Tíminn - 16.09.1970, Blaðsíða 13
MDWIKUDAGUR 16. september 1970
ÍÞRÓTTIR
TIMINN
ÍÞRÓTTIR
13
Milli 35-40 þúsund áhorfendur
á leik Everton og ÍBK á Goddison Park í kvöld
Hp—Reykjavík.
Meðal mn 80 knattspyrnuliða
frá öllum löndum Evrópu, sem
taka þátt í Evrópukeppnunum
tveim, Evrópukeppni deildarmeist
ara og Evrópukeppni bikarmeist-
ara, sem hefst í kvöld, eru tvö
íslenzk knattspymulið.
Annað þeirra, ÍBA frá Akureyri,
leikur við bikarmeistara Sviss,
FC Zttrich en hitt, ÍBK frá Kefla-
vík, leikur vi'ð ensku meistarana
Everton á leikvelli þeirra síðar-
nefndu, Goddison Park í Liver-
pooL
Á þeim leik verður sérstakur
fréttaritari Tímans, en það er Kol
beinn Bjarnason ungur Mennta-
skólanemi, sem staddur er í Liv-
erpool. Hann er lesendum íþrótta-
síðunnar góðkunnur, því hann skrif
aði um enska knattspyrnu fyrir
blaðið s.l. vetur, undir skamimst.
KB.
í gær birtist í blaðinu viðtal
sem hann hafði við fyrirliða Ever
ton, Allan Ball. Með bví kom bréf
sem Kolbeinn segir m. a.:
„Byrjað er að selja miða á leik
Everton og ÍBK, og hefur salan
gengið vonum framar að sögn for
ráðamanna liðsins. Reikna beir
með að um 35—40 þúsund manns
komi á leikinn.
í sambandi við hann hefur ver-
ið gefin út tnikil leikskrá, oig era
4 síður í henni helgaðar Kefla-
víkurliðinu. Eru bar m. a. 4 mynd
ir, af Keflavík, Guðna Kjartans-
syni í landsleik við áhugamanna-
landslið Englands, Friðrik Ragn-
arssyni, og mynd frá leik Í®K og
Vals s.l. ár.
Everton hefur þegar pantað 500
leikskrár, sem gefnar verða út á
síðari leiknum, sem fram fer í
Reykjavík.
Miklar framkvæmdir eiga sér
stað á Goddison Park, leikvelli
Everton, Þar er verið að setja
upp ný flóðljós. og gífurleg stæbk
un fer fratn á áhorfendasvæðun-
um. Munu þau eftir breytinguna
taka 25 þúsund manns í sæti, og
er það langmesta af öllum völlum
Englands.
Tekið verður sérstaklega á móti
Keflavíkurliðinu og hópnum, sem
Flýja reykvískir
skautamenn meö starf-
semi sína til Kópavogs?
Skautaíþróttin hefur lengi átt
erfitt uppdráttar í Reykja-
vík, ekki sökum þess, að áhugi
á íþróttinni sé lítill, heldxu-
vegna þess, að borgaryfirvöld
hafa virt flestar óskir skauta-
manna að vettugi. Heldur rof-
aði til í þessum málum, þegar
Þórir Jónsson opnaði Skauta-
höUina, en nú hefur hún verið
lögð niður, þar sem nota á hús
næðið undir aðra starfsemi.
Íþróttasíðan hefur fregnað,
að reykvískir skautamenn hafi
góða von um að fá aðstöðu fyr-
ir starfsemi sína í KópavogL
Er það mál nú í athugun. En
flytji skautamenn starfsemi
sína úr höfuðborginni. þýðir
það, að Skautafélag Reykjavík
ur verður lagt niður, og eru
reykvískir skautamenn ekki
þeint hrifnir af þeirri hug-
mynd, þó að þeir verði að neyð
ast tU að velja þá leið.
Það er ekki aðeins, að fé-
lagar í Skautafélagi Reykjavík
ur hafi enga aðstöðu, eftir að
Skautahöllin hefur verið lögð
niður, heldur er almenningur
á götunni hvað alla aðstöðu
til skautaiðkana viðkeimir.
er með því á flugvellmum í Liv-
erpool, og einni-g mun hópurinn
verða boðiinn velkominn á íslenzku,
í upphafi Íeiksins".
Eini garsvöRur íslands
leykjavík.
Mikið hefur verið rætt og ritað
um Keflavíkurliðið og íslenzka
knattspyrnu í blöðunum í Liver-
pool, svo og í öðrum blöðum í
Englandi.
Hefur þar margt furðulegt ver-
ið skrifað, og hér er sýnishorn,
sem okikur barst fyrir skömmu,
en það er úr einu af stærsta blaði
Liverpool „The Liverpool Echo“
en þar segir greinarhöf. m.a.:
„Þegar Everton leikur við Kefia
vík á knattspyrnuvellinum í Reykja
vík, þann 30. septemher n. k. leika
þeir á eina grasvellinum, sem til
er á íslandi.
Allir aðrir vellir í landinu eru
búnir til úr hraunrykif?) „lava
dust“, sem er ein af ástæðunum
fyrir því að mótberji Everton
varð að flytja leikinn frá sínum
eigin velli.
