Tíminn - 23.09.1970, Síða 13
tflÐVIKUDAGUR 23. sept. 1970.
TÍMINN
13
EFTIR VIKU FÁ ÍSL. ÁHORFENDUR AÐ SJÁ
Nú styttist ó3um aö þeim við
bitrði, sem knattspyrnuunnend-
m' hafa beðið eftir með hvað
mestri óþreyju — komu Eng-
landsmeistara Everton til ís-
lands og síðari leik þeirra '
Evrópukeppninni gegn Kcflvík
ingum. Ákveðið er að leikurinn
fari fram mi'ðvikudaginn 30.
september klukkan 5.30 (hálf
sex), en það er nauðsynlegt
til að birta haldist allan leik-
inn.
Miðasala á leikinn hefst t
dag og fer frarn í tjaldi við
Útvegsban'kann í Reykjavík og
í Sportvík i Keflavík. Verði
miðanna er stillt í hóf — 200
kr. í sútku, 150 kr. í stæði og
50 kr fyrir börn. Þess tná geta
að stúkusæti á leikinn í Liver-
pool kostaði eitt og hálft pund
eða 315 kr íslenzkar. Til að
auðvelda utanbæ.iarmönnum að
sjá leikinr, býður Flugfélag ís-
lands 20% afslátt á innan-
landsflugi.
Fverton-hópurinn, sem inni
heldur 1* leikmenn o-g 20 fylgd
armenn. kemur hingað í leigu-
þotu daainn fyrir leik og lend-
ir á Keflavíkurflugvelli klukk-
an 13.45. Leikmennirnir munu
lítið fá að skoða sig um, því
þeir þurfa að fara snemma í
háttinn á Hótel Sögu, þar sem
hópurinn mun dveljast. Búizt
er við að þeir taki létta æfingu,,
annað hvort sama dag og þeir
koma eða á leikdegi — en hóp
urinn flýgur heim strax að leik
loknuim.
Upplifun fyrir ísl.
áhorfendur
Leikurinn í Goodison Park,
Liverpool, mætti svo sannar-
lega kalla „leik markvarð-
anna“, þvi fyrir þá sem sáu
leikinn verður markvarzla Þor-
steins Ólafssonar ógleymanleg,
enda kunnu áhorfendur vel að
meta. í leikslok mynduðu leik-
menn Everton heiðursröð og
tóku í höndina á Þorsteini og
félögum, meðan áhorfendur
klöppuðu þeim lof í lófa. Mark
vörður Everton, Gordon West,
var eini leikmaður Everton.
sem ekki fór i heiðursröðina
— og láir honum það kannski
enginn. Hanr. hefur verið sjálf
kjörinn í aðallið Everton undan
farin þrjú ár, talinn annar eða
þriðji bezti markvörður Eng-
lands — en í leik gegn áhuga-.
mönnum frá íslandi fær hann
á sig tvö klaufamörk og við
það verður hann af þessu öllu,
því í næsta leik valdi hinn
ákveðni framkvæmdastjóri
Everton, Harry Catterick, hann
ekki í aðalliðið.
Leikurinn hér heima ætti að
geta orðið mikil upplifun fyrir
áhorfendur, því ekki er það oft
sem mönnum gefst tækifæri á
að sjá félagslið. sem er full-
skipað enskurn landsliðs- og
unglingalandsliðsmönnum. þ.á
m. Alan Ball, Keith Newton os
Tommy Wright, en leik-
menn eins og Gordon West og
Brian Labone sitja á vara-
mannabekk. Gaman verð-ur að
fylgjast með viðureign Alan
Balls og Þorsteins Ólafssonar.
og vonandi eiga Keflvíkingar
eftir að koma jafnmikið á
óvart og beir gerðu með fyrri
leik sínum í Liverpool. — kb.
Band.shakc»
inr fhe mgn
Grxxíimn goal rmt
S<-:« f'.vSxxXy.-.tSi**'. '
’i'.■:■ «•
íy.-SXX'X'-
; *&£&& &*> :
*■ víS"
•&■■■&£■.
f.ftjt* «d S<S<fjí:'
•. :■ : ■' '■■•'
t :&*$**• <«•*'■:«-•*> *
,v. ■ 'bV
.*■ '■■
:ý
F' föfiSS' x<-
:W -íSScWStW::
í». -$4 >\<(A 4 'y
. m.............1....m
I "
«áii:
tf&'ENr
Hér að ofan getur að lita fyrirsagnir á íþróttasiðum ensku stórblaðanna daginn eftir leikinn. Þá hljóðuðu þær á annan veg, heldur en
daginn fyr'r leikinn — og orð eins og „vonlausu" íslendingarnir breyttust i „hinir baráttuglöðu". Fyrirsagnirnir voru allt upp í sex
dálka (flest íslenzku blöðin eru fimm dálka). Voru skrif blaðanna vinsamleg í alla staði og eitt blaðið sló því upp i fyrirsögn að „ís-
lendingar aettu að sæma markvörðinn heiðursmerki". Mikið var rætt um markvörzlu Þorsteins Ólafssonar, enda aðalumræðuefnið
eftir leikinn.
wi—i nm———inpiiiiM'iiinniii'i in iiiíittiT n frniíiin f: i in i ii ii|ininiii|inii— m— nni—yimiinii m; m'
Mest selda píputóbak íAmeríku,