Tíminn - 01.10.1970, Qupperneq 7
FIMMTUÐAGUR 1. október 1970
TÍMINN
?
Hvaö er sannleikur?
f Arbók landbúnaðarins, sem
er nýkomin út, er margt athygl-
isveit efni, og er Árbókin stórt
rit og vandað að þessu sinni.
Meðal efnis er stutt en glögg
grein eftir Svein Tryggvason,
framkvæmdastjóra Framleiðslu
ráðs landbúnaðarins, og sér
Tíminn ástæðu til þess að birta
hana.
Það hvílir mikil ábyrgð á
herðum þeirra manna, er fjalla
um beilbrigði einstaklinga og
þjóða. Venjulegast eru þetta
,'ærðir menn, sem auk venju-
legs skólanáms hafa aflað sér
talsverðar reynslu við störf sín
eða í lífinu. Þeir eru að vísu
oft mjög sérhæfðir og nám
þeirra og reynsla markast oft
af sérfræði þeirra, án tillits til
þess, sem önnur sérfræði telur
nauðsyniegt. Þegar þesssir
menn láta til sín heyra, hlustar
öll þjóðin á þá, og alveg sér-
staklega þegar þeir bera starfs-
heiti, sem, hafið er upp yfir
meðailmennskuna.
Þeir geta því mótað líferni
einstaklinga og heilla þjóða
meir en nokkurn gnunar. Þjóðin
lítur svo á, að þeir búi yfir allri
þeirri vizku, sem til er á sviði
heilsugæzlu, og heilbrigðs lif-
ernis. Eftir ráðum þeirra fer
fjöldinn, og hví skyldi því á
annan veg farið? Þess vegna er
ábyrgð þeirra mikil, því að svo
getur vissulega farið, að ráð
þeirra leiði einstaklinga og
heilar þjóðir inn á villugötur,
sem enda að lokum í óförum.
Fólk, sem komið er yfir miðj
an aldur, minnist sjáffsagt
margra kenninga, sem áður fyrr
voru taldar sannar og engum
datt í hug að bera brigður á,
Nú er hins vegar farið-áð bera a
kenningum, sem „sérfræðingar'*
bera fram, en brjóta algjörlega
í bág við það, sem til skamms
tíma voru talin algild sannindi.
Þeir eru margir. sem muna
enn hugtakið „undanrennu-
andlit“. Ég skildi það svo, að
það væri fólk sem þjáðist al
næringarskorti, sem hægt hefði
verið að bæta úr með betri og
hoflari fæðu, þá helzt meiri
mjólkurneyzlu og eða smjör-
neyzlu. Eldri maður, sem ég
mætti á förnum vegi nú fyrir
skömmu, sagðist vera farinn að
sjá þessi ,,undanrenmuandli“ nú
aftur í ríkari mæli, en um skeið
hefði verið. Það væri skinhor-
að bláfölt fólk, sem neitaði sér
um eðlilegt viðurværi, oftast af
hégómagirnd, því ekki skorti
það fé ti3 þess að veita sér eðli-
legt viðurværi.
Þá var ofckur sagt það hér
áður, að blinda gæti orsakazt
af því, að ákveðið efni skorti í
fæðu þess fólks, sem ekki neytti
smjörs. Nú vitum við, að þetta
efni var A-bætiefni.
Orsakir margira sjúkdónva,
sem áður geisuðu hér svo mjög,
voru og taldir vera skortur á
heilnæmu fæði, þá fyrst og
fremst mjólk.
Nú er það hins vegar haft að
kjörorði þeirra sérfróðu manna,
sem eiga að hafa menntun og
reynslu oð hafa gerzt leiðbein-
endur þjóðarinnar í heilbrigðis
málum, að mjólk og mjólkur-
matur sé viðsjárverður viður-
gerningar og sé megin orsök
ýmissa þeirra sjúkdóma, sem
aðgangharðastir eru á heilsu
manna. Samkvæmt þeirra ráð-
um eiga menn nú að neyta jurta
feiti og undanrennu, ef þeir
vilja verða langlífir í landinu.
Við, sem stöndum álengdar
og hlustum á þessar ráðlegging
ar, spyrjum vitanlega margra
spurninga í þessu sambandi,
sem engin svör virðast koma
við.
Það er t.d. tafið full sannað,
að í því gózenlandi, Bandarikj-
unum, hafi tíðni hjai'tasjúk-
dóma aukizt örar en í nokkru
landi öðru. Okkur er einnig
sagt, aJ hvergi í heiminum hafi
smjörneyzla dregizt eins mikið
saman og þar á undanförnum
áiHim, en jafnframt hafi neyzla
jurtaieiti heldur hvergi auk-
izt jafn mikið. Nú er mörgum
það ljóst, að jurtafeiti er ákaf-
lega stór hópur efirA, og sam-
ar tegundir jurtafeiti eru miklu
haröari feiti, en t.d. smjörfeit-
in. Þetta getur því ruglað r.ienn
í ríminu. En samt sem áður er
hér um sláandi mótsagnir að
ræða við þær kenningar, sem
nokkrir „sérfræðingar" íslenzk
ir halda að þjóðinni
Frá Sviþjóð berast þær frétt-
ir, áð meirihluti fólks þar í
landi, sem komið er yfir sjö-
Framhald á bls, 14.
■\
INTERNATIONAL
HARVESTER
NYJAR
OG BETRI
TD-VÉLAR BÆTAST
STÖÐUGT VIÐ
DÝRARI VÉLAR Á GÓÐU VERÐI
IH BELTAVÉLAR - TD - 6, 8, 9, 15, 20 og 25.
Á myndinni hér að ofan sést ein sú minnsta — TD — 8 B — með „power-shift" og 65 hestafla mótor.
TD — 8 B — beltivél — með tönn eða skóflubúnaði — sérlega hentug í gatnagerð — húsgrunna —
lóðir og ræktunarvinnu.
Verð með tönn, húsi og miðstöð um kr. 1.380 þúsund
KLIPPIÐ ÚT OG S'ENDIÐ TIL VÉLADEI'LDARINNAR
THj VÉLADEILDAR SÍS, Ármúla 3, Reykjavík
Vinsamlega sendið til undirritaðs upplýsingar um verð og
greiðslukjör á eftirtöldum vélam (merkið við):
0 Beltavél m/töm
0 Vélskóflu á beltum
0 Vélskóflu á gúmhjóium
0 Iðntraktorar með tækjum
StærS
• ••••<
Nafn: ................
Heimilisfang: ......
'••••■ •-•«•••••• •■•••!
• •••••#••»••••••*%•«
Eigum nokkrar beltavélar og vélskóflur til
afgreiðslu með stuttum fyrirvara
»- VÉLADEILD - Ármúla 3 - Reykjavik - Sími 38900
Sveinn Tryggyason