Tíminn - 20.09.1970, Blaðsíða 1

Tíminn - 20.09.1970, Blaðsíða 1
JL jQfhcii ffetm ■■cVfT i AjT ■MMBIMMJMMttBQBll SÍSfl tCSfiS Heyþurrkunar- hús Benedikts brann í gær Verður endurbyggt á sama stað á næstunni KJ—Reykjavík, laugardag. f morgun kom upp eldur í þurrk húsi Benedikts Gíslasonar frá Hof teigi, sem nýverið var reist í Hvera gerði, og brann það til kaldra kola með öllum búnaði. Strax í morgun var svo tekin ákvörðun um að end- urbyggia húsið. Þórður Snæbjörnsson fréttarit- ari Tímans í Hveragerði sagði að eldsins hefði orðið vart laust fyr- ir kiukkan tíu í morgun, og brann húsið til kaldra kola á skammri stundu. Var nýbúið að setja blás axann í heyþurrkhúsinu í gang, er eldsins varð vart. Rafmagns- laust var í Hveragerði og á fleiri stöðum í Árnessýslu í nótt, og geta menn sér þess tii, að eldur tnn hafi kviknað vegna hita í heyinu, sem í húsinu var, og síð- an þegar blásarinn var settur í gang, þá hafi eldurinn blossað upp. Heyið sem var í húsinu, var frá Ingólfshvoli í (Wfusi, en utan við húsið voru tveir vagnar fullir af heyi, sem þurrka átti í dag. Þurrkhúsið var á aðalhverasvæð inu í Hveragerði, og var um 3x3 metrar að flatarmáli, trégrind með klæðningu. Var búið að þurrka töluvert magn af heyi þarna und anfarna daga, og ráðgert hafði ver ið að halda þurrkuninni áfraim enn um sinn. í morgun eftir brunann var svo tekin ákvörðun um að endur byggja húsið á sama stað, og mun Gísli Sigurbjörnsson forstjóri, sem átti góðan hlut að byggingu fyrra hússins, hafa tekið þá ákvörðun, og fól hann verkið sama manni, og byggði fyrra húsið, en það hús var trygigt. Myndin var tekin, er heyþurrkunarhúsiS í HveragerSI var komið aS falli, en þaS brann [ gær. Heyþurrkunar- tilraunir hafa nú staðið yfir í þessu húsi í nokkrar vikur og gefizt vei. Strax verður hafizt handa um að end- urbyggja tilraunahús til heyþurrkunar og verður það nokkru stærra en það, sem brann og einnig verða gerðar á því nokkrar breytingar, sem til bóta eiga að teijast. 2ja ára drengur beið bana VV—Kirkjubæjarklaustri, Iaugardag. í gær, senni part dags, gerðist sá hörmulegi atburður að Prestbakkakoti á Síðu, að tæp- lega tveggja ára drengur varð undir stórri vöruflutningabif- reið, og lézt samstundis. Vöruflutningabifreiðin var að aka út vörum, og kom heim að bænum Prestbakkakoti í þeim erindum. Litli drengur- inn mun hafa verið að leik skammt þar frá sem bifreiðinni var lagt, og fœrt sig að henni, um það leyti, sem bifreiðinni var snúið við. Varð hann þá undir afturhjóli bifreiðarinnar, án þess að nokkur sæi til, og var komið að honurn látnum. Drengurinci hét Þorbergur Steinar, og ólst upp hjá afa sínum og ömmu að Prestbakka koti, hjónunum Þorbergi Jóns- syni og Sigríði Jónsdóttur. Framkvæmdanefnd byggingaáætlunar aftur í sviðsljósinu: HORÐ DEILA UM MALUN 3. BREIDHOLTSÁFANGA Lækkaði tilboð sitt um 4 milljónir, þrátt fyrir árshækkanir á tilkostnaði! Skoðanakönnuninni í Reykjavík lýkur í dag Skoðanakönnun Framsóknar- manna í Reykjavík heldur áfram í dag, sunnudag. Kjörstaðurinn að Hringbraut 30 opnaði kl. 10 og er opinn til kl. 20, en þá lýkur skoðanakönnuninni. HVERNIG KOSNING FER FRAM Kosningin fer fram með þeim hætti, að kjósandi fær afhentan kjörseðil. Á honum eru, í staf- rófsröð, nöfn 10 manna, sem boð- ið hafa sig fram í skoðanakönn- unina. Fyrir framan hvert nafn er reitur. Kjósandinn skal setja númer í reitina í samræmi við þá röð, sem hann vill að frambjóð- endur skipi á væntanlegum fram- boðslista. Þannig skal setja tölu- stafinn „1" í reitinn framan við nafn þess manns, sem skipa skal fyrsta sæti framboðslistans, tölu stafinn „2“ í reitinn framan við nafn þess sem skipa