Tíminn - 20.09.1970, Blaðsíða 3

Tíminn - 20.09.1970, Blaðsíða 3
iKRHTUDAGUR 20. september 1970 TÍMINN 3 ÞANN 20. ágúst 1965 var tveim stórfréttum slegið upp á forsíðum ensku dagblaðanna. Önnur fréttin var um, að Bandaríkin hefðu sent á loft Gemini 5. — hin um, að The Rolling Stones væru búnir að senda frá sér nýja plötu, „Sat- isfaction". Þann 4. september 1966, birtist þessi frétt á for- síðuru ensku dagblaðanna: Hljómleikaferð The Rolling Stones til V.-Þýzkalands er eins og hvirfilbylur. Vestur-þýzkn blöðin segja eftir ólætin sem síðhærð þýzk ungmenni efndu til í gær: „Þegar Stones stigu fótum sínum á þýzka jörð skullu flóðbylgjur eyðilegging arinnar yfir.“ Varsjá 3. apríl 1967. — Lög- reglan þurfti að nota táragas, til að koma þúsundum ung- menna í burtu, er hópast höfðu saman fyrir utan Listahúsið, þar sem hljómleikar voru með Rolling Stones, hinni frægu ensku hljómsveit, þeim fyrstu er hún heldur hér aust an járntjalds. Á fréttir sem þessar rekast lesendur svokallaðar „bláu bókar“ er þeir fletta henni. En þessi „bláa bók“ kom út nýlega í tilefni af því, að Rolling tSones enx nú lagðir upp í hljómleikaferð um Evrópu. Að sjálfsögðu er þessi bók einkum um þá fé- lagana og sögu hljómsveitar- innar frá upphafi. Stones ‘67 Það er hljómsveitin sjálf, sem hefru sent þessa bók á markaðinn. Þetta er lítil smekkleg bók með bláu letri, og texti hennar á fjórum tungumálum. Á frönsku heitir bókin „Le Livre Bleu des Rolling Stones. — Nú eru Rolling Stones ætíð Rolling Stones og því ólíkt þeim, að þeir sendi aðeins frá sér hvers dagslegar frásagnir (eða aug- lýsingar) um sig sjálfa. Sann- arlega er svo ekki: Lesandinn fær að kynnast fleirum en ein um heimi í bláu bókinni. f henni er t. d. hægt að fræð ast um, að fyrsta LP-plata hljómsveitarinnar kom út tveim dögum eftir að Indlands leiðtoginn Nehru lézt. Þá má geta þess að í bók inni er smáklausa, rituð mánu daginn 22. april 1964, þar sem sagt er að formaður allsherj arfélags rakara á Englandi, sé stöðugt að senda þeim félög- um í hljómsveitínni illkvittn ar athugasemdir, einkum hvað viðkemur hárprýði þeirra. Segir rakarafélagsformaður- inn sem anuars heitir W. Showcroft, „að flestar þess arra ungmennahljómsveita .skipi hræðilega ósmekklegir ungir menn, en af þeim sé þó Rolling Stones allra verstir Einn strákanna í hljómsveit- poor boy de — except to sing in a Rock & Roll band — ‘cause in sleepy London town — there's no place for a street fighting man.“ Sem Rock & Roll hljómsveit, er kemur öllum líkama manns á hreyfingu, er Rolling Ston- es frábærir, og enginn annar rökksöngvari hefur eins mikil áhrif á áheyrendur og Mick bm mm mm* t umr iimi líti út, eins og hann hafi límt stærðar bursta á höfuð sitt“. En þetta var nú „einu sinni“. í dag þarf meira en sítt hár og nektarsýningar, til þess að hneyksla venjulegt fólk. Á hljómleikaferð í Dan mörku, nú fyrr í þessum mán uði, veittu aðdáendur þeirra félaga í Rolling Stones því ekki athygli ,hve sítt hár þeir voru með, heldur hvers konar tón- list það var sem þeir fluttu. ,Og Stones sýndu það, sem endranær, að þeir eru með beztu ef ekki sú bezta hljóm- sveit sem flytur pop-tónlist í hljómleikaliöll. Eftir hljómlcikana í Kaup mannahöfn, stcndur t. d. í einu Kaupmannahafiiarblað- anna „Heimsins bezta Rock & Roll hljómsv.