Tíminn - 20.09.1970, Side 2
*
TÍMINN
SUNNUDAGUR 20. september 1OT0
BOÐORÐ KRISTS
Jesús predikar ekkert sér-
stakt siðferSislögmál. Hann er
ekki umvöndunarsamur. Hann
gefur engan sérstakan mæli-
kvarða til að lifa eftir. Állt
slíkt á að koma af sjálfu sér,
með þvi að lifa lífinu á eðli-
legan hátt. Breyta við aðra
eins og við óskum, að þeir
breyti við okkur. Það er allt
og sumt.
Það er hvorki regla eða trú-
arsetning í raun og veru, held
ur áðeins skynsamlegur árang
ur lífsreglunnar sjálfrar.
Það uppsker enginn elsku sem
sáir hatri.
En við erum ábyrg ekki ein
ungis fyrir því, sem við gjör-
um, heldur einnig því, sem við
vanrækjum að gjöra.
Ekkert þýðingarlaust, ekk-
ert er óviðkomandi, sízt af
öllu það hjartalag, sem ræður
því, sem gjört er.
Sá, sem gefur einum smæl-
ingja vatnsdrykk mun ekki
fara á mis við laun sín, þau
laun, sem liggja í sjálfri at-
höfninni og hugarfarinu, sem
var frumkvæði hennar.
Á hverqu andartaki er það
á þínu valdi, hvort þú gerir
samferðamann á lífsleiðinni
vin þinn eða óvin. Fyrirgefir
þú ekki öðrum, þá getur þú
ekki vænzt þess að fá fyrir-
gefningu. AHt er hvert öðru
háð.
Sælir eru friðflytjendiu:, því
að þeir munu Guðs börn kall-
aðir verða.
Þetta eru ekki boðorð, held-
ur aðeins lífið sjálft, og hvern
ig því verður lifað hvert and-
artak á eðlilegan hátt.
Sá, sem ekki gefur öðrum
gjörið þið
svo vel.
Reijiiið
viðsMptín
upp sínar smáskuldir, getur
ekki búizt við að Herra tilver-
unnar gefi honum upp stóra
skuld. Um það vitnar sagan
un skulduga þjóninn.
Vertu þvi alúðlegur við sam
ferðamann þinn, svó að sam-
ferðamaðurinn gefi þig ekki
dómaranum í hendur, og dóm-
arinn setji þig í fangelsi.
Verið miskunnsamir eins og
faðirinn á himnum er misk-
unnsamur. Gefið, þá mun yð-
ur gefast, vel fylltur mælir,
skekinn, barmafullur, skal
veittur verða, því með þeim
mæli sem þér mælið, skal yður
mælt verða.
Jesús segir ekki líkingar sín
ar, til þess að af þeim verði
dregnar guðfræðilegar reglur.
kennisetningar og ályktanir.
Hann gengur um eins og sáð-
maður, sem stráir fræjunum
og lætur blæinn bera þau út
f bláinn. Það verður svo hver
að hafa þau handa sér á sinn
hátt, eftir sínu eðli. Eins og
jarðvegurinn er margvíslegur
og gefur misjafnan ávöxt.
þannig er einnig með manns-
sálir. Við því er ekkert að
gera. Það er eðli lífsins og að-
all. Einn sér ekki þau blómst-
ur, sem vaxa við götu hans.
en öðrum verður hvert blóm
sem bros.
Jesús nöldrar ekki og er
ekki óðlátur. Það sem verður,
það verður í fyllingu tímans.
Allt hefur sinn tíma. Það er
ekkert unnið við það, að
mannssálin breyti gegn eðli
sínu og lífslögmáli. Það tínir
enginn vínber af þyrnum eða
fíkjur af þistlum. Það tekur
sinn tíma fyrir sáðkornin að
broskast Það flýtir enginn fyr
ir vexti komsins með því að
toga í stráin. Afturhvarf er
einskis vert komi það ekki að
innan.
Maður nokkur átti tvo sonu,
og hann sagði við þá:
Farið nú til starfa í víngarð
inum. Annar sagði já, en fór
hvergi. Hinn sagði nei. en sá
sig um hönd og fór samt.
Hvor gerði vilja föður síns?
Þetta tóki’. Gyðingar til sín
og fylltust heift til hans. Hann
hæddist að hálfleika þeirra og
sjálfsblekkingu.
„Verið fullkomnir“, segir
Jesús, bví það er ósk og eðli
lífsins, eins og það er einnig
eðli lífsins að ná aldrei hinu
fullkomna.
Hann setur takmarkið svo
hátt, sem hægt er að komast
og sprengir þar með sérhverja
tilraun til að setja upp ákveðn
ar siðgæðisreglur, brýtur alla
ramma boða og helgisiða.
