Tíminn - 03.10.1970, Side 3
LffÐCARÐACFCR S. ofctóber 197»
TTMÍMN
AVIÐA
Myndin sýnir nýju drátfarbrautina í Ytri-NjarSvík. Tii vinstri á henni sést bryggjan, sem skipin leggjast að áður en þau eru tekin upp í brautina.
Það er m.s. Hamravík sem þarna er, en hún er fyrsta skipið sem tekið er upp í nýju brautina, og er nú nýlokið við að mála hana.
(Tímamynd Gunnar)
Sex hundruð tonna dráttarbraut í Njarðvík tekin í notkun
EB—Reykjavík, föstudag.
Nú er lokið fyrsta áfanganum
við byggingu nýrrar dráttarbraut-
ar í Ytri-Njarðvík, á vegum Skipa
smíðastöð Njarðvíkur h.f. Var
þessi fyrsti áfangi formlega
vígður í dag.
Þessi nýja dráttarbraut mun
geta tekið á móti bátum allt að
600 tonnum og 40—50 metra að
lengd. Hefur Suðumesjamenn
lengi skort slík dráttarbraut.
Eldri dráttarbraut skipasmíða-
stöðvarinnar er 150 tonna og verð
ur hún enn í fullu gildi, fyrir
smærri báta.
Fyrirtækið hóf starfsemi í Ytri-
Njarðvík vorið 1946 með byggingu
smíðahúss og 150 tonna dráttar-
brautar. með stæðum fyrir 7
báta. Hefur viðgerðarþjónusta ver
ið aðalverkefni fyrirtækisins, og
vaxið mjög á síðustu árum. Fyrstu
árin voru starfsmenn skipasmíða-
stöðvarinnar 15—20 talsins, en
eru nú um 70.
>að var 1964 sem félagið hóf
undirbúning að byggingu stærri
dráttarbrautar, bvj fyrirsjáanlegt
var. áð gamia brautin gat ekki
fuillnægt þjónustu stærri fiskibáta,
sem fjölgaði mjög á þessum tíma.
— A miðju ári 1965 gaf ríkis-
stjórnin fyrirheit um stofnlán
gegnum framikvæmdalánaáætlun
ríikisins, og Landsban'ki íslands
tók að sér ábyrgðir og lánafyrir-
greiðslu gegn veði í eignum fé-
lagsins, og þar með opnuðust
möguleikar til áð gera samning
við pólska fyirirtækið Cekop, um
smíði dráttarvagns og tilheyrandi
tækja ásamt frumdrögum að skipu
lagi og áætlun um byggingu mann
virkja í 3. áföngum. í fyrsta
áfanga var gert ráð fyrir 600
tonna dráttairbraut með 8 hliða-
stæðum og eru 2 þeirra nú full-
búin. I 2. áfanga var gert ráð fyr
ir aðstöðu til að framkvæma flokk
unarviðgerðir stálskipa, og í 3.
áfanga var gert ráð fyrir stál-
skipasmíði. Sagði Bjarni Einars-
son formaður stjórnar skipasmíða-
stöðvarinnar, að ekki væri hægt
að segja um það enn, hvenær haf-
izt yrði handa við annan áfang-
ann.
Verkfræðistofa Sigurðar Thor-
oddsen og Jóhann Indriðason raf-
verkfræðingur, hafa annazt verk-
fræðiþjónustu við mannvirkið,
og Jóhannes Guðmundsson verk-
Pramhald a 14 sjðu
Verzlunar- og umferöamál Fossvogs-
hverfis í hættulegum ólestri
Miklar umræður í borgarstjórn um málið
AK, Rvífc, föstudag.
„Borgarstjórn telur nauðsyn-
legt, að aukið verði frá því sem
nú er öryggi gangandi vegfar-
enda, sem leið eiga yfir Bústaða-
veginn og óskar eftir að umferða-
nefnd geri tillögu um tiltækar ör-
yggisráðstafanir til borgarráðs og
borgarstjórnar".
Þessa tillögu bar Kristján Bene
diktsson, borgarfulltrúi Fram-
sóknarflokksins. fram í borgar-
stjóm Reykjavíkur í gær eftir
allmiklar umræður um öryggis-
leysi gangandi fólfcs, einkum
barna við Bústaðaveginn, og borg
arstjóri bætti við tilmælum til
umferðarnefndar um tillögur í
málinu. Þannig var tillagan sam-
þykkt samhljóða í borgarstjórn-
inni.
Á þessum borgarstjórnarfundi
bar Kristján Benediktsson fram
eftirfarandi fyrirspurnir til borg-
arstjóra:
1. Hvað líður undirbúningi að
byggingu verzlunarhúsa í
Fossvogshverfi?
