Tíminn - 23.09.1970, Page 12

Tíminn - 23.09.1970, Page 12
7 ÍÞRÓTTIR MIÐVIKUDAGUR 23. sept. 197«. IÞROTTIR / hverju sæti Eins og kunnugt er leikur Everton síö'ari leik sinn við ÍBK í Evrópubikarkeppninni n.k. mið vikudag, og gefst þar íslending- um tækifæri að sjá ekki a'ðeins heimsfrægt lið, heldur og heims- fræga leikmenn. Á síðustu árum hefur ekkert knattspyrnufélag í Englandi náð jafngóðum árangri og Everton. Síðastliðin 10 ár hef- ur li'ðið ávallt verið fyrir ofan 6. sæti í 1. deild, að undanteknu einu sinni er það varð í 11. sæti. Síðastliðin 10 ár eru því tíma- bil sem félagið er hreykið af, þvj auk þess að hafa unnið meistara- titilinn 1963 og 1970, hafa þeir tvívegis á þessu tímabili verið 1 úrslitum bikarkeppninnar, þ.e.a.s. 1966 er þeir unnu bikarinn og 1968, en þá voru þeir í úrslitum. Er félagið almennt talið eitt sterkasta félagslið í heicni. Framkvæmdastjóri félagsins s.l. 10 ár hgfur verið Harry Catterick, sem áður lék með liðinu og hefur hann eins og raun ber vitni verið afar farsæll í starfi sínu og varð andi heimaleiki hefur Everton sótt imjög á vinsældir hinna 700. 000 knattspyrnuaðdáenda í Liver pool. Þekktustu leikmenn Evertons eru landsliðsmennirnir 4 er allir léku með enska landsliðinu í Mexico í heimsmeistarakeppninni á þessu ári, Alan Ball, Brian Labone, Tommy Wright og Keith Newton. En méðan annarra þekktra leikmanna Evertons eru 5 leikmenn enska landsliðsins undir 23 ára: Howard Kendall, Colin Ilarvery, John Hurst, Joe Royle og Jimmy Husband. I>á hefur markmaður þeirra verið álitin einn bezti markvörður í Englandi og var valinn til Mexico með enska landsliðinu s.l. sumar, en afþakkaði vegna heim- ilisástæðna. Af framangreindu er ljóst að Evertonliðið er skipað mjög sterk um leikmönnum og má segja að allir leikmenn liðsins hafi leikið með úrvalsliðum og landsliðum. Leikmenn Everton, sem koma hingað eru: Markmenn: Gordon West. — Hefur leikið með Everton síðan 1962, en þá var hann keyptur frá Blackpool fyrir metupphæð. Hann hefur leikið 3 landsleiki undir 23 ára og 3 leiki með A-landsliði Eng- lands. Alls hefur hann leikið 308 sinnum. í 1. deild. Ándy Rankin. — Harin var upp götvaður i heicijkynnum Everton og yaiíð , atyjnnúmaður 1961. — 1963 lék hann sinn fyrsta leik í 1. fieild, en' þar hefur hann alls leikið 57 leiki. 1964 valdi Alf Ramsey,. Rankin mai'kmann í landslið 23 ára og yngri á móti Wales, pg eftir þánn leik var Rankin valinn sem varamark, maður A-landsliðsins. .. . „ Bakverðir: Keith Newton. — Ilann byrjaði hjá Blackburn sem áhugamaðúr. Þrem árum síðar lék, hann fyr$ta landsleik sinn sem atvinnumaður og þá gegn Chelsea. Hann lék me'ð Blackburn þar til á siðasta keppn istímabili að Everton keypti hann fyrir 80.000 pund. I-Iann lék lék með enska landsliðinu móti Þýzkalandi í úrslitáTeíknam ' á Wembley 1966 og hefur síðan verið fastur maður í enska lands- liðinu og alls leikið 25 landsleiki. í deildarkeppninni hefur hann leikið alls 318 leiki. Tominy Wright. — Hann hóf knattspyrnuferil sinn sem útherji, en eftir að 'Harry Catteriek reyndi hann sem bakvörð snerist snögg- lega á gæfuhliðina hjá honum og var hann valiun sem bakvörður í landsliðið 23 ára og yngri og þaðan lék hann sig inn j A-lands- liðið, og lék með því í