Tíminn - 23.09.1970, Blaðsíða 8

Tíminn - 23.09.1970, Blaðsíða 8
3 TIMINN MIÐVIKUDAGUR 23. sept. 1970. KJORSEÐILL í skoðanakönnun Framsóknarmanna í Reykjaneskjördæmi 26. og 27. september 1970 vegna n. k. kosninga til Alþingis. Velja skal fimm nöfn. Valið ber að framkvæma þannig: Tölustafurinn 1 er settur fyrir framan nafn þess manns, sem valinn er I fyrsta sæti framboðslistans. Tölustafurinn 2 við nafn þess, sem valinn er í annað sætið o. s. frv. þar til fimm nöfn hafa verið númeruð. Framboðslisti við skoðanakönnunina I stafrófsröð: Björn Sveinbjörnsson hæstaréttarlögm., Erluhrauni 8, Hf. Halldór Einarsson, fulltrúi, Miðbraut 8, Seltjarnarnesi. Herta Kristjánsdóttir húsfrú, Sléttahrauni 28, Hafnarfirði. Hi'mar Pétursson, skrifstofumaður, Sólvallagötu 34, Keflav. Ingólfur Andrésson, matsveinn, Vallargötu 8, Sandgerði. Jóhann H. Níelsson, framkvstj., Stekkjarflöt 12, Garðahr. Jóhanna Óskarsdóttir, húsfrú, Suðurgötu 27, Sandgerði. Jón Skaflason, alþingismaður, Sunnubraut 8, Kópavogi. Ólafur Eggertsson, trésmiður, Kirkjuvogi 2, Höfnum. Pétur Guðmundsson, flugvallarstj., Grænási 3, Ytri-Njarðv. Sigtryggur Ha.lgrímsson, verksmstj., Nýjabæ. Seltjarnarn Bieurður Haraldssoti. veitingaþjónn, Unnarbraut 17, Seltjn. Sig. Sveinbjörnsson, verzluuarm., Arnarhrauni 10, Grindav. Sigurlirni Sigurlinnason, frkvstj., Hraunhólum 6. Garðahr Teitur Gtiðmundsson, bóndi, Móum. Kja.'arnesi. Óski raenn að kjósa aðra en að ofan greinir: Skoðanakönnunin í Reykjaneskjördæmi Utankjörstaða- kosning Síkoðanakönnun Framsóknar- manna í Reykjaneskjördæmi fer fram dagana 26. og 27. september n.k. Rétt til þátttöku í skoðanakönn uninni hafa allir félagsbundnir Framsóknarmenn og stuðnings- menn Framsóknarflokiksins í kjör- dæminu, sem kosningarétt hafa við Alþingiskosningar þær, sem í hönd fara. Þeir, sem rétt hafa til þátttöku í skoðanakönnuninni, en era nú fjarverandi ig koma ekki heim fyrr en eftir að skoðanakönnunin hefur farið fram, geta greitt at- kvæði, en þeir verða að snúa sér ti] formanns Framsóknarfélags þess byggðarlags, sem þeir eru staddir f, og fá hjá honum vottorð, er hafin sem fylgja skal atkvæði viðkom- andi kjósanda. Sýnishorn af kjörseðli er birt- ur í blaðinu og geta þeir, sem kjósa utan kjördæmisins, notað það sýnishorn sem kjörseðil, eða ritað nöfnin á sérstakt blað. Skal atkvæðaseðillinn settur í sérstakt lokað umslag, sem síðan skal sett í annað umslag ásamt upplýsing- um um kjósandann, þ. e. nafn, lögheimili, fæðingardag og ár og vottorði félagsformanns. Atkvæði skal síðan sendi til yfirkjörstjórn- ar, pósthólf 235 Kópavogi. Einnig verður hægt að kjósa utankjörstaðar hjá formönnum undirkjörstjórnar og á skrifstof- um flokksins í Reykjavík og á Akureyri. BORGAR- MAL Opið bréf til borgarverkfræðings Herra borgarverkfræðingur, Gústaf E. Pálsson. Ég vona, að þér takið það ekki illa upp, þó að ég skrifi yður opið bréf vegna ágrein- ings þess, sem risið hefur mifli yðar og starfsmanna yðar vegna blaðaviðtals, sem Morg- unblafðið hafði við yður 30. maí s. 1., þar sem þér gefið starfsmönnum yðar að sök að fremja trúnaðarbrot, en án þess þó að skýra nánar í hverju trúnaðarbrotin séu fólgin og hverjir hafi framið þau. Yður hlýtur að vera ljóst, aið petta mál er ekkert einka- má! yðar og starfsmanna yðar, heldur mál, sem eð.’i síns vegna varðar borgarstjórn og raunar alla borgarbúa. sem eiga heimt ingu á að vita nánari deili á jafnalvarlegu máli og þessu. Því grip ég til þess ráðs nú, að skriía yður opið bréf, að þér hafið sveipað yður hulu þagnar og fengið borgarful.'