2. Telja borgaryfirvölu, að nægi
lega sé gætt öryggis barna
og annarra íbúa í Fossvogs
hverfi, sem daglega og oft
á dag þurfa að fara yfir Bú-
staðaveginn til að komast í
skóla og verzlanir?
Geir Hallgrímsson. borgarstjóri,
viðurkenndi í svari sínu, að hvergi
nærri væri nógu vel séð enn fyr-
ir verzlunarþörf neytenda í Foss-
tnrwoclwArfi op hvwirn/ nnnðsvn-
legra verzlunarhúsa hefði dreg-
izt um of. í því sambandi sagði
hann, að ekki hefði fengizt um-
sækjandi nema að annarri þeirri
verzlunarlóð, sem skipulagið gerði
ráð fyrir í hvenfinu. Verzlunar-
lóðum hefði þó verið úthlutað i
hverfinu áður er, bygging íbúðar-
húsa hófst almennt. en þrátt fyrir
eftirgangsmuni hefðu enn engar
fra-mfcvæmdir hafizt við byggingu
verzlunarhúsanna, meira að segja
verið slkipt um byggingaraðila á
annarri, en enginn umsækjandi
fengizt að hinni. Þá væri einnig
upp risin deila um stærð verzl-
unarhússins og væri verið að leit-
azt við að koma á sættum.
Um umferðaröryg'gið þarna
sagði borgarstjóri, að aldrei væri
unnt að fullyrða, áð slíkt öryggi
væri nóg og í Fossvogshverfi
væru sérstakar tímabundnar að-
stæður, þar sem börn yrðu að
fara yfir Bústaðaveginn í skóla
og fólfc í verzlanir Umferðin
þarna væri miklu meiri um
þessar mundir vegna yfirstand-
andi tengingar vega við Breið-
holtshverfi. Þó taldi borgarstjóri,
að ýmislegt hefði verið gert þarna
tii þess að auka öryggi, og rætt
hefði verið um, hvort rétt væri
að hafa þarna stöðuga vörzlu, en
erfitt í framkvæmd og ekki orð-
ið af._
Kristján Benediktsson þakkaði
svör borgarstjóra og bent.i á. að
þau sýndu að verzlunarmálin í
Fossvoeshverfi va-ru í aigern öng-
þveiti, og engin verzlun komin
þar, þótt verzlunarhús hefði átt
að vera komið þar í febrúar 1970.
Nú væri komið í ljós, að lóðar-
hafar hefðu gefizt upp, og vafa-
laust væri að einhveirju leyti um
að kenna verulegum mistökum í
skipuilagi og mundu þeir, sem
bezt þekktu til telja örðugt að
hafa þarna verzlunarrekstur, og
hlyti sú spurning að vakna, hvort
hið sterka kaupmannavald hefði
ekki í hyggju að reisa verzlanir
í þessu stóra hveirfi. Þarna yrðu
borgaryfirvöld hins vegar að hafa
einhver úrræði, svo að mistök
þessi bitnuðu 'ekki allt of þungt
á íbúunum, og yrði þá að hugsa
til einhverra bráðabirgðaráðstaf-
ana.
Um umferðarmálin sagði Krist-
ján, að svör borgarstjóra sýndu
glöggt, a.ð þarna væri öngþveitis-
ástand og alveg sérstakar og
hættulegar aðstæður sem ekki
yrðu taldar eðlilegar. Öryggisráð-
stafanir yrði að miða við bað.
Börn yrðu að fara yfir stórhættu-
legan Bústaðaveginn oft á dag í
skóla eða verzianir fyrir heimili
sín. Ég tel, að borgaryfirvöld
þurfi að gera þarna sérstakar ör-
yggisráðstafanir, einkurn vegua
litlu barnanna. meðan svona stend
ur um skólamál og verzlunarmál
þessa hverfis, sagði Kristján. Hann
bar síðan fram áðurgreinda til-
lögu, sem samþykkt var sam-
hljóða.
Guðmundur Þórarinsson, boirg-
arfulltrúi Framsóknarflokksins,
ræddi þessi mál einnig og kvað
þau mistök sem þarna hefðu orð-
ið í skipulagsmálum vafalítið örð
ug viðfangs, en þegar svona hefði
til tekizt yrði að athuga það
gaumgæfilega, hvort ekki þyrfti
að leyfa og stuðla að bráðabirgða-
verzlun á svæðinu til þess að
leysa þarfir íbúanna, því að aug-
ljóst væri, að við þetta væri ekki
unandi til langframa.
