Tíminn - 03.10.1970, Page 4
4
TIMINN
LAUGARDAGUR 3. október 1970
Ný aSfer'ð við losun og lest-
nu á tilbúnum áburði.
Áður fyrr tók það nokkra
daga að losa og lesta skip með
1000 lestum af tilbúnum áburði
í pokum. Þetta er nú gert á
4 tímum. Norsk Hydrol hefur
afhent danska áburðarfyrirtæk
inu farm af áburði, sem flutt
var með sérbyggðu skipi, nafn
þess er m.s. Knardal. Skipið er
lestað með hrelum sem taka 30
pk. hvert og vigtar hver poki
50 kg. Skip þetta er með hlið-
aropi sem leggst niður á
bryggjuna svipað og brú.
Sem nýjung er um borð í m.s
Knardal sérbyggður „trukkur",
sem getur snúið pallinum með
pokunum þannig að pallurinn
kemur efst á vörubílinn er flyt
ur pokana. „Trukkurinn" tekur
pallinn með sér urn borð aftur,
þar sem bílarnir aka aðeins
með áburðinn burtu.
Norsk Hydrol upplýsir meðal
annars að næsta skrefið verði
að hverjir 30 pokar á grind
verði með sérstökum plastbelg
svo hsegt sé að skilja áburðinn
eftir á akrinum hjá bændum.
M.s. Knardal er eitt af þeim
skipurn með þessum útbúnaði
sem Norsk Hydrol hefur pant-
að. Margar tilraunir voru gerð
ar áður en þessi var talinn
heppilegust, með losun og lest-
un.
Blix-botnvarpan
í norska blaðinu „Fiskaren"
segir frá nýjung í vörpugerð.
Vel heppnuð tilraun fyrir ut-
an Finnmerkurströndina hefur
leitt í ljós að Blix-varpan hef-
ur staðizt allar vonir er upp-
finningamaðurinn frá Grylli-
fjörd gerði sér um notagildi,
botnvörpu þá er hann hef*r
unnið að árum saman.
Við tilraunina hefur varpan
breitt vel úr sér og möskvar
hennar staðið opnir eins og
gert var ráð fyrir. Fengizt hef-
ur mikill afli í vörpuna, sem er
ein ctærsta varpa sem nokkurn
táma hefur verið búin til, en er
þó svo létt í drætti að meðal-
kraftmikil skip geta auðveld-
lega notað hana með fullum
afköstum.
Einn íslendingur hefur skrif
að um breytt troll árum sam-
an og einmitt vakið athygli á
opna möskvanum í drætti.
Ekki hef ég getað náð táS
af Sigfúsi Magnússyni og spurt
hann hvort hér sé á ferðinui
eitthvað í líkingu við það, sem
hann ætlaðist til með sínum tð.
raunum, en hann hefur manna
mest skrifað um þessp hluti og
haldið því fram að hægt væri
að búa til vörpu með þeim
hætti, sem hér hefur verið tal
að um.
Ingólfur Stefánssoo.
Iðnskólinn í Reykjavík
Ennþá getum við útvegað ZETOR gerð 3511 — 40 hestafla dráttarvélarnar
á sama verði og áður, til afgreiðslu fyrir eða eftir áramót.
Það er ekki oft að mikil gæði og lágt verð fara saman, en það býður
Zetor dráttarvélin yður. Það geta fjölmargir eigendur Zetor vélanna stað-
fest. Þess vegna er Zetor ein mest selda dráttarvélin/í ár.
Tryggið yður Zetor vél á lága verðinu með því að hafa samband við
okkur strax. Sparið yður um kr. 60 þúsund með því að kaupa Zetor með
fullkomnum útbúnaði.
★ ALLAR NÁNARl UPPLÝSINGAR.
ÍSTÉKK Lágmúla 5 - Sími 84525, Reykjavík.
ENNÞÁ ER TÆKIFÆRS
Á SAMA LÁGA VERÐINU —
AÐEINS UM KR. 175 ÞÚS.
Námskeið í
tækniteiknun
1. og 3. bekkur Teiknaraskóla Iðnskólans í Reykja-
vík verða starfræktir í vetur, ef næg þátttaka fæst.
Innritun fer fram í skrifstofu skólans, á venjuleg-
um skrifstofutíma, og lýkur föstudaginn 9. okt.
n.k.
Námsgjald kr. 1.000,00 fyrir 1. bekk og kr.
2.500,00 fyrir 3. bekk, greiðist við innritun.
SKÓLASTJÓM.
1 x 2 — 1 x 2
(28. leikvika — leikir 26. sept.)
Úrslitaröðin: 211 — xxx — xll 1 — 111
11 réttir: Vinningsupphæð kr. 187.500,00
Nr. 34432 (Reykjavík)
10 réttir: Vinningsupphæð kr. 20.100,00
Nr. 19358 (Reykjavík — nr. 27376 (Kópavogur)
— nr. 30342 (nafnl.) — nr. 31305 (Reykjavík)
Kærufrestur er til 19. október. Vinningsupphæð-
ir geta lækkað, ef kærur reynast á rökum reistar.
Vinningar fyrir 28. leikviku verða sendir út eftir
20. október.
Handhafar nafnlausra seðla verða að framvísa
stofni eða senda stofninn og fullar upplýsingar
um nafn og heimilisfang til Getrauna fyrir
greiðsludag vinninga.
GETRAUNIR — íþróttamiðstöðin — REYKJAVÍK
Land hins eilifa sumars.
Paradis þeim, sem leita hvildar og
skemmtunar.
Mikil náttúrufegurð, ótakmörkuð sól
og hvítar baðstrendur.
Stutt að fara til stórborga Spánar.
italíu og Frakklands.
Eigin skrifstofa Sunnu í Palma, !-
með islenzku starfsfólki.
FERÐASKRIFSTOFAN SUNNA
sunna
sunna
cTWALLORKA
_ CPAR&DÍS
<J0RÐ
BANKASTRÆTI 7. SlMAR: 16400 12070