- trúa Sjálfstæðisflokksins til að taka þátt i hleðslu ramm- gerðs þagnarmúrs um þetta mál, en þau vinnubrfgð tel ég forkastanleg og samræmast ekki skyldum þeirra né yðar. því á meðan þér neitið að gera nánari grein fyrir ummælum yðar, figgja allir starfsmenn stofnunar þeirrar, sem þér veitið forstöðu, undir grun um að fremja trúnaðarbrot. Einn- ig hlýtur stofnunin sem slík að bíða álitshnekki, þar sem þér hafið sagt berum orðum, að innan hennar séu framin trúnaðarbrot, en látið við svo búið standa. Hver getur treyst slíkri stofnun lengur? Þér hljótið að gera yður grein fyr- ir því, herra borgarverkfræð- ingur, að það er öllum fyrir beztu, að þér útskýrið nánar ummæli yðar, og eruíð mér vonandi sammála um, að óþarfa tímaeyðsfa er að fara með þetta mál fyrir dómstóla. Þess vegna vil ég leyfa mér að leggja nokkrar spurningar fyrir vður í trausti þess, að þér brjótið þagnarmúrinn rammgerða og leyfið sannleik- anum a@ koma í ljós. Og þá eru það spurningarn- ar: 1. í viðtalinu við Morgun- blaðið 30. maí s. I segið þér m. a.: „Á vinnuborðum stofnunar- innar figgja frammi tillögur, sem bæði eru raunhæfar og einnig hugmyndaflug, sem ekki Gústaf E. Pálsson, borgarverkfr. Hann hefur sakað starfsmenn sína um aS brjóta trúnað, en hefur þráazt við að finna orðum sinum stað, þrátt fyrir áskorun starfsmanna sinna um nánari skýringar. Hann skýlir sér nú á bak við þagnarmúr, sem borg- arfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa hjálpað honum til að reisa. — En sér hann sóma sinn í því að rjúfa þagnarmúrinn? er fullmótað. Út frá þessum hugmyndum skapast svo endan leg tUlag-a, sem lögð er fyrir borgaryfirvöld. Þaið getur ver- ið mjög óþægilegt, þegar slíkt hugmyndaflug er tekið upp og borið upp sem ti.’laga, eða berst út og er tekið til um- ræðu, áður en endanlega er gengið frá málinu. Þetta kem- ur því miður fyrir, þótt allir starfsmenn hér eigi að vera bundnir þagnarskyldu“. Hvaða hugmyndum hefur verið stolið og hvaða starfs- menn yðar liafa gerzt sekir um svo gróft trúnaðarbrot? 2. Síðar í þessu' sama viðtali spyr blaðamaður yður spurn- ingar viiðvíkjandi verzlunar- könnun, og þér svarið honum á þessa leið: „Engin a.’þjóðleg vísindi geta sagt um slikt, og þess vegna er nú í gangi mjög ítar- leg könnun á verzlunarþörfinni, og hefur sumt af því, sem þar er í rannsókn, síazt út og ver- ið notað á vafasaman hátt“. Um hvaða könnun á verzlun- arþörfinni eruð þér að tala um í þessu viðtali. Hverjir annast hana? Og hvað hefur síazt út og hvernig hafa þær upplýs- ingar verið notaðar á vafasam- an hátt? Fleiri eru spUrningarnar ekki, a. m. k. ekki í bili, en ég treysti því, herra borgar- verkfræðingur, að þér rekið af yður slyðruorðið og gerið hreint fyrir yðar dyrum, með því aið svara þessum spurning- um. Það er yður ekki sæmandi að fela yður á bak við þagnar- múr, sem borgarfu.ltrúar Sjálf stæðisflokksins hafa reist yður. Það er heiðarleg ósk borgar- fulltrúa minnihlutans, að þér leggi'5 spilin á borðið. Með vinsemd, Alfreð Þorsteinsson. Nýlega for hopur íslenzks skógræk tarfólks í heimsókn til Noregs — og gróðursetti 50 þúsund plönt ur. Myndin að ofan er af íslenzka hópnum fyrir framan byggðasafnið í Kolbeinsveit f Rygjafylki. (Ljósmynd Snorri Sig.)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.