meistara- keppni Evrópu 1968. Alls hefur hann leikið 11 landsleiki og 220 deildarleiki og er nú talin einn af beztu bakvörðum í Evrópu. Framverðir: Colin Harvey. —Han.i lék fyrst með A-liði Evertons í Evrópu keppninni 1963 og þá á móti Inter Milan, en hann hóf feril sinn hjá félaginu 16 ára og varð atvinnu- maður hjá félaginu 18 ára gamall. Hann lék með 23 ára og yngri á imóti Skotlandi 1967 og fór með því liði í Evrópufreð sama ár. Hann hefur alls leikið 221 leiki með Everton í 1. deild. Brian Labone. — Hann hóf sinn knattspyrnuferil hjá Birmingham City, en fór fljótlega yfir til Everton og hefur verið einn af sterkustu mönnum liðsins s.l. 10 ár. Alls hefur hann leikið 413 leiki í 1. deild, og er það meira en nokkur annar leikmaður fé- lagsins hefur gert. Alls hefur hann leikið 26 landsleiki. Howard Kendall. — Hann hóf knattspyrnuferil sinn 16 ára með Preston og lék 17 ára úrslitaleik- inn í bikarnum 1964, Preston gegn West Ham og hafði aldrei jafn ungur leikmaður leikið úrslitaleik í ensku bikarkeppninni, hvorki fyrr né síðar. Everton keypti hann frá Preston 1967 fyrir £80.000. Kendall hefur leikið með landsliði 23 ára og yngri 6 sinnum og alls leikið 210 deild- arleiki. Framherjar: Alan Ball. — Hann er einn þekktasti knattspyrnumaður Eng- lands og af mörgum talinn ein aðaldriffjöður enska landsliðsins. Everton keypti hann fyrir met- upphæð frá Blaekpool, 112.000 pund árið 1966. Sem drengur lofaði Alan Ball föður sfnum að hann skyldi vera kominn í enska landsliðið 20 ára og stóð hann við það heit sitt, því eftir feril í unglingalandsliðiim lék hann sinn fyrsta landsleiilc með A-liiðnu í mai 1965, ogj hefur hann alls leikið 45 landsíleiki. í ensku deildarkeppninni hefur hann leikið 268 leiki. í síðustu viku útnefndi. ;Sir Alf Ramsey Alan Ball sem f.yrirliða enska 1. deildar úrvalsins gegn Skotlandi og er það állitin vís- bending um það að Alan Ball verði valinn fyrirliði enska lands liðsins á komandi keppnistíma- bili. Joe Royle. — Hann er stór og sterkur miðherji og aðá'Æ-marka- skorari liðsins. Skoraði á síðasta keppnistímabili 23 mörk. Hann lék fyrst með Everton 1(965 og hefur síðan leikið með unglinga- 5 sinnum, en alls leik ið 125 deildarleiki. John Hurst. — Hann vakti þeg- ar athygli á sér í skólaliði Eng- lands 15 ára gamall og valdi þá Everton fram yfir mörg önnnr félagslið sem vildu kaupa hann, en þegar á þeim árum var honum líkt við Tommy Lawton. Hurst er talinn meðal efnilegustu leik- manna í unglingalandsliðinu en með liðinu hefur hann leikið 8 sinnum. Hann hefur alls leikið 166 1. deildarleiki. John Morrissey. — Á s. 1. keppn- istímabili var hann valinn í 1. deildarúrval írlands. Hann hóf sinn atvinnuferil hjá Liverpool 1957, en 1962 keypti Everton hann og síðan hefur hann verið fastur leikmaður liðsins og hefur MeSal hinna frábæru leikmanna Everton, sem hingað koma í næstu viku, er lágvaxinn, rauShærður ná- ungi, sem eflaust á eftir aS vinna hug og hjörtu allfa þeirra, sem leggja leið sína á Laugardalsvöllinn. Fyrir viku fengu um 80 íslendingar að sjá hann leika gegn ÍBK á Goodison Park í Liverpool og þeirri sjón gleyma þeir aldrei. Hann skor- aði 2 af 6 mörkum Everton í leikn. um, og var, ásamt Þorsteini Ólafs. syni markverði ÍBK, maður