Tíminn - 23.09.1970, Page 9
r r' r '
^DVIKUDAGUR 23. sept. 1970.
• y r r r :r;v< ♦/.; / * rr; *, r »• »•»; -r,» r ' ' f> n *• ; t /r -
TÍMINN
9
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson. Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason ©g Tómas
Karlsson. Auglýsingastjóri: Steingrímur Gíslason. Ritstjórnar.
skrifstofur i Edduhúsinu, simar 18300—18306. Skrifstofur
Bankastræti 7 — Afgreiðslusimi 12323. Auglýsingasími 19523.
Aðrar skrifstofur sími 18300. Áskriftargjald kr. 165,00 á mánuði,
innanlands — í lausasölu kr. 10,00 eint. Prentsm. Edda hf.
Viðræður stjórnarinnar
við stéttasamtökin
í viðræðum þeim, sem nú fara fram milli ríkisstjóm-
arinnar ananrsvegar og stéttasamtakanna hinsvegar,
hljóta stéttasamtökin að leggja áherzlu á, að hvergi
verði hopað frá því grundvallaratriði kjarasamninganna í
sumar, að greidd verði full verðlagsuppbót á laun. Laun-
þegasamtökin gera þetta vegna þess, að reynslan er
margbúin að sýna, að þetta er launafólki meiri trygging
en nokkuð annað og jafnframt höfuðhvatning fyrir
stjórnarvöldin um að halda dýrtíðinni í skefjum. Atvinnu-
rekendasamtökin hljóta að gera þetta vegna þess, að
sökum verðtryggingaákvæðisins tókst að semja til lengri
tíma en oftast áður, en fyrir atvinnuvegina er mikil-
vægt að samningstíminn sé sem lengstur og vinnufrið-
ur þannig tryggður. Slíkt er hinsvegar útilokað, nema
ákvæði um fulla verðtryggingu launa sé í samningunum.
Sökum þess, að stéttasamtökin hljóta að standa sam-
einuð um þetta höfuðatriði, getur stjórnarflokkunum
naumast komið í hug að fara fram á, að verðtryggingin
verði gerð ógild að meira eða minna leyti. Það væri rof
á samningum, sem vafalítið myndi tafarlaust bjóða nýj-
um vinnuófriði heim. Önnur viðbrögð verkalýðshreyf-
ingarinnar væru óeðlileg. Þetta gilti ekki sízt, ef ríkis-
stjórnin ætlaði að reyna að setja lög um þetta efni, eins
og stundum hefur heyrzt. Lög, sem rjúfa samninga, eru
ólög, og ólögum una menn ekki.
Af þeim ástæðum, sem hér eru greindar, hljóta við-
ræðendur að leggja til hliðar allar bollaleggingar um að
ógilda að einhverju leyti ákvæði núverandi kaupsamn-
inga um verðtryggingu launa. Viðræðurnar hljóta að
snúast um eftirgreint fyrst og fremst:
í fyrsta lagi ráðstafanir fil að haida dýrtiðinni >
skefjum, t.d. með niðurfellingu söluskatts á helztu
neyzluvörum, og auknum fjölskyldubótum.
í öðru lagi ráðstafanir til að bæta rekstraraðstöðu
atvinnuveganna með því að draga úr ýmsum kostn-
aði. Þar kemur t.d. til greina að lækka vexti á fram-
leiðsluvíxlum, aflétta ýmsum sköttum, sem óeðlilegt
er að leggist einhliða á atvinnuvegina o.s.frv. Þá
vni-ður að hvetja atvinnurekendur til að auka stjórn-
un og hagræðingu í rekstrinum, til að gera rekstrar-
og framkvæmdaáætlanir og fylgja þeim, o.s.frv.
í þriðja lagi ráðstafanir til að auka hagræðingu
í ríkisrekstrinum, t.d. með því að endurskoða og
endurskipuleggja rekstur ríkisfyrirtækja og ríkis-
stofnana, en þar getur efalítið margt staðið til bóta.
