess-u ævintýri. —klp.—
•klp—Reykjavik.
1.. deildarkeppninni í knatt-
spymu verður haldið áfram í
kvöld, en það er ekki samkvæmt
leikjabókinni,
Á Akureyri mætast kl. 18,30
ÍBA og Víkingur, en þessi leikur
átti upphaflega að fara fram laug-
ardaginn 19. þ.m. Akureyringar
báðu um að hann yrði færður til
vegna þátttöku þeirra í Evrópu-
keppninni, og varð mótanefndin
við þeirri bón.
Víkingur átti samkvæmt skránni
að leika við Val á Laugardalsvell-
inum á morgun, en þeim leik hef-
ur vérið frestað til 20. þ.m., og
leik Vals og ÍBK sem þá átti að
fara fram frestað um eina viku,
og er það vegna leiks ÍBK og
Everton í Evrópukeppninni í
Liverpool.
Leikurinn í kvöld er mikilvæg-
ur fyrir Víking, því ef liðið tapar
einu stigi, er það þar með fallið.
Akureyringar fá því áreiðanlega
að taka á honum stóra sínum, og
er því ekki að efa að þetta á
eftir að verða skemmtileg viður-
eign.
REYNIR OG ÞROTTUR
í ÚRSLIT í 3. DEILD
klp—Reykjavík.
Reynir úr Sandgerði vann sig-
ur í suðurriðli úrslitakeppninnar
í 3. deild með því að gera jafn-
tefli við UMSB 1:1 á Melavcllin-
um á sunnudaginn, og Þróttur frá
Neskaupstað sigraði KR frá Siglu
firði 3:1 á Akure.vri á laugardag-
inn í sömu keppni.
Reynir sigraði bæði Hrönn og
HVÍ í úrslitakeppninni, og nægði
jafntefli í þessu-m leik, þar sem
UMSB hafði gert jafntefli við
Hrönn.
í hinum úrslitariðlinum léku
KS frá Siglufirði og Þróttur frá
Neskaupstað á Akureyri á laug-
ardaginn.
Þróttarar komu þengað eftir
mikið og langt ferðalag að austan
á langferðabíl og voru þv-í held-
ur slæptir í byrjun leiksins. Sigl-
firðingar voru fyr-ri tii að skora
og höfðu 1:0 yfir í hálfleik.
í síðari hálf-leik fóru Austfirð-
ingarnir að láta til sín taka, skor-
uðu 3 mörk í röð, og urðu loka-
tölur því 3:1 Þrótti í vil, sem var
sízt of lítið, að sögn Árna Ingi-
mundarsonar íþróttafréttaritara
blaðsins á A-kureyri. Sagði hann
að Þróttararnir hefðu leikið mjög
góða knattspyrnu, og haft yfir-
burði á flestum sviðum.
Það verður því Þróttur og Reyn
ir, sem mætast í úrslitaleiknum
um sigurinn í 3. deild og sæti í 2.
deild næsta ár. og mun sá leikur
fara fram [ Reykjavik einhvern
næstu daga.
HörSur Kristinsson.
Hörður aftur
með Ármanni
klp—Reykjavík.
Einn skemmtilegasti og bezti
handknattleiksmaður, sem fsland
hefur átt, og þó er úr stórum og
góðum hópi að velja, er Ármenn-
ingurinn Hörður Kristinsson.
, Hörður lék tneð Ármanni með-
an liðið lék í 1. deild og einnig
fjölmarga landsleiki, þar sem
hann var í báðum liðum einn af
máttarstólpunum.
Fyrir nokkrum árum hélt hann
til Danmerkur til náms, og lék þar
f nokkurn tíma með 1 deildarlið-
inu Taru-p.
Nú er Hörður kominn heim aft-
ur og byrjaður að æfa að full-
uai krafti með sínu gamla félagi,
og mun hann leika með því í 2.
deild í vetur.
Ekki -r að efa, að hann á eftir
að styrkja Ármannsliðið mikið, en
það hefur ekki náð sér almenni-
lega á strik síðan hann hætti að
leika með því.
STAÐAN