Tíminn - 03.10.1970, Blaðsíða 2

Tíminn - 03.10.1970, Blaðsíða 2
% TIMINN LAUGARDAGUR 3. október 1970 Stýrimanna- skóladeild á Neskaupstaö boða til almenns fundar Æmennur fundur verður hjá Hjagsmunas amtöku m einstæðra fbreldra mánudagskvöldið 5. októ ber n. k. í Tjarnarbúð. Þar mun Jódis Jónsdóttir, varaformaður HJEiF. ræða um skólaheimili hér og í Danmörku, en það skoðaði líun slík heimili fyrir nokkru. Formaður gireinir frá s-tarfi stjórn arinnar í suimar og væntanle-gu vetrarstarfi. Félagsmál verða rædd almennt á fundinum og skipað í ýmsar nefndir. er starfi stjórn samtakanna til aðstoðar. Nefna má, að unnið hefur verið að spjaidskrárgerð í sumar og verður því haldið áfra-m. Sömu- leiðis er að hefjast söfnun styrkt arfélaga og mikill áhugi er á að auka enn félagatölu samtakanna. Æskulýðsfylk- ingarþing 25. þing Æskulýðsfyikingarinn- ar, sambands ungra sósía’.ista ar sett í gærkvöldi, föstud-ag, kl. 8 í Tjarnargötu 20 og stendur þing- ið yfir helgina. A dagskrá þingsins er m.a. ný stefnuyfirlýsing samtakanna, svo og veigamiklar skipulagsbreyting- ar. Frétbatilky-nning frá Æsku.ýðs- fylkingunni. MenntaskóÞnn á ísafirði verð- ur settur í fyrsta sinn í Alþýðu- húsinu á ísafirði, laugardaginn 3. október kl. 15, en hann tekur til starfa föstudaginn 2. október. Viðstaddir athöfnina verða (þdngmenn kjördæmisins, sveita- stjómarmenn, ýmsir forustumenn skólamála í byggðarlaginu og aðr ir forvígismenn baráttunnar fyr- ir stofnun Menntaskóla á Vest- fjörðum Skóiinn mun fyrst um sinn starfa í gamla Barnaskólahúsinu á ísa- firði, eða þangað til hann flyzt í eigin húsakynni. Þar hefur hann til umráða fjórar kennslustofur í vetur. Hefur í sumar verið unn- ið a<5 nauðsynlegum breytingum á húsnæðinu og er þeim framkvæmd um að mestu lokið. Hafa skóia- menn lo'kið upp einum rómi um að kennsluhúsnæði þetta sé í fyllsta máta aðlaðandi og hag- kvæmt. j Heimavist pilta verður í vetur í : húsinu Hafnarstræti 20, en það • húsnæði tekur skó'linn á leigu af \ Ilótel M’ánakaffi á ísafirði. Eru ; þar vistarverur fyrir 15 nemend- i ur, auk setustofu og íbúðar heima vistarstjóra, sem ráðinn hefur ver ið Pétur Þórðarson. kennari. Stúlkur munu vera í heimavist Húsmæðraskólans Óskar, ísafirði. og mun Húsmæðarskólinn einnig reka mötuneyti fyrir heimavistar- búa alla sameiginlega. Forstöðu- kona Húsmæðraskólans er Þor- björg Bjarnadóttir frá Vigur. Alls munu 35 nemendur stunda nám í fyrsta bekk skólans þenn- an fyrsta vetur og skiptast þeir í tvær bekkjardeildir. Eru það 28 piltar og 7 stúlkur, allir af Vest- fjörðum ,utan fjórir. Eftirtaldir kennarar hafa verið ráðnir að skólanum, auk skóla- meistara: Finnur Torfi Hjörleifs- son, kennir íslenzku, Ólafía Sveins dóttir, BA. kennir dönsku (og frönsku, ef nægilega margir nem endur velja þá grein), Han-s W. Haraldsson, BA, kennir þýzku, Þorbergur Þorbergsson, cand. polyt., kennir stærðfræði og Guð mundur Jónsson kennir efna- fræði. Kennslu í náttúruvísindum eða samtímasögu hefst á miðönn, og hefur henni enn ekki verið ráðstafað. Vélritunarkennslu ann ast Sigþrúður Gunnarsdóttir bankaritari. Sumir kennarann; starfa í vetur jafnframt við Gagi fræðaskóla fsafjarðar. Fyrstu tvo veturna verður nám; efni með svipuðu sniði og í öðr um Menntaskólum, þ. e. sameig