Tíminn - 23.09.1970, Blaðsíða 16

Tíminn - 23.09.1970, Blaðsíða 16
Miðvikudagur 23. septemb«r 1970 Rauðsokkar þinga - bls. ,6 óg.;f7 Akureyri Fógetinn rannsakar málið OÓ—Reykjavík, þriðjudag. Faraldur peningakeðjubréfa gekk yfir á Akureyri fyrir helgina. Þar var opnaður markaður fyrir varn- inginn á föstud. og var ekki að sökum að spyrja, múgur og marg menni þyrptist að og var álíka handagangur í öskjunni og í Stekk við Hafnarfjörð á dögunum. Lög- regian komst fljótlega í málið og er það nú j rannsókn _hjá bæjar fógeta. Ekki var pósturinn á Akur eyri notaður til að dreifa bréfun unum, það þótti of seinvirkt, held ur var hlaupið með bréfin miili húsa og svo var borgað og borgað og tekið við peningum og sjálf- sagt hafa einhverjir grætt fé á tiltækinu eins og til er stofnað, en fleiri tapað. Á föstudag komu menn frá Reykjavík til Akureyrar og fengu aðsetur í nýbyggðu húsi, sem ekki var flutt í og hófu sölu pen ingakeðjubréfa. Árangurinn var frábær, enda Akureyringar rösk leikafólk. Brátt varð mikil ös af bílum og fólki á þessum stað. Svo mikill var áhuginn að fólk sem bjó í næstu húsum við keðju- bréfamarkaðinn kvartaði við lög regluna undan átroðningi, því marg ir fóru húsvillt og óðu inn í nær- liggjandi hús til að kaupa keðju bréf, og var lítill friður í ná- grenni keðjubréfasölunnar, en margir rötuðu líka rétta leið á i'ötuna og bréf og peningar gengu manna og kvenna á milli eins hratt og hendur réðu. Keðjubréfasalar hurfu á braut á sunnudaginn og munu hafa gert góða fjáröflunarferð til Akureyr ar. Eins og kunnugt er, hefur ekki verið úr því skorið hvort þetta er löglegt athæfi eða ekki. svo að starfsemin var ekki stöðvuð. en hins vegar munu nær allir mögu leikar á Akureyri hafa verið full nýttir á sunnudag. Málið er nú í rannsókn hjá bæjarfógeta. Framhaid á bls. 3 Féll út úr bíl og beið bana OÓ—Reykjavík, þriðjudag. Fullorðinn maður beið bana í Grindavík í gær, er hann féll út úr kyrrstæðum vörubíl. Slysið var um kl. 7 í gærkvöldi. Var verið að aka sorphreinsunarmönnum heim eftir vinnudaginn og var gamli maðurinn meðal þeirra. Var bíllinn stöðvaður við hús eitt i Grindavík og fór ungur pilt ur þar út úr bílnum, og fram hjá manninum. En svo tókst til að þeir féllu báðir út úr bílnum og á götuna. Maðurinn féll á höfuð ið en pilturinn slasaðist ekki. Var maðurinn fluttur í lögreglubil á sjúkrahúsið í Keflavík. En þegar þangað var komið var hann lát- inn. Unnið við grunn hjónatbúðanna i gær. (Tímamynd — Gunnar) LOFTBELGURINN TÝNDUR! NTB—New York, þriðjudag. Þrír ofurhugar, tveTr karlmenn og ein kona, lögðu á sunnudaginn af stað í loftbelg frá Long Island og hugðust fljúga ýfir Atlantshaf- ið. Loftbelgurinn er nú týndur og bendir allt til þess, að hann hafi fallið í sjóinn. Ekkert er vit- að um afdrif fólksins. ■ j f loftbelgnum voru Roy Ander- son, 32 ára gamall og kona hans Pamela Brown, sem er fræg sjón- varpsstjarna og þriðji maðu^inn var Malcolm Bright sém er 32 ára. Síðast þegar fréttist af þeim, í nótt, var belgurinn aðeins 160 metra fyrir ofan hafflötiun og féll stöðagt. Strandvaktin segir, að leitin sé erfið, vegna þess, að engum beri saman um, hvar belgurinn hafi fallið í sjóinn. Þrjú skip og fjórar Framhald á 14. síðu. Framkvæmdir hafnar við 18 hjónaíbúðir á vesturlóð DAS-Hrafnistu: ÞÆR KOSTA FULLFRÁ- GENGNÁR UM 850 ÞUS. EJ—Reykjavík, þriðjudag. Framkvæmdir eru nú hafnar við 18 hjónaíbúðir, sem reisa á á vest urlóð DAS-Hrafnistu, en jbúðirn ar eiga að vera tilbúnar til notkun ar haustið 1971. fbiiðir þessar eru um 43 fermetrar að innanmáli og munu kosta fullfrágengnar um 870 þúsund. Heildarkostnaður við íbítð irnar 18 er áætlaður 15,7 milljón ir króna. í byrjun ágúst var auglýst eft ir tilboðum í byggingu íbúðanna. og voru þau opnuð 14. ágúst. Átta tilboð bárust, og reyndist bað lægsta (þó án jarðvinnu og vinnu við neðstu plötu) vera 14,31 milljónir, en það hæsta 22.1 mill jónir. Nýlega voru undirritaðir bráðabirgðasamningar um verk þetta við lægsbjóðanda, Einar Konur á ísafirði ræða um heilbrigðismál: Efna til fundar í kvöld um læknamiðstöð á ísafirði GS-ísafirði, EB-Rvík, þriðjud. Konur í norðanverðum Vest firðingafjórðungi efndu til um- ræðufundar í ísafjarðarkaup- stað á laugardaginn, fyrir til- stuðlan Jóns Árnasonar, sjúkra hússlæknis, um heilbrigðismál í viðkomandi hluta fjórðungs- ins, en þar er nú mikill lækna skortur. Jón Árnason lætur af störfum sem sjúkrahússlæknir á ísafirði nú um mánaðamótin og hefur ekki fengizt læknir þangað vestur í hans stað. Ann- að kvöld, miðvikudagskvöld, efna konurnar aftur til fundar í Alþýðuhúsinu á ísafirði, þar sem rætt verður um læknamið- stöð á ísafirði. 