Tíminn - 12.09.1970, Side 16
lavgwdagur T2. septomber 1970.
Þéssi mynd var tekin fyrir skömmu. þegar Einar Sigurðsson og böm hans voru að bjarga heyi upp úr Öifusforum. Notaði Einar blásara
til þess að blása heyinu yfir skurðinn, sem þarna sést og var mesti farartálminn á leiðinni, því ekki var tími til að brúa. (Tímam. PÞ).
Mikiö hey hefur fengizt af engjum í Olfusinu
PÞ—Sandhóli, Ölfusi, föstudag.
Undanfarna daga hafa bændur
heyjað mikið á engjum hér í ná-
grenninu, og heyskapur gengið
heldur vel, þótt kalt hafi verið
suma dagana. Annars má segja
að heyskapartíð hafi verið ieiðin
leg í Ölfusinu í sumar.
Þó þurrkur væri, var stundum
svo mikið rok, að varla var hægt
að hreyfa hey, og einnig voru
margar falsspár hjá veðurstofu-
mönnum, sem hafa komið sér illa
fyrir marga. Spretta á túnum hef
ur verið mjög misjöfn. og hefur
sums staðar látið standa á sér.
Fóru því margir á engjar og heyj
uðu þar á meðan, en eru nú að
að slá túnin.
Bændur hér í Ölfusi og einnig
utansveitarmenn, ofan úr Grafn-
ingi, Grímsnesi og Selvogi og víð
ar að, hafi mikið heyjáð hér á engj
um. Bændur úr uppsveitum Ar-
nessýslu heyjuðu engjarnar í Kald
aðanesi í Flóa og þar í kring.
Engiar eru kafloðnar því þær
hafa ekki verið heyjaðar á und-
anförnum árum. í rigningum í síð
Hveravallavatn hitar upp
Húsavík fyrír veturinn
Yztihver helzt óskemmdur
þess, að helmingur vatnsmagnsins
fæst úr Yztahver, sem er stærsti
Framhald á 14. siðu.
ustu viku.var mjög erfitt að heyja
þarna. Það liggur nærri, að allt
það hey, sem á hefur vantað megi
fá hér á engjum.
í vor var Varrná stífluð áður
en hún kemur niður af fjallinu
fyrir innan Hveragerði, og veitt
þar inn í hraunið, þar sem hún
hverfur. Þetta var ævaforn siður-
ur, og kom hann sér hér vel 25.
ág. s.l. í úrfellinu, sem þá var, því
örugglega hefði flotið í burtu
meira hey en gerði, ef þessi stífla
hefði ekki verið tii staðar.
SB—Reykjavjk, föstudag.
Hitaveituframkvæmdir á Húsa-
vík ganga mjög vel. og ef veður
helzt gott, eru horfur á, að flest
ir, ef ekki allir Húsvíkingar verði
búnir að fá heitt vatn frá Hvera-
völlum í Reykjahverfi fyrir
veturinn. Um helmingur vatns
ins er fenginn úr Yzta-
hver, sem er merkilegur ferða-
mannahver, en hverinn sjálfur bíð
ur ekkert tjón af því og gýs fyrir
ferðamenn eftir sem áður.
Aðrennslisæðin frá Hveravöll-
um til Húsavikur er 19 km löng
og er nú verið að leggja síðustu
rörin, en þau komu til landsins í
maí. Verkið hefur gengið mjög
vel og hefur það flýtt fyrir
lagingu aðrennslisæðarinnar, að
gamli þjóðvegurinn er notaður
sem undirstaða um það bil helming
leiðarinnar. Annars er svo um
æðina búið, að rörin, sem eru úr
asbest. eru lögð ofan á jörðina,
skurður grafinn meðfram og upp-
greftrinum mokað ofan á rörin.
Þessi jarðeinangrun nægir, því
vatnið er 100 stiga heitt á Hvera-
völlum, en má hæglega tapa 20
stigum á leiðinni til Húsavíkur.
Fyrir skömmu var vatninu hleypt
á fyrstu 4 km leiðslunna og það
var orðið 75 stiga heitt eftir 2
sólarhringa. Þetta var mjög lítið
vatnsmagn og kólnaði þvf fljótar.
Á Hveravöllum er búið að
byggja miðlunargeymi og steypa
yfir geyma svo þar er þetta allt
komið á lokastig. Verktakarnir,
F'arhitun h.f. í Reykjavík, hafa
i ;tazt við að raska umhverfinu sem
minnzt , að svo miklu leyti. sem
mögulegt er, til dæmis má geta
Sáttasemjarar í Laxárdeilunni
undirbúa sameiginlegan
fund deiluaðila
SB—Reykjavík, föstudag.
Sáttasemjarar í Laxárdeilunni
liafa undanfariS átt miklar við-
ræffur viff ýmsa aðila, en aðallega
þó óformlegar, ennþá, sagffi Ófeig
ur Eiríksson bæjarfógeti; á Akur-
eyri í dag, en hann og' Jóhann
Skaptason. sýslumaður Þingey-
inga eru sem kunnugt er sátta-
semjarar. Þeir fóru nýverið til
Reykjavíkur og ræddu þar við
nokkra menn.
Um árangur viðræðna vildi
Ófeigur lítið segja, en kvað þó
miða í áttina, þótt hægt færi.
Sáttasemjararnir eru nú að hefja
undirbúning sameiginlegs fundar
með deiluaðilum.
Rætt hefur verið m. a. um,
hvort stöðva beri framkvæmdir
við vinkjunina, meðan sáttavið-
ræður færu frarn, en ekkert hefur
verið ákveðið um það og á meðan
er framkvæmdum haldið áfram' af
fullum krafti.