inlegur kjarni menntaskólanáms Síðan er ráðgert að ta-ka upi tvær meginlínur, þ. e. annars vej Framhald á bls. 14. NYJAR HELGAFELLSBÆKUR EJ-Reykjavík, föstudag. Nokkrar af haust- og jólabók- um Helgafells eru þegar komnar út, svo sem „Innansveitarkrónika“ eftir Halldór Laxness og „Vonin blíð“ eftir William Heinesen, í þýðingu Magnúsar Jockumssonar, fyrrv. póstineistara og Elíasar Mar. Þá er komin út þriðja út- gáfan af fyrstu bók Stefáns Harð- ar Grímssonar, „Svartálfadans“. Af væntanlegum bókum síðar í haust ber hæst ný bók eftir Sigurð Nordal um Hallgrím Pét- ursson og Passíusálmana. Þessi bók hans hefur lengi verið í smíð um, en Sigurður hefur nú nýlokið vi"j hana. Þá er væntanlegt smásagnasafn eftir Guðberg Bergsson, og nýtt skáldverk eftir Thor Vilhjálms- son. í haust kemur út sagnfræðirit eftir Siglaug Brynleifsson og fjallar bókin um Svarta daaða. Er rakinn ferill þeirrar plágu inn í Vesturlönd og til íslands árið 1402. Einnig verður gefin út ný og endurskoðuð útgáfa á öllum ver um Stefáns frá Hvítadal. Kristj; Karlsson, bókmenntafræðingr annast útgáfuna og ritar ítarle an formála um skáldið og vei hr.ns. 1 október kemur síðan stórt skíldverk eftir Guðmund L. Frið- finnsson á Egilsá, og er þetta áttunda skáldverk hans, róman- tísk ástar- og hetjusaga. Einnig kemur út fyrir jólin safn bókmenntaþátta eftir Svein Skorra Höskuldsson, og er hér um að ræða þætti þá sem hann flutti í útvarp fyrir nokkru. Eins og áður segir er verk Heinesens, Vonm blíð, þogar kom- in út, en sem kunnugt er hlaut færeyski rithöfundurinn verðlaun Norðurlandaráðs fyrir þá bók. Helgafell og Mál og menning standa að útgáfu þessa verks. og hefur bókin verið í þýðingu í 2—3 ár að sögn Ragnars Jónsson- ar. Innansveitarkrónikan er einnig komin út, og væntanlegt er síðar Framhald á bls. 14. Stýrknannaskútlinn í Reykjevík var settur j áttugasta sinn 1. októ ber s.l. í hátíðasal Sójmannaskól- ans. Nemendur þetta skólaar verða væntanlega 267, ef allir koma. sem sótt hafa um skóla- vdst. Eru þetta fleiri nemendur en nokkru sinni hafa verið i skól- anttm. Kennarar verða alls 20. Á vegum skólans verður hald- in fyrsta bekkjardeild fiski- manna með 10 nemendum í Nes- kaupstað. f ráði var að hafa einn- ig sams konar deild á ísafirði, en þáttaka reynddst ekki nægjan- leg. Einstæðir foreldrar skólanum á isafiröi í vetur MIKIL FAGNAÐARLÆTI Skólastjóri gat þess í setning- ■raœðu sinni, að aukin aðsókn s.l. baust og núna yili miklum erfið- leikum vegna rúmleysis og slæmr- ar kennsluaðstöðu, sem enn hefði ekki fengizt ráðin bót á. Einkum er alM tækjakennslu þröngur stakkur skorinn, svo að hin nýju kennsAutæki, sem skólinn hefur eignazt á seinni ánim, koma elkki að fnRum notum við kennsluaia. Auk þess er ekkert pláss fyrir þau tæki, sem skólinn þarf að eignast f íramtíðinni og hefur þegar nokk ort fé til kaupa á. Nauðsyniegt er að bæta við tækjakost skólans, ef fylgjast á með beirri þróun. sem orðið hefur við sams konar steöla erlendis og við eigum að geta veitt okkar nnmendum hlið- stæða menntun og þeir skólar veista. Það er ekki oft, að íslenzkir leikhúsgestir rísi úr sætum sín- um að lokinni sýningu og hrópi Húrra, húrra, bravó, bravó. En þetta gerðist eftir sýningu Skot- anna á Albert Herring s.l. fimm- tudagskvöld