Tíminn - 03.10.1970, Blaðsíða 1

Tíminn - 03.10.1970, Blaðsíða 1
GREINAGERÐ FRÁ INGOLFI DAVÍÐSSYNI — sjá bls. 16 Bæjarráð Hafnar- fjarðar vill fá staðreyndirnar í mengunarmálinu — sjá frétt bls. 16 Ekki enn tekizt að selja neina Suðuriandssíld Keppinautarnir bjóða langtum lægra verð OÓ—Reykjavík, föstudag. Blaðiou hefur borizt eftirfar- andi greinargerð' frá síldarútvegs- nefnd: Undanfarnar vikur hafa staðið yfir samningaumleitanir um fyrir- framsölu á saltaðri Suðurlands- síld. Engir samningar hafa tekizt til þessa og eru he.’ztu ástæðurnar fyrir því eftirfarandi: Síldarinnflytjendur á Norður- löndum telja sig geta fengið ó- dýrari og stærri síld frá ýmsum öðrum framleiðslulöndum saltsí’d ar svo sem Noregi, Færeyjum og Kanada. í því sambandi má geta þess, að Færeyingar hafa gert fyrir- framsamninga við Svía um sölu á all miklu magni af síld af stærð- inni allt að 6 stk. per kg og má ergin síld vera í tunnunum undir 166 gr. Söluverðið á síld þessari haussk. og slógdreginni er D. kr. 322,50 fyrir hverja tunnu með 100 kg nettó þunga eða sem svarar ca. US $ 41/— fob. Sé samið við kaupendur um sama hámarksstykkjafjölda á Suð- urlandssíld og Færeyingar hafa íamið um, myndu aðeins 10—20% af aflamagni SuðurlandssL'dar ganga upp í samninga, miðað við stærðarskiptingu síldarinnar s.l. ár og nú í haust. Reynslan hefir sýnt, að ef engin síld í tunnunum má vera smærri en 166 gr, verður meðalstykkjafjöldi í 100 kg tunnu ekki meiri en um 500 síldar, en um 80—90% af Suðurlandssí'd- inni hefir verið smærri en það. Verð það, sem íslendingar hafa boðið síld af þessari stærð fyrir, er langum hærra en færeyska verð ið og einnig verð það, sem Suður- landssíld af stærðinni „500/700“ er boðin á. Kanadamenn hafa hafið sölu- herferð á saltsíld á Norðurlanda- Framhald á bk. 14. * * * * ♦ * * * * * t * * Jfc. Tsm: m. ravsniosTUR ■V FRYSTISKÁPAR Gryfjan eftir aS búið var að dæla vatninu úr henni. Lrk drengsins lá öðrum megin í henni en lík stúlkunnar hinu megin. Þriggja metra djúpt vatn var í gryfjunni, og hún með öllu óglrt. Aðeins um 300 metrar eru frá íbúðarhúsunum að þessari hættulegu gryfju. (Tímamynd Gunnar) Börnin fundust látin í gryfju fuilri af vatni Gryfjan var 300 m. frá heimili þeirra, ógirt og eftirlitslaus ógirtir og engir eftirlitsmenn á stöðunutn, enda lögreglunni ekki tilkynnt um þá sem hættu lega staði. Þriggja metra djúpt vatn Gryfjan, sem lík barnanna fundust í, er tilraunahola, sem sprengd var í klöpp fyrir ein- um þrem vikucn og hefur hún staðið ógirt síðan og full af vatni. Verktakarnir, sem þessar framkvæmdir önnuðust, eru Hlaðbær — Miðfell h.f. — Dýpt holunnar er um fjórir metrar, en vatnið var um þriggja metra djúpt. Stærð hol unnar er 13x6 metrar og hún er aðeins um 300 metra fyrir ofan íbúðarhúsin í hverfinu og beint upp af húsinu, sem börn- in átt_ heima í. Um klukkan 11 í morgun var byrjað að dæla upp úr holunni og hún þá girt lauslega með strengjum, vegna dælunnar. Þegar búið var að dæla nokkra stund, sáu verka Framhald á bls. 14. SB-Reykjavík, föstudag. Tveggja barna var leitað í alla nótt í Reykjavík og nágrenni borgarinnar. Um hádegið í dag fundust lík þeirra í holræsagryfju, fullri af vatni, sem er aðeins um 300 metra frá heimili þeirra. Börnin hétu Bergþóra Ágústsdóttir og Jóhannes Birgir Jónsson, bæði 8 ára og til heimilis að Hjaltabakka 12 í Breiðholtshverfi. kvöldi og fóru lögreglumenn út á bílum að leita. Þegar leit- in bar ekki árangur, var aukið við l'ögreglubílum og Slysa- varnafélaginu gert aðvart. Það sendi út hjálparsveitir og í nótt var leitað um allt Breið- holtshverfið og nágrennið, allt upp að Rauðavatni, og þyrla landhelgisgæzlunnar flaug yfir svæðið í birtingu í morgun. Alls munu um 300 manns hafa verið í skipulagðri leit, auk fjölda fólks, sem fór á stúf- ana upp á eigin spýtur. Á óbyggðum svæðum í Breið holti er talsvert af skurðum og gryfjum, sem fyllzt bafa af jarðvatni ,og var tekið til við að dæla upp úr þeim og leita i þeiin í morgun. Þessir hættulegu staðir liafa verið Barnanna var fyrst saknað um kl. 1(1 í gærkvöldi. Þau áttu heima í sama stigagangi hússins Hjaltabakka 12 og léku sér oft saman. Allt kvöldið var haldið á heimilum beggja barn anna, að þau væru inni hjá hinu, en þegar í ljós kom, að þau voru á hvorugum .staðn- um, var farið að leita þeirra. Lögreglunni var tilkynnt um hvarf þeirra kl. 23,37 í gær- Jóhannes Birgir Jónsson, átta ára gamall Bergþóra Ágústsdóttir, átta ára gömul

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.