“ og með miima letri „Rolling Stones alveg á toppnum í Forum“ (en Forum nefnist hljómleikahöll in þar sem þeir félagar m. a. fluttu tónlist fyrir aðdáendur sína). Segir blaðið síðan um þessa hljómleika: „Stórkostlegt. • Það er orðið nokkuð lahgt siðan lögreglan hefur orði'ð að hafast eitthvað að á pophljómleikum hér í iKaupmannahöfn — að minnsta kosti minnti lögregl an popaðdáendur á tilveru sína þarna í höllinni í gær, á þessum stórkostlegu hljóm- leikum Rolling Stones. Sannarlega urðu hljómleik arnir til þess að minna á viss an hátt á þá gömlu góðu daga, þegar Beatles, Dave Clark Fivé, Swinging Blue Jeans og að sjálfsögðu Rollmg Stones heimsóttu okkur. Ég á raun ar við þá daga þegar hár okk ar strákanna, var í þann veg inn að hylja eyrun. En snúum okkur aftur að hljómleikun- um. Allt fór rólega af stað, en við öllu mátti búast á næstu sekúndum. Þegar Mick Jagg er í dimmu, djöfullegu hlues lagi söng.. „When the law gets ready — you gotta move on“, voru þetta ekki aðeins upp- reisnargjörn orð, heldur sönn un fyrir því, að við erum á hreyfingu — burt frá þeim stað þar sem laganna verðir gera „kerfin“ og hasla þeim völl . . því að „What can a Jagger. Sambandið milli Jaggers og aðdáenda var þó slitrótt í fyrstu. Það var eins og hinn tröllslegi Forum-sal ijr ylli þvi, að áheyrendur voru lengi að átta sig á því, að Rolling Stones voru í raun og veru á sviðinu. Eftir smá töf, hófu Rolling Stones tónlistarflutninginn fyr ir alvöru. Leið ekki á löngu þar til sú skemmtilega stemming varð, að bæði hljóm sveit og áheyrendur urðu sam taka. Allir sungu fullum hálsi“ „I know you heard about the Boston“ (Lagið Midnight Rambler). — Allir í salnum stóðu á öndinni, og tónsmíð Rolling Sagt er að The Rolling Stones hafi nýlega keypt sér gamalt, fjögurra hæða hús, sem þurfti nokkurra lagfæringa við. Meðal annars ákvað Mick Jagger a« sprengja burt nokkra veggi, til að hafa í framtíð- inni rúmgóðan sal fyrir veizluhöld. Keith Richard var ein- mitt staddur á salerninu, þegar sprengjumeistaramir komu og hleyptu af, en það vissi enginn um, þar til kröftugur hrossalilátur glumdi frá þeim stað, er salernið liafði staðið nokkrum augnablikum áð- ur. Mick hljóp til, fann Keith (ómeiddan) og spurði að hverju hann væri eigin- lega að hlæja. „Þessi lijall- ur er orðinn svo gamall, að þegar ég sturtaði niður, þá hrundi allt draslið.“ Um daginn stóð Bob Hite (feiti karlinn í Canned Heat) hugsi upp við hli'ðið að barnaleikvelli nokkrum. Ein af barnfóstrunum vatt sér að honum og spurði: „Eigið þér von á bami hérna?“ „Onei,“ svaraði Bob. „Ég hef alltaf verið svona feitur.“ Stones fór í bylgjum um sal- inn. „You know I’m called the hit-and-run raper“ söng Jagg er og öll fylgdum við honum eftir. Tónlist Rolling Stones er ótrúlega kröftug og hún er hættuleg þeim, sem mikið býr í brjósti og leitar eftir aðferðum til að tjá sig. Þegar Stones luku næsta lagi voru öll ljós skyndilega kveikt. Þá sást vel hvernig Ijósakerfið í salnum hafði verið uppbyggt. Það myndaði nefnilega stórt V-tákn — tákn sigursins. — Síðan hélt tón- listarflutningur Stones áfram og hann endaði með enn ein um hápunkti í „Street Fight- ing Man“. Rolling Stones koinu sáu og sigruðu í Forum í gær — hljómleikarnir vora mikil upp Iifun fyrir viðstadda og þeir sönnuðu, að við þurfum nauð synlega Stones til þess að koma því á brott úr líkömum okkar, sem á að fara á brott“. Með þessum orðum lýkur blaðið frásögn sinni af þessu hljómleikahaldi Rolling Ston es. Áheyrendur virðast hafa verið ánægðari með hljómleik ana en við með þá er Led Zeppelin og Kinks hafa haldið hér í sumar. Við og við hefur verið rætt um, að fá Jagger og félaga hingað til lands. — Hver veit nema það sé hægt, ef vel er á öllum spilum lialdið? —EB. Jagger í Forom nytsöm framleiðsla neytendum í hag HEKIU-UinnUFÖT Þægileg vinnuíöf skapa vellíðan við sfarfið. Hekiu-vinnuföf eru gerð úr sferkum og þjáfum efnum í sfærðum og gerðum við hvers manns hæfi. Reynið Heklu-vinnuföf, -sfarfið verður léffara, ef yður líður vel.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.