Reykjavíkur-völlurinn var fyrst
notaður fyrir 12 árom, þeg-
ar Bury lék þar við íslenzkt úr-
valslið. Þá var framkvæmdastjóri
Bury, David Russel núverandi
framkvæmdastjóri Tranmeres, og
hann segir m. a.:
— Við sigruðum í leiknum 4:1
og skoraði 3 af mörkum okkar,
fyrrverandi leikmaður Everton,
John Willie Parker. Yfirvöld
Reykjavíkurborgar kostuðu miklu
fé til að igera þennan völl. og urðu
m. a. að flytja inn alla mold er-
lendis frá, þar sem svo lítið er af
mold í landinu til að gera gras-
völl“.
Varnarleikurinn sterkasta
hliðin á ÍBK.
Flestir hailast að því að Kefl-
víkingar fái hroðalegt burst í
leiknum við Everton í kvöld. Það
er í sjálfu sér ekkert undarlegt,
því þar eigast við 100% áhuga-
menn og atvinnumenn í bezta
flokki.
Varnarleikur ÍBK hefur hingað
til verið sterkasta hliðin á lið-
jfto, og er ekki að efa að þjálfari
liðsins bætir við í þann hóp til
að forða stórtapi. Vonandi tekst
Keflvíkingum vel upp í leiknum í
kvöld, en það yrði þeim og is-
lenzkri knattspyrnu til mikils
sóma.
Tvö töp og eitt
jafntefli hjá Þrótti
í Þýzkalandi
klp—Reykjavík.
Meistaraflokkur Þróttar í knatt
spyrnu kom hebn í gær eftir
keppnisferð til Rtthr-héraða í Vest
ur-Þýzkalandi í boði þýzka liðs-
ins Speldorf, sem hingað kom í
sumar í boði Þróttar.
Þróttarar léku 3 leiki í ferð-
inn. Sá fyxsti var við Speldorf, og
lauk þeim leik með sigri Spel-
dorf 5:1 (2:1). Næst var leikið
við Herten, sem einnig er skipað
áhugamönnum, og sigraði Herten
í þeim leik, sem var mjög góður
3:2 (1:1). Siðasti leikurinn var svo
við Zimmern og lauk honum með
jafntefli 1:1 (1:0).
Þessir bikarar koma víst ekki til
með aS prýða bikarherbergl ÍBK
eða ÍBA, þó svo að bæði keppi um
þá. Þetta eru nefnilega bikararnir
sem UEFA, Knattspyrnusamband
Evrópu hefur gefið til keppni I
Evrópukeppni deildar og blkar-
meistara, og þeir falla örugglega
ekki í skaut áhugamannaliðanna.
Skorar Hermann hjá
FC Zíirich í kvöld?
Klp-Reykjavik.
í kvöld leika á hinum stóra
leikvangi FC Ztirich í Sviss,
bikarmeistarar íslands ÍBA og
Sviss FC Ztirich, í Evrópu-
keppni bikarmcistara. Leikur-
inn fer fram í fljóðljósum, eins
og flestir aðrir leikir á megin-
landi Evrópu, en í kvöld verða
Ijósin víða tendruð, því þá fara
fram milli 35—40 leikir í
Evrópukeppnunum báðum.
Akureyringar hafa fengið
góðan liðstyrk frá því þeir urðu
bikarmeistarar, öllum á óvænt
s.L ár, en það er Hermann
slandsmeisterararnir í knattspyrnu 1970, ÍA frá Akranesi. Fremri röð ta lið frá vinstri: Eyleitur Hafsteinsson, Rúnar Hjálmarsson, Guð[ón Jóhanns.
son, Einar Guðlerfsson, Davíð Kristjánsson, Jón Gunnlaugsson, Benedikt V altýsson, Þröstur Stefánsson. Aftari röð: Guðmundur Sigurðsson, for.
maður knattspyrnudeildar ÍA, Matthías Hallgrímsson, Guðjón Guðmunds son, 'Haraldur Sturlaugsson, Jón Alfreösson, Teitur Þórðarson, Andrés
Ólafsson, Björn Lárusson og Ríkharður Jónsson, þjálfari.
Gunnarsson, einn bezti sóknar-
maður, sem fsland hefur átt, og
sá maður, sem ekki hefur haft
neina minnimáttarkennd fyrir
stórum liðum né nöfnum. því
hann hefur skorað mörk gegn
frægustu knattspymuliðum
heims, eins og t.d. Vasas frá
Ungverjalandi, Standard Liege
frá Belgíu, Benfica frá Portú-
gal og Arsenai frá Englandi,
svo nokkur sér nefnd.
Ekki er þó að vita hvernig
honum oa félögum hans reiðir
af gegn svissnesku meisturun-
um, því að lítið er vitað um
getu þeirra, og FC Ztirich svo
til óþekkt hér á landi.
Það er í sjálfu sér enginn
mæli'kvarði, því að um alla
Evrópu er FC Ztirich véi þekkt
Framhald á 14. slðu.
fRauða Ijósiið*
úr KR með ÍA
til Rotterdam
klp—Reykjavík.
Á þriðjudaginn í næstu viku
halda binir ný krýndu fslands-
meistarar í knattspyrnu frá
Akranesi utan til HoUands, en
þar munu þeir leika tvo leiki
við hoUenzka liSið Sparta frá
Rotterdam í B<wgakeppni Evr
ópu.
Eins og Tíminn hefur áður !
j sagt frá samdi Bijörgvin Schram;
i fyrrverandi formaður KSÍ. og -
fyrrum leikmaAur _KR við'
Sparta fyrir h&d ÍA. En nú
Framhald á bls. 14.