skal annað sætið o.s.frv. <'ramh3.1d 4 14. síðu. EJ—Reykjavík, laugardag. Nýtt dcilumál virðist í uppsigl- ingu hjá Framkvæmdanefnd bygg ingaráætlunar. Að þessu sinni er það útboð um málun á þeim 180 íbúðum, sem eru í 3. áfanga. Breiðholtsframkvæmdanna, sem styr stendur um, en sá aðilinn sem var með lægsta tilboðið í uppliafl. litboði fékk ekki verkið og hefur skotið málinu til ráð- herra. Fullyrt er, að höfuðástæð an fyrir því, að verkið var öðrum veitt, sé að Meistarasamband bygg ingarmanna liafi ritað framkvæmda i nefndinni bréf og hótað þvi að öll vinna iðnaðarmanna við Breiðholts framkvæmdirnar yrðu stöðvaðar ef aðilar sambandinu þóknanlegir fengju ekki verkið. Verk þetta var boðið út í ágúst í fyrra. Einar Kristjánsson hafði þá lægsta tilboðið, 5,2 milljónir króna. Tvö önnur tilboð bárust. Næstlægsta tilboðið var frá Verk takafélagi málarameistara, 8,3 milljónir, en það hæsta frá Vil- hjálmi Ingólfssyni og fleiri, 10, 7 milljónir. Af þessum aðilum er Einar einn utan Málarameistara- félagsins, en hann mun ekki hafa fengið inngöngu í félagið. Einar tjáði blaðinu í dag, að þegar tilboðin hafi verið opnuð í fyrra hafi framkvæmdanefnd byggingaáætlana samþykkt á fundi að taka upp samninga við sig um verkið, og hafi allmangir fundir verið haldnir. Hafi sér skilizt á öllu, að hann fengi betta verk, og nú fyrir skömmu hafi sér verið tjáð að hann gæti farið að ráða menn og athuga með kaup á efni. Hins vegar mun Meistarasam- band byggingarmanna hafa haft af- skipti af málinu. Mun það hafa sent Framkvæmdanefndinni bréf, bar sem hótað var stöðvun á allri vinnu iðnáðarmanna við verk nefndarinnar, ef Einar fengi þetta verk. Málið dróst á langinn, og loks var ákveðið að bjóða það út aft- ur. Var ástæðan sögð vera, að miklar hækkanir hefðu orðið og því eðlilegt að leita nýrra tilboða. Aðrir telja hins vegar, að hótun meistaranna hafi verið hin raun- verulega orsök. f morgun var kveðinn upp dómur í máli Allan Grimmer skipstjóra á Aberdeentogaranum Ben Gulvain. Hlaut skipstjórinn 600 þúsund króna sekt, og afl' og Einar sagði blaðinu, að hann hefði haft samráð við Fram- kvæmdanefndina um hið nýja til- boð, og sú niðurstaða fengizt að allar hækkanir við verkið næmu 2,5 milljónum króna. Hafi hann hækkað tilboð sitt í samræmi við það. Þá koim hins vegar í Ijós, að hinir aðilarnir höfðu lækkað til- boð sín, en alls bárust sjö tilboð að þessu sinni, frá 6,8 milljónum upp í 7,9 milljónir. Lægsta tilboð nú hafði Vilhjálm ur Ingólfsson og fleiri, sem gátu nú — efiir að verkið hafði hækk að mjög verulega — lækkað til- boð sitt frá í fyrra úr 10,7 milljón um í 6,8 milljónir. Og meistara félag málarameistara gat lækkað sitt tilboð, þrátt fyrir hækkanir, úr 8,3 milljónum í 7,9 milljónir. Ákvað framkvæmdanefndin að taka tilboði Vilhjálms. veiðarfæri voru gerð upptæk. Skipstjóri áfrýjaði dómnum til Hæstaréttar. Eftir að hafa sett tryggingu fyrir sektinni lét skip- ið úi höfn á Eskifirði. Einar taldi sig illa svikinn og kærði málið til félagsmálaráð- herra, Emils Jónssonar, og er mál ið þar nú. Sagði Einar, að ef ekki fengist leiðrétting þessara mála, myndi höfðað skaðabótamál á hend ur Framkvæmdanefnd bygginga- áætlunar. Vinnuslys OÓ-Reykjavík, laugardag. Vinnuslys varð í vörugeymslu Eimskips við Skúlagötu í morgun. Féll verkamaður niður um lúgu- op í vörugeymslunni. Var hann fluttur á Slysavarðstofuna. Ekki var vitað hve alvarleg meiðsli hans voru í morgum. Dómsforseti var Gísli Einars- son fulltrúi sýslumannsins á Eski firði, en meðdómendur voru skip stjórarnir Stoinn Jónsson og Vögg- Ur Jónsson. Fékk 600 þúsund í sekt

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.