og er það mijög sjald gæft að slikt gerist hér. Fagnað- arlæti voru svo mikil að húsið ætla'ði að rifna af lófaklappi og hrópum ánægðra Jeikrúsgesta. Þjóðleikhúsið var þétt setið og mikil gleði ríkti hjá leikhúsgest- um. Að sýningu lokinni þakkaði þjóðleikhússtjóri gestun '.m fyrir komuna, en óperustjórinn Peter Hemmings þakkaði fyrir hönd Skotanna og mælti á íslenzku. Eins og fyrr segir verða sýning- ar aðeins fjórar og verður síðasta sýningin á sunnudag kl. 15. Myndin var tekin að lokinni sýningu á fimmtudagskvö:d. 35 nemendur veröa í mennta- Nefnd til að undirbúa við- urkenningu fslands á D.D.R. Hinn 1. október s.i. var hald- inn undirbúningsstofnfundur nefnd. ar, sem hefur það markmið að vinna að viðuirkenningu Islands á Þýzka Alþýðulýðveldinu. Formað- ur hennar er til bráðairgða Sig- urvin Einarsson aiþingismaður. Tilgangur nefndarinnar er sá að vinna að eðlilegurn samskipt- um íslands og D.D.R. í því skyni mun nefndin safna vitneskju um vandamál þýzku ríkjanna og gera tillögur um ráðstafanir, sem stuðl að geta að eðlilegum samskiptum fslands og D.D.R. Lokatakmarkið er full formleg viðurkenning á D.D.R. Meðal verkefna, sem nefndin ætlar sér að vinna að eru þessi: Aukin menningarsamvinna milili fslands og D.D.R. Komið verði á fót opinbeirum verzlunarskrifstofum. Komið verði upp ræðismanns- skrifstofum. ísland og D.D.R. geri viðskipta- samninga sín á milli. Stuðlað verði að aukinni sam- vinnu fé'lagasamtaka á fslandi og í D.D.R. Aukin verði gagnkvæm kynni menntamanna, listamanna, stjórn- málamanna o. s. frv. Ríkin skiptist á þingmanna- sendinefndum. íþróttasamskipti varði aukin. Tekin verði upp samvinna um tækniþekkingu milli íslands ag D.D.R. Þannig yerði í áföngum stefnt að því, að ísland viðurkenni D.D.R. að fullu samkvæmt ákvæðum al- þjóðaréttar. Framhaldsstofnfundur nefndar- innar verður haldinn á næstunni. Prestskosning í Grensáspresta- kalli á morgun A morgun, sunnudaginn 4. októ ber, fer fram prestskosning í Grensásprestakalli í Reykjavik. Einn umsækjandi er um presta- kallið, séra Jónas Gíslason, sem á undanförnum árum hefur gegnt prestsstörfum fyrir íslenzku kirkj una í Kaupmannahöfn. Kosning feir fram í nýbyggingu Grensássafnaðar við Háaleitis- braut og verður kjörstaður opinn frá kiukkan 10.00 til 19.00. Varð- andi mörk Grensássóknar vísast til auglýsinga í dágblöðum hinn 29. og 30. september. Bygging safnaðairheimilis Grens ássóknar er nú í fokheldu ástandi. Þótt byggingin sé ekki lengra á veg komin, lagði sóknarnefnd safn aðarins til, að kosning færi fram í henni til þess að gefa sóknar- börnum kost á að kynna sér by.gg ingaframkvæmdir um leið og þau greiða atkvæði. Fjárskortur hefur komið í veg fyrir, að æskilegur hraði væri á byggingaframkvæir.-dum. Til þess að afla nokkurs fjár til frekari framkvæmda gengst sóknarnefnd- in fyrir merkjasölu í dag, laug- arda-g frá kl. 14.00 til 18.00. inn- an sóknarinnar og rennur ágóðí af henni til byggingasjóðs safn- aðarheimilisins. Sóknarnefndin mælist eindreg- ið til þess, að þátttaka í prests- kosningunni á morgun verði sem almennust og væntir þess, að sóknarbörnin leggi góðu máli lið. með því að kaupa merki tiil ágóða fyrir byggingasjóð safnaðarhelm- ilisins.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.