Kosið í skólanefndir S
í borgarstjórn
AK, Rvik, föstudag. — í lok
borgarstjórnarfundar í gærkvöldi
var kjörið í skólanefnd Iðnskól-
ans í Reykjavík til fjögurra ára
og hlutu bessir kosningu:
Af B-lista Guðbjartur Einars-
son og Sigurður Guðgeirsson.
Af D-lista Björgvin Frederrik-
sen og Ólafur Jónsson Til vara
voru kjörnir af B-lista Óðinn Rögn
valdsson og Sigurður Magnússon
og af D-lista Hilmar Guðlaugs-
son og Gissur Sigurðsson.
Þá var einnig kjörið í skóla-
nefnd Húsmæðraskóla Reykjavík-
ur og hlutu kosningu Guðrún
Hjartar af B-lista og Anna Guð-
mundsdóttir af D-lista, en til vara
Solveig Alda Pétui-sdóttir af B-
lista og Hulda Valtýsdóttir af
D-lista.
Flúormengunin
Flúormengunin í Hafiiarfirði
og niðurstö'ður rannsókna Ing-
ólfs Davíðssonar, grasafræð-
ings, hafa verið áðal umræðu-
efni manna tvo síðustu daga.
Hér er um stórmál að ræða,
sem allan almenning varðar og
umræður manna á meðal hafa
sýnt það, að fólk lætur sig
þessi mál miklu skipta og vill
að beitt verði ýtrustu varúð-
arráðstöfunum til varnar meng
un. Finnst mönnum það sjálf-
sagt að bíða ekki eftir neinum
varanlegum sköðum í þeim
málum og skynsamlegra að
byrgja brunninn áður en barn-
ið er dottið ofan í hann. Þess
vegna finnst mönnum tilraunir
opinberra aðila til að draga í
efa niðurstöður rannsókna
Ingólfs Davíðssonar ekki í sam-
ræmi við þann almenningsvilja
að bægja frá hvers konar hætt
um á mengun, litlum sem stór
um.
Að gefnu tilefni skýrir Ingólf
ur Davíðsson, grasafræðingur,
málið nokkru nánar á öðrum
stað í Tímanum í dag.
Það hefur einnig af skiljan-
legum ástæðum þótt hæpin
skipan mála, að þeir menn ís-
lenzkir, sem skipaðir hafa ver-
ið í rannsóknairnefnd til að
fylgjast með mengun frá álver-
inu ásamt fulltrúum skipuðum
af forstöðumönnum álversins,
skuli sitja þar á launum frá ál-
verinu sjálfu — eða á launum
hjá þeim aðila, sem mesfra hags
muna hefur að -gæta að rann-
sóknir sýni sem minnsta meng-
un, þannig að komizt vcrði hjá
kostnaði við að setja upp all
dýr hreinsunartæki. Með þess-
um orðum, er ekki verið að
varpa neinni rýrð á þá menn,
er í þessari nefnd sitja eða
væna þá um eitt eða annað
þeim til hnjóðs — enda aug-
Ijóst öllum, að ekki bera þeir
ábyrgð á þessari skipan mála —
heldur er aðeins verið að
greina frá þeirri staðreynd, að
almenningi þykir þetta hæpin
skipan mála. Ábyrgð á henni
bera þeir, sem samningana
gerðu við álhringinn svissneska.
FurSuleg yfirlýsing
Þá hlýtur niðurlag yfirlýs-
ingar þeirrar, sem Iðnaðarráðu-
neytið sendi frá sér í gær og
birt er í blaðinu í dag, að
gefa mönnum fyllilega i skyn,
að opinberir aðilar séu Ingólfi
Davíðssyni, grasafræðingi, reið
ir fyrir framtak hans í þessu
máli. Niðurlag yfirlýsingar Iðn-
aðarráðuneytisins er svohljóð-
andi:
„Iðnaðarráðuneytið hefir ósk
að eftir því við Rannsóknar-
stofnun landbúnaðarins með
bréfi í dag, að hún hlutist til
um, að ráðuneytinu verði send
án tafar greinargerð Ingólfs
Davíðssonar, grasafræðings, um
undirbúning, framkvæmd og
niðurstöður rannsókna hans á
meintrj flúormengun frá álver-
inu í Straumsvík. Ingólfur
Davíðsson er starfsmaður Rann
sóknarstofnunar landbúnaðar-
ins, en tilgreindar flúorr-'nn-
sóknir ekki á hennar vegum.
,ræri þá hægt að láta meta
vísindalegt gildi þeirra, en í
fjölmiðlum hafa miklar full-
Pramhald á bls. 14