Nokkur seinkun á útgáfu skólabóka, sem nota á í vetur
Um tíu nýjar kennslubækur frá
Ríkisútgáfu námsbóka koma út
EB—Reykjavík, föstudag.
Nú í haust koma út um tíu
nýjar kennslubækur frá Ríkisút-
gáfu námsbóka. Sagffi Sigurffur
Pálsson hjá útgáfunni að starf
Skólarannsókna orsaki það, að
útgáfan þarf aff taka inn fleiri
titla en undanfarin ár.
Aðspurður um þær bækur, sem
eru að koma út hjá Ríkisútgáf-
unni, eða koma út á næstunni,
nefndi Sigurður Pá’lsson fyrst
nýjar eðlis- og éfnafræðibækur
fyrir 11 ára bekki og 1. bekk
unglingaskóla. Sagði Sigurður að
bessar bækur kæmu allar út um
það leyti. sem skólarnir fara af
stað. — Það er þó líklegt, sagði
Sigurður, að skólarnir í þéttbýlinu
þurfi að bíða í nokkra daga eftir
bókunum, en það skeikar aldrei
miklu. Þessar bækur eru unnar
eftir Skólarannsóknum og gerðar
undir stjórn Arnars Helgasonar.
Fylgja með þeim handbækiu fyrir
.kennara, þar sem í eru kennslu-
leiðbeiningar frá þeim er að verk
inu unnu.
Væntanleg er frá útgáfunni ný
kennslubók í íslenzku sem nefnist
„Réttritun" og er tekin saman
af Herði Bergmann. Bókin er ætl
uð fyrir framhaldsskólanema, eft
ir að skyldunáminu lýkur, en hún
er einnig hentug til sjálfsnáms. —
Þá kemur á næstunni út vinnubók
í íslenzku fyrir yngstu börnin, og
nefnist hún „Leikur að orðum“.
Nýjar móðurmálsbækur eftir Ár
sæl Sigurðsson, og er fyrir 10 og
11 ára börn, kornu út á liðnu ári.
Var búið að ákveða að halda
áfram útgáfu slíkra bóka og á
næsta bók að vera fyrir 12 ára
börn. Vegna þess að Ársæ.'l Sig-
urðsson lézt í sumar hef-ur þessi
áætlun raskast nokkuð og verður
sú bók því seinni á ferðinni, en
upphaflega mun hafa verið ákveð-
ið.
Næst kom 'Úgurður Pálsson inn
Framhald á bls. 14.
Vestur-ísa-
fjarðarsýsla
A'ðalfundiur Framsóknarfélags
Mýrahrepps, Vestur-ísafjarðar-
sýslu verður haldinn að Mýrum
sunnudaginn 13. þessa mánaðar,
kl. 15.00. Á fundinum mæta Stein-
grímur Hermannsson, Halldór
Kristjánsson og Ólafur Þórðar-
son. — Stjórnin.
Framsóknarfófk
í Keflavík
Sameiginlegur fundur Framsókn
arfélags Keflavíkur, Félags ungra
framsóknarmanna í Keflavík og
„Bjarkar" Félags framsóknar-
kvenna í Keflavík <xg nágrenni,
verffur haldinn í Affalveri sunnu-
daginn 13. september og hefst kl.
,13.30. Fundarefni: Tilnefning
fulltrúa á lista viff skoðanakönn-
un framsóknarfélaganna í Reykja
neskjördæmi, sem fram á aff fara
26. og 27. september n. k. Önnur
mál. — Stjórnir félaganna.
Kópavogur
Fulltrúaráff Framsóknarfélag-
anna í Kópavogi heldur fund í
Félagsheimilinu Neffstutröff 4,
sunnudaginn 13. september Id. 14.
Áríffandi málefni. — Stjórnin.
Seltjarnames
Fundur verffur haldinn í Fram-
sóknarfélaginu á Seltjamarnesi,
þriffjudaginn 15. sept. í anddyri
jfþróttahússins, og hefst hann H.
8.30. Tekin verffur ákvörðun um
skoffanakönnun. Rætt vctrarstarfiff
og önnur mál. — Nefndin.
Fundur þingflokks og
framkvæmdastjórnar
Sameiginlegur fundar fram-
kvæmdastjórnar og þingflokks
Framsóknarmanna verffur haldinn
í Alþingishúsinu mánudaginn 14.
september og hefst kl. 2. Búizt
er viff, aff fundurinn standi i tvo
daga.
Kjósarsýsla
Framsóknarfélögin í Kjósar-
sýslu halda almennain félagsfund
að Fólkvangi, laugardaginn 12.
september k'i 2 e.h. Guðmundur
Guðmundsson, erindreki kemur á
fundinn. Umræður verða um
skoðanakönnun. Stjórndmar.
Hvolfdi í skurð
SB—Reykjavík, föstudag.
Moskvitsbifreið úr Reykjavík,
sem var á lei'ð vestur Vesturlands
veg' í kvöld, laust fyrir kl. 9 lenti
út af veginum ofan við Ártúns-
brekkuna og hvolfdi ofan í skurð
fullan af vatni. Einn maður var í
bifreiðinni og mun hann hafa slas
azt eitthvað. Lögreglan gat litlar
upplýsingar gefið um málið , í
kvöld, en sagðist telja líklegt. að
bifreiðin hefði verið á talsverðri
ferð. Hún er mjög illa farin. Ekki
var vitað, hve alvarleg sár manns
ins voru, þegar blaðið fór í prent-
un.