Það er um þessar framangreindu þríþættu ráðstaf-
anir, sem viðræður ríkisstjórnarinnar og stéttasam-
takanna hljóta að snúast fyrst og fremst. Þær ættu
að geta borið verulegan árangur, ef unnið verður af
heilindum og ríkisstjórnin hefur vilja og getu til að
hafa þá forustu, sem hér hvílir á herðum hennar. En
því miður bendir reynsla síðustu mánaða ekki til þess.
íhaldið tapaði
í sænsku kosningunum varð það einna athyglisverðast
að íhaldsflokkurinn, sem líkist helzt Sjálfstæðisflokknum
hér, beið mikinn ósigur. Fyrir íslendinga er ástæða til að
íhuga vel þá staðreynd, að á Norðurlöndum er íhalds-
flokkurinn hvergi eins sterkur og hér. Þ.Þ.
I. FLORENTEF, APN:
Ný vatnalög í Sovétríkjunum
miða að stóraukinni vatnsvernd
Stórhert verður á ráðstöfunum til að hindra mengun.
Frá 400 km. löngu uppistöðulóni við Viljusk-rafstöðina í Jakútíu.
Við stiflurnar er lónið sjötíu metrar að dýpt.
FRUMVARP að nýjum vatins
lögum fyrir Sovétríkin og sam
bandslýðveÁLin hefur nýlega
verið prentað til þess að hægt
verði að taka það til umræðu
um land allt.
Frá upphafi hefur hi® sov-
ézka ríki sýnt því mikla um-
hyggju, að náttúruauðæfi
landsins yrðu hagnýtt á sem
skynsamiegastan hátt. Hinn 14.
maí 1919 ritaði V. I. Lenin fyr-
ir hönd ríkisstjórnarinnar und
ir fyrirskipun um „skrásetn-
ingu borhola, sem gerðar eru
í vatnsleit", en þar er bent á
nauðsyn þess, að þegar í stað
verði gripið tií ráðstafana til
skynsamlegrar vatnsnotkunar
og til þess að koma í veg fyrir
mengun brunmvatns, en úr
brunnum kemur bezta vatnið,
sem íbúar landsins eiga kost á.
Á þriðja áratugnum var sér-
stök löggjöf varðandi vatn sett
í ýmsum sambamdslýðveldum
Sovétríkjanna. Og á síðast liðn
um árum hefur sovézka ríkis-
stjórnim sett ýmsar regiugerð-
ir um vatn, svo sem hinn 22.
apríl 1960: Um ráðstafanir til
að koma á skipulegri nýtingu
á vatnsbói'um í Sovétríkjumum
og bættri vernd þeirra.
Og enn er þörf á að endur-
bæta vatnslöggjöf landsins.
GRÍÐARMIKIÐ vatn er til
í landinu: 800 þúsund ár og
fljót hafa samanlagt vatns-
rennsli í meðalári sem svarar
rúmlega fjórum og háifum
þúsund rúmkilómetrum, og
tuttugu og tvö prósent þessa
vatnsmagns er neðanjarðarvatn.
En þrátt fyrir a.’lt þetta vatn
er vatnsskortur í hinum þétt-
býlustu héruðum landsins.
Vatnsskorturinn stafar af því
að hinu náttúrulega vatns-
rennsli er mjög misskipt land-
fræðilega, og falla um 80 pró-
sent af því um efnahagslega
litt þróuð héruð út í Kyrrahaf
og norður í Ishaf. Önnur
ástæða er sú, að um 60 pró-
sent hins árlega vatnsrennslis
fe.lur fram í stórflóðum (á
steppunum er þetta hlutfall
jafnvel hærra).
I samræmi við ályktum mið-
stjórnarfundar KFS í maí 1966
hafa áveitur verið byggðar á
síðastliðnum fjórum árum tii
þess að veita vatni á 408 þús.
hektara lands á vegum ríkisins
og 120 þúsund hektara á veg-
um samyrkju- og ríkisbúa í
Rússlandi einu.
Með aukinni vatnsnotkun hef
ur frárennsli eimnig aukizt. Og
mikiL' hluti frárennslisvatns er
ekki hreinsaður nægilega vel.