1 tilefmi af þessu sneri Tím- in nsér í dag til Jes Einars- Þorsteinssonar arkitekts, og spurðist fyrir um elliheimilið og þjónustudeild sjúkrahússins á ísafirði, sem hann sér um teikningar á, og áður hefur ver- ið sagt frá í blaðinu. Jes Einar sagði að teikningamar væru nú tilbúnar til úrvinnslu og lík- lega yrðu framkvæmdir hafnar við byggingar þessar næsta surn ar, en samþykkt hefur fcngizt fyrir byggingunum frá land- ,'ækni, ráðuneyti og bæjarstjórn ísafjarðar. Það er fjármagnið sem nú vantar, en þó mun vera fyrir hendi nægilegt fjármagn til a'ð steypa upp elliheimiiið. Elliheimilið verður 4300 rúm- metrar og mun taka 40 dvalar- gesti, en þjónustudeildin 3400 rúmmetrar. Þegar hún verður tilbúin, verður gam.'a sjúkra húsið, sem tekið var i notkun 1925, gert að leg’jsjúkrahúsi. Þarf því að gera ailmiklar breytingar á sjúkrahúsinu. Munu þá verða rúm í því fyrir 60—70 sjúklinga, en nú eru rúm fyrir 40, auk þess sem elli heimilið mun taka á móti gam- almennum, sem á sjúkrahúsinu liggja, en það fó.'k hefur rétt á þriðjungi sjúkrarýmis sjúkra hússins. Þá sagði Jes Einar, að bygg- ing þjónustudeildarinnar og elli heimilisins, sem tengd cru gamla sjúkrahúsinu, þyrftu að haldast í hendur þar sern bygg ingarnar verða t.d. með sam- eiginlegt eldhús og þvottahús. í þjónustudeildinni verður læknamiðstöð — verða 2—3 ,'æknar með skurðstofur ’par, slysavarðstofa verður þar og fæðingardeild, og aðstaða til ljóslækninga. Agústsson byggingarmeistara, ásamt undirverktökum, sem einnlg tekur að sér að slá upp og steypa undirstöður. Hins vegar hefur ver ið samið við Loftorku h. f. wm útgröft og sprengivinnu grunns og klóaks, og um fyllingu og jöfnun lóðar. Heildarkostnaður, ásamt frá- angi á lóð, er áætlaður 15,7 millj. eða um 870 búsund á hverja íbúð. Byggingartími er áætlaður 12— 13 mánuðir. þannig að reiknað er með að taka íbúðirnar í notkun haustið 1971. íbúðirnar verða um þaið bií 43 ferm. að innanmáli, stofa, svefnherbérgi. Jítið eldhús með eldavél og kæliskáp, WC með sturtubaði, ásamt lítilli geymslu i íbúð og annarri geymslu í kjallara. Á gólfum og stigum verða teppi. Ennfremur dyrasími fyrir hverja íbúð, reykvarnarkerfi, lögn fyrir bæjarsíma, útvarps- og sjónvarps- loftnet, gluggauppsetningar og gluggatjöld auk loftljósa og ljósa í bað, eldhús, ganga og á veggL Fyrirhugað var að byggja 54 slíkar íbúðir, en aðeins 18 verða byggðar í þessum áfanga, ein tveggja hæða sambygging með 3 stigahúsum. Teikningar, útboðs og verklýs- ingu að byggingu þessari önnuðust þeir Guðmndur Kr. Guðmundsson arkitekt og Hörður Biörnsson tæknifræðingur, en að hita og hreinlætislögnum Verkfræðistofa Guðm. og Kristjáns og að raf- magnslögnum Jón Skúlason verk fræðingur. Burðarþolsmælingar og útreikningar voru unnir af Al- menna byggingarfélaginu. Nú bíða 64 h.ión eftir vist að Framhald á 14. síðu. Flugbrautin í Neskaupstað lengd um 130 metra EB-Reykjavík, þriðjudag. Nú er verið að lengja flugbraut ina á Neskaupstað uni 130 metra. Byrjað var á verkinu fyrir skömmu, og reiknað með að því verði lokið fyrrí liluta næsta mán aðar. Efnið sem notað cr til upp- fyllingar er tekið úr höfninni í Neskaupstað og áleit Hörður Slef ánsson, flugvallarstjóri þar. Iieita efni mjög gott. Flugbrautin hefur verið 10U0 metra á lengd, og hafa Fokker- vélar Fí einkum ,'ent þar. Hefur flugfraktin verið takmörkuð við 16250 kg., en verður eðlilega tak tnörkuð við allniik'u meiri þyngd eftir lenginguna. Hörður sagði blaðinu, að byrj- að hefði verið að ræða um þessar framkvæmdir fyrir hálfu öðru ári, og yrðu þær al.’mikil bót fyrir flug samgöngur staðarins. k

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.