Tíminn - 16.09.1970, Qupperneq 8
8
TÍMINN
MIÐVIKUDAGUR 16. september 1970
Moshe Dayan
— „Allt í lat)i“, sagði hann
í
„Allt í lagx . . . hefjist handa
piltar, en gætið að því, a'ð ekki
verði vandra ði.“
Þessi orð niælti ísraelski
landvai-namáluráðherrann
Moshe Dyan, íftir að hafa sct-
ið á löngum fundi með fyrr-
verandi yfirmanni herforiiigja-
ráðsins og niiverandi „einka-
ráðgjáfa" í ísraelska landvarna
ráðuneytinu Uav Aluf Zvi
Tsur og Mordechai I.imon flota
foringja, þeim er jafnframt var
yfirmaður deildarinnar er sá
um vopnakaup í Frakklandi fyr
ir fsrael.
Fyrrgreind orð Dyans voru
endanleg ákvörðun um það,
hvort varðbátunucn 5 skyldi
komio undan frá Frakklandi.
Flestir muna eftir því djarfa
athæfi, setn framkvæmt var u<m
jólaleytið í fyrra, og kom öll-
um heiminum til að brosa —
að Frökkuim þó undanskildum.
TVEIR BLAÐAMENN
SKRIFA BÓK
UM ATBURÐINN
Fyrir nokkru kom út bó'k í
Frakklandi utn þennan atburð.
Hún hefur eðlilega vakið mikla
athygli, og getur jafnvel haft
stjórnmálaleg áhrif í Frakk-
landi. Þessi bók heitir á frum-
málinu „L’Oeil de Tel Aviv,
setn á íslenzku má kalla „Augu
Tel Avivs". Bókin er skrifuð
undir dulnefninu „Steve Ey-
tan“, en þeir, sem hana hafa
ritað eru ísraelskur blaðamaður
og háttsettur maður á dagblaði
f París.
f bókinni segir, að Limon
flotaforingi hafi, fyrir umrædd
an fund, þegar verið búinn að
skipuleggja, út í yztu æsar, und
ankomu varðbátanna. Það átti
að fara fram á svipaðan hátt og
í janúar 1969 þegar nokkrutn
varðbátum var komið undan.
Daginn áður hafði Limon
fengið fulla vitneskju um það
hjá Jean nokkrum Blancard
starfsmanni í franska landvarn-
armálaráðúneytinu, að de
Gaulle ætlaði að taka að miklu
leyti fyrir vopnasölu til ísraels
og í fratnhaldi af því, að láta
fsrael ekki í té varðbátana, en
þá hafði staðið til um nokkurt
skeið að varðbátarnir skyldu
seldir fsraelsríki. Þótt tveir
þessara varðbáta væru ekki
fullgerðir voru þeir — að
sjálfsögðu á dularfullan hátt
— teknir úr skipasimíðastöðinni
undir því yfirskyni að þeir
skyldu irú reynslusigldir — og
það var sannarlega gert, meira
»ð segja yfir endilangt Mið-
jarðarhafið. De Gaulle varð fok
vondur yfir tiltækinu, en því
var samt haldið leyndu. svo að
ekki mynduðust „diplómatísk-
ir árekstrar". Limon flotafor-
ingi var vongóður um að eins
tækist til með undankomu
uæstu varðbáta.
HIN ÞRJU AUGU MOSUE DAYANS
Bók er komin út í Frakklandi, er sýnir fram á vitneskju
Frakka um áform ísraelsmanna þess efnis að sigla varð-
bátunum fimm til Ísrael. - Þá er ísraelsku leyniþjónustunni
lýst hetur í þessari bók en áður hefur þekkzt.
FRANSKIR KAUPAHÉÐNAR
ENN í FULLUM GANGI
Eins og marga rekur minni
til, voru það ísraelskur verzl-
unarm., Mila Brenner að nafni,
og norski útgerðarmaðurinn
Martin Siem sem á pappírnum
voru kaupendur að varðbátun-
um fimm. Þegar Maurice Sohu-
mann fékk vitneskju um það,
sagði hann yfir sig hrifinn: —
Þetta er aldeilis bærilegt, hrein
lega stórkostlegt."
í fsrael datt viðkomandi ekki
í hug, að frönsku ráðherrarnir
drægju sig í hlé. Það var reikn
að með því, að Frakkland
vildi vera með ,.í leiknum“,
eins og í janúar og eins og fyr-
ir 25 árum. þegar fransk-
ir valdamenn veittu mikinn
stuðning ólöglegum innflutn-
ingi á Gyðingum inn í Palest-
Inu.
Þegar Esra skipstjóri, sá er
einnig hafði séð um að koma
varðbátunum undan í janúar,
Admiral Limon
— samband hans við Frakka
hafði mikla þýðingu.
skaut aftur upp kollinum í
Cdiérböufg, ^’ þar sérri' varð-'
bátarnir fimm voru, með stóran
hóp ísraelska sjóliða í fylgd
með sér, var ljóst að eitthvað
merkilegt var í vændum. Sjó-
liðamir fylltu mörg hótelanna
þar í borg og fóru ekki leynt
með það, að þeir byggjust við
því, að vera komnir aftur heim
til ísraels fyrir nýárið. Leyni-
legt samband við franska kaupa-
héðna var ennþá í fullum gangi.
Svo segir í bókinni, að frá
byrjun desembermánaðar, hafi
Frakkar varla getað verið í
nokkrum vafa um. hvað væri
að gerast. Lögreglan í Cher-
bourg, leyniþjónustan og einka-
njósnarar flotans höfðu sann-
arlega gert sér grein fyrir því,
hvað var í vændum. í mjög
svo skilmerkilegu viðtali við
yfirmann leyniþjónustu Frakka
í Tel Aviv (hann er nefndur
WDL í bókinni), sem teikið
var um þetta leyti, er það haft
eftir honum, að ísraelsmenn
hefðu ful'lan hug á því að koma
varðbátunum undan. í París út-
bjó Beaumont ofursti í leyni-
þjónustunni nákvæma skýrslu
um málið — og sú skýrsla for
beint til Pompidou forseta og
einnig til Shaban Delmas for-
sætisráðherra.
