Tíminn - 09.09.1970, Síða 16
MtSvilcudagur 9. september T970;
Vinningaskrá SÍBS bls. 12
Landsþing Sambands ísl.
sveitarfélaga hófst í gær
Reynir Aðalsteinsson knapi á
Stjarna frá Svignaskarði, sem
er dýrasti hestur. sem seldur
hefur verið frá íslandi til
þessa- Gunnar Bjarnason, sem
dæmdi fyrir íslands hönd í mót-
inu, sést lengst til vinstri.
(Tímamynd FB)
Héraðsniót Framsóknarmanna í
ísafjarðarsýslu verður haldið í
Bolungarvík laugardaginn 12. sept
ember og hefst kl. 9 síðdegis.
Ræður flytja Steingrímur Her-
mannsson og Halldór Kristjáns-
son. Skemmtiatriði annast Jör-
undur Guðmundsson og Jón Krist
jánsson- Hljómsveit Ásgríms Sig-
urðssonai’ og Kolbrún leika.
EB—Reykjavik, þriðjudag.
Páll Líndal formaður Sambands
íslenzkra sveitarfélaga setti ní-
unda landsþing þess í morgun í
Súlnasal Hótel Sögu. — En meðal
þeirra sem auk þess fluttu þar
ávörp voru þeir Magnús Jónsson
fjármálaráðherra, Hjálmar Vil-
hjálmsson ráðuneytisstjóri og Ól-
afur Davíðsson hagfræðingur.
í erindi fjármálaráðherra kom
m. a. fram að enn væri ekki
grundvöllur fyrir því, að koma á
staðgreiðslukerfi skatta. Hins veg-
ar taldi ráðherra, að þegar fast-
eignalGgin nýju tækju gildi, sem
þau munu gera um áramót, gæti
skapazt grundvöllur fyrir hækkun
á fasteignamati, en minni áherala
yrði lögð á aðstöðugjöld. Nefndi
ráðherra erindi sitt >rNy viðhorf í;
skattamálum.“
Þá flutti Ólafur Davíðsson er-
indi um hlutdeild fasteignaskatta
f tekjuöflun sveitarfélaga. — Að
erlndi Ólafs laknu hófust umræð-
ur á þinginu. Ræitt var um laga-
breytingar og kom tillaga fram
um að fella niður bein: árgjöld
sveitarfélaga til sambandsins. Sið-
an hófust umræður um mál, sem
stjórn sambandsins og einstakir
fulltrúar lögðu fram og þeim síð-
Framhald á 14. sfðu.
rra serningu lanaspings samcanas isi. sveirartelaga I gær.
(Timamynd — GÆJ
Bandarískur barnamatur
skaðlegur fyrlr sveinbðm
Nautakjöt og nautalifur inn ihalda östrogen-hormóna
SJ—Reykjavík, þriðjudag.
Svíar hafa fyrir skömmu stöðv
að innflutning á nautakjöti og
innmat frá Bandaríkjunum, bæði
djúpfrystum og niðursoðnum. Or-
sök þessa er sú. að margir banda-
rískir nautgripaframleiðendur
gefa gripum sínum hormónalyfið,
östrogen, til að fá meiri fallþunga
og meyrara kjöt, en lyf þetta get
ur valdið ófrjósemi hjá ungum
drengjum neyti þeir þess í of
miklu magni. Efni þetta hefur
einnig áhrif á kynþroska drengja
almennt- Östrogenið safnast eink-
um fyrir í lifur dýranna. Tals-
vert af bandarískum barnamat úr
lifur og nautkjöti er flutt hingað
til lands og er ástæða til að ætla,
að hann geti haft inni að halda
östrogenhormón. Landlæknisskrif
stofan hefur leita'ð til sænskra
heilbrigðisyfirvalda um hvaða að-
gerðir eru hafðar frammi í Sví-
þjóð hvað þessar vörur snertir.
en engin ákvörðun hefur
verið tekin um mál þetta hér á
landi ennþá.