Mengun vatnsbóla, sem hefur
ekki aðeins breiðzt út um allan
Evrópuhluta Rússlands, en
einnig til Síberíu, Kyrrahafs-
strandarinnar og Mið-A 'Iu,
veldur mjög mikluð skaða.
Þess vegna er brýn nauðsyn á
skipu.'egri hagnýtingu vatns og
betri verndun þess og þetta út-
heimtir að sínu leyti róttækar
umbætur á vatnslöggjöfinni.
ÞAÐ ERU fastanefndir
Æðsta ráðs Sovétríkjanna, sem
hafa undirbúið fruravarpið að
nýjum Vatnslögum fyrir Sovét-
ríkin og sambandslýðveldin,
sem nú hefur verið prentað og
lagt fyrir þjóðina. Auk fuL’-
trúa í fastanefndunum tóku
fulltrúar viðkomandi ráðuneyta
þátt í samningu frumvarpsins
og einnig fulltrúar stjórn-
deilda, rannsóknarstofnana,
sérfræðingur í vatnsnotlkun og
vemd vatnsbóla, ,'ögfræðingar,
hagfræðingar, vatnsaflsfræðing
ar og jarðfræðingar.
Andstætt þeirri löggjöf, sem
nú er í gildi og tekur einkum
tii vatnsnota í landbúnaði, fjall
ar þetta frumvarp um hvers
konar vatnsnotkun í öllum
greinum atvinnulífsins
I formá'a að frumvarpinu er
áherzla lögö á það, að vatn er
ríkiseign og það er grundvöll-
ur vatnsnotkunar og tryggir
vfðfeðma möguleika á vísinda-
legri og alhliða vatnsnotkun
samkvæmt áætlun tu hagsbóta
fyrir þjóðarbúskapinn i heild
og tryggii fólki þanaig hinar
heppilegustu forsendur fyrir
störfum, fjölskyldulífi, hvíld
og heilsuvernd.
I FYRSTA hluta frumvarps-
ins er bent á það, að allt vatn
í Sovétríkjunum er ríkiseign.
Þá er ábyrgðinni á reglugerð-
um um vatnsnotkun skipt á
mil-'i sovézkra miðstjórnar-
valda og sambandslýðveldanna,
settar eru fram grundvallar-
reglur um ríkiseftirlit með
vatnsnotkun og vernd vatns-
bóla, skilgreindar eru reglur
fyrir dreifimgu, gerð og upp-
byggingu fyrirtækja, sem hafa
áhrif á vatnsbó,' og vinnuaðferð
ir við vatnsvirki og önnur störf
á vatnasvæðum. í fyrri lögum
er bannað að hefja starfrækslu
á nokkrum fyrirtækjum, verk-
smiðjum eða orkustöðvum fyrr
en þær hefðu verið búnar tækj
um til veradar gegn vatnsmeng
un. Þetta bann er áfram í hinu
nýja frumvarpi. I frumvarpinu
er einnig gert ráð fyrir því, að
áveitukerfi verði ekki leyfð
fyrr en ráðstafanir hafi verið
gerðar til að koma í veg fyrir
flóð, of mikla seltu og jarð-
vegseyðingu. Bannað venður
að setja upp vatnstökutæki ón
fiskverndunarútbúnaðar og
bannaðar stífluframkvæmdir,
ef ekki er gert ráð fyrir sér-
stökum flóðagáttum í þeim og
bannað er að fyL’a uppistöðu-
lón, fyrr en botn þeirra hefur
verið undirbúinn hæfilega.
I öiðrum hluta frumvarpsins
eru settar fram reglur um
vatnsnotkun. I frumvarpinu er
kveðið á um forgangsrétí vatns
nýtingar til drykkjar, krafizt
er sérstaklega varfærinnar hag
nýtingar drykkjarvatns neðan-
jarðar og heilsubótarvatns,
skorað er á alla vatnsnotendur
að grípa til ráðstafana tif að
því verði gersamlega hætt, að
veita frárennslisvatni í vatns-
ból.
ÞESS SKAL getið. a® fram
á síðustu tíma var veiting frá-
Framhald á 14. siðu.
mmtF