En Frakkar misreiknuðu sig
illa. Þeir bjuggust við því, að
ísraelsmenn mundu undirbúa
hvarf varðbátanna mjög ítar-
lega — sem þeir reyxdar
gerðu. En Frakkar álitu að ís-
raelsmenn myndu breiða yfir
spori-n, með þvi að sigla varð-
bátunum fyrst til Noregs svo
að Frakkar ættu auðvelt með
að þvo hendur sínar.
ísraelsmenn voru búnir aS
skipuleggja slíkt. En þegar
Frakkar lét Libyustjórn í ré
Mirage-flugvélarnar, sem ísra-
elsmenn höfðu reiknað með að
s fá, fannst þeim síðastnefnia
ekki ástæða til þess lengur, að
taka tillit til dimlómatiskra til-
finninga Frakka .... og varð-
bátarnir hurfu úr Cherbourgs-
höfn og sigldu beint til ísraels.
Allir brostu yfir þessu tiltæki
— nema Frakkar. þeir urðu
að vonum æfareiðir.
„RANNSÓKNIN“
Uppljóstrun „Steve Eytan“
þess efnis. að franska leyni-
þjónustan. embættismenn. for-
sætisráðherrann oe forsetinn
vissu allt um undirbúninginn
að hvarfi varðbátanna. gerir
allt brambolt Frakklandsstjórn-
ar. eftir að varðbátunum var
siglt til ísraels, hlægilegt.
f vandræðum sínum hefur
stjórnin rekið nokkra menn úr
háurn stöðum. Meðal þeirra má
nefna Bonte höfuðsmann, er sá
um vopnasölu Frakka. og Paui
Cazelles ritara í franska varna
málaráðuneytinii. Umfangsmik-
illi rannsókn var komið af stað
vegna málsins, undir stjóm
eins af æðstu embættismönn-
um ríkisins, Jaques Labarra-
que. Rannsóknin hefur staðið
í rúma sjö mánuði — og eng-
inn væntir þess, að opinber
skýrsla um hana verði
gerð Það er nefnilega svo, aö
ef árangur rannsóknarinnar
yrði sá, að þeim ,,meðsekir‘.
þ. e. þeir, sem eitthvað voru
viðriðnir málið, yrð. varpað
fram í dagsljósið. beindust
spjóti.n ekki aðeins að háttsett
um embættismönnum leyníþjón
ustunnar, heldur einnig að fo”-
setanum sjálfum og forsætisráS
herranum.
AUGUN ÞRJÚ
Það sem sagt er frá í fyrr-
greindri bók um atburðina msð
varðbátana fimm, er aðeins
frásögn um eina tegund að-.
gerða ísraelsku leyniþjónust-
unnar.
í bókinni er einnig að finna
nákvæma lýsingu á njósnakerf
um ley-niþjónustunnar, sem al-
þjóðlegir sérfræðingar nefna
„kannski beztu njósnakerfi
heims“. í bókinni kemur m. a.
fram, að ísraelska leyniþjónust
an samanstendur af þrem kerf-
um. Það fyrsta nefnist MOSS-
AD — og eru það njósnarar,
sem starfa erlendis, er falla
undir það kerfi. Annað nefn-
ist Aman — og er hliðstætt
við miðstöðvar leyniþjónustu
Bandaríkjamanna., — Að síð-
ustu er það SHABAK sem hef-
ur einkanjósnara á sínum snær-
um, og sér um hina duldu örygg
isþjónustu. — Það eru þessi
njósnakerfi sem oft eru nefnd
„hin þrjú augu“ Moshe Day-
ans.
Mossad er elzta njósnakerfið.
Því var fcomið á 1937 sem leyni-
þjónustu fyrir sjálfstæði fsra-
els og á móti brezkum áhrifum
á verndarsvæðunum. — Aman,
sem er stytting á Agaf Modiin,
er þýðir fræðsluskrifstofa, er
hernaðarleg leyniþjónusta. —
Shabak, er stytting á Sherut
Bitakhon Klali, sem þýðir ör-
yggisþjónusta, er njósnakerfið
sem flestir þekfcja, en ekfci und
ir sínu rétta nafni — heldur
Shin Beth.
„NJÓSNAHEILINN"
Að baki Aman stendur mað-
urinn, sem kallaður er „heil-
inn“ í leyniþjónustu fsraels.
Það er vísindamaðurinn Youval
Neeman, semx1969 fékk Albcrt
Einstein-verðlaunin. — Nee-
man hóf starf sitt hjá leyni-
þjónustunni 1964, og hefur
næstum því gjörbylt henni með
því að taka rafmagnsheita í
Youval Neeman
— notfærir tæknina til hins
ítrasta
þjónustu sína. Þessir rafmagns-
heilar eru gerðir í samvinnu
við tæknimenn hjá flarvard
háskólanum bandaríska. Þessir
rafmagnsheila' hafa verið mat
aðir á upplýsingum um ým.ia
egypzka liðsforingja, er tekizt
hefur að afla með hvi að vfir
heyra egypzke fanga— og svu
frá njósnurum. — Þegar sex
daga-stríðið skall á að morgm
5. júní 1967, var sérhver
ísraelskur liðsforingi er leiddi
hersveit sína út í bardaga, bú-
inn að fá „sálfræðilega mynd“
Framhald á 14. síðu.