Svíar hafa frá 1953 flutt inn
mörg þúsund lestir af nautalifur
á ári frá Bandaríkjunum, og enn
er lifur til sölu í veitingahúsum
og matvörubúðum í Svíþjóð. Far-
ið var að tala um þá hættu, sem
fylgdi östrogeninnihaldi lifrarinn
Metverð á íslenzkum hestum í Þýzkalandi
Dýrasti hesturinn á 214 þúsund -
meðalverðið var 140 þúsund kr.
FB—Reykjavík, þriðjudag.
íslenzkir hestaeigendur fengu
metverð fyrir hesta sína á upp
boði, sem haldið var í bæn-
um Aegiedienberg í Þýzkalandi
á sunnudaginn. Uppboðið var
haldið að aflokinni Evrópu-
meistarakeppni íslandshesta, en
í þessari keppni tóku þátt
nokkrir hestar héðan að heim-
an. Hestar þessir voru boðnir
upp og seidir í keppnislok, þar
sem ekki er leyfilegt að flytja
þá hingað heim aftur. Meðal-
verð þeirra sjö hesta, sem
þarna voni seidir var um 140
þúsund krónur. en hæsti hest-
urinn fór á tæp 214 þúsund og
sá lægsti á tæp 89 þúsund.
Hrossauppboðinu stjórnaði
Walter Feldmann, eigandi bú-
garðsins, þar sem Evrópumeist
arakeppnin fór fram, og einn
af helztu áhugamönnum um
íslenzka hesta í Þýzkalandi.
Seljendur hestanna voru mjög
ánægðir með verð þeirra, enda
hefur aldrei fengizt jafn hátt
verð fyrir hesta, sem seldir
hafa verið héðan til útlanda,
ekki einu sinni graðhesta, en
allir hestarnir, sem þarna voru
seldir voru geldingar.
Þýzkur iðjuhöldur, Karl
Heinz Drechsler keypti tvo
hesta. Voru það Stjarni, frá
Svignaskarði. sem sleginn var
á hvorki meira né minna en
8900 mörk, eða 213 þúsund og
600 krónur, og Bliki frá Skelja-
brekku, sem fór á 5000 mörk,
eða 120 þúsund krónur. Marg-
iir vi’du eignast Stjarna frá
Svignaskarði, og buðu í hann,
Framhald á 14. síðu.
ar, fyrir um tveim árum og hættu
ýmsir innflytjendur þá strax að
kaupa lifur frá Bandaríkjunum.
Innflutniingsbannið hefur haft í
för með sér verðhækkun á lifur
í Svíþjóð, hefur kílóið hækkað
um tvær krónur sænskar (34 ísl.
kr.) síðan í júní.
í sænskum lögum er kveðið á
um, að innflutt kjöt megi eíkki
innihalda hormóna. Heilbrigðisyf-
irvöld sendu fulltrúa til Washing-
ton til að tryggja það, að kjötið
sem flutt væri til Svíþjóðar hefði
ekki að geyma leifar af hormóna-
lyfjum. Það tókst ekki og þvj var
innflutningsbanni komið á. Þótt
matvælalöggjöfin í Bandaríkjunum
sé meðal þeirra ströngustu í heimi,
hefur ekki tekizt að koma í veg
fyrir notkun hormónalyfja í stór-
griparæktun. „Notkun þeirra gef-
ur svo mikið í aðra hönd, að ekk-
ert fær stöðvað framleiðendurna,
— einkum þegar kjötið fer til út-
flutnings", segir í sænska blað-
inu Dagens nyheter fyrir skömmu.
Framsóknarféíag
Garða- og Bessa-
staðahrepps
Heldur- félagsfund f Garðatúni
n. k. föstudagskvöld kl. 20. Dag-
skrá: 1. Skoðanakönnun. 2. Vetrar-
starfið. 3. Önnur mál.
Félagsmenn eru hvattir til að
fjöimenna. — Stjórnin.
Héraðsmót Fram-
sóknarmanna á
Bolungarvík
EKKI STAÐ-
GREIÐSLU-
KERFI Á
NÆSTUNNI