Þú getur aldrei orðið svo
mikið sem nokkurn veginn
viss um að ná takmarki þínu.
Því meira, sem þér var trúað
fyrir þeim mun meira verður
af þér krafizt.
Þetta síðasta sannar lfking-
in um talenturnar. Þar sem
veslingurinn, sem hafði grafið
féð í jörðu og ekkert gert,
varð að missa líka það, sem
honum hafði verið trúað fyrir.
Þannig er lífið, sé ekki starf-
að í þess þágu, visna hæfileik-
arnir og gáfurnar þorna upp,
kraftarnir dvína. Ekki er held
ur nóg að fylgja boðorðum
um að deyða ekki, Ijúga ekki
og stela ekki og allt hitt sem
ekki má. Hugurinn verður líka
að losna við löngunina til þess.
Allt annað er aðeins hraesni.
En svo er_ hitt hver á að
dæma? Ógleymanleg er sagan
um konuna, sem kölluð var
hórsek og flutt til Jesú. Hann
hugsar sig um, þegar hann er
spurður um lögmál Móse, sem
segir, að slíkar konur skuli
grýttar. Hann skrifar með
fingrinum í sandinn, lítur upp
aftur og segir:
„Sá yðar, sem syndlaus er
kasti þá fyrsta steininum.“ Og
svo heldur hann áfram að
skrifa eða teikna skuld henn-
ar í sandinn. En þeir læddust
allir á burt, og hann sér að
konan er ein eftir. Og hann
spyr: Hvar eru þeir, sem for-
dæmdu þig, var það þá eng-
inn? En hún svaraði: Enginn,
herra. Og hann sagði: Ég sak-
felli þig ekki heldur. Farðu
burtu og syndga ekki framar.
Þannig er Jesús í sínum
boðorðum alveg í samræmi
við lífslögin sjálf, engin refs-
ing enginn dómur, nema sem
afleiðing af orsök, engin
grimmd, engin fordæming, en
hins vegar aðeins stigmunur
en ekki eðlismunur á girnd og
athöfn, reiði og manndrápi. Og
svo að síðustu fyrirgefning
ekki sjö sinnum, heldur 70
sinnum 7 sinnum. Og með því
er hið gyðinglega lögmáls-
vafstur einskisvirði eins og
kóngullóarvefur. Hann kom til
að fullkomna það, gera það
hluta lífsins sjálfs, skráð f
hjörtun af hönd góðleikans.
Árelíus Níelsson.
Sunlimer
mm 21400
VerksmiðjuafgreiSsla K E A
annast heildsöluafgreiðslu á
vörum frá framleiðsludeild-
um félagsins. Með einu sím-
tali getið þér pantað allt
það, sem þér óskið, af fjöl-
breytilegri framleiðsluþeirra,
Iandsþekktar úrvalsvörur, —
allt á einum stað:
Málningarvörur og hreinlæt-
isvörur frá Sjöfn, kjöt- og
niðursuðuvörur frá Kjötiðn-
aðarstöð KEA og hangikjöt
frá Reykhúsi KEA. Gula-
bandið og Flóru-smjörlíki,
Braga-kaffi og Santos-kaffi,
Flóru-sultur og safar, brauð-
vörur frá Brauðgerð KEA,
ostar og smjör frá Mjólkur-
samlagi KEA, allt eru þetta
þjóðkunnar og mjög eftir-
sóttar vörur, öruggar sölu-
vörur, marg-auglýstar í út-
varpi, sjónvarpi og blöðum.
Innkaupastjórar. Eitt símtal.
Fljót og örugg afgreiðsla.
Kynnið yður kjörin og reyn-
ið viðskiptin.
Síminn er (96) 21400.
BRAUÐ
GERÐ
m
uOtionacarstöo
REYK
HÚS
VERKSMIÐJUAFGREIÐSLA K-E-A AKUREYRI
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í standsetningu hluta lóðar við
Fellsmúla 14—22. í verkinu er innifalin undir-
bygging bílastæða, malbikun, steyptar stéttir o.fl.
Útboðsgagna má vitja á Verkfræðistofu Sigurðar
Thoroddsen s.f., Ármúia 4, frá mánudegi 21. sept.
kl. 13.00 og tilboðum sé skilað á sama stað fyrir
kl. 11.00 miðvikudaginn 30. sept. Skilatrygging
er 1.000,00 kr.
Framtíðaratvinna
á Sauðárkróki
Vanur afgreiðslumaður óskast í verzlun sem sel-
ur byggingavörur, rafmagnsvörur, sportvörur, rit-
föng o. fl.
Þarf að vera vanur meðferð reiknivéla. Samvinnu-
skóiapróf æskilegt. Upplýsingar gefur kaupfélags-
stjórinn. Sími (95) 5200.
Kf. Skagfirðinga, Sauðárkróki.