leiks- ins. — Þessi maður er hinn heims- frægi Alan Ball, sem kostaði Ever- ton um 23 milljónir króna árið 1967, en nú er ekki hægt að meta hann til fjár. Af öllum þeim frægu leikmönnum, sem hér hafa leikið er hann að áliti þeirra sem hafa séð hann leika, sá stórfenglegasti af þeim öllum. alls leikið 244 deildarleiki. Jilnniv Husband. — Hann var strax á unga >aldri valinn í ung- lingalið Evertons. Hann lék fyrst með A-liðinu 1965. Árið 1967 var hann valinn í enska landsliðið 23 ára og yngri. Hann er meðal mai'khæstu manna Evertons og skoraði m.a. 20 mörk á keppnis- tímabilinu 1968—69. Hann hefur alls leikið 109 leiki í 1. deild. Alan Whittle. — Alan litli, eins og hann er kallaður, hefur verið líkt við Alan Ball. Á síðasta keppnistjmabili kom hann inn : liðið, þó ekki fyrr en á síðari hluta þess, en skoraði samt sem áður 12 mörk í 15 leikjum. Haan er mjög leikinn og fljótur, en hefur verið hálfgert „vandræða- barn“ hjá Everton. I gar heirn með 14:1 á bakinu Töpuðu síðari leiknum í Evrópukeppninni 7:0 á „heimavelli sínum" í St. Gallen í Sviss klp—Reykjavík. Dráumur liðsins, scm kemur frá riyrzta stað Evrópu í Evrópu- keppni bikarmeistara að þessu sinni, ÍBA frá Akurcyri, varð að engu í borginni St. Gallen í Sviss, sem var „heimavöllur“ þess í gær kvöldi, er það tapa'ði fyrir FC Ziiurich með sjö mörkum gegn cngu, en það tap svo oe 7:1 tap fyrir sama liði í síðustu viku, varð bani þe;:,., eins og reyndar allra anngrrn íslenzkra liða, þegar í fyrstu umferð kepniimar. Þanriig.'heíuf það verið 'frá því íslenzk lið tóku fyrst þátt i Evrópukepninni. Þau hafa alltaf verið slegin út í fyrstu iimferð, nema einu sinni, er Valur komst í aðra umferð eftir sigur á hag- stæðari markatölu yfir Jenmss de ’Ess frá Luxemborg. Varla er að búast við breytingu á þvi,', nema ef vera skyldi að einhver ‘heppni kæmi yfir eitthvert þeirra, því í flestum tilfellum er við isitvinnu menn að etja, og í hendurnar á þeim hafa hinir islenz.ku ( áhuga- oienn ekkeV að gera. • Það fundu Akureyrlngar víst inanna bezt i þesstim tveirti leikj- u.ii, þvi þeir koma út úr þeim me’ sanmnlagða markatölh 14:1. og voru mörgðum klössumi lukari á öllum sviðum knattspyrnunnar. í leiknum í gær liðu 5 mjnútur þar til Svisslendingarnir skoruðu fyrsta markið, og á 13. mín, bættu þeir öðru við. Þrem mín. síðar var staðan orðin 3:0 og eftir aðrar þrjár mín. 4:0. Eftir 10 mín. leik í síðari hálf- lei1: bættu þeir fimmta markinu 'dð, 05 á síðustu þrem mín. leiks- ins tvei : til viðbótar. Þetta voru aðeins mörk þeirra j leikrium, en þai fyrir utan áttu þeir fjöldan allan af tækifærum, bæði skotum af Uingu og stuttu færi en flest þeirra fóru fram- hjá, sum þó í hendurnar á Samúel markverði, og eifct eða tvö í stang- irnar. Tækifæri Akureyringa voru sárafá, það bezla kom í fyrri hálf- leik er Magnús Jónatansson skall- aði í þverslá. Einnig áttu þeir Her- mann og Kári nokkur skot á mark- ið, en 611 án árangurs. Atvinnumennírnir frá Ziirich voru léttari og liprari í alla staði, eldfljótir á knöttinn, og skiptin.5- ar örar bæði fram á við og til hliðar. Þeir halda því áfram í Evrópukeppni, en Akureyringar heim reynslunni ríkari eftir sína fyrstu þátttöku í Evrópukeponi.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.